Morgunblaðið - 12.02.1977, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977
BLÓM
VIKUNNAR
|JJMSJÓN: ÁB. ®
PELARGÓNÍA
(Geranium)
Sú var tíö að íslenskar húsmæður lögðu kapp á að rækta fallegar
pelargóniur i gluggum sínum. Furða var hve vel þeim gekk að
krækja sér í ,,afleggjara“ af hinum margvíslegustu gerðum og
„koma þeim til“ eins og sagt var. Margur glugginn var þá blóm-
skarti búinn sumarlangt og hýru auga rennt til þriflegra
plantnanna sem næstum huldu þá — enda ekki allir stórir á þeim
dögum.
Sagt var að sumar þessara kvenna hefðu varast að hreyfa pottana
hvað þá heldur að snúa þeim i gluggunum til þess að blómin, sem
eðli sínu samkvæmt snúa sér í birtuna, — litu sem glæsilegast út séð
utanfrá t.d. fjölfarinni götu. Eitthvað virðist hafa dofnað yfir
pelargóniuræktuninni á seinni árum en likur benda til þess að hún
sé að glæðast á nýjan leik. Pelargóniur eru blágresisættar —
Geranium — og undir þvi nafni ganga þær í Bretlandi. Nafnið er
leitt af grísku orði Pelargos = storkur, en blágresi er á Norður-
löndum almennt kallað storkanef vegna lögunar á aldini margra
þessara plantna.
Arabisk munnmæli herma að pelargónfan hafi orðið til á svo-
felldan hátt: Einhverju sinni hafi spámaðurinn þvegið skyrtu sína
og hengt til þerris á óhrjálegan runna, en þegar skyrtan var þurr
orðin og tekin af runnanum var hann orðinn að hinni fegurstu
pelargóníu. Þekktar munu vera um 250 tegundir af pelargóníum og
Baugblaðapelargónla (Pelargoniutn zanale)
allflestar ættaðar frá Suður-Afríku. Að sjálfsögðu má skipta þeim í
marga flokka, en af þeim sem kunnastar eru hér á landi má nefna:
baugblaðapelargóníur (P. zonale) og enskar pelargóníur (P.
grandiflorum o.fl.) Baugblaðapelargóníur eru auðþekktar á
dökkum baug sem liggur yfir blöðin oft mjög áberandi. Stöngullinn
er gildur blöðin stilklöng, nærri kringlótt. Blómin einlit rauð,
rauðbleik eða hvít. Enskar pelargóníur bera stór skrautleg og oft
marglit blóm í glæsilegum klösum. Stöngull þeirra er grennri og
trjákenndari en hinna, blöðin stilkstutt og blaðjaðrarnir bylgjaðir.
Pelargóníur eru yfirleitt fremur auðveldar i ræktun og fjölbreytni
þeirra mikil og skemmtileg. Allar eiga það sammerkt að vera
sólelskar og þurfa góða birtu. Sólskin getur þó orðið of sterkt fyrir
þær, einkum í suðurgluggum og þarf þá að skyggja þær eða færa á
heppilegri stað um sinn.
Pelargóníum má fjölga með græðlingum sem heppilegast er að
taka í febr./mars og setja annaðhvort í vatn eða mold blandaða
sandi og varast að hafa í sól fyrr en greinilegt er að plantan hafi fest
rætur. Pelargóniur þurfa frjósama mold, t.d. grasrótarmold bland-
aða sandi, mómold og gömlum húsdýraáburði, þá þurfa þær og
ríflega vökvun einkum framan af sumri. Gamlar plöntur þarf að
klippa rækilega og snyrta snemma vors til þess að þær fái lögulegan
vöxt og trjónist ekki upp. Heppilegasta vetrargeymsla er á björtum
stað þar sem hiti fer ekki upp fyrir 10° C., en sjálfsagt verður því
ekki víða við komið í okkar kappkynntu húsakynnum. Umsj.m.
Eggjaframleiðendur
Almennur félagsfundur verður haldinn föstu-
daginn 18. febrúar kl. 14 í Útgarði, Glaesibæ.
Allir eggjaframleiðendur velkomnir.
Samband eggjaframleidenda.
— Messur
Framhald af bls. 7
BÆNASTAÐURINN Fálka-
götu 10. Sunnudagaskóli kl.
10.30 árd. Samkoma kl. 4 siðd.
Þórður M. Jóhannesson.
KÁRSNESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Guðsþjónusta i Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Séra Árni
Pálsson.
DIGRANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma I safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastig kl. 11
árd. Guðsþjónusta I Kópavogs-
kirkju kl. 2 siðd. Séra Þorberg-
ur Kristjánsson.
MOSFELLSPRESTAKALL.
Messa í Lágafellskirkju kl. 2
síðd. Æskilegt er að foreldrar
fermingarbarna mæti ásamt
börnum sínum. Séra Birgir Ás-
geirsson.
GARÐAKIRKJA. Barnasam-
koma I skólasalnum kl. 11 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Guð-
mundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar, prédikar. Séra
Bragi Friðriksson.
KAPELLA St. Jósepssystra í
G : rðabæ. Hámessa kl. 2 siðd.
FRÍKIRKJAN 1 Hafnarfirði.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30
árd. Safnaðarprestur.
KALFATJARNARSÓKN.
Barnasamkoma í Glaðheimum
kl. 2 siðd. Séra Bragi Friðriks-
son.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL.
Innri- Njarðvíkurkirkja:
Sunnudagaskóli kl. 11 árd og í
Stapa kl. 1.30 slðd. Séra Páll
Þórðarson.
KEFLAVÍKURKIRKJA.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Þess er
óskað að fermingarbörnin mæti
ásamt foreldrum sinum. Sókn-
arprestar.
UTSKÁLAKIRKJA. Messa kl.
2 síðd. Séra Guðmundur Guð-
mundsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA.
Messa kl. 2 siðd. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30.
árd. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA.
Guðsþjónasta kl. 2 síðd. Sóknar-
prestur.
Þorlákshöfn.Messa kl. 2 siðd.
Sóknarprestur.
HEILSUHÆLI N.L.F.Í. Hvera-
gerði. Messa kl. 11 árd. Sóknar-
prestur.
AKRANESKIRKJA. Barna-
samkoma kl. 10.30 árd. Messa
kl. 2 síðd. Séra Björn Jónsson.
IS UirhVtfa Tl
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
í Vesturborginni
3ja herb. rúmgóð og vönduð
íbúð á 1. hæð í steinhúsi
skammt frá Miðbænum. Svalir,
sér hiti.
Við Miklubraut
Sérhæð sem er dagstofa, borð-
stofa, svefnherb., forstofuherb.,
eldhús og baðherb. Svalir, sér
hiti, sér inngangur. íbúðin er á
neðri hæð i þríbýlishúsi. Laus
strax.
Einbýlishús
við Vesturberg, 8 herb. Nýtt og
vandað hús. Bílskúrsréttur.
Helgi Ólafsson
lögg. fasteignasali
kvöldsími 21155
Umboðssala
Ósk um eftir að taka að okkur að selja vörur í
umboðssölu. Góð sölusambönd á Reykjavíkur-
svæðinu og um allt land. Tilboð sendist Mbl.
merkt ,,G: 1 693 '. fyrir 20. febrúar.
2ja herb. við Álfheima
Höfum í einkasölu 2ja herb. endaíbúð á 5. hæð
með góðum suðursvölum. íbúðin er 70 fm.
Rýjateppi á gólfum. Laus júlí—ágúst n.k. Verð
6.5 — 6.6 millj. Útb. 4.6—4.7 millj.
Samningar og Fasteignir
Austurstræti 10a 5. hæð
Sími 24850 og 21970
Heimasimi 38157.
Iðnaðarhúsnæði
Vorum að fá í sölu við Auðbrekku. 270 fm
iðnaðarhúsnæði á jarðhæð. Lofthæð 3.600
tvennar innkeyrsludyr. Frekari upplýsingar á
skrifstofunni. Athugið opið í dag frá 10 — 3
sunnudag kl. 1 —3.
Fasteignasalan
Norðurveri Hátúni 4 a
Simar 21870 og 20998
Fasteignaviðskipti
Hilmar Valdimarsson,
Agnar Ólafsson,
Jón Bjarnason hrl.
83000
Til SÖlu
Parhús við Digranesveg
Kóp.
Parhús sem er tvær hæðir og kjallari rúmir
180 ferm. Gróinn garður. Bílskúrsréttur.
Hægt að gera rúmgóða 2ja herb. íbúð í
kjallara. Skipti á 3ja herb. íbúð æskilegt
FASTEIGNAÚRVALIÐ
SÍMI83000 Silfurteigil
Sölustjóri: Auðunn Hermannsson Benedikt Björnsson lgf.
2ja herb. Hafnarfjörður góð
kjör
Höfum í einkasölu 2ja herbergja mjög vandaða
íbúð á 5. hæð (lyfta) í háhýsi við Miðvang í
Norðurbænum um 60 ferm. Fallegt útsýni Laus
í maí' 77. Verð 6 milljónir útb. 4.5 milljónir við
samning 1.2 milljóna mismunur af útborgun
má skiptast á 18 mánuði með 2ja mánaða
jöfnum greiðslum fram í júlí 1 978.
3ja herb. m/bílskúr góð kjör.
Höfum í einkasölu 3ja herb. íbúð á 2. hæð við
Dúfnahóla í Breiðholti. íbúðin er með harðviðar-
innréttingum, teppalögð. Verð 8.6 milljónir
útb. 6 milljónir við samning 1.2 milljón mis-
munur af útborgun má dreifast á 1 8 mánuði
með tveggja mánaða jöfnum greiðslum í fram í
júlí 1 978. _
Samnmgar og Fasteignir
Austurstræti 10, 5. hæð
s. 24850—21970 heimasimi 38157.