Morgunblaðið - 09.12.1976, Síða 19

Morgunblaðið - 09.12.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976 19 Upplýst um gamalt ástar- ævintýri Ikes í stríðinu £ ÞAÐ er sérdeilis vinsælt á seinni tlmum að grafa upp iöngu liðin kvennamál látinna Banda- rfkjaforseta og fjalla um þau fjálglega. Franklin Roosewelt hefur fengið sinn skammt og John Kennedy ekki farið var- hluta af þessu að heldur. Og nú er röðin komin að Eisenhower heitn- um. Nýkomin er ut bðk eftir konu að nafni Kay Summersby, sem heitir „Past forgetting: My Love Affair with Dwight D. Eisenhower.** Kay summersby lézt úr lifrarkrabba á sl. ári og hún ritaði bðkina nokkru áður en hún dð: „Eg finn mig nú frjálsa að þvf að segja sögu mfna. Hers- höfðinginn er látinn og ég er dauðans maður ... .Eg trúi þvf ekki að nokkur muni nú Ifta samband okkar hornauga....“ Lengi hafði orðrðmur verið á kreiki um að Eisenhower hefði átt f ástarævintýri f heimsstyrj- öldinni sfðari með stúlkunni Kay Summersby, sem var fyrrverandi fyrirsæta, frskrar ættar. Hún var langt af einkabflstjðri hans f strfðinu, þvf að hún gekk f þjðn- ustu hans árið 1941. Lætur hún að þvf liggja að hún og Eisenhower hafi orðið ástfangin við fyrstu sýn en ekki játað tilfinningar sfnar fyrr en alllöngu sfðar. Þá voru þau ein f aðalbækistöðvum hans i Alsfr. „Fjárakornið hafi það“, segir hún að Ike hafi sagt,„geturðu ekki skilið að ég er vitlaus f þig.“ Segir hún að þau hafi að svo mæltu fallist f faðma og kossar hans hafi verið ástrfðu- fullir og krefjandi og „ég svaraði atlotum hans af jafn mikilli ástrfðu.“ Kay segir það hafi verið erfið- leikum bundið að halda leyndu sambandi þeirra. Hún segir frá þvf þegar þau hafi laumast til að fá sér drykki að næturlagi f dag- stofu hans, smáatlot f myrkv- uðum herflutningavélum. Haldist f hendur f loftvarnarbyrgjum og svo framvegis. Einu sinni þegar Eisenhawer kom úr leyfi frá Bandarfkjunum sagði hann við hana og glotti við: „1 hvert skipti sem ég ávarpaði Mamie, kallaði ég hana Kay. Hún varð æf.“ Key segir að Ike — sem þá var rúmlega fimmtugur — hafi látið f Ijós vilja til að eiga barn með henni. En þegar þau reyndu að eiga mök saman — hún lýsir tveimur tilraunum i þá átt — brást geta hans. Hún segir að hann hafi rakið það til margslunginna hjúskaparerfið- leika sinna. „Þetta varð til að eitthvað dó inni f mér. ekki sam- stundis, heldur smám saman." Summersby segir ekki hvað hafi gerzt milli Ike og Mamie, „þá sögu er ekki mitt að segja. En þar voru sárindi á báða vegu, svo djúp að þeim tókst aldrei að græða þau — enda þótt vilja til þess skorti ekki.“ Eftir að strfðinu lauk, gaf Eisenhower hana upp á bátinn. En Summersby kveðst trúa þvf sem haft er eftir Truman að Eisenhower hafi tjáð George Marshall hershöfðingja að hann hefði I hyggju að skilja við Mamie og ganga að eiga Kay. En Marshall hafi talið hann ofan af þvf. Summersby settist að f Bandarfkjunum og kveðst nokkr- um sinnum hafa farið á fund Eisenhowers, en fundið að hann var þá ómóttækilegur fyrir henni og virtist óþægilegt að hitta hana. Hún giftist sfðar og skildi, varð loks leikbúningateiknari við leik- hús á Broadway. Hún dó 66 ára að aldri f janúar 1975. Og hver hafa svo orðið viðbrögð Mamie Eisenhower, sem nú er áttræð að aldri við bók Summersby. ,J:g hef talað um þetta við móður mfna,“ segir John Eisenhower sonur hennar," og hún lætur sér hvergi bregða." Ljós mér skein BÓKAUTGAFAN Örn og örlygur hefur gefið út f þýðingu Sigur- laugar Árnadóttur, endurminn- ingar frú Sabfnu Wurmbrand, eiginkonu neðanjarðarprestsins. 1 bók sinni greinir frú Wurm- brand frá þvf hvernig bjargföst trú á guðlega handleiðslu veitti henni styrk til þess að lifa af ómannúðlega meðferð f fangels- um kommúnista f Rúmenfu. Bókin heitir, Ljós mér skein á dimmum dögum. Á bókarkápu segir m.a.: Höf- undur þessarar bókar, Sabina Wurmbrand, er um margt frábær. Árum saman verður hún að sæta hinni hraksmánarlegustu með- ferð i fangabúðum kommúnista i heimalandi sinu, Rúmeniu. Pynd- ingar og hvers konar harðrétti eru megineinkenni i daganna þraut. Þjakandi áhyggjur vegna eiginmanns og sonar leggjast þungt á hug og hjarta. En bugast lætur hún aldrei. Formannarád- stef na FFSÍ FORMANNARÁÐSTEFNA Far- manna- og fiskimannasambands Islands var haldin um helgina. Raðstefnan samþykkti nokkrar ályktanir, sem sendar verða fjöl- miðlum siðar. Þá samþykkti ráð- stefnan fjárhagsáætlun fyrir sam- bandið og Sjómannablaðið Vik- ing. Þetta er önnur formannaráð- stefna FFSÍ, sem haldin er, en ráðstefnan er haldin það árið, sem farmannasambandsþing er ekki. Forseti Farmanna- og fiski- mannasambands íslands er Jónas Þorsteinsson skipstjóri frá Akur- eyri. Vörumarkaðsverð Verð á jólamarkaði Opalbrjóstsykur Leyft verð Okkar verð 350 gr. 10 teg >8^ 344 Sirius- suðusúkkulaði 350 gr. 283 Góa blandaðar karamellur 200 gr. .'■'2001 180 Kerti 10 stk. i pakka. . "36^ 302 Kertabakkar ..^rtKS 930 Sprittkerti 10 stk 195 Kommóður 4 skúffur breidd 60 cm hæð 75 cm 6 skúffur breidd 60 cm hæð 107 cm 3 skúffur breidd 75 cm hæð 59 cm 6 skúffur breidd 75 cm hæð 107 cm Fáanlegar í furu og bæsaðar brúnar Verð frá kr. 18.000.— Ruggustólar brúnbæsaðir 2 gerðir bambusruggustóla Verð frá kr. 13.900. — NÝJAR HÚSGAGNASENDINGAR DAGLEGA Úrval af konfektkössum á Vörumarkaðsverði Urval af erlendu sælgæti á Vörumarkaðsverði Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1A Matvörudeild s. 86111 Húsgagnadeild s. 86112. Strásykur í kílóapakkningum á 89 krónur pr. kg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.