Morgunblaðið - 20.01.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1977
Rússar út úr
lögsögu Breta
MEGNIÐ af sovézka togaraflotan-
um sem hefur stundaö veióar á
Norðursjó fserði sig austur á bóg-
inn í dag og út úr 200 mílna
fiskveiðilögsögu Breta.
Talsmaður fiskimálaráðunevt-
isins f London, sem skýrði frá
þessu, sagði að fimm sovézkir tog-
arar væru enn á brezkum miðum.
Sérfræðingar í Briissel telja að
alls stundi 76 sovézkir togarar
veiðar innan brezku fiskveiðilög-
sögunnar. Aður voru um 45
sovézkir togarar á þessum slóð-
um.
Rússum hefur verið leyft að
veiða 38.000 lestir fyrstu þrjá
mánuði ársins en sérfræðingarnir
telja að þeir muni fylla kvótann í
lok janúar.
Anthony Crosland utanríkisráð-
herra sagðí í neðri málstofunni í
dag að brezka stjórnin mundi
bera upp við Efnahagsbandalagið
vandamál samfara veiðum
sovézkra, pólskra og austur-
þýskra togara á miðum bandalags-
ríkjanna. Crosland er um þessar
mundir formaður ráðherranefnd-
ar EBE.
Ognaði ekkjan
sjálfum Mao?
Honn kmiR. 19. janúar. AP.
EKKJA Mao Tse-tungs og
róttækir stuóningsmenn
hennar gerðu samsæri um
að steypa Mao af stóli og
hrifsa til sín völdin í marz í
fyrra samkvæmt fréttum
frá Peking í dag.
Kommúnistablaðið New
Evening Post í Hong Kong
segir að frá þessu hafi ver-
ið skýrt á forsíðu Alþýðu-
dagblaðsins og í Pekingút-
varpinu.
Fram til þessa hafa ekkjan
Chiang Ching og þrír stuðnings-
menn hannar verið sökuð um að
hafa reynt að taka völdin eftir
dauða Maos. Þau hafa einnig ver-
ið sökuð um að hafa reynt að
kollvarpa Chu En-lai forsætisráð-
herra sem lézt fyrir einu ári.
Hins vegar hefur lauslega verið
frá því skýrt í útvarpssendingum
frá kínverskum fylkjum að hinir
róttæku hafi reynt að myrða Mao.
Alþýðudagblaðið segir að hinir
róttæku hafi ætlað að berjast
gegn hægristefnu og stöðva fram-
leiðsluna unz þeir næðu völdum.
Það segir að þeir hafi einnig haft
uppi áform um „fjöldamorð" á
flokksmönnum og embættismönn-
um sem voru þtim andsnúnir.
Blaðið segir að hinir róttæku
hafi unnið skemmdarverk á járn-
brautarkerfinu og það hafi verið
liður í áætlun þeirra um að gera
landið gjaldþrota. Blaðið skoraði
á járnbrautarmenn að skila meiri
afköstum til að bæta upp tjón af
völdum „þrjótanna fjögurra".
V-Berlln synjar
A-Þjódverjum
Burlín 19. janúar. Reulcr. AP.
AUSTUR-ÞJÓÐVERJÚM
hefur verið neitað um leyfi
til að opna skrifstofu fyrir
flugfélagið Interflug í
Vestur-Berlín samkvæmt
áreiðanlegum heimildum í
dag.
Vesturveldin og borgar-
stjórn Vestur-Berlínar
höfnuðu beiðni Austur-
Þjóðverja á þeirri fors-
endu að áætlunarflug frá
Sehönefeldflugvelli Aust-
ur-Berlínar jafngilti efna-
hagslegri ógnun við Vest-
ur-Beriín samkvæmt
heimildunum.
Æ fleiri Vestur-Berlínarbúar
hafa notfært sér ódýrari flugferð-
ir frá Austur-Þýzkalandi á undan-
förnum árum.
Umsókn Interflug var formlega
hafnað á grundvelli fyrirskipunar
vesturveldanna frá 1962 þess efn-
is að borgarstjórninni sé heimilt
að stöðva starfsemi erlendra
fyrirtækja er kunni að skaða
hagsmuni Vestur-Berlínar.
Jafnframt sagði Karl Schlitz
borgarstjóri í dag að austur-
þýzkir kommúnistar væru að taka
sér viðbragðsstöðu sem benti til
þess að til harðra árekstra kynni
að koma á þessu ári.
Hann kvað greinilegt að harðn-
andi afstaða kommúnistaríkjanna
væri samræmd í einni miðstöð en
nefndi þó ekki Sovétríkin með
nafni
SchUtz sagði að'fiýlegir atburðir
bentu til vaxandi taugaveiklunar
austur-þýzkra ráðamanna og
versnandi efnahagsástands.
Hann átti meðal annars við það
að útlendingum sem fara til Aust-
ur-Berlínar hefur verið §ert að
sækja um vegabréfsáritanif, eftir-
lit með Austur-Þjóðverjum sem
fara til sendiráðs Vestur-
Þjóðverja í Austur-Berlín og með-
ferð sem vaxandi fjöldi andófs-
manna hefur fengið —brottvisun,
fangelsi, stofufangelsi o.fl.
HAFNARFJÖRÐUR
Höfum til sölu mjög vandaða 3ja herb. ca
86 fm endatbúð á 2. hæð í blokk við
Sléttahraun
Sameign í fyrsta flokks ástandi.
Verð: 8.200.000 - Útb.: 6.000.000.-.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17 (Silli&Valdi)
sími 26600
Ragnar Tómasson, lögmaður.
Kissinger kveður sviðsljósin
JAFNAN fylgir nokkur Ijómi
vóldum Á undanförnum árum
hefur af fáum eða engum ráða-
mönnum stafað öðrum eins Ijóma
og Henry Kissinger, sem nú lætur
af störfum sem utanrlkisráðherra
Bandarlkjanna. En nú er Kissinger
á förum frá völdunum — og Ijóm-
inn um hann er llka á förum — I
bráð að minnsta kosti. Að vlsu
hafa nokkrir velmeinandi menn
kvatt sér hljóðs I blöðum, einkum
Lundúnablöðunum. og fullyrt að
Kissinger mætti alls ekki fara frá
strax þvl að ella gætu viðræðurnar
um framtlð Ródeslu til dæmis
farið út um þúfur. En það breytir
engu: „Kissingertfmabilið" er á
enda runnið og enginn fær gert
við þvf.
Þessa varð greinilega vart um
borð I flugvélinni, sem slðustu vik-
urnar flutti Kissinger og fylgdarlið
hans út og suður um heiminn I
margvlslegum erindagjörðum.
Kissinger hefur svo sem borið sig
nógu vel að venju og gert að
gamni slnu. Stundum stappaði
hann fæti I gólfið I flugvélinni og
sagði einbeittur á svip: „Þeir
skulu fá að bera mig frá borðil" En
þrátt fyrir gamanyrðin fór ekki hjá
þvl, að menn yrðu dálitið angur-
værir stundum. Og hver um sig
reyndi sem hann gat að forðast að
nefna það, að utanrlkisráðherrann
var að hverfa úr embætti. Þetta
Kissinger ræðir við Ford eftir að hafa verið sæmdur frelsisorðunni
„Töf ramadur ”
á ferð og flugi
reyndist samt stundum örðugt og
af þessum sökum kom það oft
fyrir upp á slðkastið. að eyður
urðu I samtöl Kissingers og frétta-
mannanna, sem jafnan fylgdu
honum.
Sú var tfðin, að fjöldi manna
hékk löngum stundum utan við
hótel þar sem Kissinger gisti elleg-
ar á flugvöllum þar sem hans var
von, til þess eins að mega llta
hann augum I svip, eða brynvar-
inn Cadillacbíl hans að minsta
kosti. Nú situr þetta fólk heima,
eða það er farið að elta einhvern
annan. Sama er að segja um geð-
sjúklinga þá sem hændust að Kiss-
inger og hótuðu honum voveif-
legum dauðdaga á reglulegum
fresti. Kissingers var ekki nærri
jafnvel gætt slðustu vikurnar og
áður fyrr; það er þó einn kostur
við valdamissinn.
Aginn um borð I flugvél Kissing-
ers minnkaði til muna frá þvl, að
Ijóst varð, að valdatlð hans væri
að lokum komin. Ungir aðstoðar-
menn hans úr utanrlkisráðuneyt-
inu, sem forðum voru dauðhrædd-
ir við hann og þorðu ekki annað
en sitja og standa eins og hann
vildi, voru nú orðnir rólegir I tfð-
inni og nærri kærulausir. Þeir sátu
nú hinir rólegustu og flettu tlma-
Brússel — Kissinger kveður að
loknum slðasta blaðamannafundin-
um sem hann efndi til I aðalstöðvum
Atlantshafsbandalagsins
ritum á leiðinni milli áfangastaða.
Þetta hef ði þótt drottinssvik áður.
Að sjálfsögðu hefur margt verið
rætt um framtlð Kissingers Þaðer
Eftir Walter Kent
öruggt. að hann mun rita bók um
ráðherratlð slna og hann verður
eflaust ein tvö ár að semja hana.
Þá er vfst, að hann mun vinna
eitthvað fyrir sjónvarp. Kissinger
hefur látið svo um mælt I gamni
við fréttamenn, að hann ætli að
taka frá þeim vinnuna og megi
þeir fara að leita sér að annarri.
Fréttamenn hafa reynt að
Imynda sér Kissinger I þessu hlut-
verki, en veitzt það örðugt. Þeim
veitist erfitt að trúa þvl, að Kiss-
inger ætli að fara að elta fyrrver-
andi starfsbræður slna um hnött-
inn með hljóðnema eða blokk og
blýant I hendi og blða þess að
koma að einni eða tveimur spurn-
ingum fyrir náð og miskunn. Llk-
legra þykir, að Kissinger eigi við
annars konar sjónvarpsstörf og
e.t.v. þætti úr sögu milliríkjasam-
skipta og diplómatls, sniðna Ifkt
og þættir Sir Kenneth Clark, „Úr
sögu siðmenningar". En þetta á
nú eftir að koma á daginn.
Eins og áður sagði hefur klmni-
gáfan ekki brugðazt Kissinger upp
á slðkastið fremur en endranær.
Hann hafði á orði, að eftir föstu-
daginn 21. janúar yrði hann
óskeikull eins og fréttamennirnir,
sem fylgzt hafa með honum og
ritað um störf hans. Eftir fund
Kissingers og utanríkisráðherra
Vestur-Þýzkalands spurði blaða-
maður nokkur Kissinger á þessa
leið: „Nú þegar þér skyggnizt um
öxl og lítið yfir farinn veg — getið
þér þá sagt mér I stuttu máli,
hvert þér teljið mesta afrek yðar i
embætti og hver mestu mistók-
in?" Kissinger var fljótur til svars
„Ég skil ekki slðari hluta spurn-
ingarinnar," sagði hann.
Það verða auðvitað sagnfræð-
ingar, sem dæma Kissinger að lok-
um — og hann verður reyndar
eann þeirra. En fyrir fram virðist
ekki óllklegt, að hans verði lengst
minnzt fyrir „frábæran leik", eins
og oft er sagt I annars konar
fregnum. Það má kalla það „ein-
leik á almenning" ef vill. í þrjú ár
eftir að Watergatemálið komst á
flot, hélt hann uppi Imynd Banda-
rlkjanna út á við, þótt fáir hefðu
trúað þvl, að það tækist. En hon
um tókst, þrátt fyrir hrakspár allar
og þrátt fyrir það, að Iskyggilega
Framhald á bls. 31
Peking — Kissinger heilsar Mao formanni I einni af hinum sögulegu
heimsóknum sínum til Kina