Morgunblaðið - 09.12.1976, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
Fylgst með hasshund-
inum Bojack að störfum
á Keflavíkurflugvelli
LJósm. Friðþjófur.
Bojack er hinn fallegasti hundur eins og sjá má.
HASSHUNDURINN Bojack að störfum I pósthúsinu á Keflavfkur-
flugvelli. Gæzlumaðurinn heldur tryggilega um hálsbandið og takið
eftir litla boltanum I vinstri hendinni. Um þennan bolta snýst allt
hjá hundinum. Það er vissara að taka fram að svarta strikið yfir
andlit gæzlumannsins er tilkomið af þeirri ástæðu einni, að það var
talið geta skemmt fyrir honum við mikilvæg störf að allir vissu
hvernig hann lítur út.
smygl á slíkum efnum
bæði inn á völlinn og út-
af honum. Blaðamaður
og ljósmyndari voru á
ferð á Keflavíkurflug-
velli nýlega og í þeirri
ferð kynntu þeir sér þær
aðferðir, sem varnarliðið
beitir til að stemma stigu
við innflutningi og með-
ferð fíkniefna.
Þungamiðjan i fyrirbyggj-
andi fíkniefnavörnum á Kefla-
víkurvelli eru skipulagðar leit-
ir tveggja sérþjálfaðra hass-
hunda. Hasshundarnir eru i
umsjá sérstakra starfsmanna í
öryggisdeild varnarliðsins og
fengu Morgunblaðsmenn að
fylgjast með leit annars hass-
hundsins. Heitir sá Bojack, 3‘/í
árs þýzkur Schefferhundur,
stór og grimmur. Hinn hass-
hundurinn heitir Okey og er
hann svartur Labradorhundur,
4 ára. Báðir þessir hundar eru
sérþjálfaðir lögregluhundar og
þeir eru skráðir- í herinn rétt
eins og hermenn, og er skrá-
setningarnúmer Bojacks Z 231
og Okey NDD 1, Nákvæmlega
er fylgst með heilsufari hund-
anna og allar athuganir skráðar
i sérstakar heilsufarsbækur,
sem færðar eru samvizkusam-
lega.
Starfsmaður öryggisdeildar-
innar fræddi okkur um hund-
Howard Matson, blaðafulltrúi varnarliðsins, klappar hasshundin-
um Okey.
vélum, sem koma til landsins, í
öðru lagi að leita I pósti og í
þriðja lagi er farið i leitarferðir
í íbúðarskála hermanna, og þó
aóallega þeirra, sem einhleypir
eru.
Og hver er svo árangurinn
spurðum við. Hann e-r alltaf
einhver, hundarnir hafa fundið
fikniefni, en þó yfirleitt í
smærri skömmtum, enda afar
sjaldgæft talið að slík efni séu
geymd í stórum skömmtum inn-
an vallarhliðsins. En það mikil-
vægasta er aðhaldið sem hund-
arnir veita, og það er ekki hægt
að meta. Starfsmenn öryggis-
deildarinnar telja að tilvist
hundanna bægi frá áformum
fjölmargra hermanna um með-
höndlun ólöglegra fíkniefna.
Áhættan er svo mikil og refs-
ingarnar þá einnig, að flestir
sem hugleiða þetta leggja ekki
út í ævintýrið. Og allt starf
öryggisdeildarinnar að fíkni-
efnamálum, er unnið í fullri
samvinnu við íslenzka rann-
sóknaraðila ef þess er talin
þörf.
Sem fyrr segir fengu Morg-
unblaðsmenn að fylgjast með
leitarferð Bojacks i varnarliðs-
pósthúsinu á vellinum. Var
fróðlegt að fylgjast með aðför-
um hundsins. Þessir hasshund-
ar eru að sögn gæzlumanns
þeirra með vit á við 7 ára barn,
þefnæmi þeirra er 10 sinnum
meira en manna og heyrnin 25
sinnum betri. I pósthúsinu þef-
aði Bojack hátt og lágt og fylgdi
skipunum gæzlumannsins út í
yztu æsar. Hundurinn hefur
væntanlegs fundið lykt af ýmsu
tagi, því pakkarnir til hermann-
anna hafa sitthvað að geyma,
svo sem kökur frá mömmu óg
fleira i þeim dúr. En í yfirferð-
inni f þetta sinn gaf Bojack
engin merki um að hann hefði
fundið það sem hann hefur ver-
ið sérstaklega þjálfaður í að
finna, hass, marihuana eða
heróin. Að leit lokinni eru
hundarnir oft dasaðir, enda æg-
ir saman lykt af öllum möguleg-
um gerðum.
En hver er svo galdurinn á
bak við þetta spurðum við
gæzlumanninn. Hann er sá, að í
þjálfuninni er leitin gerð að
leik. Og hjá Bojack er takmark-
ið að fá bláan gúmmíbolta, sem
honum þykir vænt um og hann
Ieikur sér að þegar hann fær
hann. Hundurinn veit af bolt-
anum í hendi gæzlumannsins
og hann veit að hann fær að
leika sér að boltanum ef hann
finnur fíkniefni eða þá hann
stendur sig vel i leitinni, jafn-
vel þó hann finni ekkert. Þetta
er takmarkið hjá hundinum
allan timann sem hann er i
starfi, sem er fram til 6—7 ára
aldurs, en úr þvi verða hund-
arnir lélegir til leitar. Hundarn-
ir fá aldrei mat í verðlaun, það
gæri brenglað „verðmætamat"
þeirra.
Þjálfun hundsins er vissu-
lega mikilvæg en þá ekki síður
þjálfun gæzlumannsins. Hann
þarf að þekkja hundlnn út í
yztu æsar og allar hans hreyf-
ingar. Það er nefnilega ósjald-
an sem hundarnir reyna að
plata gæzlumanninn til þess að
fá boltann svo þeir geti leikið
sér að honum. En hundarnir
hlýða líka gæzlumönnunum i
einu og öllu, og með einu orði
geta gæzlumennirnir breytt
þeim úr friðsemis hundum f
alger villidýr. Morgunblaðs-
menn fengu að sjá þá hliðina á
Bojack og leist ekki á blikuna.
Ekki þýðir fyrir utanaðkom-
andi að nálgast gæzlumanninn,
hans er vel gætt af hundinum.
Það þýddi ekki einu sinni að
rétta gæzlumanninum höndina
i kveðjuskyni, til þess var
áhættan of mikil.
leitina að leik
KEFLAVÍKURFLUG-
VÖLL ber oft á góma
þegar rannsóknir á fíkni-
efnamálum eru f gangi,
enda hefur sannast
Gald-
urinn
ersá
að gera
ana og starf þeirra og fór með
okkur I leitarleiðangur. Hér
verður nafn þessa manns ekki
nefnt né myndir birtar af hon-
um þar sem slíkt gæti valdið
honum óþægindum við þau
störf sem hann vinnur. Aðal-
hundurinn er Bojack og hann
kom til landsins í marz s.l. Áður
hafði hundurinn verið í 12
vikna þjálfun í Bandarikjunum
og var gæzlumaðurinn með
honum allan tímann, enda er
lögð mikil áherzla á það að
þjálfa samvinnu hunds og
manns. Þar verður allt að vera
hundrað prósent, ef árangur á
að nást. Hlutverk hundanna á
Keflavíkurflugvelli er þríþætt,
í fyrsta lagi að leita í herflug-
„Kvæði” — úrval ljóða
— eftir Guttorm J. Guttormsson
KOMIÐ er út úrval af ljóð-
um vestur-íslenzka skálds-
ins Guttorms J. Guttorms-
sonar (1878—1966),
„Kvæði“. Gils Guðmunds-
son alþingismaður og þór-
oddur Guðmundsson skáld
frá Sandi völdu kvæðin og
sáu um útgáfuna.
Völdu þeir úr fimm áður
prentuðum ljóðabókum Guttorms
og að auki handriti hinnar sjöttu,
sam skáldið lauk fyrir andlát sitt
en ekki hefur ennþá verið prent-
uð. Gils og Þóroddur rita og for-
mála um höfundinn og skáldskap
hans.
Aftast i Kvæðum eru tilgreinar
helztu heimildir um Guttorm J.
Guttormsson, ævi hans og skáld-
skap. Er það ítarleg upptalning á
greinum um skáldið, ritdómum og
viðtölum.
Utgefandi er Bókaútgáfa
Menningarsjöðs og Þjóðvina-
félagsins.
Eigendaskipti hafa orðið á versluninni Miðbæjarblóm og er eigandi
hennar nú Birgir Kristjánsson. Verzlunín ej til húsa að Háaleitisbraut
68 og hefur á boðstólnum blómaskreytingar og gjafavörur. Opið er alla
daga til kl. 19 nema föstudag til kl. 22.