Morgunblaðið - 09.12.1976, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.12.1976, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976 VlK> MORó-dKí KAFF/NU PIB COPfNMCIN 1513 WILLOUSWBV & fioVLe- Má ég ekki halda eftir tnánaðarlaununum mlnum, það er útborgunardagur I dag? Þ6 ég neyðist til að öskra á þig, fellur það ekki undir hrotta-( skap lögreglunnar. Þú mátt gera allt á þessu heim- ili! — Búa um rúmið þitt, ryk- suga stofuna og fara I sendi- ferðir fyrir mig! — Heyrði konan til þín þeg- ar þú komst heim f nðtt? — Þú getur nærri. Hún sefur svo laust að hún heyrir þegar loftvogin fellur. — 0 — Tveir prófessorar voru að tala saman og annar þeirra kvartaði um að hann gæti aldrei munað hvað kona sln og börn væru gömul. — Það gæti aldrei komið fyrir sig, svaraði hinn. — Hvernig ferðu að því að muna aldur þeirra? — Það er ekkert auðveldara. Elzti sonur minn er fæddur 2630 árum eftir stofnun Róma- borgar. Yngri sonur minn er fæddur 2255 árum eftir dauða Xenophons. Dóttir mln er fædd 1823 árum eftir eyðileggingu Pompejis. Og konan mfn er fædd 1918 árum eftir morð Caesars. — 0 — — Ég vildi óska að ég ætti heima á norðurpólnum. — Hvers vegna? — Vegna þess að þar er dagurinn 6 mánaða langur og þegar komið væri með reikning til mín myndi ég segja: „Gerið svo vel að koma á morgun.“ — 0 — — Llzt þér vel á unnusta þinn? — Þú getur þvf nærri, hvort ég hefði farið að trúlofast hon- um I fimmta skipti, ef svo væri ekki. Til Vegagerðarinnar BRIDGE í UMSJA PALS BERGSSONAR Að hika er sama og tapa, segir máltækið. Spilaranum, sem sat i vestur í spili dagsins, varð það á og gaf þar með sagnhafa mikil- vægar upplýsingar, sem voru nýttar umsvifalaust. Norður S. 864 H. 104 T. A10875 L. 542 Vestur S. 975 H. KG9732 T. G L. Á107 Austur S. DG103 H. 86 T. K432 L. 983 • TilVega- gerðarinnar „Fyrir skemmstu var opnuð til umferðar tvískipt akrein gegn- um Kópavog og suður yfir Arnar- nes. Þetta var mjög nauðsynleg framkvæmd í alia staði. Hins veg- ar er ýmsum frágangi meðfram brautinni ábótavant, þannig að beinlínis er stórhættulegt að aka þarna um. Láðst hefur að ganga þannig frá eyjunni milli gömlu og nýju brautarinnar, að hættulaust geti talist að aka þarna um. Hvar sem er á löngum köflum er hægt að aka milli eyjanna. Þarf ekki að fara í grafgötur um hvílíkur voði er þessu samfara í ljósi þess, að hraði hefur stóraukist eftir breyt- ingarnar. Menn eru yfirleitt mjög ruglaðir þegar þeir koma t.d. frá Reykjavík og ætla að beygja í austur inn í Kópavoginn. Snar- hægja menn ýmist ferðina og reyna að átta sig á hlutunum eða þá, að þeir taka stefnuna óhikað einhvers staðar yfir eyjuna, þar sem færi gefst. Við Fífuhvammsveg er hættan mest, þar er nú einstefna í norður þegar að Hafnarfjarðarveginum kemur. En aðstæður eru þannig við þessi gatnamót að hægt er að aka af Fífuhvammsveginum, síð- an 30 — 40 metra á móti einstefn- unni og svo yfir eyjuna og yfir á einstefnuna til suðurs. Nota auð- vitað margir sér þetta. Verst er þó, að við áðurnefnd gatnamót er merking, sem gefa á til kynna einstefnu til norðurs með slíkum hætti, að gamlir jaxlar sem ekið hafa þarna í suðurátt árum sam- an, sjá hana ekki, heldur aka ótrauðir móti einstefnunni. Marg- ir eru þó svo heppnir, að átta sig þegar hvæsandi ryðúlfur með blikkandi augu mætir þeim, má þá sjá tilgang með hindrunar- lausu eyjunum, þar sem forða má sér yfir á rétta einstefnu. Nú er spurningin, hvort hér á fyrst að gera bragarbót á, þegar stórslys hefur orðið? Jón Stefánsson." 0 Róandi áhrif „Kæri þáttur. Mig langar til að lýsa undrun minni yfir bréfi einu er birtist í Velvakanda þann 30.11 frá Reykjavíkurborgara er hefur andúð á tónlistinni sem hljómar flestum til óblandinnar ánægju í Austurstrætinu og á Laugaveg- inum. Tónlist hefur löngum verið tal- in hafa róandi og þægileg áhrif á fólk, frekar en að raska vinnu- gleði þess. Islendingar heyra örugglega ekki of mikið af góðri tónlist og er ég á þeirri skoðun að fleiri verzlanir ættu að spila fyrir vegfarendur og þá ekki endilega þess háttar tónlist sem spiluð er í tízkuverzlunum, heldur frekar klassíska, því hana kunna fleiri að meta. Góða nótt og það var ánægjulegt að vera hjá ykkur. — Ég bið að heilsa manninum þínum. Suður S. AK2 H. ÁD5 T. D96 L. KDG6 Sagnirnar voru fá. r. Suður opn- aði á 2 gröndum og norður hækk- aði i þrjú. Utspil vesturs var lágt hjarta og tía blinds fékk slaginn. Það lá beint við að fara i laufið og sagnhafi fékk slaginn á kóng, eft- ir hik vesturs. Nú var eðlilegt og rétt að spila tíguldrottningu en eftir hikið var sagnhafi viss um hver átti laufásinn. Vestur var nú þvingaður til að taka á ásinn og hann spilaði sig út á tígulgosa. Austur neyddist til að gefa þann slag og einnig næsta, sem sagn- hafi fékk á tígulníu. Staðan var nú þessi. Blindur Vestur Austur Suður S. 864 S. 975 S. DG103 S. ÁK2 H. 4 H. KG93 II. 6 H. ÁD T. Á108 T. — T. K4 T. 6 L. — L. — L. — L. 6 Sagnhafi hafði fullt vald á spil- inu. Tók á spaðaás og kóng, lauf- sex og hjartaás. Austúr fékk nú slag á spaða en blindur fékk tvo síðustu slagina á tígul. Kikið var vestri dýrt. Spilið kom fyrir í tvímenningskeppni nýlega og núllið var hæfileg eink- unn. — P.B. Maigret og þrjózka stúlkan 29 virðir Maigret rannsakandi fyr- ir sér. kallar á þjónirin og hvlsl- ar einhverju að honum og þjónninn virðist svara ein- hverju á þá leið að hann viti það ekki, þvl að þau hafi ekki komið á staðinn fyrr.... Og á meðan stendur Felicie upp, sjúk af skelfingu og geng- ur I áttina að snyrtiherberginu. Er henni svo brugðið að hún þarf að kasta upp? Meðan hún er frammi horfast þeir I augu, Maigret og maður númer 13. Kannski hann iangi innst inni til að gefa síg á tal við lögregluforingjann? Felicie er lengi frammi. AJIt- of lengi að þvi er Maigret fínnst. Þjónninn hefur einnig verið alltof lengi I burtu. Mai- gret hefur veitt því athygli að hann er rauðha-rður.... Loks er eins og númer 13 sé I þann veginn að taka ákvörðun. Um svipað leyti kemur Felicie aftur. Hún reynir að brosa t'l hans. Þegar hún gcngur að borðinu til hans, la-lur hún slörið falla fram yfir andlitið. Hún sezt ekki niður. — Eigum við að koma? — Ég hef pantað kaffi. Yður fínnst svo gott kaffi, er það ekki? — Ekki núna ... kaffi myndi gera mig óstyrka.... Hann lætur eins og hann trúi henni og kaliar á þjóninn og horfir beint framan I hann meðan hann gerir upp. Þjónninn roðnar. Það fer ekki á milli mála! Hún hefur beðið þjóninn fyrir einhver skilaboð til númer 13. Kannski hefur hún skrifað eitthvað niður á blað og beðið hann að láta manninn ekki fá það fyrr en þau eru farin. — Við förum heim til Jeanneville núna, er það ekki? Ilún hefur gripið I hönd hans og virðist I geðshræringu. — Ég er svo þreytt. ... Allt sem á mig hefur verið lagt slð- ustu klukkutímana.... Hún fyllist óþolinmæði þegar hann stendur hreyfingarlaus á gangstéttinni eins og hann viti ekki gjörla hvaða ákvörðun hann eigi að taka. — Um hvað eruð þér að hugsa? Hvers vegna komið þér ekki? Það fer lest eftir hálftima ... Hún er ótýsanlega hrædd. Hönd hénnar sem hvflir enn á handlegg Maigret skelfur og hann verður gripinn löngun til að sefa hana. Hann ypptir öxl- um. — Jæja, allt í lagi þá ... til Gare Saint Lazare, bflstjóri.... Frá hvaða hræðslu hefur hann forðað henni? I bilnum verður hún allt I einu grípin þörf til að tala og tala og tala. — Þér sögðuð að þér mynduð ekki vfirgefa mig. ... Þér sögð- uð það ábyggilega, er það ekki? Eruð þér ekki hræddir við að lenda I þrasi út af mér. ... Þér eruð kannski ekki giftir. Jú, hvaða bjálfi er ég ... þér eruð með hring og allt það. Hann sezt við hlið hennar I lestinni og finnur tíl nokkurs samvizkubits. Þó veit hann að hann getur alltaf haft upp á manninum númer þrettán seinna. Lestin skríður af stað og Felicie virðist létta ósegjan- lega þegar þau eru lögð af stað. Framhaldssaga eftir Georges. Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi t Poissy ganga þau saman fram- hjá kránni og vertinn stendur úti, þekkir Maigret og deplar til hans augunum. Lögregluforinginn getur ekki á sér setið að strlða Felicie ofurlltið. — Vitið þér hvað, mig langar til að spyrja hann hvort Staur- fótur gamli hafi aldrei komið og njósnað um yður á sunnu- dagskvöldum.... Hún gripur um hönd hans og herðir gönguna. — Það er óþarfi... hann kom mörgum sinnum. — Þarna sjáið þér hvort hann hefur ekki verið afbrýðissam- ur.... Þau ganga upp bratta brekk- una. Nú fara þau framhjá búð- inni hennar Melanie Choichoi og Maigret heldur áfram I stríðnistón: — Ætti ég að fara inn og spyrja hana hvað hún hafi oft séð yður úti að rússa með Jacques Petillon? — Hún hafur aldrci séð okk- ur! Að þessu sinni er hún viss I sinni sök!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.