Morgunblaðið - 20.01.1977, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1977
23
Minning:
Guðbjörg Hoff-Möller
Þann 3. janúar s.l. lézt á
Finsen’s spítala í Kaupmanna-
höfn Guðbjörg Hoff-Möller.
Hún fæddist hinn 29. febrúar
1916 í Skjaldabjarnarvík á
Ströndum. Foreldrar hennar voru
Valgerður Guðnadóttir og Öli G.
Halldórsson. Til lengdar reyndist
þeim hjónum of erfitt að búa á
svo harðbýlum og afskekktum
stað, svo þau brugðu búi og flutt-
ust til ísafjarðar árið 1920, þar
sem þau ráku verzlun um 20 ára
skeið. Börn þeirra urðu 5, Val-
gerður, Friðgeir, Guðbjörg, Sig-
ríður og Halldór.
Leið Guggu (eins og hún var
jafnan kölluð) lá til Reykjavíkur,
eins og tíðast var um unglinga á
þeim tíma. Þar kynntist hún eig-
inmanni sinum, Arne Hoff-Möller
arkitekt, frá Danmörku, sem vann
hér um nokkurra ára skeið á
teiknistofu landbúnaðarins. Þau
giftust árið 1946 en fluttust 1950
búferlum til Hróarskeldu í Dan-
mörku.
Kynni okkar hófust, þegar ég og
fjölskylda mín bjuggum í Hróar-
skeldu um nokkurra ára bil. Við
vorum ung að árum og óreynd, að
hefja búskap og tóku þau hjónin á
móti okkur sem foreldrar. Það var
ekki til sá hlutur, sem ekki var
reynt að leysa úr, okkur til hjálp-
ar.
Heimili Guggu var stórglæsilegt
og bar vott um smekkvísi og
myndarbrag. Hún var dvergur í
höndunum og liggja eftir hana
ófáir hlutir sem hún saumaði út.
Allir sem til hennar þekktu þar
vissu að hún var Íslendingur,
enda hélt hún því óspart á-Ioft og
var verðugur fulltrúi lands síns.
Hún kom í heimsókn hingað til
Islands s.l. sumar, kát og hress, til
að ferðast með fjölskyldu sinni til
æskustöðvanna — Skjaldabjarna-
víkur. Örlögin höguðu því þannig,
að ekki varð komist alla Ieið og
hugðist hún koma aftur seinna og
hafa heppnina þá með, en enginn
veit sina ævi fyrr en öll er.
Að síðustu votta ég og fjöl-
skylda mín öllum ástvinum henn-
ar innilegustu samúð og kveð
hana með hlýhug og þökk.
Herdfs Hall.
Frú Guðbjörg Hoff-Möiler, Dr.
Sofiesvej 7, Hróarskeldú, lézt 3.
Al'GLYSIN'ÍÍA-
SÍMINN KR:
bæjum Hróarskeldu á Norður-
löndum, svo og frá Ameriku,
Japan og fleiri stöðum, sem ósk-
uðu eftir að fá að koma og sjá
danskt þeimili. Á þann hátt
kynntist hún mjög ólíku fólki
allavega að úr heiminum, sem
héldu áframhaldandi sambandi
við hana og er það ekki sist að
þakka hinum glaða og hlýja per-
sónuleika hennar.
Hennar framlag og annarra
slíkra hefur átt sinn þátt í að
vaxandi skilningur hefur aukist
meðal ólíks fólks.
Fóstursonur hennar er Jan
Hoff-Möller og býr hann í Hróar-
skeldu.
AJ
Lausleg samantekt úr grein
sem birtist í Dagbladet Roskilde
4/1 1977.
Verkalýðsfélag Akraness:
Telur að verkafólk geti ekki
beðið lengur eftir kjarabótum
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkl á fundi f, Verkalýs-
félagi Akraness sl. laugardag. og
hefur hún borizt Mbl. til birting-
ar:
Fundur haldinn i Verkalýðs-
félagi Akraness 15. jan. 1977
ályktar að verkafólk geti ekki
Iengur beðið eftir kjarabótum til
að mæta hinum gegndarlausu
álögum stjórnvalda, sem skert
hafa svo kaupmátt launa að
islenskum alþýðuheimilum og af-
komu þeirra er stefnt í beina
hættu.
Þvi skorar fundurinn á stjórn
Alþýðusambands Isl. og stjórn
Verkamannasamb. Islands og
væntanlega kjaramálaráðstefnu
að beita sér fyrir raunhæfum að-
gerðum án tillits til þess að tími
kjarasamninga er ekki útrunninn
og á þeim forsendum, að þrátt
fyrir áfangahækkanir og rauð
strik, hefur kaupmáttur launa
hraðminnkað enda þótt sannað sé
að afkoma atvinnuveganna hafi
verulega batnað og þjóðartekjur
hafi stóraukist.
Verkalýðsfélag Akraness.
janúar s.l., eftir erfið veikindi,
sextug að aldri.
Hún fæddist á Vestfjörðum, en
fluttist til Reykjavíkur árið 1939.
Þar rak hún kjólasaumastofu af
miklum dugnaði til stríðsloka.
Skömmu síðar kvæntist hún Arne
Hoff-Möller frá Hróarskeldu og
fluttust þau síðan til Danmerkur
árið 1950.
Hún hélt áfram að vera Islend-
ingur og vildi láta kalla sig Guggu
á íslenzku (en ekki Gögga, eins og
danski framburðurinn er). Jafn-
framt aðlagaðist hún fljótt hinum
nýju heimkynnum og varð þekkt-
ur og virkur þátttakandi i bæjar-
lífinu.
Hún vann ötullega að því að
treysta vináttubönd og auka
skilning fólks á mikilvægi nor-
rænnar samvinnu, svo og mann-
legra samskipta yfirleitt.
Hið glæsilega heimili hennar
var jafnan öllum opið og sóttu
hana heim ófáir Islendingar á
þeim 25 árum. sem hún bjó hér.
Oftsinnis var hún beðin af
Ferðaskrifstofu Hróarskeldu að
taka á móti gestum frá öðrum
löndum, má þar nefna frá vina-
4
Nýjustu
SELKO
spjaldahurdirnar
Falleg smíði. Vandaðar hurðir á
hagstæðu verði.
Spjaldhurðirnar eru afgreiddar tilbúnar
undir málningu með grunnmáluðum
flötum í Ijósum lit. Þær eru frágengnar í
körmum, sem eru sniðnir eftir veggja
þykktum. Dyrabúnaður er úr valinni furu.
Komið og skoðið Selkó —
nýjustu spjaldahurðirnar frá Sigurði Elíassyni.
SIGURÐUR
ELLASSON HE
AUÐBREKKU 52,
KÓPAVOGI, SÍMI 41380
Ostakynning, Ostakynning
í dag og á morgun frá kl. 14 — 18.
Guðrún Hjaltadóttir húsmæðrakennari kynnir ostaídýfu,
ostastangir o.fl. ostarétti.
Ókeypis uppskriftir. Nýr bæklingur nr. 22.
Sterkur 45% ostur
8—12 mán. gamall.
Osta- og smjörbúðin,
Snorrabraut 54
Verðlistinn
UTSALA
25% afsláttui
Verðlistinn
kjóladeild
Laugalæk Sími 33755
Verðlistinn
kápudeild
Klapparstig 27, simi 25275.