Morgunblaðið - 09.12.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
7
Óskhyggja
kommúnista
SVO virðist sem ofstopa
mennirnir í hópi
kommúnista, sem stóðu
fyrir tilraunum til
„hreinsunar" að stalínisk
um sið á siðasta ASÍ-þingi
séu haldnir þeirri ósk-
hyggju, að þeir tveir sjálf-
stæðismenn sem kjörnir
voru í miðsjórn ASÍ, þeir
Björn Þórhallsson, for-
maður LÍV, og Magnús
Geirsson, formaður Raf-
iðnaðarsambands íslands,
muni reynast þeim auð-
veldari viðfangs en
Guðmundur H. Garðars-
son og Pétur Sigurðsson,
sem sátu i miðstjórn ASÍ á
siðasta kjörtimabili. Þessi
óskhyggja ofstopamanna
kemur fram i grein eftir
einn helzta talsmann
þeirra, þriðjudagsgrein
Þjóðviljans nú fyrr i vik-
unni. Þar segir höfundur:
„Þótt tveir fulltrúar
sem teljast til Sjálfstæðis-
flokksins næðu með
naumindum kosningu til
miðstjórnar, þé er skerð-
ingin á valdi ihaldsins enn
meiri en fulltrúafækkunin
segir til um. Guðmundur
H. Garðarsson og Pétur
Sigurðsson voru sérstakir
trúnaðarmenn flokksfor-
ystunnar i Sjálfstæðis-
flokknum. Þeir höfðu afl
til að beita sér og vilja til
að þjóna ráðamönnum
flokksins. í stað þeirra
kemur Bjöm Þórhallsson
sem á engan hátt er þeirra
jafningi að pólitiskum
styrkleika. Bjöm er
stjómarformaður Dag
blaðsins og hefur sem
slikur hlotið mikið hatur
Geirsklikunnar sem stend-
ur með Visi. Forysta Sjálf-
stæðisflokksins mun eiga
erfitt með að sætta sig við
Björn Þórhallsson sem
trúnaðarmann sinn innan
verkalýðs hreyfingarinnar
enda gefur hann út blað
sem i sifellu hefur gagn-
rýnt flokksforystu Geirs
Hallgrímssonar Hinn full-
trúi Sjálfstæðisflokksins,
Magnús Geirsson hefur á
undanförnum árum færst
æ fjær kjarna flokksins.
Pétur Sigurðsson var svo
óánægður með fylgis-
spekt Magnúsar að hann
taldi hann hvað eftir
annað „vera kominn hálf-
an í Álþýðuflokkinn".
Þegar Guðmundur H.
Garðarsson og Pétur
Sigurðsson eru burtu
reknir úr miðstjórn ASÍ og
sjórnarformaður Dag-
blaðsins og hálfur krati
komnir Í staðinn, þá er
von að forysta Sjálf-
stæðisflokksins bölvi og
ragni i aðalmálgagninu.
Það eru áratugir síðan
flokkur hefur fengið jafn-
herfilega útreið og Sjálf-
stæðisf lokkurinn fékk á
nýafstöðnu þingi
Alþýðusambandsins."
Verða fyrir
vonbrigðum
Ofbeldismenn kommún-
ista eiga eftir að verða
fyrir vonbrigðum.
Þeir Björn Þórhallsson
og Magnús Geirsson eiga
báðir að baki langt starf i
launþegasamtökunum.
Þeir munu báðir reynast
traustir og öflugir tals-
menn lýðræðishugsjóna
og faglegrar verkalýðsbar-
áttu i miðstjórn ASÍ. í við-
tali við Morgunblaðið i
gær, segir Björn Þórhalls-
son m.a. um atburðina á
ASÍ-þinginu: „Við
sjálfstæðismenn höfum
alla tið haldið því fram, að
allir gætu starfað fyrir
verkalýðshreyfinguna
burtséð frá flokkapólitík.
Hitt er svo annað mál, að
ef fyrirætlun kommúnista
hefði heppnazt, en hún
hafði greinilega verið
lengi í undirbúningi, tel ég
vist, að það hefði leitt til
klofnings Alþýðu-
sambandsins, af þvi að
íslenzk alþýða er ekki enn
orðin vön þvi að láta
kommúnista kúga sig.
Afleiðingarnar veit enginn
um, en hver hefði staða
íslenzks verkalýðs orðið.
ef hann hefði þurft að
ganga fram klofinn?"
Og Magnús Geirsson
segir i viðtali við Morgun-
blaðið í gær:
„Aðförin að sjálfstæðis-
mönnum var bæði óviðun-
andi og heimskuleg og
varð slzt til að styrkja
verkalýðshreyfinguna.
Þrátt fyrir óskir órólega
hópsins innan
Alþýðusambandsins er
það fólkið i hinum
einstöku félögum
verka lýðsh reyf inga rin na r,
sem ræður ferðinni. Það
er ekkert miðstjómarvald
innan ASÍ, sem ákveður
stefnuna i kjaramálum.
Sjálfur átti ég von á, að
þessi litli órólegi hópur
mundi gera það, sem
hann gæti til að eyði-
leggja þá einingu sem
náðst hefur innan
verkalýðsh reyfingarinnar
hin siðustu ár."
Það er mikill misskiln-
ingur hjá öfgamönnum f
hópi kommúnista, ef þeir
halda að þeir tveir menn
sem hér er vitnað til verði
veikari talsmenn
lýðræðissinna innan mið-
stjórnar ASÍ en þeir, sem
fyrir voru. Breiddin i
forystuliði sjálfstæðis-
manna í launþega-
samtökunum er meiri en
svo
Vandaóu valió -
veldu Philishave
Skeggrót þín er sérstök, hver húð hefur
sín einkenni. Þess vegna hefur nýja
Philishave 90- Super 12,dýptarstillingu.
Handhægur rennistillir velur réttu
stillinguna.sem best hentar þinni húð og
skeggrót. Veldu 1—9 og ein þeirra
hentar þér. Þess vegna velur þú lika
Philishave.
Philishave —
nafnið táknar heiipsfrægt
rakhnifakerfi. Þrjá
hringlaga fljótandi
rakhausa. Þrisvar
sinnum tólf fljótvirka
) hntfa.sem tryggja fljótan,
1 þægilegan og snyrtilegan
rakstur. Þrisvar sinnum
níutíu raufar, sem gripa bæði löng hár
og stutt i sömu stroku. Er ekki kominn
tími til, að þú tryggir þér svo frábæra
rakvél?
Löng og stutt hár i sömu stroku.
Nýja Philishave 90-Super 12 kerfið hefur
auðvitað hina þrautreyndu hringlaga rakhausa
með 270 rakraufum (ðOá hverjum haus).
Árangurinn læturekki
á sérstanda: Löngp
ogstutt hár
hverfa í sömu
stroku og rak-
hausarnir
haldast eins
ognýirárum saman.
Eitt handtak og bartskerinn af stað. Snyrtir barta
og skeggtoppa á auga-
bragði. Það kunna
snyrtimenni að meta. —
Hraður og mjúkur rakstur.
Nýja Philishave 90- Super
12 hefur tvöfalt fleiri hnífa
en eldri gerðir. Árangurinn
er hraður rakstur. Auk
þess, hefur þrýsting
ur sjálfbrýnandi hnífanna á rakhaus-
inn verið aukinn. Árangurinn er
mýkri ogbetri rakstur.
Reyndu Philishave
90-Super 12,og
þú velur Philishave.
HP 1121 — Stillanleg rak-
dýpt.sem hentar hverri
skeggrót. B^rtskeri og
þægilegur rofi. Auðvitað
gormasnúra og vönduð
gjafaaskja.
PHILIPS
Fullkomin þjónusta tryggir
Philips kann
tökin á tækninni.
Nýja
Nyja Philishave
90-Super 12
3x12 hnifa kerfið.
Verzlunin Hof
Opnar nýja verzlun að Ingólfsstræti 1. (Á móti
Gamla Bíói)
Fallegar gjafavörur frá Austurlöndum einnig
garn og hannyrðarvörur.
Á gamla staðnum í Þingholtsstræti er stórútsala
á qarni og hannyrðavörum.
HOF
RowenfA
Kaffivélar
4 gerðir
ROWENTA-
UMBOÐIÐ
Langþráðu takmarki náð
Byggðasaga
Austur-Skaftafellssýslu
3. bindi:
Öræfi og Hafnariireppur
Nú loksins er öll byggða-
sagan komin út. Ómetan-
legur gimsteinn i fjársjóð
minninganna. Þeir, sem
unna átthögum sinum,
eiga nú þess kost að fá
heitustu ósk sína upp-
fyllta, — sögu æsku-
stöðvanna á einum stað í
þremur glæsilegum bind-
um.
Öll þrjú bindin fáanleg í
takmörkuðu upplagi.
BÓKAÚTGÁFA GUÐJÓNSÓ,
LANGHOLTSVEGI 111,
REYKJAVÍK, SÍMI 85433
AEG
HANDVERKFÆRI
AEG
Cjilil
. li
1
1 V«l ■ li 1
1
Fjölbreytt úrval AEG handverkfæra til iðnaðar-
bygginga- og tómstundavinnu.
Vandið valið og notið sterk og vönduð verkfæri.