Morgunblaðið - 10.12.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
35
Uppgjörið
eftir Sigurd Hoel komin út í íslenzkri þýðingu
SKÁLDSAGA Sigurd Hoels,
Uppgjörið, er komin út f fzlenzkri
þýðingu Gunnars Kristinssonar.
Bókin er gefin út á forlagi Odds
Björnssonar. Hún er 200 blaðsíð-
ur að stærð.
Á bókarkápu segir svo um þessa
skáldsögu Sigurd Hoels: Þessi
skáldsaga hins kunna norska rit-
höfundar er persónulegust og
ristir dýpst af bókum hans. Höf-
uðpersónunni er teflt fram i
höfundarstað i enn ríkari mæli en
í örðum bókum hans. Ef til vill er
það þessi þáttur, sem gerir bókina
jafn spennandi og raun ber vitni.
Frásagnarstillinn er léttur og
leikandi og fléttaður ríkum húm-
or.
uppgjörið fjallar um hluti, sem
við öll þekkjum og skiljum. Við
verðum öll fyrr en seinna að gera
upp reikningana ið lífið. Sigurd
Hoel grípur efnið þannig tökum
að við viljum gjarna hafa bókina i
bókaskápnum, bók til þess að
gripa til aftur og aftur.“
Adalfundur Sjálfstædisfélags
ins t>orsteins Ingólfssonar
AÐALFUNDUR Sjálfstæðis-
féfagsins Þorsteins Ingólfssonar
var haldinn að Fólkvangi,
Kjarlarnesi, mánudaginn 29.
nóvember. Á fundinn mættu
Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráð-
herra, og Oddur Ólafsson, al-
Veturnótta-
kyrrur
Jónasar
ÚT ER komin hjá Ægisútgáf- |
unni bókin Veturnóttakyrrur eft-
ir Jónas Árnason. Milliheiti kafla
í bókinni eru: Budda, Færeying-
ur, Ofurlítill inngangur, Dagur
um borð, Mr. Sommers, I áföng-
um út á Tangaflak, Eitt skot í
öræfum, Ferðasaga, „Forstand-
iss“, Kóngurinn í Svíþjóð, Vetur-
nóttakyrrur, „Er hó“, Marsilie,
Hann dindill okkar, Undir eggtíð,
Skrín.
Á bókarkápu segir m.a. um Jón-
as: „Honum verður að söguefni
margt það sem öðrum sézt yfir og
tekst að færa í þann búning sem
verk hans öll bera vitni."
þingismaður, og ræddu þeir um
þjóðmálin.
Formaður félagsins, Gísli Jóns-
son, Arnarholti, var endurkjör-
inn, og aðrir I stjórn eu Jón Sv.
Jónsson, Varmadal, Jón Olafsson,
Brautarholti, Katrín Thoraren-
sen, Fitjum, Hjalti Sigurbjörns-
sonn, Kiðafelli, Helgi Jónsson,
Felli, og Hildur Axelsdóttir,
Grjóteyri.
I skýrslu formanns kom fram,
að starfsemi félagsins var með
ágætum á árinu og voru m.a. hald-
in 4 bingó i Hefgarði, en ágóði af
þeim rann til byggingar íþrótta-
húss í Mosfellshreppi.
Á árinu var stofnað nýtt sjálf-
stæðisfélag í Mosfellssveit, sem
hlaut nafnið Sjálfstæðisfélag
Mosfellinga, og er formaður þess
Magnús Sigsteinsson, Blikastöð-
um.
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna i Kjósarsýslu va
haldinn 3. desember s.l. og var
Salome Þorkelsdóttir endurkjör-
in formaður félagsans.
Matthias Á Mathiesen fjármála-
ráðherra mætti á fundinn og
ræddi um stjórnmálaviðhorfið og
svaraði fyrirspurnum. Auk ráð-
herra mættu á fundinn Oddur
Ólafsson slþm. og Jóhann
Petersen formaðu kjördæmisráðs.
í svölum
skugga eftir
Steinunni
í SVÖLUM skugga heitir nýút-
komin bók eftir Steinunni Þ.
Guðmundsdóttur. Á bókarkápu
segir: „Sögusviðið er frjálst og
óþvingað. Mildur tónn náttúr-
unnar fellur yfir menn og mál-
efni. — Hann er ivaf sorga og
gleði, ásta og hamingju. Sagan
gerist I sveit og borg. Hún dAlgur
upp myndir af málefnum þjóðar-
innar, eins og þau voru um þetta
leyti. Hún er tengd þjóðtrú og
örlögum. Hún er óður átthaga-
tryggðar. Ádeila á valdbeitingu
og virðingarleysi. Hún er krafa
um lifsvernd og réttlæti fyrir þá
minnstu allra.“
Lausavísur,
hundruð í
einni bók
UT er komin bókin Lausavisur og
eru þar fjölmargar vísur eldri og
yngri. Sveinbjörn Beinteinsson
hefur safnað visum þessum
saman og ritar hann formála að
bókinni um visnagerð á íslandi.
Bókin er 190 blaðsíður að stærð,
gefin út af Bókaútgáfu Leturs.
AUGI.ÝS1NGASÍMINN ER:
22480
JRoretmblabiÖ
Pantið gjafaáskriftir, útgáfan sér
um að tilkynna viðtakendum hver
þeim News from Iceland í hei/t ár - og
auðvitað sér útgáfan um að senda blaðið
reglulega. Pantið strax í dag.
Póstsendið eða símið NEWS FROM ICELAND, Pósth. 93, sími 81590 Reykjavík.
Undirritaður óskar að senda...gjafaáskriftir
NEWS FROM ICELAND, sem hver kostar
kr. 750 á áriaðviðbœttumpósthurðargjöldum
kr. 500 í skipapósti (samt. kr. 1,250) kr. 950
íflugi (samt. kr. 1,700) á ári.
Látið lista með nöfnum og heimdisföngum
fylgja pöntuninni, ef gjafaáskriftir eru fleiri.
Nafn gefanda
Heimilisfang -
simi
Nafn viðtakanda
Gala/númer
Borg/land —
Áttu vini í útlöndum? Sendu þeim gjafaáskrift
NEWS FROMICELAND
Published Monthly by lceland Review
Vinir og viðskiptamenn kunna vel að meta
íslandsfréttir mánaðarlega. Helstu almennu
fréttirnar, þróun í atvinnulífi, við-
skiptum, efnahagsmálum.... allt er þetta
að finna í News from Iceland. Við
sendum blaðið um allan heim og það
kostar sáralítið að bjóða fólki að
fylgjast með því, sem hér gerist.
Og það treystir tengslin.
Ódýrt-handhægt