Morgunblaðið - 09.12.1976, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
KEA opnar
stórverzlun
Akureyri 1. desember.
KAUPFÉLAG Eyfirðinga opnar I
dag nýja verzlun i Hrlsalundi 5 á
Akureyri. Henni er einkum ætlað
að þjóna íbúum Lunda- og Gerða-
hverfa, sem eru vestast I bænum,
en áætlað er, að þar muni búa um
2500 manns, þegar þau eru full-
byggð.
Verzlunarhúsið er á tveimur
hæðum, og er hvor um sig 800 fm.
að stærð. A efri hæðinni verða
matvörur og aðrar þær vörur, sem
útibú KEA i bænum selja al-
mennt, auk ýmislegs sérvarnings.
Þar verða sérstakar tilboðsvörur,
sem skipt verður um annað veifið,
auk nokkurra vörutegunda í heil-
um pakkningum á kjörmarkaðs-
verði. Verzlunin verður 'búin
öllum nýjustu tækjum og innrétt-
ingum, sem miða að þægindum
fyrir viðskiptavina og greiðari af-
greiðslu. Peningakassarnir og
kassaborðin eru af nýjustu gerð,
og sælgæti og tóbak verður ekki
afgreitt þar, heldur í kaffiteríu til
hliðar við anddyri. Hún rúmar
30—40 manns og hefir á boðstól-
um, auk sælgætis og tóbaks, kaffi,
heitar pylsur, gosdrykki, ís, bæj-
arblöðin, dagblöð o.fl. Inngangur-
inn i verzlunina er þannig gerður,
að fólk i hjólastólum á hægt með
að komast inn og út. Verzlunar-
ráðunautar SÍS, Baldur Jónasson
og Jörgen Nielsen, unnu að skipu-
lagningu og uppsetningu verzlun-
arinnar. Verzlunarstjóri er Stein-
grímur Ragnarsson.
Ur anddyri hússins er gengið
niður á neðri hæðina, en þar
verða ýmsar vörur frá Vöruhúsi
KEA, svo sem leikföng, búsáhöld,
heimilistæki og gjafavörur, þar að
auki innlend og erlend eldhús-
tJr nýju KEA-búðinni við Hrfsalund.
Haf í dropa
99
99
— ný bók eftir Sigvalda Hjálmarsson
KOMIN er út ný bók eftir
Sigvalda Hjálmarsson,
„Haf í dropa“, þættir um
yoga og austræna hugsun.
I lokaorðum segir höfundur að
bókin sé rituð upp úr nokkrum
erindum, sem hann hafi flutt i
útvarpi á síðustu árum. „Hver rit-
gerð er sjálfstæð," segir hann,
„en þó ganga ákveðin efnistengsl
i gegnum bókina alla.„
Bókinni er skipt í 11 kafia, og
eru heiti þeirra sem hér segir:
Hvað er mystisk reynsla?, Hvað
er yoga?, Austræn viðhorf, Molar
úr dulfræðum miðalda, Yoga
handa nútímanum, Spurningin
um örlög manna, Spurningin um
framhaldslif, Spurningin um
máttarverk, Boðskapur dögunar-
innar, Hin mystiska hreyfing og
Lokaorð. Þá eru skýringar og skrá
yfir nokkrar bækur.
Bókin er' 144 bls. að stærð.
Utgefandi er Hliðskjálf.
gögn. Verzlunarstjóri verður Jóg-
van Purkhus. — Á neðri hæð
verður einnig deild frá húsgagna-
verzluninni „örkinni hans Nóa“
með fjölbreytilegu úrvali hús-
gagna.
Vestan við verzlunarhúsið er
malbikað bílastæði fyrir 120 bíla.
Ekið er inn á það bæði frá Þing-
vallastræti og Hrísalundi, en út-
akstur er eingöngu að Hrísalundi.
Viðskiptavinir geta farið með
keyptan varning í innkaupavögn-
um verzlunarinnar út á bílastæðið
og að bílum sánum. I hluta af
steyptri stétt við vörumóttöku eru
hitalagnir fyrir frárennslisvatn
væntanlegrar hitaveitu, þannig
að þar á ekki að festa snjó.
Allar teikningar hússins voru
gerðar I Teiknistofu SÍS nema
burðarteikningar, sem gerðar
voru í Verkfræðiskrifstofu Sig-
urðar Thoroddsen, Akureyri. Tré-
smíðameistarar voru örn og Helgi
s/f, og múrarameistari var Gunn-
ar Óskarsson. Ljósgjafinn h/f sá
um raflagnir, Karl og Þórður s/f
um pípulagnir, Stefán Jónsson og
Björn Jónsson um málningu,
Oddi h/f um loftræsi- og kæli-
lagnir, Reynir s/f um einangrun
og pappalögn á þakí og Skipa-
smlðastöð KEA smíðaði þær inn-
réttingar, sem ekka voru keyptar
frá útlöndum. Byggingastjóri var
Gísli Magnússon, byggingameist-
ari. Byggingarkostnaður við húsið
með öllum tækjum og búnaði er
tæplega 120 milljónir króna.
Ástralíu-
dollarinn
hækkaður
Canberra, 7. desember. Reuter.
GENGI Ástraiíudollars var hækk-
að um tvo af hundraði i dag, níu
dögum eftir að gengi hans var
Iækkað um 17.5 af hundraði.
Gengi Astralíudollars var skráð
1.0362 bandarískir dollarar miðað
við 1.2329 dollarar daginn fyrir
gengisfellinguna. Gengi hans var
skráð 1.0105 f gær miðað við
1.0174 daginn efíir gengisfelling-
una.
Fjármagnsflótti til útlanda var
ein helzta ástæðan til gengisfell-
ingarinnar en þar sem dregið hef-
ur úr honum var ákveðið að
hækka gengið að sögn talsmanns
ástralska fjármálaráðuneytisins.
Stúdentaráð
fordæmir
STUDENTARAÐ Háskóla Is-
lands samþykkti eftirfarandi, á
fundi sfnum 29. nóvember 1976,
segir I fréttatilkynningu til Mbl.
„Stúdentaráð skorar á alþýðu
landsins, að taka upp baráttu
gegn þeirri geigvænlegu rány-kju
sem stunduð er á miðunum kring-
um landið. ,
Einsýnt er orðið, að íslenskt út-
gerðarauðvald ætlar ekki að tak-
marka veiðar sfnar fyrr en hrun
fiskistofnanna neyðir þá til þess.
Taka verður völdin af þeim öfl-
um, sem nú stjórna fiskveiðum
landsmanna og hefja þegar skyn-
samlega nýtingu fiskstofnanna.
Ekki er hægt að bfða eftir að
grundvellinum verði kippt undan
lífsafkomu þjóðarinnar. Stú-
dentaráð vekur athygli á þeirri
yfirlýsingu sj ávarútvegsráðherra,
að lítið mark sé takandi á niður-
stöðum okkar færustu fiskifræð-
inga. Aðvaranir þeirra eru að
engu hafðar. Við viljum benda á
að ekki hefur ráðherra véfengt
niðurstöður vísindamanna, er
þeir hafa talið óhætt að auka sókn
í fiskstofna, svo sem síld.
Stúdentaráð fordæmir að að-
eins skuli tekið mark á niðurstöð-
um vísindamanna þegar þær
þjóna hagsmunum auðvaldsins.
Stúdentaráð minnir á, að f dag
er verið að versla með fiskstofn-
ana til að tryggja hagsmuni ís-
lenskra stórkaupmanna í löndum
EBE.
Stúdentaráð fordæmir allt
samningamakk við EBE.“
AUGI.VSINGASÍMINN ER:
22480
JNtrðunblabib
PLÖTUR SEM EIGA EFTIR AÐ SNÚAST
,Speglun"
EIK
Hljómsveitin
Eik með
breiðskífuna
sem fólk
hefur
beðið eftir.
Komin í
verzlanir
um allt
land.
FYRR MÁ NÚ PLATA
EN HLJÓMPLATA
ÖÍR BÚ U(Ö9V>I 69M,
BÍBlqBlÖÍ BQBl 6[QQ9vT
i íni9d öiR Ö9m
lií nns>l>l6q6lö[
unnuQ qo enö[
Eiki
Haukur
Seli
Seildi
„Saga til næsta bæjar" Deildarbungubræður
Bræðurnir frá Bungu með létt og skemmtilegt efni
fyrir öll tækifæri, enda ósmeykir við jólaköttinn.
Hljómplata fyrir bræður sem systur, jafnt til sjávar
sem sveita Ks
Áætlaður útkomutimi 1 5. des.
Axel Einarsson sem undanfarin ár hefur látið lítið
heyra frá sér í poppbransanum, er hér á ferðinni
með sólóplötu, sem vafalaust mun koma mörgum
músikunnendum á óvart.
„Fyrst á röngunni" HAUKAR
Hin landskunna hljómsveit Haukar me8 hressa Rock
and roll plötu sem þeírfisf* lofaB aUdáendum slnum I
nokkur ár og er hun nu loksins komin á svsöiö.
UaiiacvvunCÍU.
Dreifing
hljómplötuútgáfa G. Melsted
Simi 84988—73842.
5ðcpíil í)az]ör