Morgunblaðið - 20.01.1977, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1977
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
"fwf/JAiwaGr'tJU
framkvæmdum eóa undirstöðuat-
vinnuvegur okkar — sjávarútveg-
urinn — þá er veðrið oft sá þátt-
ur, sem skipt getur höfuðmáli
þegar á reynir. Af þessu leiðir, að
mjög hagkvæmt getur verið að
vita eitthvað frekar um veður-
horfur, annað en horfur til
tveggja sólarhringa, sem er sú
þjónusta er Veðurstofan hér á
landi lætur mest í té.
Tilefni þessa skrifa er, að enska
veðurstofan gefur reglulega út
spár fyrir næstu 30 daga eða svo.
Þær gilda fyrir Bretlandseyjar og
þeím er útvarpað í stöðvum BBC.
Nú vaknar sú spurning hvort ekki
sé hægt að birta slíkar spár fyrir
Island? I ljósi þess að þessi veður-
farssvæði eru svo nálæg hvort
öðru, hlýtur að vera hægt að
draga einhverjar ályktanir um
veðurfarið hér á sambærilegan
hátt. Það ræðst af líkum, að ekki
geta slíkar spár verið einhlýtar,
en ljóst má vera, að ekki birti
Bretinn sínar spár, stæðust þær
ekki í megindráttum. Gaman væri
ef svör fengjust við því, hvers
vegna eigi hefur verið ráðist í
slíkt hér á landi?
Guðlaugur Valgeirsson."
Það væri ekki ónýtt að vita um
veðurfar næsta mánuðinn fram í
tímann, sennilega ekki sízt fyrir
bændur og sjómenn og aðra sem
að miklu leyti eru undir veðri
komnir með sína atvinnu. En það
væri fróðlegt að fá að vita nánar
að hve miklu leyti þessar 30 daga
spár standast. En þessu rmáli er
hér með komið til réttra aðila og
tekið undir ósk bréfritara um
svör.
0 Enn um
Bíólagió
„Velvakandi, það má með
sanni segja að nafnið eigi við þíg.
Ástæðan fyrir því að við sendum
þér þetta bréf er sú að við rák-
umst á bréf frá húsmóður í Kefla-
vík og piltunum 5, sem sendu
bréf. Við vonum að þetta verði
birt.
Skoðun okkar á þessu máli með
Bíölagið er sú, að textinn sé frek-
ar hollur fyrir krakkana en hitt.
Þetta er skemmtilegt og þrosk-
andi lag sem enginn fær leið á
strax. Við sem höfum ekkert að
gera á daginn hlustum oft á ýmsa
þætti í útvarpinu. Þessi kona sem
heldur að barnið hennar þroskist
ekki eðlilega við þessa saklausu
setningu: „Haltu kjafti, snúðu
skafti", misskilur þetta algerlega.
Með fyrirfram þökk,
Virðingarfyllst,
Helena Dýrfjörð og
Linda Hjaitested,
Breiðholti
Þessir hringdu . . .
% Á að girða af
umferðargötur?
Móðir:
— Mér ofbýður sá fjöldi
barna og fullorðinna sem slasast
eða lætur árlega lífið í umferðar-
slysum. Þess vegna vildi ég koma
eftirfarandi á framfæri. Væri
ekki hægt að byggja nokkuð háar
rimlagirðingar með gaddavír efst
meðfram öllum helztu umferðar-
götum í Reykjavik og víðar. Það
yrði að setja upp hlið með vissu
millibili og þar gæti verið vakt-
maður sem hleypti engum í gegn
nema umferð væri ekki nálæg.
Sennilega væri þö hagkvæmara
að hafa einhvern útbúnað t.d.
hnapp sem þyrfti að styðja á til að
opna, og myndi hann ekki opna
hliðið nema bílar væru ekki ná-
lægir. Einnig yrðu að vera útskot
með vissu millibili fyrir bíla svo
hægt væri að hleypa út fólki og
gera ráð fyrir gagnstéttum einnig.
Vafalaust verður þetta dýr og
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A opna kanadíska meistaramót-
inu 1976 kom þessi staða upp í
skák kanadamannanna Reents,
sem hafði hvítt og átti leik, og
hins þekkta alþjóðlega meistara
Biyasis:
26. Hxf5! gxf5 27. Dxf5 Rh8 (Hvít-
ur hótaði 28. Dg6+) 28. Dg4+ Kf7
29. Rxd6+ og svartur gafst upp.
Sigurvegari á mótinu varð
Vranesie, Kanada, á undan köpp-
um eins og Browne, Bandaríkjun-
um og Kanadamönnunum
Biyasis, Amos og Spraggett.
mikil framkvæmd en gætu for-
eldrar sem búa við miklar um-
ferðargötur ekki tekið höndum
saman um þetta verkefni því til
fjáröflunar ásamt viðkomandi yf-
irvöldum. Hver vill ekki leggja á
sig dálítið erfiði og útgjöld ef það
mætti verða til þess að vernda
börn þeirra og þau sjálf i umferð-
inni?
ELETRONISK REIKNIVÉL
SLÆR ALLT ÚT
á venjulegan pappír með stóru skýru letri.
STÓRIR VALBORÐSLYKLAR
og fisléttur ásláttur fyrir hraöupptökur er aðalsmerki ADDO
nú sem fyrr.
□ Margfaldar □ Deilir □ Sjálfvirk prósentuálagning og frá-
drátturD Fljótandi komma □ SamiagningarstaðaD Margar
aukastafastillingar □ Atriðisteljari □ Fyrirferðalítil 0 12
stafa talnarými.
Leitið nánari upplýsinga og óskið eftir sýnisvél.
[MÆUaRffltf® KJARAN hf
skrifstofuvélar & verkstæði - Tryggvagötu 8, sími 24140