Morgunblaðið - 17.09.1976, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 17.09.1976, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976 35 Meistararnir mætast í Afrekskeppni FÍ UM næstu helgi fer fram á Nes- vellinum hin árlega afrekskeppni Flugfélags tslands, sem er eins- konar „meistarakeppni meistar- anna“ og lokakeppni þeirra á árinu. Keppni þessi hefur verið háð á Nesvellinum s.l. tólf ár, eða frá því að Golfklúbbur Ness var stofnaður. Að þessu sinni er keppnin háð með nýju fyrirkomulagi, og sér- staklega vandað til fyrstu verð- launa, en þau eru í ár Skotlands- ferð fyrir einn á komandi vori. Til keppninnar er boðið meist- urum sjö golfklúbba víðs vegar að af landinu, svo og tslandsmeistar- anum, meistaranum I opna is- lenzka meistaramótinu og sigur- vegurum í þeim mótum, sem hafa gefið stig til landsliðsins á þessu ári. Leika þeir 72 holur, 36 holur á dag i tvo daga, og fær sigurveg- arinn i þessari viðureign Skot- landsferðina að launum. Keppnin hefst fyrir hádegi á laugardag og lýkur siðari hluta dags á sunnu- dag. I ár eru það tíu úr hópi beztu kylfinga landsins sem eiga rétt til þátttöku í mótinu og eru það eftir- taldir: Björgvin Þorsteinsson, GA Ragnar Ölafsson, GR Sigurður Thorarensen, GK Loftur Ölafsson, NK Gunnar Júliusson, GL Jóhann Benediktsson, GS Haraldur Júliusson, GV Sigurjón Glslason, GK Jón H. Guðlaugsson, GN Hallur Þórmundsson, GS Allir þessir menn hafa orðið sigurvegarar í stórmótum í golfi á þessu ári og má því búast við skemmtilegri viðureign er þeir mætast á Nesvellinum um helg- ina. Unnt verður að fylgjast með gangi keppninnar frá golfskálan- um og eru áhorfendur boðnir vel- komnir á Nesvöllinn báða keppnisdagana, án endurgjalds. (Frétt fráGN) MEÐFYLGJANDI mynd er af starfsmönnum Sindra-Stáls hf. en þeir unnu knattspyrnukeppni þá, sem efnt var til milli starfsmanna ( vél- og skipasmiðjum. Léku Sindramenn til úrslita við Vélsmiðjuna Héðin og sigruðu 2—0 I þeim leik. Sjö knattspyrnulið tóku þátt i kepnninni að þessu sinni; frá Landssmiðjunni, Stálvlk, Stálver, Vél- smiðju Hafnarfjarðar, Vélsmiðjunni Héðni, Véla- miðstöð Reykjavíkurborgar og Sindra Stáli hf. Keppt var um veglegan verðlaunabikar, sem Fé- lag járniðnaðarmanna gaf til keppninnar. Félagið hefur gefið marga verðlaunagripi til þessa knatt- spyrnumóts og haft forgöngu um, að það færi fram. Með knattspyrnumönnum Sindra Stáls hf. á mynd- inni er Guðjón Jónsson, formaður Félags járniðn- aðarmanna t.v., og Óskar Einarsson i Sindra t.h. Lilleström í forystu Eftir 17 umferSir i norsku 1. deildar keppnini i knattspyrnu hef- ur Lilleström tekiS forystu og er liSið meS 26 stig. hefur unniS 11 leiki. gert 4 jafntefli og tapaS tveimur leikjum. Markatala þess er 32—14. i öSru sæti er svo Brann frá Bergen meS 23 stig, i þriSja sæti er Mjöndalen meS 22 stig. en siSan koma Hamarkamm- eraterne meS 21 stig. Viking meS 1 8 stig. Strömgoset meS 1 7 stig. Start meS 16 stig. Bryne meS 15 stig, Rosenborg meS 14 stig og á botninum er Molde meS 1 3 stig. B 1903 í fyrsta sæti Eftir 21 umferS i dönsku 1. deildar keppninni i knattspyrnu hefur B 1903 tekiS forystuna og er liSið meS 30 stig, einu stigi meira en næsta lið, sem er Hol- bæk, en meS þvi liði lák Atli Þór HéSinsson, KR-ingur, um tima i sumar. Staðan i dönsku keppninni var annars þessi: B 1903 Holbæk Frem 30 29 26 OB AaB KB Vejle B 1901 B 93 Köge Kastrup Esbjerg Næstved Fremad A Randeres Vanlöse SINDRAMENN SIGRUÐU DAGANA 11. og 12. sept. s.l. var haldinn að Hótel Loftleiðum fundur samstarfsnefndar um fþróttir fatlaðra á Norðurlöndum f umsjá Iþróttasambands tslands. Fundinn sóttu alls 19 fulltrúar: 3 frá Danmörku, 2 frá Finnlandi, 5 frá Noregi, 4 frá Svfþjóð og 5 frá tslandi. Fundinn setti Gfsli Halldórsson forseti Ist, en fundarstjórar voru Guðm. Löve og Bengt Hollén frá Svfþjóð og fundarritarar Magnús H. Ólafs- son og Arve Mangset frá Noregi. Megin viðfangsefni fundarins var að Fjalla um stofnun Iþrótta- sambands fatlaðra á Norðurlönd- um, en það mál hefur verið á dagskrá undanfarin 4 ár. A fundinum hér var formlega gengið frá stofnun sambandsins, lög þess samþykkt og tilnefnt f fyrstu stjórn. Skv. 1. gr. laga hins nýja sam- bands er tilgangur þess að skipu- leggja og vinna að eflingu íþrótta fyrir fatlaða á Norðurlöndum. Aðildarsamtök eru sérsamböndin i íþróttum fatlaðra í hverju landi, hér á landi ÍSl meðan sérsam- band er ekki stofnað. Það kom í hlut Danmerkur að tilnefna fyrstu stjórn sambands- ins til næstu tveggja ára. Formað- ur er Bodil Eskesen, yfirlæknir, og auk hennar eru i stjórn Steff- en Andersen ásamt fulltrúa frá Biindrasamtökum Danmerkur, er tilnefndur verður innan tíðar. Auk stofnunar '■ hins nýja íþróttasambands samþykkir fundurinn að efna til norrænnar sundkeppni fyrir fatlaða í nóv./des. n.k. og i göngu, skokki og hjólastólaakstri í sept./okt. 1977. Sýnd var kvikmynd frá Vetrar- Ólympiuleikum fatlaðra í Svíþjóð s.l. vetur og rætt var ýtarlega um nýlega afstaðna Ólympiuleika fatlaðra i Toronto í Kanada. Meðan fundurinn stóð yfir nutu fulltrúar gestrisni forseta Is- lands, menntamálaráðherra, Flugleiða h/f, íþróttabandalags Reykjavikur, Sjálfs- bjargar—landssambands fatl- aðra-, Reykjalundur og borgar- yfirvalda. (Frétt frá tSt). Norðuriöndum formlega stofnað Norðurlandameistarí í Akureyri gaf og veittur er því félagi er hlýtur flest stig I mótinu, og hins vegar um svokallaðan Albertsbikar sem nokkrir áhuga- menn um sund á Akureyri gáfu til minningar um Albert Sölva- son. I keppninni um bikar móts- ins var reiknaður árangur fjög- urra fyrstu I hverri grein en I keppninni um Albertsbikarinn var reiknaður árangur sex fyrstu í hverri grein. Sama félagið hlaut báða bikarana: Sundfélagið Óðinn á Akureyri. Vann það móts- bikarinn með 188 stigum og Albertsbikarinn með 333 stigum. UMSS hlaut 70,5 stig og 125,7 stig og KS hlaut 11,5 stig og 25,5 stig. Sigurvegarar I einstökum greinum urðu: 100 metra skriðsund kvenna: Þórey Tómasdóttir, 0 1:10,5 min. 100 metra skriðsund karla: Marinó Steinarsson, Ó 1:04,6 min 50 metra bringusund sveina: Ingimar Guðmundsson, Ó 38,8 sek 50 metra bringusund drengja: Indriði Jósafatsson, UMSS 38,3 sek 50 metra skriðsund stúlkna: Þórey Tómasdóttir, 0 31,9 sek. 50 metra skriðsund telpna: Sólveig Sverrisdóttir, Ó 33,0 sek. 200 metra bringusund karla: Gestur Jónsson, Ó 3:01,9 min 100 metra bringusund kvenna: Guðrún Pálsdóttir, KS 1:29,8 min sundi 50 metra baksund karla: Marinó Steinarsson, Ó 35,8 sek 4x50 metra boðsund drengja: Sveit Óðins 2:05,0 mín. 4x50 metra boðsund kvenna: A-sveit Óðins 2:15,2 mín. 50 metra flugsund karla: Marinó Steinarsson Ó, 32,8 sek. 100 metra bringusund karla: Gestur Jónsson, Ó 1:20,4 mín. 50 metra skriðsund kvenna: Þórey Tómasdóttir, Ó 32,1 sek. 50 metra skriðsund sveina: Ingimar Guðmundsson, Ó 31,8 sek 50 metra skriðsund drengja: Indriði Jósafatsson, UMSS 30,3 sek 50 metra bringusund stúlkna: Rannveig Helgadóttir,UMSS 41.3 sek 200 metra bringusund kvenna: Sólveig Sverrisdóttir, Ó 3:20,3 min. 50 metra bringusund telpna: Anna Björnsdóttir, 0 41,7 sek. 400 metra skriðsund karla: Marinó Steinarsson, Ó 5:16,9 mín 50 metra baksund kvenna: Ingibjörg Guðjónsdóttir, UMSS 39,4 sek 4x50 metra boðsund stúkna: A-sveit Óðins 2:17,1 mín 4x50 metra boðsund karla: SveitUMSS 1:56,0 min 50 metra flugsund kvenna: Sólveig Sverrisdóttir Ó 35,6 sek Reynir UMSE meistari í knattspyrnu og handknattleik Knattspyrnumóti UMSE lauk i ágústlok. Fimm félög tóku þátt í mótinu og var baráttan um efsta sætið mjög jöfn og tvisýn. Til úr- slita léku lið Reynis og Árroðans og var þar um mikinn baráttuleik að ræða. Reynir hafði forystu i fyrri hálfleik en i seinni hálfleik náði Árroðinn góðum tökum á leiknum og hafði yfir um tima. Var það ekki fyrr en undir lokin að Reynismönnum tókst að skora og tryggja sér jafntefli 3:3, en það nægði þeim til sigurs í mótinu. Reynir hlaut 7 stig i keppninni, Arroðinn 6 stig, UMF Skriðu- hrepps 5 stig, UMF Dagsbrún 2 stig og UMF Svarfdæla 0 stig. Kvennamóti UMSE I hand- knattleik lauk um síðustu mánaðamót. Fimm lið tóku þátt i mótinu og stóð aðalbaráttan milli a-liðs Reynis og UMF Skriðu- hrepps. I úrslitaleik þessara fél- aga fóru leikar svo að Reynir vann 8:7. oog fór því með sigur af hólmi. UMF Skriðuhrepps hlaut 6 stig, UMF Svarfdæla hlaut 4 stig, UMF Æskan 1 stig og B-lið UMF Reynis hlaut 1 stig. Óðinn SUNDMEISTARAMÓT Norður- lands fór fram f Sundlaug Sauðár- króks dagana 11. og 12. september s.l. Aðeins þrfr aðilar tóku þátt I mótinu: Ungmennasamband Skagaf jarðar, Knattspyrnufélag Siglufjarðar og Sundfélagið Óðinn frá Akureyri. Keppt var í 24 greinum og um tvo bikara. Annars vegar bikar mótsins sem Möl og Sandur h.f. á Frá þingi leiðtoga fþróttasambands fatlaðra. íþróttasamband fatlaðra á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.