Morgunblaðið - 17.09.1976, Page 14

Morgunblaðið - 17.09.1976, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976 Minning: jT Asgeir Magnússon forstióri Menn setti hljóða og margir máttu vart mæla, þegar þeir fréttu hið óvænta og sviplega and- lát Ásgeirs Magnússonar for- stjóra, aðeins 54 ára að aldri, sem bar að höndum að morgni hins 10. september s.l. Það orkaði ekki tvímælis að Ás- geir var meðal allra fremstu Is- lendinga, sem nú eru uppi. Hann var mikill maður að vall- arsýn, samsvaraði sér vel. Dökk- hærður og brúneygður, en bláleit- um glampa brá þó fyrir i augum hans öðru hvoru. Hársvörður hans var þéttur og gróskumikill. Snemma vottaði fyrir því, að hár hans yrði gráyrjótt og jókst það með aldrinum. Var hárið hans höfuðprýði til æviloka. Orðheppin kona komst svo að orði um Ásgeir, að „af honum geislaði göfugmennska, lífsþrótt- ur, lífsf jör“. Ásgeir var fæddur 26. nóvem- ber 1921 í Vík í Mýrdal, V- Skaftafellssýslu. Foreldrar hans voru heiðurshjónin Magnús húsa- smíðameistari Jónsson, f. á Litlu- Heiði 18.2 1893, d. 8.4 1971, Bryn- jólfssonar trésmiðs og vegaverk- stjóra, Vik í Mýrdal, f. 24. 8.1865, d. 20.3 1948, Guðmundssonar, — og kona hans Halldóra Ásmunds- dóttir, f. á Hnappavöllum 8.4 1896. Átti hún áttræðisafmæli nú i vor og er enn á lífi, vel ern. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Elst var Sóley, er fæddist árið 1920, árinu eldri en Ásgeir. Lézt hún af heimakomu nokkurra daga gömul. Ásgeir fæddist 26.11 1921, eins og fyrr greinir. Hann var skirður fullu nafni Ásgeir Þórarinn. Annar bræðranna er Karl vél- stjóri, sem lengi vann hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur og er nú yfirverkstjóri á viðgerðaverk- stæði Álversins i Straumsvík, f. I Vík i Mýrdal 25. sept. 1924. Þriðji bróðirinn er Jón Reynir, verkfræðingur, f. í Reykjavík 19. júní 1931. Hann er nú fram- kvæmdastjóri Sildarverksmiðja ríkisins. Hann starfaði nokkur ár við matvælaeftirlit fyrir S.Í.S. Síðar við Fiskstautaverksmiðju Coldwater í Cambridge í Mary- land í Bandaríkjunum, en réðist til S.R. 1970. Dr. Sturla Friðriksson var bekkjarbróðir Ásgeirs í Mennta- skólanum í Reykjavík og samtim- is honum í Háskóla lslands og náinn vinur, mun rita um náms- feril Ásgeirs fram að embættis- prófi 1951. Þeir voru systkinasynir Ásgeir Magnússon og Erlendur Ein- arsson, forstjóri Sambands Isl. samvinnufélaga (S.Í.S.). Erlend- ur mun I eftirmælum greina frá störfum Ásgeirs á vegum Sam- bandsins og verða þau því ekki rakin i grein minni. Ásgeir og þau systkin voru komin af nafnkunnum ættum í Skagafirði og Skaftafellssýslum, þar á meðal af Steingrimsætt, en af þeirri ætt er fjöldi manns I þessum sýslum, svo og í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum og víðar um land. Gunnar Vigfússon, fræðimaður að Selfossi, ritaði drög að ættar- skrá Ásgeirs I september 1961. Kemur þar fram, að hann er I ættartengslum við fjölda Skaft- fellinga, þar á meðal við núver- andi biskup, Sigurbjörn Einars- son. Sveinn Eiríksson f. 4. 8. 1844, d. 19.6 1907 dótlursonur Sveins lækr/is Pálssonar, var prestur að Sandtelli i Nesjum, A- Skaftafellssýslu, siðar að Kálfa- fellsstað og loks að Ásum í Skaft- ártungu til dauðadags, að hann drukknaði í Kúðafljóti. Hann var alþingismaður A-Skaftfellinga 1886-1891. Hann var kvæntur Guðriði Pálsdóttur prófasts í Hörgsdal á Síðu. Meðal barna þeirra voru Sveinn bóndi að Fossi i Mýrdal, Páll yfirkennari, Sigrið- ur kona Vigfúsar bónda í Flögu og Gísli sendiherra. Börn þeirra hjóna voru alls 11. Ættfaðir Asgeirs Magnússonar var Sveinn Pálsson, fjórðungs- læknir í Austurhéraði Suðuramts- ins, er fæddur var á Steinsstöðum í Tungusveit í Skagafirði. Sveinn var náttúrufræðingur mikill og ferðaðist um landið með styrk frá Náttúrufræðifélaginu í Kaupmannahöfn á árunum 1791- 1794 og ritaði merk rit um ferðir sinar. Sveinn kvæntist Þórunni, dóttur Bjarna Pálssonar, fyrsta landlæknis hér á landi, tengda- sonar Skúla Magnússonar, land- fógeta i Viðey. Af Sveini Pálssyni er til rauð- krítarmynd, gerð af listamannin- um Sæmundi Magnússyni Hólm. Svipar myndinni til sumra afkom- enda Sveins læknis og er afbragðs listaverk. Sú villa hefur slæðst inn I upp- sláttarbækur (Læknatal), aðGuð- rún móðir Sveins sé dóttir Jóns lögréttumanns á ökrum í Skaga- firði, Eggertssonar. Hún var dótt- ir alnafna hans, Jóns skálds Egg- ertssonar af Reykjaætt í Lýtings- staðahreppi í Skagafirði. Jón skáld bjó að Steinsstöðum og síð- an lengi í Héraðsdal í Lýtings- staðahreppi í Skagafirði. Grímur Thomsen hefur gert dugnað og fórnarlund Sveins Pálssonar ódauðlega i kvæði sinu um hann og stólpagripinn Kóp. Sveinn braust þá yfir Jökulsá á Sólheimasandi (Fúlalæk) í jaka- burði og vexti til að bjarga konu í barnsnauð. „tJr barns og móðurbætti’ hann þraut. Blessun upp því skar hann, önnur laun hann engin hlaut Ánægður þó var hann.“ Ásgeir Magnússon var búinn sömu afbragðs gáfum og dugnaði og Sveinn Pálsson forfaðir hans og sömu fórnarlund. Aldrei átti hann svo annrikt, að hann hefði ekki tíma til að sinna vandamálum annarra. Hann hafði kynnzt og sjálfur starfað I hinum ýmsu greinum þjóðlifsins. Gat hann því auðveld- lega sett sig í spor annarra. Ásgeir varði meiri tima til slíkrar fyrirgreiðslu, jafnt vegna þeirra, sem lítils máttu sin, sem hinna er meira máttu. Var þessi hjálpsemi hans meiri og tafsamari, en honum var unnt að láta í té, án þess að misbjóða sínu mikla starfsþreki. Hann var sístarfandi frá morgni til kvölds. Þótt hraustmenni séu, þolir eng- inn mennskur máttur slíka of- raun til lengdar. Asgeir var framkvæmdastjóri Bæjarútgerðar Reykjavíkur frá því í júnimánuði 1974 með sóma, til jafnlengdar 1975, að hann réð- ist til J árnblendifélagsins. XXX Ásgeir hafði lengst af ævi sinn- ar verið mjög heilsuhraustur, en tók að kenna innvortiseymsla I sumar. Hélt hann sig hafa fengið magasár af áhyggjum og miklum og margvislegum störfum, að stofnun Járnblendifélagsins og undirbúningi framkvæmda þess við Hvalf jörð. Hina tæknilegu hlið fram- kvæmdanna annaðist Gunnar Sig- urðsson PhD verkfræðingur og var með þeim ágæt samvinna. Fyrir þrem vikum gerði Ásgeir grein fyrir stöðu járnblendiverk- smiðjunnar og væntanlegri sam- vinnu hennar við norska fyrir- tækið ELKEM í sjónvarpinu. Um sama leyti i sumar hafði hann flutt fjölda erinda um sama efni fyrir ríkisstjórninni, bönk- um, innlendum og erlendum og fleiri aðilum. Við flutning og skýringar þessa máls mátti ekki greina, að Ásgeir gengi ekki heill til skógar og senn yrði komið að leiðarlokum hins jarðneska lifs. Ásgeir Magnússon var trúmað- ur. Hann átti sæti á kirkjuráðs- þingum íslenzku þjóðkirkjunnar og i sóknarnefnd Garðakirkju í Garðabæ. Lét þar að sér kveða til endurbóta og prýði á kirkjunni. XXX Ásgeir var einstaklingshyggju- maður og taldi að ríkið, borgin, bæir eða sveitarfélög ættu ekki að annast annan atvinnurekstur en þann, sem ofvaxinn væri einka- eða samvinnurekstri, vegna mik- illar áhættu og fjárfestingar. Slik- ur stórrekstur ætti þó fullan rétt á sér til þess að hagnýta á sem hagkvæmastan hátt auðlindir landsins til sjávar og sveita. Nýjar framkvæmdir þyrftu að bera sig fjárhagslega og vera hag- kvæmar fyrir þjóðarheildina, að öðrum kosti yrðu þær þjóðinni fjötur um fót. Hann óttaðist mjög þá eyðslu- stefnu, sem nú rikir með þjóðinni og taldi óhjákvæmilegt að þjóðin yrði að sníða sér stakk eftir vexti. Ásgeir Magnússon var einhver hinn bezti samningamaður, sem land vort hefur haft á að skipa á þessari öld. Hann hafði svo góð áhrif á viðsemjendur sína, er- lenda sem innlenda, að þeir vildu koma til móts við málstað hans á meira en miðri leið. Það fréttist s.l. vor, að forset- inn, Kristján Eldjárn, væri tregur til þess að gefa kost á sér til endurkjörs. Fóru þá margir að velta þvi fyrir sér, hver myndi hæfastur til þess að gegna þessu virðulega embætti. Kvað þá við úr öllum áttum að það væri Ásgeir Magnússon. Ég er viss um, að Ásgeir hefði prýtt þann háa sess með sóma, ef honum hefði enzt heilsa og aldur. Enginn má sköpum renna. Frá- fall hans kom eins og reiðarslag yfir þjóðina. íslenzkaþjóðin drúpir höfði. Snögglega dró ský fyrir sólu. Hann var allt í einu orðinn fár- veikur og horfinn af sjónarsviði jarðlífsins. Allir mega vita að skammt er milli lifs og dauða. Sizt búast menn við því að mað- ur, sem þeir hafa þekkt áratugum saman sem ímynd lífsgleði, lifs- þróttar og glæsimennsku, sé allt i einu horfinn úr hópi óteljandi vina og velunnara. Slikt áfall er erfitt að þola. Ásgeir var um skeið formaður Rotaryfélagsins Reykjavik — Austurbær og umdæmisstjóri Sambands Rotaryfélaga á íslandi. Einnig varð hann formaður Frí- múrarareglunnar á íslandi að látnum Valdimar Stefánssyni, saksóknara, árið 1974. Asgeir var vararæðismaður Irska lýðveldisins á Islandi. Ásgeir átti þeirri vöggugjöf að fagna að eiga ágæta foreldra sem létu sér annt um hann i hvívetna. Ásgeir kvæntist Guðfinnu Ing- varsdóttur, yfirvélstjóra á skipum Eimskipafélags Islands, Einars- sonar frá Króki I Holtum, f. 12. 5. 1897, d. 20. 8. 1968, af Víkings- lækjarætt, hinn 29. júní 1951, sama vorið og hann útskrifaðist úr Háskóla íslands. Móðir frú Guðfinnu er Pálína Jónsdóttir, bónda og útgeróarmanns, Friðrikssonar úr Árnessýslu. Þeim Ásgeiri og Guðfinnu varð þriggja barna auðið. Þau eru: 1. Dóra, ritari i íslenzka sendiráð- inu í Washington, f. 3.6.1953. 2. Ingvar, námsmaður i læknis- fræði við Háskóla Islands, f. 10. 4. 1955. 3. Pálina Ása, i Menntaskóla I Reykjavík, f. 23. 6. 1959. Heimili Asgeirs og Guðfinnu að Hrauntúni við Álftanesveg i Garðabæ er eitt hið fegursta i öllu landinu. Jafnt úti sem inni blasa við sjónum handaverk þeirra hjóna, smekkvísi og hjartahlýja. Við fráfall Ásgeirs Magnússon- ar hefur orðið meira en héraðs- brestur. Eftir situr hnipin þjóð i vanda, sem harmar einn sinna beztu sona. SveinnBenediktsson. F. 26. nóvember 1921 D. 10. september 1976 Ásgeir Þórarinn Magnússon lézt á Landspítalanum hinn 10. sept. s.l. eftir stutta sjúkdóms- legu. Hann féll frá langt fyrir aldur fram, aðeins 54 ára að aldri. Ásgeir var fæddur í Vik I Mýr- dal 26. nóvember 1921. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson tré- smiður (f. 1893 d. 1971) og Hall- dóra Ásmundsdóttir (f. 1896). Þau Magnús og Halldóra eru af skaftfellsku bergi brotin, Magnús var elztur 7 uppkominna barna Jóns Brynjólfssonar trésmiðs og vegavinnuverkstjóra, frá Litlu- Heiði í Mýrdal og Rannveigar Einarsdóttur frá Strönd í Meðal- landi. Bar Magnús nafn langafa sins úr móðurætt, Magnúsar Magnússonar bónda á Skaftárdal. Þau Jón og Rannveig bjuggu fyrstu tvö búskaparársín á. Litlu- Heiði hjá foreldrum Jóns, en hófu búskap á Höfðabrekku 1894 og bjuggu þar í 13 ár, er þau fluttu til Vikur árið 1907 og þar byggði Jón sér íbúðarhús undir Vikar- bökkum, en þorp var þá að mynd- ast I Vík. I þessu húsi fæddist Asgeir Magnússon. Halldóra, móðir Ásgeirs, er fædd á Hnappavöllum í öræfa- sveit árið 1896, dóttir Ásmundar Davíðssonar og Þuriðar Runólfs- dóttur er bjuggu á Hofi i öræfum og Gröf I Skaftártungu, en áttu heima i Reykjavik hjá Halldóru dóttur sinni og Magnúsi tengda- syni sínum frá 1930 til dauðadags. Þau Magnús og Halldóra hófu búskap I Vík hjá foreldrum Magn- úsar, en fluttu til Reykjavikur árið 1924 og bjuggu um árabil á Njarðargötu 7, þar sem þau leigðu sér húsnæði. Hér ólst Asgeir upp, ásamt tveimur bræðrum sínum, Karli (f. 1924 í Vík) og Jóni Reyni (f. 1931 i Rvik) en þeir eru báðir giftir og búsettir I Reykja- vik. Húsnæðið á Njarðargötu 7, sem þau Halidóra og Magnús höfðu á leigu, var ekki stórt. Á hinn bóg- inn var oft fjölmennt þar í heim- ili, bæði heimilisfólk, gestir og gangandi. Lengi fannst rými fyrir nýjan gest, er bar að garði, þvi ef eitthvað skorti á húsrými, þá kom þar á móti hið mikla hjartarými Halldóru húsfreyju. Hún er óvenjuleg kona, bæði fyrir glæsi- leik og mikla mannkosti. Það var oft þröngt í búi á Njarðargötu 7. Atvinna á þessum árum stopul hjá fyrirvinnu heimilisins, en húsfreyjan bætti úr skák með mikilli vinnu. Menn undrast vinnuþrek Halldóru, sem nú er áttræð, en hefur stundað vinnu utan heimilis fram að þessu. Ásgeir gekk menntaveginn. Hann stundaði nám í Gagnfræða- skóla Reykvikinga undir stjórn Ágústs H. Bjarnasonar og siðan í Menntaskólanum í Reykjavik, sem þá var undir stjórn Pálma Hannessonar rektors. Á sumrum vann Ásgeir m.a. við landbúnað- arstörf i Reykjavik og á Hvann- eyri. Hann tók stúdentspróf úr stærðfræðideild vorið 1941, og stefndi hugur hans þá til náms í læknisfræði. Að stúdentsprófi loknu innritaðist hann í lækna- deild Háskólans. Las hann læknis- fræðiárin 1941-1945, en innritað- ist eftir það I lagadeild og varð cand. juris 1951. Meðan á háskólanáminu stóð vann Ásgeir á sumrum. Á þessum árum varð hver og einn að kosta sig sjálfur við framhaldsnám, námslánum var þá ekki til að dreifa. Asgeir vann við fasteigna- sölu hjá Almennu fasteignasöl- unni I Reykjavik 1945-1947 og sið- ar hjá Olíufélaginu h.f. m.a. við akstur á oliubilum. Þangað réðst svo Ásgeir til skrifstofustarfa að námi loknu í Háskólanum árið 1951. Hann varð aðalbókari Oliu- félagsins 1. janúar 1952 og gegndi þvi starfi til 1. sept. 1954, er hann var ráðinn forstöðumaður Sam- vinnusparisjóðsins, sem þá hóf starfsemi sina. Auk þessa starfs var hann fjármálafulltrúi for- stjóra Sambandsins. Þessum störfum gegndi Ásgeir til 1. marz 1957, er hann var ráðinn fram- kvæmdastjóri skrifstofu Sam- bandsins í Kaupmannahöfn. Því starfi gegndi hann I rúm tvö ár eða til 1. júni 1958, er hann var ráðinn framkvæmdastjóri Sam- vinnutrygginga og Líftrygginga- félagsins Andvöku. Þessum störf- um gegndi hann til 15. maí 1974 og hafði hann þá starfað óslitið fyrir samvinnufélögin i rúm 23 ár. Hafði hann í þessum störfum áunnið sér bæði traust og virð- ingu. Forsvarsmenn í Sambandinu og I samstarfsfyrirtækjum þess og makar þeirra héldu mjög hópinn á þessum árum. Þetta var flest fólk á bezta aldri og mjög sam- stætt. Sameiginleg áhugamál í starfi og náin kynni utan starfs tengdi þennan hóp sterkum vin- áttuböndum. Ásgeir Magnússon og Guðfinna voru eftirsóttir félagar innan þessa hóps. Kom hér margt til, glæsileiki, glaðværð og slik fram- koma, að gott var að blanda geði við þau. Þessir eiginleikar Ás- geirs komu m.a. fram í því, að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.