Morgunblaðið - 17.09.1976, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.09.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976 13 Kosið í Svíþjóð á sunnudag Aðeins kommúnistar geta bjargað stjóm jafnaðarmanna LOKASPRETTURINN er nú hafinn í kosninga- baráttunni í Svfþjóð, kos- ið verður bæði til þings og sveitarstjórna á sunnudaginn kemur. Sjaldan eða aldrei hafa kosningar þar í landi ver- ið jafn tvfsýnar og nú en möguleikar borgara- flokkanna á að ná stjórn- artaumunum, sem f 44 ár hafa verið í höndum jafnaðarmanna, eru tald- ir meiri en nokkru sinni. Samkvæmt skoðanakönnun- um eru kosningarnar tapaðar fyrir Jafnaðarmenn. Njóta þeir fylgis aðeins um 45% kjósenda á meðan 49% styður borgara- flokkana þrjá. Rúmlega 4% kjósenda styðja kommúnista, en við þá hefur stjórn jafnaðar- manna stuðzt í þinginu undan- farið kjörtimabil. Minni flokk- ar, sem ekki eiga fulltrúa á þingi, deilda svo með sér fylgi um 2% kjósenda. En þó að útlitið sé dökkt fyrir jafnaðarmenn þá hafa þeir séð það svart áður. Er skemmst að minnast kosninganna 1973, þeg- ar þeir samkvæmt öllum skoð- anakönnunum höfðu tapað kosningunum en tókst með naumindum að halda völdum með 175 sæti I þinginu, þar á meðal þingsæti kommúnista, á móti jafnmörgum þingsætum borgaraflokkanna. Hefur þeim verið það Iagið að vera seinir f gang en ná sér á strik á síðustu dögum fyrir kosningar. Er ekki ólíklegt að svo verði einnig nú, sérstaklega ef haft er i huga að á síðustu þremur mánuðum hafa sósialísku flokkarnir tveir bætt við sig fylgi 3% kjósenda á meðan borgaraflokkarnir hafa misst 2.5%. Margir telja þó að lokaátakið hjá jafnaðarmönnum komi nú of seint og benda á að enn, fáum dögum fyrir kosningar, hefur þeim ekki tekizt að kom- ast úr varnarstöðu, sem þeir voru hraktir I i upphafi kosn- ingabaráttunnar. _______Foreldrafrí__________ Þó að kosningabaráttan hafi að miklu leyti snúizt um efna- hagsmál hafa jafnaðarmenn ekki getað notfært sér það sem skyldi hve vel hefur tekizt í þeim málum. Gagnstætt því sem verið hefur í flestum Evrópuríkjum, hefur atvinnu- leysi f Svíþjóð verið hverfandi, verðbólgan hefur verið hófleg og landið hefur ekki átt við gjaldeyrisvandamál að strfða. En vegna jafnvægisstöðunnar á þingi hefur stjórn efnahags- mála verið að miklu leyti byggð á málamiðlunum og borgara- flokkarnir hafa þvi getað að miklu leyti, gefið sjálfum sér heiðurinn af þvf hve vel hefur tekizt. Helzta vopn jafnaðarmanna er þess vegna félagsmálin og byggja þeir kosningabaráttu sfna upp á þeim aðdáunarverðu endurbótum sem þeir hafa gert í velferðar- og verkalýðsmálum. Beita þeir fyrir sig slagorðum eins og „saman getum við gert gott land betra" og „meiri tfma með börnunum". Þeir hafa einnig lagt til að launþegar fái fimm vikna sumarfrf á launum og að foreldrar smábarna fái sameiginlega eins árs frí frá störfum og haldi 90% af laun- um sfnum á meðan, til að geta verið heima hjá ungbörnum sínum. En þeir eiga í vök að verjast, þegar út í umræður kemur um vægðarlaust og flókið skatta- kerfi, vakandi auga rfkisvalds- ins og skrifstofubáknsins yfir borgurunum, þjóðnýtingartil- lögur og hugsanlega fjárfest- ingarsjóði launþega. Það var hagfræðingur Alþýðusam- bandsins, LO, Rudolf Meidner, sem átti hugmyndina að þeim og hefur LO, sem er nátengt flokki jafnaðarmanna, gert til- lögur hans að sfnum. 1 þeim felst að fyrirtæki greiði ákveð- inn hluta af arði sfnum f fjár- festingarsjóði, sem eru undir stjórn launþegasamtakanna og geta samtökin með því móti náð yfirráðum yfir fyrirtækjunum á 10 Til 30 árum. Fálldin — forsætisráðherraefn- ið Olof Palme, forsætisráð- herra, hefur hingað til komið sér hjá þvf að taka afstöðu til Meidnersjóðanna, eins og þess- ir fjárfestingarsjóðir eru í dag- legu tali kallaðir, þrátt fyrir mikla ágengni stjórnarandstöð- unnar. Borgaraflokkarnir halda því fram að sjóðirnir muni færa fáum leiðtogum al- þýðusambandsins of mikið fjár- málalegt vald f hendur og miða þvf, gagnstætt þvf, sem þeim er ætlað, ,að aukinni samþjöppun valdsins. Stjórnarandstaðan hefur einnig gagnrýnt harðlega tillög- ur alþýðusambandsins um þjóð- nýtingu lands og kröfur lands- fundar jafnaðarmanna um þjóðnýtingu lyfjaiðnaðarins og námsbókaútgáfu. Hún hefur einnig gagnrýnt það sem hún kallar vald embættismanna, sf- vaxandi miðstýringu áætlunar- gerða og útþenslu skrifstofu- báknsins, og heldur því fram að þetta stofni frelsi manna í hættu. óvæntur bandamaður Stjórnarandstöðunni hefur bætzt óvæntur bandamaður, þar sem er hinn vinsæli barna- bókahöfundur Astrid Lind- gren, sem meðal annars skrif- aði Lfnu lagnsokk og Karl Blómkvist, leynilögreglumann. Lindgren, sem er gamalgróinn krati, fékk í ár skattaálagning- arseðil og var hanni samkvæmt honum gert að greiða 102% tekna sinna f opinber gjöld. Svaraði hún með því að skrifa ævintýrið um Pomperipossi f blaðið Expressen, sem reyndist bitur ádeilda á Gunnar Strang, fjármálaráðherra, og ríkis- stjórnina. 1 sfðustu viku fór hún aftur af stað í Expressen, og ásakaði stjórn jafnaðarmanna um að kúga einstaklingsfrelsið og skapa samfélag, sem væri „eins nærri skriffinnaeinræði og hægt væri“. „Ef það er rétt að stjórnmál séu listin að koma i veg fyrir að fólk sé að skipta sér af því sem það varðar, þá er enginn jafn fær f stjórnmálum og Jafnaðar- mannaflokkurinn og rikisstjórn hans. Hann ákveður allt fyrir okkur, hvar og hvernig við eig- um að lifa, hvað við eigum að borða, hvernig á að ala börn Palme — tók Fálldin ekki al- varlega. okkar upp, hverju við eigum að trúa og halda ... allt,“ sagði Astrid Lindgren. _______Kjarnorkan_________ Svo til öruggt er, að ef borgaraflokkarnir þrfr, Mið- flokkurinn, Þjóðarflokkurinn og Hægfara einingarflokkur- inn, mynda rfkisstjórn verður formaður Miðflokksins, Thor- björn Fálldin forsætirráðherra. Hann er fimmtugur, mikill ró- lyndismaður, reykir pfpu og er fjárbóndi. Hann hefur lýst yfir algjörri andstöðu sinni og flokks sfns við stefnu stjórnar- innar f orkumálum en sam- kvæmt henni er gert ráð fyrir að 13 kjarnorkuver framleiði 40% af raforku Svía árið 1985. Fimm þessara vera eru komin í notkun, fimm eru f byggingu og þrjú á teikniborðinu. Telur Fálldin byggingu kjarnorku- veranna ábyrðgðarleysi, þar sem ekki sé vitað hvers konar áhrif þau kunni að hafa á un- hverfið né hve hættuleg þau geti verið fólki, sem býr f ná- grenni þeirra ef þau verða eyði- lögð i stríði eða náttúruhamför- um. Hefur Fálldin lýst þvf yfir að taki flokkur hans þátt í stjórnarmyndun, verði það stefna stjórnarinnar að hætta f áföngum vinnslu raforku úr kjarnorku. Olof Palme gerði f upphafi Framhald á bls. 21 Skrifstofuþjálfunin Meöferö tollskjala Þetta sérnámskeið er ætlað þeim sem fást við innflutning á erlendum vörum. Gerð tollskýrslu. Verðútreikningar. Meðferð toll- skjala. Tollflokkun. Tollmeðferð. Kennt er einn dag í viku, þrjár kennslustundir I senn, 48 stundir alls Mímir# sími 10004 og Brautarholt 4; 11109 0<l 1 — 9e.h.) \mmmmmmmMm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm H|H Nýkomió mikið úrvai af tékkneskum skóiagíturum á hagstæóu verði Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur. Gerið góð kaup! Leyft verð Okkar verð Rúgmjöl 5 kg............. Gróft salt 1 kg.......... Ota sólgrjón 1900 gr...... Molasykur 1 kg........... R'itz kex................ Libbys bakaðar baunir 1 /2 dós.................. Libbys tómatsósa Stærri flaska............ Petal WC pappír 2 rl..... Sláturgarn og rúllupylsugarn Sykur og hveiti í sekkjum 649 kr. 520 kr. 78 kr. 70 kr. 417 kr. 375 kr. 233 kr. 209 kr. 150 kr. 135 kr. 198 kr. 178 kr. 314 kr. 283 kr. 101 kr. 91 kr. V Vörumarkaöurinnhf. Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-112 Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S-86-11 3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.