Morgunblaðið - 17.09.1976, Síða 18

Morgunblaðið - 17.09.1976, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjöm Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, sími 22480 Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Umbótamál og framtíðarmál Segja má, að allur starfs- tími núverandi rikisstjórnar, þau tvö ár, sem hún hefur setið að völdum, hafi farið í að fjalla um landhelgismálið og efnahagsmál- in. Þegar rikisstjórnin tók við störfum tók hún við þrotabúi vinstri stjórnarinnar i efnahags- málum og hlaut því að einbeita sér að lausn þeirra. Jafnframt var augljóst, að yrði ekki gripið til róttækra ráðstafana í fisk- verndarmálum var tilvera þjóðar- innar í þessu landi í hættu. Efna- hagsvandinn og baráttan fyrir fullum yfirráðum Islendinga yfir 200 mílunum hefur siðan tekið tíma ríkisstjórnarinnar allan. önnur mál hafa orðið að bíða betri tíma. Nú er svo komið, að fullur sigur hefur í raun unnizt í baráttunni um 200 milurnar og senn líður að þvi, að Islendingar sitji einir að auðlindum hafsins i kringum landið eins og vera ber. Þá er og ljóst, að bati er framundan í efna- hagsmálum og að þær erfiðu ráð- stafanir, sem rikisstjórnin hefur orðið að grípa til, eru að byrja að bera árangur. Þess vegna er nú orðið timabært fyrir ríkisstjórn- ina að huga jafnhliða að öðrum aðkallandi vandamálum, sem krefjast úrlausnar á þessu kjör- timabili og sum þegar á næsta þingi. Þar má fyrst telja skattamálin. Skattamisréttið er óþolandi. Ein- staklingar, sem berast mikið á og búa við góð efni, borga ekki skatta til jafns við fastlauna- menn, sem hafa enga möguleika á þvi, hvorki að svíkja undan skatti né notfæra sér ýmis ,,göt“ í skattalöggjöfinni, sem þeir, er meiri umsvif hafa, hagnýta til fulls. Það er fyrsta verkefni þess- arar rikisstjórnar á þvi Alþingi, sem saman kemur I októbermán- uði, að leggja fyrir þingið um- fangsmiklar breytingar á skatta- löggjöfinni, sem tryggja, að hver þjóðfélagsþegn greiði skatta eins og honum ber. Þá hlýtur einnig að koma mjög til álita að þyngja mjög refsingu við skattsvikum frá þvi, sem nú er sem þátt í viðleitni til þess að hamla gegn þeim. Annað meiriháttar umbótamál, sem rikisstjórnin hlýtur að taka mjög föstum tökum á þessu þingi, eru dómsmálin. Engum getur lengur dulizt, að dómstólakerfi okkar og rannsóknarkerfi er þess ekki megnugt að takast á við öldu glæpa- og svikamála, sem gengið hefur yfir þjóðfélagið. Þess vegna hlýtur það að verða eitt helzta verkefni þingsins, þegar það kem- ur saman i næsta mánuði, að ráð- ast á þetta vandamál og fram- kvæma þann uppskurð á dóms- stóla- og rannsóknarlögreglukerf- inu, sem dugar til þess að sam- félagið geti á árangursrikan hátt tekizt á við þau nýju vandamál, sem við blasa í þessum efnum. Núverandi rikisstjórn stendur einnig frammi fyrir þeirri stað- reynd, að lengra verður ekki gengið I skattheimtu en orðið er og raunar er full ástæða til að létta skattabyrðina og draga frem- ur úr ýmiss konar þjónustu hins opinbera við þegnana. Geysilegur ofvöxtur hefur hlaupið í hið opin- bera bákn, sem kallar á stöðugt meiri skattheimtu. Hér er á ferð- inni þriðja meiriháttar málið, sem rikisstjórnin verður að hafa frum- kvæði og forystu um. Hún verður að leiða baráttuna gegn Bákninu, baráttuna fyrir því, að Kerfið vaxi borgurunum ekki yfir höfuð, baráttuna fyrir þvi, að Báknið seilist ekki æ dýpra I vasa skatt- greiðenda, baráttu fyrir þvi að höggva niður þann frumskóg, sem hið opinbera kerfi er orðið og veldur þvi, að einstaklingar geta ekki fengið afgreiðslu sinna mála nema á mjög löngum tima. Hér hafa verið nefnd þrjú um- bótamál, sem ríkisstjórnin verður að takast á við á næsta þingi. En jafnframt hlýtur rikisstjórnin að horfa til framtiðarinnar og búa I haginn fyrir hana. Mörg tækifæri bíða okkar Islendinga i framtíð- inni, tækifæri, sem nauðsynlegt er að rannsaka, hversu raunhæf eru. Þannig hafa ýmsir aðilar leit- að eftir því að fá að svipast um eftir olíu í námunda við Island. Það er ekki útilokað, að olia geti fundizt við Island. Hér verður að fara varlega en engu að síður er fyllsta ástæða til að að rækileg rannsókn fari fram á þeim tæki- færum, sem hér eru fyrir hendi. Þá er og ljóst að ýmsir aðilar velta mjög fyrir sér annars konar möguleikum á orkuflutningi frá Islandi. Þvi er haldið fram, að unnt verði að flytja raforku með hjálp gervihnatta um víða veröld. Þetta kann að vera fjarlægur möguleiki, en engu að síður er ástæða til að staldra við hug- myndir af þessu tagi. Þá skjóta hvað eftir annað upp kollinum tillögur um að flytja heitt vatn í stórum tankskipum frá Islandi til annarra landa. Liklega eru slikar hugmyndir á þessu stigi raun- hæfari en þær, sem fyrr voru nefndar. Allar þessar umræður og vangaveltur undirstrika það að i framtiðinni kunna að verða mörg fleiri tækifæri til þess að nýta þá orku sem ísland býr yfir, þjóðinni allri til hagsbóta. Þess vegna eigum við að taka allar slikar hugmyndir alvarlega og fjalla um þær sem slíkar. Þær verða kannski ekki að raunveru- leika eftir eitt ár en þær geta orðið það eftir tíu ár eða tuttugu ár. Loks er rétt að nefna þá mögu- leika, sem hér eru I fiskirækt. Tækifærin á þessu sviði eru áreiðanlega geysimikil. Nokkrir djarfir frumherjar hafa ráðizt i kostnaðarsamar framkvæmdir og tilraunir í fiskirækt og smátt og smátt opnast mönnum sýn til þeirra gífurlegu möguleika, sem þarna kunna að vera fyrir hendi, ekki aðeins til ræktunar vatna- fiska, heldur og einnig til þess að rækta i stórum stíl þá nytjafiska, sem við nú veiðum hér við land en kunnum enn sem komið er tak- mörkuð ráð til þess að auka og efla stofnana. Hin daglegu vandamál, sem að steðja kalla á úrlausn. En þau mega ekki verða til þess að önnur mál sitji á hakanum, hvorki um- bótamál, sem krefjast úrlausnar, eða framtfðarmál, sem geta skipt sköpum um afkomu þjóðarinnar í þessu landi á næstu áratugum og næstu öld. Hér má sjé hvar unnið er að lagfæringum á bryggjunni á Kópaskeri. Ljósm. Mbl. t.g. Tjónabætur hækk- aðarúr25% í 60% í SUMAR hefur verið unnið af fullum krafti við lagfæringar á þeim skemmdum, sem urðu af völdum jarðskjálftans mikla á Kópaskeri á sl. vetri. Mikillar óánægju gætti meðal ibúa Kópa- skers með niðurstöðu mats á tjóni á mannvirkjum á staðnum en nú hefur grunnur matsins verið endurskoðaður og tjónabætur Við- lagatryggingar fyrir sprungur, sem til staðar voru fyrir jarðskjálftana en gliðnuðu á ný og gömul hús, sem skemmdust verið hækkaðar úr 25% I 60%. Þá hefur Viðlaga- trygging samþykkt að greiða visi- töluálag á tjónin, sem svarar til hækkunar byggingarvlsitölu frá tjóndegi til útborgunardags. Þetta kom m.a. fram í samtali. sem blm. Morgunblaðsins. er var á ferð um Kópasker fyrir skemmstu, átti við Friðrik J. Jónsson, oddvita þar. — Tjón á eignum manna hér á Kópaskeri, sem voru tryggðar, var Rœtt við Friðrik J. Jóns- son, oddvita á Kópaskeri upphaflega áætlað 26 milljónir kr.,, en tjón á ótryggðu tæpar 4 milljónir kr Mér telst til að við endurmat á tjónunum og að viðbættu vísitölu- álaginu hafi greiðslurnar frá Viðlaga- tryggingu hækkað um 10 milljónir. Tjónþolar verða líka hver um sig að taka á sig 100 þúsund krórra sjálfs- ábyrgð — Þetta endurmat á tjónunum hefur gjörbreytt viðhorfinu og þá ekki síst þar sem þetta átti einnig við gömul hús, ef þau höfðu laskast Sprungurnar, sem endurmatið náði til voru nær hálfur tíundi kilómetri, þegar þær eru taldar saman, þannig að þetta segir fljótt til sin, auk þess sem vísitöluálagið kom i góðar þarf- ir. — Á þessu stigi er ekki hægt að tala um að neitt hús hafi ónýst alveg i jarðskjálftanum. Eina húsið, sem var á mörkum þess að það borgaði sig að endurbyggja það, hefur nú verið lagfært með þeim hætti að neðri hæð hússins var rifin i burt og steypt á ný Efri hæðin, sem i er risibúð, stendur óbreytt, enda voru skemmdir á henni óverulegar íbú- um staðarins hefur ekki fækkað frá Við viðgerðir á hafnarmannvirkj- um þarf ekki ósjaldan að bregða sér niður fyrir hafflötinn og hér leggur kafari I djúpið við bryggj- una á Kópaskeri. þvi sem var fyrir jarðskjálftann Tvær fjölskyldur hafa flutt í burtu en aðrar þrjár hafa komið i staðinn. — I sumar hefur verið unnið að lagfæringum á höfninni hér en hafnarmannvirkin fóru, sem kunn- ugt er mjög illa i jarðskjálftanum Tjónið á höfninni var áætlað 27 milljónir kr og ekki er óliklegt að það standist En vegna þess hversu hafnarmannvirkin skemmdust illa er talið ráðlegt að byggja grjótgarð út með bryggjunni að utan til að styrkja hana Þrjár brýr hér við Kópasker, sem eyðilögðust i jarð- skjálftanum, hafa verið byggðará ný en eftir er að leggja að þeim vegi. Vatnsveita staðarins hefur einnig verið lagfærð en ekki er þó lokið endanlegum frágangi á því tjóni, sem varð á henni. Það tjón var metið á 5,4 milljónir króna — Þó rikisstjórnin hafi lofað að bæta mönnum það tjón, sem ekki var tryggt, er margt, sem ekki verður hægt að bæta Við getum nefnt að húseignir hér hafa margar lækkað i verði vegna jarðskjálftana. Enn er ekki búið að meta tjón eins og i þeim tilfellum þar sem vatnsból hafa eyðilagst Ýmislegt hefur llka komið fram i sumar, sem ekki var vitað um, þegar tjónamatið var fram- kvæmt og þessi tjón hafa ýmist verið skoðuð eða þau biða þess að verða metin — Ástandið hér i sumar hefur allt mótast af uppbyggingunni. Menn hafa haft nægan starfa við fram- Framhald á bls. 20 Eftir jarSskjálftana var þetta hús merkt með rauflu skilti, sem á var letrað að enginn mætti þar vera innandyra vegna hættu á hruni. HúsiS hefur nú verið lagfært meS þeim hætti að neSri hæS hússins var rifin ! burt og steypt á ný. Þrjár brýr I nágrenni Kópaskérs. sem eyðilögSust I jarSskjálftunum, hafa veriS endurbyggSar. Þessi er á veginum fyrir neSan GarS hjá Kópaskeri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.