Morgunblaðið - 15.08.1976, Page 46

Morgunblaðið - 15.08.1976, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. AGUST 1976 ó tkiklínu Háskólabíó POSSE ★ * Bandarfsk frá 1975. Para- mount. Leikstj. og framl. Kirk Dougias. Þaö er ánægjulegt að sjá gömlu kempuna Kirk Douglas aftur í fullri reisn og með fyrri virðuleika. Þessi ágætisleikari var á sínum tíma mikið goð erí einhvern veginn fór það svo að i dag er hann flestum gleymd- ur, þegar honum svo skýtur upp í þessum ágæta vestra, sem hann jafnframt leikstýrir með prýði. Innihaldið hefur áður verið rakið hér; handritið er þjált og vel skrifað og mun dýpra en yfirleitt gerist í vestrum. Mynd- in er einkar vel leikin af hinum þrem aðalleikurum myndarinn- ar, Douglas, Bruce Bern og Bo Hopkins. Það er ánægjulegt að fylgjast með þeim síðastnefnda, hlutverk hans fara batnandi og stækkandi með hverri mynd, gem hann leikur í. Myndataka Fred Kohenkamp (OSCARs- verðlaunin fyrir PATTON og THE TOWERING INFERNO) er einkar falleg og „slow motion“ nokkrum sinnum not- uð með góðum árangri. Þetta er óvenjuleg og góð mynd, sen enginn sannur vestravinur ætti að láta fram hjá sér fara. AUSTURBÆJARBÍÓ PÉTUR RlKHARÐSSON I STUÐI. ÆÐISLEJ NÓTT MEÐ JACKIE („Le moutarde me monte au nez!“) ★ ★ Frönsk frá 1975. Handrit og leikstjórn: Claude Ziti. Kvik- myndataka: Henri Decae. Minnugur þess að ég-lét hina bráðskemmtilegu frönsku gam- anmynd, LES VALSUSES, næstum framhjá mér fara (sá hana af tilviljun I Keflavík á dögunum), þá brá ég skjótt við og barði augun núverandi að- dráttarafl Austurbæjarbíós, „Æðisleg nótt með Jackie". Enda er yfirbragð myndanna ekki ósvipað, a.m.k. ef farið er eftir auglýsingu bíósins. Þær eru sér kafli út af fyrir sig og nauðsyn ber til að þær fari að hressast við, enda hefur maður séð ágæta tilburði I þá átt. En betur má ef duga skal. Því gömlu klisjurnar stinga mann ætíð I augum þegar rennt er yfir bfóauglýsingarnar. Þess- vegna er sjálfasgt fleirum en mér þannig farið að trúa því varlega þegar eitthvert kvik- myndahúsið auglýsir „gaman- mynd I sérflokki sem allir ættu að sjá“ og þegar svo þar að auki, svona til að kóróna þessi langþreyttu slagorð, þá er myndin frönsk. Sannleikurinn er nefnilega sá að á undanförnum árum hafa franskar gamanmyndir ekki verið neinar afburða skemmtanir. En sökum LES VALSUSES (sem á köflum kom mér hreinlega til að gráta af hlátri), og svo þess að hinn stórkostlegi gamanleikari Pierre Richard (sem sló í gegn í myndinni THE BIG BLOND MAN IN ONE BLACK SHOE og var ein besta gamanmynd frakka um langt skeið) fer með aðalhlutverkið, þá kveið ég engu þegar ég settist niður í bíóinu — og varð heldur ekki fyrir neinum vonbrigðum. I stuttu máli, þá er „Æ.n.m.J." bráðskemmtilegur farsi, sem franskir eru manna lagnastir við að hræra saman úr ólíklegustu atvikum og uppá- komum. Svo virðist vera sem fransmenn séu búnir að breyta um stefnu í gerð gamanmynda; varpa fyrir róða Luis des Funes og hans nótum og farnir að gera skemmtimyndir sem kafna ekki undir nafni. Og er það vel. ÁGENGNI Á MELÓNU- EKRUNUM TÓNABÍÓ MR. MAJESTYK ★ Bandarfsk frá 1974. U.A. Tónlist: Charles Bernstein. Leikstjóri: Richard Fleischer. Söguþráðurinn í MR. MAJESTYK er að vísu bæði furðulegur og með ólíkindum, en tæpast þó eins miklum og auglýsingin gefur til kynna: „... Myndin fjallar um melónu- bónda sem á i erfiðleikum með að ná inn uppskeru sinni vegnaágengni leigumorðingja ...“ Ekki vissi ég til þess fyrr að leigumorðingjar væru svona vitlausir í nýtfndar melónur ..,. Og Majestyk snýst á móti þessum vágesti líkt og korn- bændur austur á Héraði gegn gæsinni og öðrum varg og þurrkar rykið af drápstólum sínum og snýst til varnar. Myndin er einmitt sniðin að þessum gamallega hörkukar- akter, Charles Bronson, sem sjaldan hefur verið ljótari og illmannlegri en I þessari mynd og er þá mikið sagt. Reynt er að byggja upp stígandi I myndinni sem endar svo með sprengingu, líkt og í STRAW DOGS Peckin- pah, en því fer bara fjarri að Fleischer komist með tærnar, þar sem að Packinpah hefur hælana. Aðalveikleikar myndarinnar eru að ofbeldið er látið sitja I öndvegi, öll persónusköpun með eindæmum fátækleg og efnisþráðurinn oft um of ósennilegur. En það skiptir sjálfsagt ástríðufulla ofbeldis- unnendur litlu máli, en fyrir þá eina er MR. MAJESTYK gerð. HARRY OG TONTO ★★★★ NÝJA BÍÓ Amerfsk frá 1974. 20th Century-Fox. Leikstj. Paul Mazursky. Þar sem efni myndarinnar hefur veriðTakið hér á síðunni, og um hana farið lofsamlegum orðum, er ekki svo miklu við að bæta. Ég vil þó benda fólki á að H & T er einfaldlega ein besta mynd sem sýnd hefur verið hérlendis langa lengi. Hún er svo manneskjuleg og gerð af svo jákvæðu hugarfari að manni hnykkir við eftir allt of- beldið og djöfulskapinn sem i dag veður uppi í flestum mynd- um. Handritið er frábærlega skrifað af Mazursky, persónur allar skýrt mótaðar i fáum dráttum. Tekist er á við við- kvæmt þjóðfélagsvandamál — kynslóðabilið. Og myndin sýnir hversu auðveldlega mætti bæta úr því ef fólk væri almennt örlitið jákvæðara i viðhorfi sínu til lífsins. Harry er ógleymanlegur karakter, mann- legur, úrræðagóður, fyndinn og snjall. Art C;rney gerir honum stórkostleg skil. Annars er þessi mynd öll svo vel leikin og manngerðirnar svo vel valdar í hlutverkin að slíkt er með ein- dæmum. H & T býr yfir þeirri fegurð og boðskapur hennar er svo já- kvæður að hún ætti að orka á flesta áhorfendur eins og vítamínsprauta. Ekki síst er þetta mynd fyrir eldra fólk. Það er nefnilega svo mikið eftir þó fólk sé komið á sjötugsaldur- inn ... KVIKMYNDAVIÐ- BURÐUR STJÖRNUBlÓ THE LAST DETAIL ★★★★ Bandarisk frá 1973. Columbia. Leikstj. Hal Ashby. Til eru þær gerðir mynda sem afhjúpa sneijima meiningu sína af snilli og fimleika sem vekur bæði áhuga okkar og var- kárni. Á meðan maður nýtur slíkrar myndar er meginspurn- ingin ekki sú, „hvað skeður næst?“ heldur „skyldu þeir klúðra henni?“ Nokkur dæmi um slíkar myndir sem hafa heppnast fullkomlega eru THE GUNFIGHTER, THE AFRICAN QUEEN, THE DÉFIANT ONES og hin nýj- asta er THE LAST DETAIL. En þrátt fyrir að T.L.D. sé oft- ast bæði fyndin og hressileg, er mjög villandi og fráleitt að álita hana gamanmynd. Handrit Robert Towne er byggt ásögu Darryl Poniscan, og hún nokkuð betrumbætt. Tveir atvinnusjóliðar fá það verkefni að flytja i varðhaldi nýliða í sjóhernum frá herstöð flotans I Norfolk í Viginíu til fangelsis sjóhersins í Ports- mouth í New Hampshire. Myndin fjallar því um þrjá menn á ferðalagi og um leið og manni skilst það, veit maður að þetta er táknmyndafull kvik- mynd með yfirtón. Þetta ástand i er fjarri því að vera nýtt af nálinni, fjölmargir vestrar hafa fjallað um álíka atburði; sýslu- maður á ferðalagi með fanga sem hann þarf að koma undir réttvísina og í sameiningu þurfa þeir að þjást og mæta aðsteðjandi hættum. En T.L.D. ber af flestum hinna því dramað helst óslitið út alla myndina. Handritið end- ar nákvæmlega eins og til var stofnað i upphafi, ekkert er fegrað. Kvölin og angistin stafa af þeirri staðreynd að þrátt fyr- ir freistingar til þess að fara út af stefnunni heldur handritið áfram þangað sem því var ætlað í upphafi — inn I raunveruleik- ann, vanann, óttann og undir- gefnina. Utkoman verður því ekki kaldhæðnisleg, heldur blá- kaldur raunveruleikinn. Jack Nicholson er hinn eldri Shore Patrol tvímenninganna, og hefur hann sjaldan eða aldrei verið betri en í túlkun sinni á þessum hr. ekki neitt. Enda hlaut hann gullverðlaun í Cannes ’74 fyrir leik sinn í myndinni. Hinn leikarinn er svartur, Otis Young, en hann lést skömmu eftir að myndatök- unni lauk og er mér ókunnugur úr öðrum myndum. Fanga þeirra leikur Randy Quaid, stórvaxinn náungi, sem oft hef- ur brugðið fyrir I öðrum mynd- um. Nicholson hefur boðið hon- um hlutverk í að minnsta kosti tveimur myndum eftir að þeir léku saman í þessari. Pilturinn framdi þann hryllilega „glæp“ að gera tilraun til þess að stela fjörutlu dölum úr söfnunar- bauk aðmlrálsfrúarinnar I her- stöðinni, hlaut fyrir átta ára dóm og brottrekstur úr hernum — með skömm. En slíkt er ekk- ert gamanmál að burðast með á pappírunum I þeim löndum, sem er herskylda. Upphaflega ákveður Nichol- son að flýta ferðinni sem mögu- legt er, svo þeir félagarnir geti slappað ærlega af á eftir, en fimm daga fá þeir til ferðarinn- ar. En hin stöðuga nærvera piltsins, óhæfa refsingarinnar, vanmáttur hans við að hafa stjórn á lífi sínu og reynsluleysi piltsins á svo gott sem öllum sviðum auk næstum hundslegr- ar virðingar hans fyrir varð- mönnum slnum, allt hefur þetta fyrirséð, en snoturleg meðhöndluð áhrif. Og I stað þess að hraða för þeirra slæpist Nicholson. vill auðsýnilega veita drengnum eitthvað, svo- lítið gaman og lífsgleði áður en fangelsisdyrnar lokast að baki hans. Eitt af því er eldskírn hans I rekkjubrögðum og hlýt- ur hann þá dýrmætu lífs- reynslu I ódýru vændishúsi i Boston. Og við vonum að engin smeðjulykt verði nú af mynd- inni. Og fyrir utan hálf-bitlausa samfundi við nokkra Green- wich Village búa, sem eru við Nichiveg Soshu bænalestur, og kjánalegar ryskingar við nokkra landgönguliða "úr flot- anum, (marines), er handritið fyllilega samkvæmt sjálfu sér. Þeir flytja drenginn I fangelsið og er þeir snúa til baka ræða þeir um hvað eigi að stytta þeim stundirnar áður en komið er aftur til Norfolk. (Þetta er umbót á bók Poniscan, sem hef- ur langan, kaldhæðnislegan og leiðinlegan endi). Handritið bendir á að ábyrgð- in er alltaf einhvers staðar á flökti; sá lágtsetti kemur henni á þann æðri, sem svo aftur sendir hana rétta boðleið til baka. Sterkur undirstraumur hand- ritsins er sú ályktun, ekki ný en ætíð sönn, að hermennska sé fyrir þá sem ekki vilja halda áfram á þroskabraútinni og vera unglingspiltar allt sitt líf. Einkennisbúningur, aðallega hjá þeim lægra settu, er brynja gegn því að fullorðnast. Jack Nicholson er hér rétti leikarinn i réttu hlutverki. Harður en rómantískur, gæfur og grimmur. En svona til að finna eitthvað að, þá má segja að það eina sem er rangt við það, að hann stelur myndinni, er að handritið virðist samið með það fyrir augum. En I sam- einingu varpar hlutverkið og Nicholson töfraljóma á mynd- ina. Sem aðstoðarmaður hans er Young ekki eins áhrifamikill, viðunanlegur, en maður hefur alltaf á tilfinningunni að hann sé ekki að leika. Til að byrja með hélt ég að Quaid mundi ekki ráða við hlutverk sitt. En hann hefur útlitið með sér, og einhver allsherjarvöntun á öll- um þokka hjálpar mikið til. Leikstjórínn er Hal Ashby, sá sem gerði myndirnar THE LANDLORD, — HAROLD AND MAUDE, sem var mjög athyglisverð fyrir margra hluta sakir, og svo SHAMPOO, sem hlaut mikið lof gagnrýnenda á síðasta ári. Hér er handbragð hans ákveðið, slétt og fellt. (En hann hefði garnan mátt fylgjast betur með öðrum faþegum brautanna og vagnanna; þeir eru undarlega sinnulausir gagnvart átökum þremenning- anna.) í Portsmouth er Quaid drif- inn bak við lás og slá án þess að hafa tækifæri til þess að Framhald á bls. 37

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.