Morgunblaðið - 12.02.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977
5
Klukkan 21.40:
„Stolið stælt og
skrumskælt...”
ALLT í grænum sjó, stolið
skælt og skrumskælt, heitir
þáttur á dagskrá útvarpsins í
kvöld, klukkan 21.40. Þáttur
þessi erí umsjá þeirra Jörundar
Guðmundssonar og Hrafns
Pálssonar. Gefið er upp i dag-
skrá að tveir ókunnir gestir
komi i heimsókn.
Jörundur vildi ekkert fara i
felur með hverjir þessir gestir
væru, þegar Morgunblaðið
hafði tal af honum i gær, þar
sem hann vinnur hjá Sverri
Þóroddssyni og co. „Gestirnir i
þættinum á laugardaginn
verða þeir Bessi Bjarnason og
Árni Tryggvason", sagði hann.
„Þátturinn gengur að mestu út
á þorrablót, þ.e.a.s þeir Árni
og Bessi skella sér á eitt slikt.
Síðan heyrum við i manni uppi
á Keflavíkurflugvelli, sem er á
leið til útlanda og er ofsalega
flughræddur, en reynir að telja
sjálfum sér trú um að svo sé
ekki.
Svo verður auðvitað eitt-
hvað um skopstælingar, t.d.
heyrum við Ólaf Jóhannesson
dómsmálaráðherra og Geir
Hallgrimsson forsætisráðherra
syngja gamanvísur. Og þá
heyrum við þáttinn „Um dag-
inn og veginn" að þessu sinni í
umsjá Örnólfs Thorlacius,"
sagði Jörundur hlæjandi.
„Jú, jú ég er alltaf að herma
eftir fólki. Byrjaði á þessu fyrir
alvöru árið 1969 eða tveimur
árum eftir að ég kom til Reyija-
víkur." En Jörundur Guð-
mundsson er fæddur á Akur-
eyri árið 1 947, þar gekk hann í
gagnfræðaskóla og kom til
Reykjavíkur, þar sem hann fór í
Iðnskólann til að nema rakara-
iðn tvítugur að aldri. „Daginn,
sem ég lauk námi við Iðnskól-
ann gekk ég út hrópandi af
ánægju og sagði skilið við iðn-
ina fyrir fullt og allt.
Hverjum ég hef mest gaman
af að herma eftir? Ég held Gísla
Halldórssyni leikara. Sennilega
vegna þess að hann er eini
maðurinn, sem tekur því virki-
lega illa. En ég get bara ekki
annað gert en að herma eftir
honum þegar hann var t.d. að
lesa söguna um Hjalta litla í
sveitinni. En Gisli virðist þvi
miður ekki geta tekið þessu og
neitaði meira að segja að koma
fram i útvarpsþætti, sem ég
hafði verið í og bar því að
„þessi drengur" hefði verið
gestur í þættinum viku áður,
en „þessi drengur" var vist ég.
Svo hef ég mikið gaman af
því að stæla Geir Hallgrímsson,
þvi hann á það til að tala
svolítið vélrænt en hann virðist
alls ekki taka því illa að ég
hermi eftir honum, held hann
sé bara ánægður með það.
Árna Gunnarsson ritstjóra hef
ég líka gaman af að stæla
„Heyrðu vinur ertu sybbinn"
(með áherzlu á errunum) það er
týpiskur Árni Gunnarsson. Jú,
jú þeir eru margir skemmtiegir.
Aftur á móti er enginn kven-
maður, sem ég hef lagt út í að
herma eftir. Finnst engin
þeirra, sem ég nú þekki, hafa
nógu sérkennilega rödd, nema
Emilía Jónasdóttir leikkona, en
hún var að hætta um það
leyti.sem ég var að byrja,
þannig. . Ég hef þann háttinn
á að taka raddir þeirra, sem ég
hermi eftir, upp á segulband
og hlusta svo á þær alltaf öðru
hverju til að halda mér í æf-
ingu. — Það er gaman að
þessu öllu. Sérstaklega hefur
veturinn í vetur verið viðburða-
ríkur og það er óvanalega mik-
ið um þorrablót og alls lags
skemmtanir sem stendur,"
sagði Jörundur Guðmundsson
„hermikráka" að lokum.
Á meðfylgjandi mynd er Sfmon ívarsson, sem sjónvarps-
áhorfendur munu sjá f kvöld klukkan 20.55. Hann mun
leika lög í sjónvarpssal eftir Bach og Visée. Sfmon
tvarsson stundar nám f gftarleik f Vfnarborg f vetur.
Flugfélagsþotur í nýjum búningi
UM ÞESSAR mundir er verið að Ijúka við að
mála Boieng 727 þotur Flugleiða S nýjum lit
og segja kunnugir að þoturnar séu mun
liflegri en áður. Að sögn Sveins Sæmunds-
sonar, blaðafulltrúa Flugleiða, hefur verið
breytt um liti á þotunum. Rauði liturinn
myndar nú breiðan geira á skrokknum og er
meira ráðandi en áður. Þá er blái liturinn
orðinn Ijósari. Ennfremur hefur neðri hluti
þotanna verið málaður grár, en hann var
ómálaður áður.
Á myndinni sést Gullfaxi þota FÍ i hinum
nýja búningi á Keflavíkurflugvelli.
BÍLASÝNING
Verður í sýningarsal Bílasölunnar Braut,
Skeifunni 11
laugardag frá kl. 8—19 - sunnudag frá kl. 1 —19
Sýndir verða:
Datsun
Datsun 180B (Nýtt model) —Datsun 160J
Datsun 120Y (4ra dyra)— Datsun120Y (sjálfskiptur)
Datsun Pick-up (níðsterkur)
Subaru
Drif á öllum hjólum
Gjörið svo vel að líta inn á bílasýningu okkar í
Skeifunni 11 og kynnist nýjustu gerðum
og nýjungum í japönskum bílaiðnaði
Ingvar Helgason