Morgunblaðið - 12.02.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÍ). LAUGARDAGUR 12. FEBRL'AR 1977!
Járnblendifélagið:
450 millj. kr. í
tekjuskatt á ári
MORGUNBLAÐIÐ innti Gunnar
Sigurðsson, forstjóra Járnblendi-
féiagsins, eftir þvf 1 gær hver
væri áætlaður tekjuskattur fyrir-
tækisins þegar það væri tekið til
starfa.
Gunnar kvað meðaltekjuskatt á
ári áætlaðan 12,6 miilj. norskra
króna eða um 450 millj. fsl. kr.
Kvað hann meðaltalið miðað við
17‘/í ár, en fyrirtækið mun engan
tekjuskatt greiða fyrstu árin á
meðan verið er að koma þvf á
stofn, en sfðan kvað Gunnar skatt-
byrðina vaxa mjög eftir þvf sem
vaxtabyrði fyrirtækisins minnk-
aði.
Fjallfoss flytur tæki
Energoprojekt til
Reni við Svartahaf
FJALLFOSS, skip Eimskipafélags Isfands, fer væntanfega þann 21.
febrúar n.k. til sovésku borgarinnar Reni við Svartahaf með öll
tæki sem Energoprojekt á og hefur notað við virkjunarframkvæmd-
irnar við Sigöldu. Samkvæmt því sem Sigurlaugur Þorkelsson
blaðafulltrúi Eimskipafélags Islands tjáði Morgunblaðinu 1 gær
munu tæki Energoprojekt vera alls um 1000 lestir að þyngd mest
eru þetta jarðvinnslutæki og flutningabflar
Talið er að Fjallfoss verði tvær vikur á leiðinni til Reni, sem er á
landamærum Rúmeníu og Sovétríkjanna og mun þetta vera í fyrsta
skipti sem íslenzkt flutningaskip siglir inn í Svartahaf, en eins og
kunnugt er sigldi olfuflutníngaskipið Hamrafell þessa leið oft á ári
meðan það var i eigu íslendinga. Á heimleið er ráðgert að Fjallfoss
taki salt í einhverju Miðjarðarhafslandanna og flytji til íslands.
Æfingamiðstöð fyrir
hreyfilömuð börn
byggð við Hhðaskóla
Á HAUSTI komanda er ráðgert að taka 1 notkun sérstaka deild 1
Hlfðaskóla fyrir þau hreyfihömluðu börn, sem hafa verið f skólan-
um. Á fundi borgarráðs f vikunni var lagt fram bréf frá fræðslu-
stjóra, Kristjáni J. Gunnarssyni, ásamt teikningu að viðbyggingu
við Hlfðaskóla, sem ætluð væri fvrir deild hreyfihamlaðra barna, og
féllst borgarráð fyrir sitt leyti á teikninguna.
Að sögn Kristjáns Gunnarssonar er hér um að ræða litla viðbygg-
ingu við skólann er hefði að geyma rúmgóðan æfingasal þar sem
sjúkraþjálfarar myndu æfa börnin, herbergi fyrir sérfræðinga og
tannlæknisherbergi. Sagði Krístján að veittar hefðu verið um 15
milljónir króna til byggingarinnar á fjárlögum yfirstandandi árs og
væri ráðgert að taka þessa byggingu í notkun hinn 1. september n.k.
Arkitektar eru þeir Guðmundur Kr. Guðmundsson og Ólafur Sig-
urðsson.
EINU SINN/ VAK HA90R
%y\ m tvo ?atæku« A9
VIANN «0R6A9I EKK/ £YR\
\ SKAÍTA. ST/JN90M VA«9
RfKlO mU A© SfóJA A9
60RÉ.A WONOM, SVO ALLS'
LAOS m Y/ANN. W flNA
SEM WANN WAT9/ TlL VfSS
A9 HTA A \W« MoKKOftRA
M/LDÓNA YF/KWÁTfOR \
&ANKA ANNA9 SLAGX9, fÁ'
1 f/NAft WLLMNIR \ SKOLOA-
6KE90M ST0N9UM STM
SAMI ftANK/NN KLVP7/ AT
WONOM 06 SM0 tll\IN 06.
TINN VfX/LL TIN'b 06
6B-N60I? OWÁ NOKKOK
YtUNWOO VOSONOA V£áAK
VANNI6 S.TÓ9
S>nrtþQcprast ovfntýrh
Hvöt:
Fundur um mikil
vægi sjálfboðavinnu
FÉLAG sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík, Hvöt, heldur á
mánudag almennan fund í
Sjálfstæðishúsinu við Bol-
holt. Fundarefnið verður:
Um mikilvægi sjálfboða-
vinnu í félagssamtökum,
og frummælendur verða
þau Ragnheiður
Guðmundsdóttir laéknir og
Gunnar Helgason for-
maður fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykja-
vík. Þá mun verða boðið
upp á upplestur á fundin-
um, og það gerir Anna
Guðmundsdóttir leikkona.
Smáskjálfti
í grennd
Siglufjarðar
tBUÁR 1 Siglufirði og 1 Ólafsvlk
urðu varir við jarðskjálfta 1 fyrri-
nótt en samkvæmt upplýsingum
Ragnars Stefánssonar jarð-
skjálftafræðings, var aðeins um
smávægilegan skjálfta að ræða,
3,3 stig. Upptök hans voru 5—10
km suðsuðvestur af Siglufirði, en
á þvf svæði eru algengír minni
háttar skjálftar.
Ráðunautar og rannsóknamenn 1 landbúnaði skiptast á skoðunum. Þórarinn Lárusson, ráðunautur
Ræktunarsambands Norðurlands, í ræðustól. Ljósm. Mbi. Fríðþjófur.
Leiðbemendur 1 landbúnaði á fundi
SÍÐASTLIÐNA viku hefur staðið
yfir 1 Reykjavfk árlegur Ráðu-
nautafundur Búnaðarfélags ts-
lands og Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins. Fund þennan
sækja ráðunautar búnaðarsam-
bandanna I landinu, ráðunautar
Búnaðarfélagsins og starfsmenn
og sérfræðingar Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins en að þessu
sinni sátu fundinn milli 50 og 60
manns.
Á fundinum hafa að þessu sinni
verið flutt fjöldamörg erindi um
einstaka þætti landbúnaðar og
kynntar niðurstöður tilrauna sem
unnið hefur verið að og unnið er
að i landbúnaði. Hefur meðal ann-
ars verið fjallað um möguleika til
bættrar heyverkunar, fjallað var
um sauðfjárrækt og þá meðal ann-
ars um ýmsa möguleika til hag-
ræðingar I þeirri búgrein og
kynntar voru niðurstöður rann-
sókna á breytingum á kjötgæðum
og vaxtalagi dilka við ræktun. Þá
var á fundinum fjallað nokkuð
um leiðbeiningastarfsemi í land-
búnaði og töldu ýmsir að það sem
helzt stæði leiðbeiningastarfsem-
inrti fyrir þrifum væri skortur á
mörkun heildarstefnu í fram-
leiðslumálum landbúnaðarins en
aðrir töldu að sú stefna væri fyrir
hendi.
Viðskiptajöfnuður okkar við Sovét
ríkin versnaði 1976 um 119,6%
VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR í
viðskiptum íslendinga og
Sovétríkjanna versnaði um
119.6% á árinu 1976 miðað
við árið 1975. Viðskipti
tslendinga við Sovétríkin
voru óhagstæð 1975 um
2.730.7 milljónir króna, en
árið 1976 voru þau óhag-
stæð um 5.995.5 milljónir
eða rétt tæplega 6 mili-
jarða króna. Utflutningur
íslendinga til Sovétríkj-
anna minnkaði um 20.2% á
sama tíma og verðmæti
þeirra vara, sem tslending-
ar keyptu frá Sovétríkj-
unum, jókst um 28,8%.
Frá þessu er skýrt í
Ennfremur verða kaffi-
veitingar og er allt sjálf-
stæðisfólk velkomið.
Fundurinn verður sem
áður segir í Sjálfstæðis-
húsinu við Bolholt n.k.
mánudag og hefst kl. 20.30.
janúarhefti Hagtíðinda,
sem Hagstofa Islands gef-
ur út. íslendingar fluttu út
til Sovétríkjanna á árinu
1975 vörur fyrir 5050.7
milljóna króna, en 1976
nam útflutningur til Sovét-
ríkjanna 4.028.8 milljónum
króna. Á árinu 1976 urðu
FRÁ og með 1. mars n.k.
hefur Bergþór Konráðsson
verið ráðinn aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Iðnaðar-
deildar Sambandsins, með
aðsetri á Akureyri. Hann
er ráðinn í stað Hans
Kristjáns Árnasonar, sem
ráðinn hefur verið í starf
aðstoðarframkvæmda-
stjóra hjá Innflutnings-
deild.
Bergþór Konráðsson er fæddur
17. júlí 1947. Hann varð stúdent
viðskiptin íslendingum
enn óhagstæðari eins og
áður er getið, en það ár var
innflutningur frá Sovétr-
Ikjunum rúmlega 10 mill-
jarðar eða 10.024.3 milljón-
ir króna, en árið 1975 nam
innflutningurinn 7.781.4
milljónum króna.
Bergþór Konráðsson
frá Menntaskólanum I Reykjavík
1966, Cand oecon frá Háskóla
Islands 1971, MBA frá University
of Minnesota «973. Ráðinn
fulltrúi framkvæmdastjóra Iðn-
aðardeildar Sambandsins frá
ágúst 1976. Hann er kvæntur
Hildi Björg Halldórsdóttur og
eiga þau 3 börn.
Sala varnar-
liðseigna:
Forstjóra-
staðan er
enn óveitt
ENGINN ákvörðun hefur verið
tekin um það hver hinna 34 um-
sækjenda hreppir forstjórastarfið
hjá Sölu varnarliðseigna. Um-
sóknarfresturinn rann út fyrir
nokkrum vikum. Utanríkisráð-
herra veitir starfið. Helga
Eyjólfssyni hefur verið falið að
gegna forstjórastörfum þar til
eftirmaður hans tekur við.
Furdufyrirbœri nœrri Siglufiröi:
Skipti litum úr
eldrauðu í bláhvítt
SIGLFIRZK hjón sáu kynlegt
fyrirbæri um kl. 23 I fyrrakvöld
þegar þau voru á kvöldakstri (
grennd við Strákagöng. Við
höfðum samband við þau hjón I
gær og sagðist eiginmanninum,
Jóni Dýrfjörð, svo frá: „Við fór-
um 1 kvöldakstur 1 góða
veðrinu á fimmtudagskvöld og
ókum vestur fyrir Gat eins og
við segjum hér, eða í gegnum
Strákagöng. Þegar við vorum
stödd um það bil hálfan
kílómetra vestan við Sauðanes-
vita, sáum við mjög kyniegt
Ijósfyrirbæri á himni. Við
fylgdumst með þessu fyrirbæri
I 15 mín., frá 23,03 til 23,18 en á
meðan setti ég niður stikur og
tók mið á fyrirbærið. Á föstu-
dagsmorgun fór ég síðan og
fann út stefnuna og þegar við
sáum fyrirbærið fyrst var það f
276 gráðu stefnu frá okkur og
um 18—20 gráður frá láréttri
stefnu.
Að liðnum 15 mínútum hafði
ljósfyrirbærið færzt frá 276
gráðunum og í 300 gráður eða
til norðurs. Ljósið frá þessu var
mjög skært og skipti litum frá
eldrauðu og yfir í bláhvitt. Við
sáum vitann á Skagatá mjög
vel, en þetta ljós var mun skýr-
ara og sterkara, minnti á þegar
halastjarnan var hér á ferð
fyrir nokkrum árum. Skip
sáum við úti á sjónum í um það
bil 12 mflna fjarlægð get ég
trúað, en ljósfyrirbærið var að
öllum líkindum utar. Fyrirbær-
ið hvarf okkur sjónum mjög
skyndilega."
Aðstoðarframkvæmda-,
stjóri Iðnaðardeildar SÍS