Morgunblaðið - 07.11.1976, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1976
38
Myndin er tekin á spilakvöldi hjá Bridgefélagí Reykjavíkur. Bene-
dikt Jóhannsson er ekkert ýkja brúnaþungur þessa stundina, enda
hefir honum og félaga hans gengið vel f meistarakeppni félagsins.
Talið frá vinstri: Benedikt Jóhannsson, örn Arnþórsson, Hannes
Jónsson og Guðlaugur Jóhannsson snýr baki f myndavélina.
Guðmundur og Óli
Már enn efstir
í meistara-
tvímenning BR
TÓLF umferðum af fimmtán er
nú lokið í meistarakeppni
Bridgefélags Reykjavfkur —
en síðustu þrjár umferðirnar
verða spilaðar á fimmtudaginn
kemur.
Staða efstu para er nú þessi:
Meistaraflokkur:
Guðmundur Pétursson — Óli
Már Guðmundsson' 84
Hörður Blöndal — Þórir
Sigurðsson 67
Jón Baldursson — Guðmundur
Arnarson 63
Jóhann Jónsson — Þráinn
Finnbogason 51
Benedikt Jóhannsson — Hann-
es Jónsson 47
Fyrsti flokkur:
Logi Þormóðsson — Þorgeir
Eyjólfsson 116
Ríkharður Steinbergsson —
Bragi Erlendsson 99
Páll Hjaltason — Sverrir
Ármannsson 86
Guðbrandur Sigurbergsson —
Jón P. Sigurjónsson 64
Guðmundur Pálsson — Sig-
mundur Stefánsson 31
Næsta keppni félagsins verð-
ur tvímenningur þriggja kvölda
þar sem reyndari spilarar og
ungir byrjendur spila saman.
Nánar verður sagt frá keppn-
inni á sunnudaginn kemur.
Sveit Braga efst
í hraðsveita-
keppni hjá TBK
FYRSTU umferðirnar í hrað-
sveitakeppni hjá TBK voru
spilaðar sl. fimmtudag. Röð
efstu sveita er þessi:
Sveit:
Braga Jónssonar 566
Haralds Snorrasonar 547
Gests Jónssonar 536
Sigurbjörns Ármannss. 533
Sigurður Kristjánss. 520
Bjarna Jónssonar 512
Næstu umferðir verða spilað-
ar á fimmtudaginn kemur — en
keppnin stendur í fimm kvöld.
Fréttir frá Bridge-
félagi Húsavíkur
AÐALFUNDUR félagsins var
haldinn 16. september. Síðan
var byrjað með tvímennings-
keppni, sigurvegarar urðu:
Guðmundur Hákonarson og
Þórður Ásgeirsson með 552
stig, aðrir Magnús Andrésson
og Jóhann Kr. Jónsson með 538
stig, 3ju Jón Árnason og Krist-
inn Lúðvíksson með 517 stig,
4ðu Þóra Sigurmundsdóttir og
Björn H. Jónsson með 488 stig.
Að einu kvöldi óloknu í hrað-
sveitakeppninni er staðan sú að
efst er sveit Guðmundar
Hákonarsonar með 738 stig, í
öðru sæti sveit Jóns Árnasonar
með 719 stig og þriðja sveit Páls
Ólafssonar með 649 stig.
Fimmtudaginn 11. nóv. hefst
firmakeppni félagsins, og nú er
skorað á alla sem hafa gaman af
að spila bridge að vera með,
skráning fer fram hjá Birni
Þorkels í Fiskbúðinni.
Dóra og Kári unnu
tvímenningskeppni
hjá Húnvetningum
LOKIÐ er 5 kvölda tvimenn-
ingskeppni deildarinnar með
sigri Dóru Kolka og Kára Sigur-
jónssonar. Þau hlutu alls 618
stig. I öðru sæti urðu Inga
Bernburg og Ólafur Karlsson,
hlutu 616 stig. Að þessu sinni
var keppt um farandbikar
gefinn af Heklu h/f, en hand-
Hún er hjartanleg þessi unga
dama þegar hún sýnir okkur
sexið. Margt er nú af ungu fólki
I bridgefélögunum á höfuð-
borgarsvæðinu.
hafar að þessum bikar tvö síð-
ustu ár hafa verið hjónin
Sigríður Ólafsdóttir og Sigurð-
ur Gunnarsson. Þá veitir deild-
in fyrstu og önnur verðlaun
sem vinnast til eignar.
Röð 10 efstu paranna var sem
hér segir:
1. Dóra — Kári 618 stig
2. Inga — Ólafur 616 stig
3. Haukur og Sigurþór 600 stíg
4. Jakob — Jón 586 stig
5. Haukur — Ólafur 581 stig
6. Karl — Georg 568 stig
7. Jóhann — Gunnlaugur 55'
stig
8. Hreinn — Bragi 557 stig
9. Kristján — Valgarð 552 stig
Framhald á bls. 53
Hlutí þingfulltrúa Fáks á þinginu. Fremst á myndinni er Halldór Eirfksson, þá Margrét Johnson, Örn
Johnson, Sveinbjörn Dagfinnsson, Ingi Lövdal og ÞorlákurOttesen.
Um 100 fulltrúar sátu þing
L.H. um síðustu helgi
ÞING Landssambands hesta-
mannafélaga, hið 27. I röðinni,
var haldið um sáðustu helgi á
Höfn I Hornafirði. Að þessu
sinni sátu þingið tæplega 100
fulltrúar en að viðbættum gest-
um úr nágrannasveitunum og
þeim, sem lengra voru að
komnir, voru nær 130 manns
saman komin á Höfn vegna
þinghaldsins. Á þinginu voru
samþykktar fjölmargar tillögur
um málefni hestamanna og
tveir stjórnarmanna L.H., Har-
aldur Sveinsson gjaldkeri og
Jón M. Guðmundsson ritari
voru endurkjörnir. Varamenn
þeirra voru einnig endurkjörn-
ir, þeir Arni Guðmundsson á
Beigalda og Pétur Hjálmsson.
Albert Jóhannsson, formaður
L.H., flutti þinginu skýrslu
stjórnar. Kom þar fram að
stjórn L.H. staðfesti á árinu
nýtt Islandsmet í 250 metra
skeiði, 22.5 sek. og var methaf-
inn Óðinn frá Gufunesi, eign
Þorgeirs Jónssonar. Einnig var
staðfest metjöfnun Fannars,
Harðar G. Albertssonar á þess-
ari vegalengd. Staðfest var nýtt
met i 350 metra stökki en met-
hafinn þar er Loka frá Utgörð-
um, eign Harðar G. Albertsson-
ar og hljóp hún vegalengdina á
24.9 sek. Albert tók fram af
gefnu tilefni að bæta þyrfti
með ýmsum hætti úr þeirri að-
stöðu, sem dómnefndir á kapp-
Kynbóta-
hross verði
dæmd
í A- og B-
flokkum
MEÐAL þeirra tillagna, sem
þing L.H. samþykkti var til-
laga um breytt fyrirkomu-
lag á dómum kynbótahrossa.
Var tillagan á þá leið að
þingið fól stjórn L.H. að
leita eftir samkomulagi við
Búnaðarfélag Islands um að
breyta reglum um mat kyn-
bótahrossa þannig, að stóð-
hestar og hryssur 6 vetra og
eldri yrðu flokkuð i tvo
flokka eins og vanaðir hest-
ar. Annars vegar yrði um að
ræða að dæmd væru sér f
A-flokki alhliða hross en i
B-flokki klárhross með tölti.
Ung kynbótahross, 4 til 5
vetra, eiga samkvæmt tillög-
unni eingöngu að verða
dæmd eftir sköpulagi og
ganghæfni á öðrum gangteg-
undum en skeiði. Tillaga
þessi var samþykkt með 29
atkvæðum gegn einu.
reiðavöllunum hafa til að
ákveða veðurhæð og vindátt.
Alls störfuðu sjö nefndir á
vegum L.H. á árinu. Sex þeirra
störfuðu sem milliþinganefndir
og skiluðu þinginu greinargerð-
um um störf sín en sjöunda
nefndin starfar að málefnum
Skógarhóla.
Utgáfa Hestsins okkar, tíma-
rits L.H., stendur um þessar
mundir með blóma hvað snertir
fjárhaginn og skilaði blaðið
rúmlega einnar milljónar
króna hagnaði á sl. ári. Albert
varpaði fram þeirri spurningu,
hvort ekki væri ástæða til að
verja þessum tekjuafgangi til
að stofna varasjóð sem gæti orð-
ið blaðinu stoð á næstu árum í
stað þess að verja þessum
tekjuafgangi til að mæta aukn-
um útgáfukostnaði næsta
reikningsárs.
Reiðskólastyrk var úthlutað á
Alls nam styrkurinn, sem veitt-
ur er af Alþingi, 200 þúsund
krónum og fékk Fákur, Reykja-
vik, 88.900, Gustur, Kópavogi
59.240-, Léttir, Akureyri 30.240,
Neisti, Blönduósa 12.500 og þrjú
önnur félög fengu frá 4.200
krónum og niður í 1.960 krónur.
Fjárveiting til reiðvega nam
alls 1.118.400 krónum á árinu
og var þessari upphæð skipt
milli 14 félaga. Albert lét þau
orð falla að fjárveitingar Al-
þingis hefðu staðið óbreyttar
frá fyrra ári, þrátt fyrir harða
baráttu stjórnarinnar og harm-
aði hann að ekki skyldi komið
til móts við hinn almenna
áhuga, sem hvarvetna kemur í
ljós, þegar íþróttir hesta-
mennskunnar eru annars veg-
ar.
Haraldur Sveinsson, gjald-
keri L.H., skýrði reikninga sam-
bandsins var niðurstöðutala
rekstrarreiknings fyrir árið
1975 1.651.877 krónur. Stærstu
tekjuliðir voru árgjöld sam-
bandsfélaga rúmlega 830 þús-
und og vextir 311.586 en þeir
eru tilkomnir vegna þess fjár,
sem L.H. fékk til sinna umráða
eftir póstferðina á árinu 1974
og á að verja þessu fé til útgáfu-
starfsemi. Helstu kostnaðarlið-
ir voru skrifstofukostnaður 366
þúsund krónur, þinghald og
fundir 327 þúsund. Tekjuaf-
gangur varð 378.923.-.
Eins og áður gat skiluðu sex
milliþinganefndir þinginu
greinargerðum um störf sín og
tillögum um viðkomandi mála-
flokka. Nefndirnar, sem skil-
uðu af sér á þingi, störfuðu m.a.
að samningu tillagna um
breyttan dómstiga kynbóta-
hrossa, samningu reglna um
þátftöku unglinga í hestamót-
um, að athuga breyttan tíma
ársþinga og störf þeirra og lög-
fróðir menn skiluðu greinar-
gerð um rétt hestamanna til
umferðar um landið og á áning-
arstöðum. Nefnd vann að samn-
ingu dómstiga fyrir unghross í
tamningu og önnur að endur-
skoðun á reglum um gæðinga-
dóma.
Hér verður látið staðar numið
að sinni að segja frá þingi L.H.
en vonandi gefst tækifæri til að
skeggræða og kynna hinar
ýmsu tillögur, sem þingið sam-
þykkti í næstu þáttum. — t.g.
umsjón: TRYGGVI
GUNNARSSON
Þingfulltrúar skoða nýtt félagssvæði Hestamannafélagsins Horn-
firðings og ný hesthús félagsmanna. Næsta sumar verður haldið á
þessu svæði Fjórðungsmót austfirskra hestamanna.
árinu til sjö hestamannafélaga.