Morgunblaðið - 09.12.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
5
Ingólfs
Apótek
flyzt
búferlum
INGÓLFS Apótek mun í byrjun
næsta árs flytjast úr Fischersundi
í Hafnarstræti 5, þar sem áður var
Ferðaskrifstofa Geirs Zoéga.
Samningar þessa efnis voru
undirritaðir nú í vikunni, en Ing-
ólfs Apótek hefur verið í Fischer-
sundi síðan 1958. Að sögn
Werners Rasmussen lyfsala er
húsnæðið í Hafnarstrætinu mun
hentugra til lyfsölureksturs en
það húsnæði, sem apótekið hefur
verið í.
Firmakeppni TR
í hraðskák:
Friðrik og
Guðmund-
ur meðal
keppenda
TAFLFÉLAG Reykjavíkur efnir
tii firmakeppni í hraðskák, og
hefst mótið í dag fimmtudag kl.
20 i húsakynnum félagsins. Hefst
keppnin á undanrásum sem
einnig munu standa föstudag,
laugardag, sunnudag og mánu-
dag. Geta skákmenn hafið keppni
hvaða ofangreindan dag sem þeir
kjósa. Báðir íslenzku stórmeist-
ararnir í skák, Friðrik Ólafsson
og Guðmundur Sigurjónsson,
munu taka þátt í þessari keppni,
og auk þeirra verða flestir sterk-
ustu skákmenn þjóðarinnar
meðal keppenda.
Um 250 fyrirtæki taka þátt í
þessari keppni, en keppnin, sem
er með útsláttarfyrirkomulagi,
hefur verið árviss atburður i
starfi T.R. og er mikilvægur
hlekkur i fjáröflun þess.
Jarðskjálfta-
hrinunni
lokið á Kötlu-
svæðinu?
— UNDANFARIÐ hefur dregið
úr jarðskjálftahrinunni f Mýr-
dalsjökli og svo virðist sem hún
sé á undanhaldi, sagði Ragnar
Stefánsson jarðskjálftafræðingur
I viðtali við Morgunblaðið I gær.
Ragnar sagði að honum fyndist
nú, að Ifkur á Kötlugosi hefðu
minnkað verulega, en engin leið
væri að segja um slikt með vissu.
Siðan 29. siðasta mánaðar hefur
skjálftum farið fækkandi með
hverjum degi, en stærsti kippur-
inn siðan þá mældist 3.6 stig á
Richter þann 30. nóvember. Nú
mælast 2—3 skjálftar á þessum
slóðum á sólarhring. — Þó farið
sé að draga úr jarðskjálftahrin-
unni, sem hófst i ágústmánuði, þá
er of mikið sagt að hún sé búin og
enn er fylgzt mjög náið með fram-
vindu mála fyrir austan, sagði
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur.
AOGl-ÝSINGASÍMINN ER:
22480
j JR*rexinbI«bib
Fullar verzlanir
Nýjar vörur teknar upp daglega til jóla
Opið til kl. 8 annað kvöld og
til kl. 6 á laugardag