Morgunblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
63
Starfsfólk Auglýsingastofunnar hf. og gestir í afmælishófi f nóv. 1976
Auglýsingastof-
an hf. 15 ára
UM ÞESSAR mundir eru 15 ár
liðin sfðan fyrst var boðin vfðtæk
auglýsingaþjónusta hér á landi á
vegum augfýsingastofu.
Á haustmánuðum 1961 var elsta
fyrirtækið af þeim sem veita al-
hliða auglýsingaþjónustu stofnað
af Gfsla B. Björnssyni teiknara og
nefnt Augfýsingastofan hf.
Fyrirtækið hefur I tilefni af
þessum tfmamótum gefið út tvö
rit, Auglýsingar i 15 ár og „Ad-
vertising in Iceland".
í fyrrnefnda ritinu er gerð
grein fyrir I hverju starfsemi aug-
lýsingastofu er fólgin, hvað þáð er
sem vinnst með því að skipta við
auglýsingastofu og gerð stutt
grein fyrir brautryðjendastarfi og
núverandi starfsemi Auglýsinga-
stofunnar hf. I þvi síðarnefnda
eru ýmsar hagnýtar upplýsingar
fyrir erlenda auglýsendur.
í ritinu Auglýsingar í 15 ár er
minnst á brautryðjendahlutverk
fyrirtækisins og starfliðs þess,
sem hefur verið fólgið I þjálfun
og menntun teiknara þ.a.m. í
tengslum við auglýsingadeild
Myndlista- og handfðaskóla ís-
lands; frumkvæði að og þátttöku i
félagsstarfi, baráttu fyrir að fá
sett lög og samþykktar reglur um
réttindi og skyldur auglýsinga-
stofa og starfsliðs þeirra sem
raunar er ekki til lykta leidd, út-
gáfu- og kynningarstarf af ýmsu
tagi.
Auglýsingastofan hf. hefur
einnig átt drjúgan þátt f að fá
gerða samninga við fjölmiðla sem
styrkja fjárhagslegan grundvöll
vandaðrar og vel skipulagðrar
auglýsinga- og kynningarstarf-
semi, og gera samskipti fjölmiðla
við auglýsendur einfaldari og ör-
uggari.
I umræddu riti er það talið
„hlutverk auglýsingastofu að
tryggja vaðski-ptavinum sínum,
auglýsendum, vandaða og vel
skipulagða vinnu er leiðir til
meiri sölu og viðskipta en þeir
annars eiga kost á að ná“. Jafn-
framt er eftirfarandi skoðun lýst:
„Auglýsinga- og kynningarstarf
skilar ekki árangri nema það sé i
samræmi við veruleikann, það
sem verið er að kynna. Að rétt og
vel sé skýrt frá mikilsverðum
staðreyndum".
Góður árangur af starfi þeirra
fjölmörgu aðila sem tengjast aug-
lýsingaþjónustu, allt frá fyrstu
áætlunum og drögum til birting-
ar, er talinn byggjast á ,,-góðu
samstarfi og skipulagningu.
Starfsfólkið verður að vera opið
fyrir hygmyndum og viðhorfum
annarra. Verkefnin þarf að vinna
í réttri röð. Fyrst söfnun hug-
mynda, val og úrvinnsla sem leið-
ir til mótunar frumdraga, sfðan
umræður um þau og loks endan-
feg mótun og birting."
ÞeSs er getið að I ár hafi Aug-
lýsingastofan hf. ,,-stigið nokkur
skref sem auka þjónustumögu-
leikana og víkka starfssviðið".
Stofnað var hliðarfyrirtæki til
að annast gerð sjónvarpsaugfýs-
inga, SYN hf. Auglýsingastofan
hf, gerðist aðili að norrænu sam-
bandi auglýsingastofa Scan Vik-
ing og einnig alþjóðlegu sam-
bandi auglýsingastofa, Affiliated
Advertising Agencies Inter-
national.
Aðild að þessum samtökum ger-
ir fyrirtækinu kleift að njóta sam-
starfs, fyrirgreiðslu og upplýs-
inga um auglýsingastarfsemi og
markaðsmál I helstu viðskipta-
löndum okkar.
Á 10 ára afmæli Auglýsinga-
stofunnar hf. gaf hún út rit um
merki fyrirtækja og skrift. í 15
ára afmælisritinu er, auk þess
efnis sem hér hefur verið greint
frá, yfirlit um hluta þess efnis
sem skapað hefur verið á vegum
fyrirtækisins, einkum blaða- og
timaritaauglýsingar frá siðustu
2—3 árum. Og nokkur dæmi eru
um sjónvarpsauglýsingar.
Eins og getið var gefur Auglýs-
ingastofan hf. nú einnig út annað
rit á ensku „Advertising in Ice-
land", sem einkum er ætlað það
hlutverk að gefa erlendum aug-
lýsendum og auglýsingastofum
hagnýtar upplýsingar um markað-
inn á íslandi og skilyrði fyrir
árangursríku auglýsingastarfi. 1
fyrri hluta ritsins eru almennar
upplýsingar um land og þjóð,
sögulegar og menningarlegar
forsendur samfélagsgerðarinnar
og megineinkenni atvinnulífsins.
1 seinni hlutanum er gefið yfir-
lit um fjölmiðla og auglýsinga-
verð og þar er all Itarleg greinar-
gerð um sérkenni islenska mark-
aðsins.
Núverandi stjórn Auglýsinga-
stofunnar hf. skipa: Gísli B.
Björnsson, Halldór Guðmundsson
og Guðjón Eggertsson.
Hjá stofunni starfa nú 14
manns, og fjöldi þeirra hefur
starfað þar í mörg ár.
"^“^Gallabuxumar™"*"
sem endast & endast
LAUGAVEGUR
®-21599
BANKASTRÆTI
12*-14275