Morgunblaðið - 15.08.1976, Síða 48
AÚGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
LÝSINGASÍMINN ER:
22480
SUNNUDAGUR 15. AGÚST 1976
Góð rækjumið fundin á
stóru svæði við Sporða-
grunn og Reykjafjarðarál
Óþurrkarnir á Suður-, Vestur- og Norðvesturlandi:
Þorri bænda stendur
illa að vígi í heyskap
Einmuna heyskapartíð hefur verið
á Norðaustur- og Austurlandi
HÖFRUNGUR frá Grindavfk sem
nú er við rækjuleit úti fyrir Notð-
urlandi hefur fundið mjög góð
rækjumið á stóru svæði við
Sporðagrunn og Reykjafjarðarál.
Kom þetta fram þegar Morgun-
blaðið ræddi við Sólmund Einars-
son sjávarlíffræðing.
Sólmundur sagði að Höfrungur
hefði fengið mjög góð höl á þess-
um slóðum eða 200 til 300 kfló að
jafnaði á togtfma. Rækjan á þessu
svæði væri að vfsu svolftið mis-
jöfn en um 200 stykki færu í
kflóið að meðaltali. Aðspurður
um hvort einhver rækja hefði
fundizt úti fyrir Austfjörðum
sagði Sólmundur, að Langanes
frá Þórshöfn hefði leitað rækju
þar fyrir skömmu, en Iftið orðið
ágengt.
— Það var svo mikill kolmunni
á rækjuslóðinni, að þeir urðu frá
að hverfa. Það kom fyrir að þeir
fengu upp í 3 tonn af kolmunna í
hali, en kolmunninn virðist liggja
mjög þétt við botninn á þessum
slóðum. Rækjuleit við Austfirði
Nýr Nátt-
fari á ferli
NVR NÁTTFARI virðist vera á
ferli f höfuðborginni. Hann heim-
sótti hús eitt við Bergstaðastræti í
fyrrinótt en hvarf á braut án þess
að hafa nokkuð fémætt með sér.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar fór maóurinn
inn um svalahurð á 3. hæð húss-
ins og mátti greinilega sjá þess
merki. Fór hann þaðan inn í
svefnherbergi, þar sem ungur
maður var í þann veginn að festa
svefn. Segist þessi ungi maður
muna eftir því að hann yrti á
Náttfara, og hvarf hann þá á
braut, en ungi maðurinn sofnaði
strax, þar sem hann var þreyttur
eftir mikla vinnu.
Næst lagði Náttfari leið sfna
upp á efstu hæð hússins og bank-
aði þar á dyr íbúðar. Gömul hjón
búa í íbúðinni. Þegar komið var
til dyra spurði Náttfari eftir
ákveðinni persónu, sem ekki átti
þarna heima en hvarf sfðan á
brott.
verður því að bíða betri tima,
sagði Sólmundur.
Þá sagði Sólmundur að Langa-
nes væri nú að veiðum djúpt norð-
ur af Grímsey og hefði ekki annað
frétzt en að vel fiskaðist þar.
Sagði hann ennfremur, að eftir
ætti að kanna ýmsa staði fyrir
Suðvesturlandi, þar sem líklegt
Framhald á bls. 47
Gasolía og
svartolía
hækka um
6,6—11,2%
NVTT verð á gasolfu og svart-
olfu tók gildi f gær, og er
hækkunin á bilinu 6,6—11,2%
Gasolía til húsahitunar og til
íslenzkra fiskiskipa kostar nú
27,05 krónur lítrinn, en kostaði^
áður 25,35 krónur. Miðað er
við að olíunni sé dælt úr bíl, en
ef hún er tekin beint úr leiðslu
kostar lítrinn 5 aurum minna.
Þetta verð er án söluskatts og
er hækkunin 6,6%. Gasolía
með söluskatti kostar 32,40
krónur lítrinn en kostaði áður
30,40 krónur. Gasolía frá dælu
kostar nú 36 krónur lítrinn en
kostaði áður 33 krónur og er
hækkunin 9%.
Svartolía hækkar úr 17,080
krónum tonnið í 19,000 krónur
og nemur hækkunin 11,2%.
EGGJAVERÐ hefur farið lækk-
andi að undanförnu og er ástæðan
offramleiðsla á eggjum, að sögn
Einars Tönsberg, sem rekur ali-
fuglabú f Feffsmúla f Mosfells-
sveit. Einar sagði að eggjafram-
leiðendum hefði fjölgað að
undanförnu og miklu meira hefði
verið ungað út en áður með til-
komu stórra útungunarvéla.
ENN er ég ekki úrkula vonar um
að þurrkur komi á Suður- og Suð-
vesturlandi og takast megi að
bjarga inn heyjum bænda —
sagði dr. Halldór Pálsson, bún-
aðarmálastjóri f samtali við Mbl.
Mjög skiptir f tvö horn á landinu f
heyskaparmálum. Vestan- og
sunnanlands hefur varla gert
„Þegar ástandið er svona er of-
framleiðsla á eggjum og þá lækk-
ar verðið sjálfkrafa, því ekkert
niðurgreiðslukerfi er í sambandi
við eggjaframleiðslu. Framleið-
endur verða að gefa verzlunum og
stórum viðskiptavinum afslátt, og
er 10% afsláttur algengur um
þessar mundir. Þegar afsláttur-
Framhald á bls.47
þurrk frá þvf um mánaðamótin
júnf-júlf, en norðanlands og
austan hefur verið einmuna hey-
skapartfð og þar eru þegar komin
í hús mikil og góð hey. Hey á
óþurrkasvæðunum eru mikil, þótt
ekki hafi tekizt að hirða þar að
ráði og ef nú rætist úr og unnt
verður að heyja, er ljóst að taðan
verður léleg.
Halldór Pálsson sagði að
ástandið væri þannig að afbragðs
heyskaparsumar hafi verið í Eyja-
firði og þar fyrir austan, á Aust-
urlandi og allt vestur á Mýrdals-
sand. í Skaftafellssýslum var þó
nokkuð erfiðara en á Norðurlandi
austanverðu. Hins vegar hefur
verið með eindæmum erfið hey-
skapartíð síðan 10. júli eða um
það bil um allt vestanvert landið,
frá Múrdalssandi og allt vestur og
norður um að fjallgarðinum milli
Skagafjarðar og Eyjafjarðar. En
þar sem tækni er viðast mjög góð,
hefur þrátt fyrir fáa þurrkdaga
tekizt að ná upp miklu heyi á
sumum bæjum og eru þvi þeir
bændur allvel á veg komnir —
einkum þeir, sem gátu byrjað að
slá seinast I júní eða i júlíbyrjun
og náðist þá nokkuð af ágætu
þurru heyi. Ennfremur eru þeir,
sem hafa votheysgerð í ein-
hverjum mæli, allir vel á vegi
staddir.
Allur þorri bænda stendur hins
vegar mjög illa að vígi á óþurrka-
svæðunum. Hjá einstaka manni
horfir til hreinna vandræða. Uti
__________Framhald á bls.47
Pakkaleit
í Heiðmörk
LÖGREGLAN f Hafnarfirði fékk
f gær tilkynningu um tvo stóra
pakka, sem lágu í djúpri gjótu f
Heiðmörk. Lið var sent á staðinn
sfðdegis f gær og sigu menn niður
f gjótuna. Reyndist þetta aðeins
vera samanpakkað rusl. Þetta
dæmi sýnir, að vegna atburða sfð-
ustu missera, er fólk vel á verði ef
það sér ókennilega pakka úti f
náttúrunnf.
Eggjavcrð fer lækkandi
vegna offramleiðslu
„Sigga Vigga“ og hinar stelpurnar slappa af í kaffitímanum.
Ljósm. Friðþjófur.