Morgunblaðið - 15.08.1976, Side 39

Morgunblaðið - 15.08.1976, Side 39
MORGL'NBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 15. AGUST 1976 39 Oddfríður S. Jóhanns- dóttir — Kveðjuorð „Og vinir þínir sáran syrgja nú. og saknads-tárum væta moldir þínar. 1 brjóstum þeirra bústað áttir þú. þar býr og minning þín unz Kfið dvfnar. því hjarta þitt var hreint og laust við tál; það hlaut að draga að sér hverja sál.“ Við andlát og greftrun frú Odd- fríðar Jóhannsdóttur rifjaðist upp fyrir mér þetta hugljúfa er- indi úr ljóði eftir skáldkonuna Úndínu, er hún mælti fram við gröf vinkonu sinnar fyrir hartnær 93 árum. Kynni okkar frú Oddfriðar hóf- ust fyrir réttuín áratug, er ég heimsótti heimili þeirra hjóna, Guðmundar R. Oddssonar for- stjóra og hennar, að Öldugötu 50 í fyrsta sinni. Allur heimilisbragur og andrúmsloft hlaut að hrífa litt kunnugan gest. Snyrtileg híbýli og hlýjar orðræður um menn og málefni urðu mér lærdómsrik, og hljóta að geymast í minningunni. Síðar sannfærðist ég um, að hug- hrifin, sem ég naut í $vo ríkum mæli á heimili þeirra hjóna, dofn- uðu siður en svo, þó að ég væri þar ekki tíður gestur. Frú Oddfríður var friðleiks- kona fram á efri ár og elskulegur persónuleiki hennar dvínaði eigi, þótt árunum fjölgaði. Hugur hennar var ætið bund- inn ættingjum og vinum og nán- asta skylduliði, að ógleymdum öll- um þeim, sem um sárt áttu að binda eða á einhvern hátt voru olnbogabörn tilverunnar. Frú Oddfríður batzt strax á yngri árum heilbrigðu líknar- starfi innan samtaka Hvíta bands- ins, og starfaði í þeim hollu líknarsamtökum af alhug og hjartagæzku allt til hinztu stund- ar. Ótalin verða hér öll störf hennar í þágu hinna minnst meg- andi í þjóðfélaginu og samúð hennar með hinum hrjáðu og smáðu. Góðverk hennar og eigin- manns hennar var aldrei haft hátt um — enda þeim hjónum báðum sameiginlegt áhugaefni, að þeirra væri sem minnst eða alls ekki getið opinberlega. Ég hef I huga, þegar þessi fátæklegu orð mín eru fest á blað, ummæli mágkonu hennar, sem naut vináttu hennar og kynna um áratuga skeið. Hún lét eitt sinn svo ummælt í orðræðum við mig, að hún hefði aldrei kynnzt slíkri ágætiskonu, persónuleika hennar væri þann veg farið, að hún ætti naumast nógu sterk orð til að lýsa mannkostum Oddfríðar. Frú Oddfríður var einlægur verkalýðssinni. Hún starfaði um áratugi að framgangi jafnaðar- stefnunnar og átti lengi sæti í stjórn Kvenfélags Alþýðuflokks- ins, auk starfa hennar í þágu Alþýðuflokksins almennt. Þessi fáorða mannlýsing verður að nægja frá minni hendi. Ætt hennar og uppruni hefur þegar verið rakinn í Öðrum blöðum, og afkomenda hennar þar getið, sem nú eiga sárast um að binda. — Ég færi þeim öllum alúðarfyllstu samúðarkveðjur mínar og konu minnar, en ekki sízt eiginmanni hennar, sem misst hefur ástkær- an lífsförunaut og stoð og styttu á vegferð lífsins. Blessuð sé minning Oddfriðar. Agúst Guðmundsson. Peningamenn Sá sem getur lártað 1 . millj. getur fengið háa vexti greidda.í erlendum gjaldeyri. Farið verður með tilboð sem trúnaðarmál Tilboð sendist Mbl. merkt: Skjótt — 6407" eúsJ°Æ "^Funabofði ,\ ^ r—J CTT, \t ' r. I hyjjíIÍSíS WB i r liðshöfði Hamarshöfð« Dvergshöf ði Vagnhöfði 1 Tangarhöfði 1 .^3 Bfldshöfði Artúnsbrekka Esso 1 Arbæjarhverfi Vió erum fíutt ínýtthúsnæði að FUNAHÖFDA 19 Verið velkomin á nýja staðinn og kynnið yður STAR-innréttingarnar vinsælu ásamt SCADANIA inni- og útihurðum. Lágt verð - sænsk gæði. STAR-SKÁPA í ALLT HÚSIÐ eru okkar einkunnarorð. BÚSTQFN h/f, Funahöfði 19, Reykjavík símar 81663 — 81077

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.