Morgunblaðið - 09.12.1976, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
23
Bretar vonast
eftir samningi
the sunday
BRETAR gera sér vonir um að
samningar takist milli Efna-
hagsbandalagsins og Is-
lendinga innan tveggja mánaða
samkvæmt frétt f Sunday Tele-
graph. Ssmkvæmt öðrum
heimildum eru Bretar þess
fulivissir að þeir geti hafið aft-
ur veiðar 1. janúar.
Hins vegar gera Bretar ráð
fyrir þvl að þurfa að draga úr
aflamagni sfnu samkvæmt
þessum fréttum. Og þótt þeir
séu vongóðir gætir mikillar
beizkju f brezku hafnar-
bæjunum.
„Við getum ekki hagnýtt
okkur nýjan samning fljótt þvf
það tekur sinn tíma að gera
skipin klár til veiða," segir tals-
maður brezkra togaramanna
samkvæmt Telegraph. „Við
missum af fiskveiðum I heilan
mánuð og það verður þröngt i
búi í hafnarbæjunum næstu
vikurnar."
The Times segir, að um
þriðjungur þess afla, sem hafi
verið landað i Grimsby á und-
anförnum þremur mánuðum,
hafi komið úr fslenzkum skip-
um. Landanirnar eru taldar
eina samningavopnið, en blaðið
segir að litlar horfur séu á þvi
að Finn Olav Gundelach,
samningamanni EBE, takist að
semja við tslendinga.
Brezka stjórnin er sökuð um
að vera treg til að finna lausn á
vanda brezka sjávarútvegsins
og þó er bent á, að ekki hafi
skort álitsgeröir og tillögur frá
aðilui sjávarútvegsins og yfir-
völdur, ■ I Hull, Grimsby og
Humberside.
Eina vonarglæta sem for-
svarsmenn brezka sjávarút-
vegsins sjá er útfærsla lögsögu
Trawlermen bitteraf
Iosing Icelar-) atch
:n\otv
pRITTC’
fisvo»*G
'eland’s 200-mile
Th German and
dic agreement
EBE f 200 milur 1. janúar.
Svartsýnin stafar ekki aðeins af
þvi að brezkir togarar hafa
orðið að hætta veiðum við
Island heldur og vegna þess að
austur -evrópskir togarar moka
upp fiski rétt utan við 12 milna
mörkin og deilt er um kröfu
Breta um 50 milna lögsögu
innan EBE.
Brezkum úthafstogurum
hefur fækkað úr 500 í 360 síðan
sfðasta þorskastrfð hófst, aflinn
Bleak days
for the cod fleets.
that may
never go to seaas
hefur minnkað úr 220.000 tonn-
um I 100.000 og 1500 sjómönn-
um hefur verið sagt upp að
sögn The Times. Blaðið segir,
að atvinnuleysi muni aukast ef
Gundelach tekst ekki að semja
við Islendinga og breiðast út til
starfsfólks i landi.
I Brússel koma landbúnaðar-
ráðherrar EBE saman 14.
desember til viðræðna um fisk-
veiðimál.
Amnesty International efn-
ir til „árs pólitískra fanga
99
99
Söfnun 2 milljóna undirskrifta hefet á morgun
Lundúnum — 8. desember — AP.
AMNESTY International hyggst
efna til undirskriftasöfnunar þar
sem skorað er á Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna að sam-
þykkja ályktun þar sem þvf er
beint til allra rfkisstjórna verald-
ar, að haldin séu ákvæði mann-
réttindayfirlýsingar Sameinuðu
þjóðanna og öllum pólitfskum
föngum f heiminum verði sleppt.
Markmið Amnesty International
er að safna 2 milljónum undir-
skrifta. Undirskriftasöfnunin
hefst á morgun, en 10. desember
er árlegur mannréttindadagur
EBE ákveður
aflaskerðingu
Stokkhólmi, 8. desember NTB.
EFNAHAGSBANDALAGIÐ býð-
ur lfklega sænskum sjómönnum
helming þess afla sem þeir fengu
á þessu ári á miðum bandalags-
landanna að þvf er Svenska Dag-
bladet skýrði frá f dag.
Bandalagið fer sennilega fram
á sama niðurskurð á afla sjó-
manna frá Finnlandi, Austur-
Þýzkalandi, Sovétrfkjunum og
Póllandi og öðrum löndum sem
geta ekki boðið gagnkvæm fisk-
veiðiréttindi að sögn blaðsins.
Samningur um veiðar Svía upp
að fjögurra mílna landhelgi Dana
verður lfklega áfram í gildi segir
blaðið.
Norðmenn og Færeyingar fá
liklega tilboð um að fá að veiða
sem svarar 90% af afla þeirra á
þessu ári ef EBE-löndin fá sams
konar réttindi innan 200 mflna
lögsögu þeirra.
Ástæðan til niðurskurðarins er
sögð ofveiði á Norður-Atlantshafi
þar sem sagt er að vissar fiskteg-
undir muni hverfa ,ef afli verði
ekki takmarkaður.
Þvi mun EBE einnig ákveða að
sjómenn aðildarlaganna minnki
afla sinn um sem svarar tíu af
hundraði miðað við aflann á
þessu ári.
Ráðuneytisstjóri norska utan-
ríkisráðuneytisins, Finn Foster-
voll, segir að Norðmenn hafi ekki
vitneskju um þá kvótaskiptingu
sem Svenska Dagbladet talar um.
Norðmenn ræða við EBE 16. og
17. desember og kvótar verða
ákveðnir eftir þær viðræður.
Norðmenn hafa tekið skýrt fram
að EBE-löndin verði að draga
verulega úr afla sinum.
Sameinuðu þjóðanna. Fyrirhugað
er að leggja undirskriftalistana
fyrir allsherjarþingið 10. desem-
ber 1977, og er þannig ætlun sam-
takanna að efna til „árs pólitfskra
fanga".
Samkvæmt skipgreiningu
Amnesty International eru póli-
tískir fangar þeir, sem hafa verið
frelsi sviptir vegna skoðana
sinna, en hafa hvorki beitt ofbeldi
né hvatt til ofbeldisverka.
Á fundi, sem Amnesty
International hélt ásamt frétta-
mönnum í Lundúnum í dag, var
meðal annarra staddur fyrrver-
andi forsætisráðherra Rhódesfu,
Garfield Todd, og kvað hann það
skoðun sina, að árangurinn af
undirskriftasöfnuninni yrði ekki
sízt sá að vekja samvizku þeirra 2
Skotinn
á flótta
Bonn, 8. desember. NTB.
MAÐUR, sem virðist hafa reynt
að flýja til Vestur-Þýzkalands,
var skotinn á Iandamærum Aust-
ur-Þýzkalands i morgun.
Landamæraverðir heyrðu skot-
hljóð og neyðaróp og sáu austur-
þýzka landamæraverði bera á
milli sfn mann og aka honum
burtu.
milljóna manna sem nöfn sín
mundu rita á undirskriftalistana.
Hann sagði, að um þessar mundir
væri um hálf milljón pólitiskra
fanga, en mannréttindayfirlýsing-
in væri þverbrotin i 112 þjóðlönd-
um. Sjálfur sat Todd i stofufang-
elsi i Rhódesíu i 12 ár, en var
sleppt í júnímánuði s.l. og tekur
hann nú þátt f ráðstefnunni um
framtfð Rhódesíu, sem haldin er f
Genf.
Handtök-
ur íþrótta-
manna í
Svíþjóð
Stokkhólmi, 8. desember. NTB.
MARGIR sænskir íþrótta-
menn eru viðriðnir stór-
felldan þjófnað sem lög-
reglan í Stokkhólmi hefur
afhjúpað.
Tveir menn hafa verið
handteknir og annar
þeirra hefur játað að hafa
tekið þátt í að stela plötu-
spilurum og stereo-
mögnurum að verðmæti
um ein milljón norskra
króna og selja þá. Hann
kveðst hafa þurft pening-
ana til íþróttaþjálfunar.
Fimm til tfu aðrir kunnir
Iþróttamenn i sérflokki eru grun-
aðir um að vera viðriðnir málið.
Sökudólgarnir stálu tækjunum
úr stórri vörugeymslu og gengu
svo fagmannlega til verks að
þjófnaðurinn hefði varla komizt
upp ef þjófarnir hefðu ekki verið
ógætnir þegar þeir seldu þýfið.
Þeir seldu plötuspilarana og
magnarana vinum sinum og
kunningjum viðs vegar í Svfþjóð.
Um 200 kaupendur eru grunaðir
um þátttöku í svikunum.
Þjófarnir hafa lifað hátt í haust
og þeir tveir sem hafa verið hand-
teknir hafa meðal annars dvalizt á
ítaliu og keypt sér dýra bíla. Lög-
reglan hefur lagt hald á bílana.
ERLENT
Var ófrjósemislyfi
sprautað í börn ?
Nýju Delhi, Reuter
RtKISSTJÚRN Indlands hefur
aflýst um sinn bólusetningar-
áformum sfnum, en fyrirhugað
var að bólusetja skólabörn f
stórum stfl gegn bólusótt,
kóleru og barnaveiki. Hefur sá
grunur komið upp að börnin
hafi þess f stað verið sprautuð
ófrjósemislyfi. Sú frétt hefur
orðið til að vekja hina mestu
skelfingu hjá foreldrum sem
hafa f löngum röðum tekið
börn sfn úr skólum til að koma
f veg fyrir þetta.
Indira Gandhi forsætisráð-
herra neitaði því að mistök
hefðu átt sér stað og blöð fluttu
langar fyrirsagnir til að full-
vissa fólk um að rétt væri að
málum staðið. Gandhi sagði að
áform stjórnar hennar um að
hafa hemil á barneignum væru
iðulega notuð af stjórnarand-
stæðingum gegn henni tal að
vekja tortryggni í garð stjórnar-
innar.
Engu að síður hefur nú verið
ákveðið að fresta frekari bólu-
setningum á skólabörnum
þangað til orðrómur þessi hefur
hljóðnað.
Brúðkaup í
Stokkhólmi
Slokkhólml, 7. desrmbtr. Reuler.
BERTIL Svfaprins gekk að
eiga leikkonuna Lilian Craig f
Drottningholm-höll skammt
frá Stokkhólmi f dag.
Karl Gústaf konungur veitti
frænda sfnum leyfi til gifting-
arinnar f október.
Brúðhjónin kynntust f Lon-
don á striðsárunum. Frú Craig
fluttist til Stokkhólms 1957
þegar hún hafði skilið við
skozka leikarann Ivan Craig.
Hún hefur sfðan verið sambýl-
iskona prinsins.
Tito óttast ekki
innrás um sinn
Steven B. Williams, 38 ára gamall maður frá Santa Fe f Nýju Mexfkó
stfgur út úr vörubfl sfnum eftir tilraun til að aka gegnum hliðið að lóð
Hvfta hússins. Keðjurnar voru notaðar til að festa hjólbarða ofan á
bflnum. Lögreglumaður Hvfta hússins til vinstri.
Belgrad, 8. desember. Reuter.
TITO forseti hefur tryggt ein-
dreginn stuðning Frakka við
sjálfstæði Júgóslavfu og varað við
þvf að árás á landið borgi sig ekki
þar sem Júgóslavar séu erfiðir
mótherjar.
I yfirlýsingu sem var gefin út
eftir heimsókn Giscard d’Estaings
Frakklandsforseta segir að riki
hafi rétt til sjálfstæðis, til þess að
velja sér það stjórnmála- og efna-
hagskerfi sem þau telji sér hafa
og til að ákveða hvort þau gangi i
bandalög, gæti hlutleysis eða
haldi sig utan valdablokka.
Tito sagði i yfirlýsingu áður en
Frakklandsforseti fór: „Ég get
ekkert um það sagt hvort ráðizt
verður á Júgoslavfu f framtiðinni
og í svipan veit ég ekki hvaðan
slík árás gæti kornið."
„Eins og sakir standa er sjálf-
stæði Júgóslavíu engin hætta
búin,“ sagði Tito.
Elliot Richardson, verzlunar-
ráðherra Bandaríkjanna, og Max
van der Stoel, utanríkisráðherra
Hollands og sérlegur fulltrúi
Efnahagsbandalagsins, lögðu
áherzlu á sjálfstæði Júgóslaviu
þegar þeir voru f Belgrad nýlega.
Framtfð Júgóslaviu var talin i
hættu í haust þegar Tito var veik-
ur og ótti manna minnkaði ekki
við heimsókn sovézka flokksleið-
togans Leonid Brezhnevs sem
itrekaði að afskiptaleysi um
innanlandsmál væri hornsteinn
samskipta Rússa og Júgóslava.
Tito vinnur nú ötullega að
valdatöku samvirkrar forystu sem
geti stjórnað án utanaðkomandi
þrýstings og afskipta að honum
látnum.