Morgunblaðið - 09.12.1976, Page 14

Morgunblaðið - 09.12.1976, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976 Aðventistar: Reynum að ná til þeirra landa, þar sem hörmungarn- areru mestar... SAMBAND sjöunda dags aðvent- ista á sér orðið yfir einnar aldar sögu. Árið 1863 var fyrsti söfnuðurinn myndaður I Nýja- Englandi í Bandarfkjunum, f honum töldust vera þrjú þúsund og fimm hundruð manns. Upp frá því dreifðist regla sjöunda dags aðventista út til gamla heimsans, Evrópu, og f dag eru um tvær milljónir og sex hundruð þúsund aðventistar í söfnuðum út um all- an heim eða f hundrað og níutfu löndum. Þar af eru aðeins tuttugu prósent þeirra f Bandarfkjunum. Varaforseti heimssambands sjö- unda dags aðventista heimsótti söfnuði þeirra hér á landi um miðjan nóvember siðastl. og ræddi Morgunblaðið stuttlega við hann og forstöðumann safnaðar- ins á Íslandi, Sigurð Bjarnason. Varaforseti heimssambandsans F.W. Wernick skýrði stuttlega frá víðtæku hjálpar- og liknarstarfi aðventista um allan heim . „Það er okkar trú,“ sagði Wernick meðal annars, ,,að sem kristnir menn eigum við að gera allt, sem í okkar valdi stendur til að lina þjáningar meðbræðra okkar alls staðar í heiminum". Eins og áður hefur komið fram eru söfnuðir aðventista starfræktir út um allan heim, þar á meðal í Afriku Mið- austurlöndum, Asiu, Sovét- rikjunum og S-Ameriku. Wernick skýrði frá þvi að síðastl. ár hefði þrem milljónum og sjö hundruð þúsund bandarikjadölum verið varið til hjálparstarfa í fjörutíu löndum. „Við reynum að ná til allra þeirra landa, þar sem hörmung- arnar eru mestar, þar sem náttúr- uhamfarir hafa verið eða styrjaldir geisað. Þegar borgara- styrjöldin stóð sem hæst í Beirút í Libanon, stóð deild okkar, sem við köllum Afríku- og Mið austur- jÉlflftwl Islenskar æviskrár frá landnamstima til ársloka 1965. VI bindi er komio út Gætið þess við pöntun VI bindis, að tilgreina gerð bands. Á skrifstofu félagsins getið þér fengið bækling sem gerir m.a. grein fyrir þeim ýmsu gerðum bands sem bjóðast. PÖNTUNARSEÐILL HID ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG VONARSTRÆTI 12, REYKJAVÍK, SÍMI 21960 Sendið mér 6. bindi af ISLENSKUM ÆVISKRAM gegn póstkröfu. Setjið X við þá gerð af bandi sem þér óskið. □ A db DC GD Verð til félagsmanna ib. kr. 4000 + sölusk. — — □ ób — 3840 + sölusk Verð til utanfélagsmanna ib kr. 5000 + sölusk — — □ ób. — 4800 + sölusk Hið islenska bókmenntafélag. NAFN HEIMILI SlMI.................. Enn er unnt að fá öll bindin, en upplag er þó mjög takmarkað. íslenskar æviskrár er eitt mesta verk sem nokkru sinni hefur verið gefið út hér á landi um ættfræði og persónusögu. F.W. Wernick, varaforseti heims- sambands Sjöunda dags aðvent- ista, ásamt Sigurði Bjarnasyni, forstöðumanni aðventista I Is- landi. Myndin er tekin, er Wern- ick kom ( stutta heimsókn til Is- lands um miðjan nóvember. Ljósm. Mbl. Rax. landa deildina, fyrir gifurlegu hjálparstarfi þar. Það var alls ekki auðvelt verk og endanlega var starfsliðinu ekki vært lengur í Beirút og það flúði til Kýpur, þar sem það hélt áfram starfsemi sinni. Meðaltal söfnunarfjár í Bandarikjunum síðastliðið ár, var um hundrað og sextiu dalir á hvern einstakling. Var því fé öllu varið til hjálparstarfa á vegum sjöunda dags aðventista." Sagði Wernick ennfremur að alls væru innan heimssambands sjöunda dags aðventista um eða tæplega 25 þúsund söfnuðir. „Stór liður í starfi aðventista," sagði Wernick, „er að stuðla að aukinni og betri menntun. Skólar á okkar vegum eru öllum opnir, hvort sem þeir tilheyra aðvent- istasöfnuðum eða ekki.“ Sem dæmi um það , sagði Wernick að I Indlandi væru starfræktir nokkur hundruð skólar og væri meiri hluti nemenda ekki i söfnuði sjö- unda dags aðventista. Einnig sagðist hann hafa heimsótt tvo skóla á þeirra vegum í Hong Kong síðastl. ár og hefðu þar verið um sextán hundruð nemendur. Um það bil fimmtiu framhaldsskólar eru á vegum aðventiista út um allan heim. Barnaskólar eru um 3700 og háskólar tveir, báðir I Bandaríkjunum. „Staðreyndir allra sannra vís- inda eru í samræmi við Biblíuna," sagði Wernick, „og þar af leiðandi okkar trú. Hin andlega uppbygg- ing er því mikilvæg og einnig sú líkamlega. Að okkar áliti er mannslíkaminn ekki síður heil- agur en andinn og því ber að meðhöndla hann sem slikan." Að sögn Wernicks eru um þrjú hundruð og fimmtiu spítalar á vegum aðventista, út um allan heim, svo og heilsugæslustöðvar. Um fimmtíu bókaútgáfufyrirtæki eru starfrækt á þeirra vegum. Sigurður Bjarnason, forstöðu- maður sjöunda dags aðventista á Islandi, sagði að hér á landi væru alls sjö hundruð meðlimir og söfn- uðir væru sex. Skólar á vegum aðventista á Islandi eru I Reykja- vík, Keflavik, Árnssýslu og svo Hlíðardalsskólinn I ölfusi, en sá siðastnefndi er bæði barna- og gagnfræðaskóli. Hjálparstarf aðventista á Islandi sagði Sagurður að væri aðallega fólgið í söfnun á fatnaði fyrir bágstadda. Síðastl. ár sagði hann, að safnað hefði verið fatn- aði fyrir tvö þúsund einstaklinga að verðmæti ein milljón króna. Auk þess hefur verið úthlutað peningum og mat. Til Grænlands sendu islenzkir aðventistar síðastl. ár um tvö tonn af fatnaði, sem Varnaliðið tók að sér að flytja og dreifa þar. Bókaútgáfa islenzkra aðventista er einnig blómleg. Nú eru þeir að undirbúa 6. hefti af sögum Bibliunnar fyrir börn — en þegar hafa verið gefin út niu þúsund bindi af fyrsta hefti þess bókaflokks. Einnig eru þeir nú að gefa út nokkrar þýddar bækur, þar af eina eftir banda- ríska rithöfundinn E.G. White.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.