Morgunblaðið - 12.02.1977, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 12.02.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977 23 — Orkunýting forsenda... Framhald af bls. 18 egi, ef undan væri skilið fossafl, sem af náttúruverndarástæðum yrði ekki nýtt. Mikið væri um orkufrekan iðnað i Noregi, sem fyrst hefði verið i eigu útlend- inga, en væri nú nær allur i norskri eign. Mikið'af þessum verksmiðjum þyrfti nú endurnýj- unar við og þessi iðnaður þyrfti þar meiri orku en hann gæti feng- ið. Norski Alþýðuflokkurinn, Kristilegi flokkurinn og Hægri flokkurinn vildu hlúa að tiltækri iðju í landinu, enda atvinna og afkoma heilla byggðarlaga undir því komin. Milliflokkarnir norsku væru óráðnari i afstöðu — en SF (norska alþýðubandalagið) eitt á móti. Pólitísk afstaða til málsins væri því svipuð þar og hér. Benedikt dró í efa að Union Carbide hefði dregið sig út úr samstarfí hér vegna versnandi af- komumöguleika slíkra verk- smiðja. Þeir hefðu ætlað sér að brjótast inn á Evrópumarkað gegn um sameignaraðstöðu hér. Skyndilega hefði verið horfið frá slíkri útþenslu, e.t.v. vegna mannaskipta í æðstu stjórn „hringsins". Benedikt sagði að fara þyrfti af varúð og gát í stóriðju. Rangt hefði verið að sínu mati að leyfa sama erlendum aðila of mikil um- svif, t.d. að byggja margar álverk- smiðjur. Hyggilegt væri að skipta við fleiri og hyggja að fjölbreytt- ari framleiðslu. Hann hvatti til fræðilegrar úttektar á íslenzkum möguleikum í stóriðju, nefndi m.a. demantaframleiðslu til iðn- aðar. Benedikt fjallaði um efnisatriði samningsins við hið norska fyrir- tæki. Rétt væri að fara varlega þegar mótaðili réði framleiðslu- keðjunni frá hráefnanámum, gegn um framleiðslustig til vöru- dreifingar. Sér virtist betur hafa til tekizt hér en varðandi álið, sérstaklega um sölu framleiðslu, en frekari skýringa þyrfti við varðandi hráefnisöflun til fyrir- tækisins. Þá ræddi hann um nýtingu þriðju auðlindar okkar, orkunnar. Taldi hann að óvirkjuð orka, en virkjanleg, reiknað með 20% af- föllum vegna náttúruverndar- sjónarmiða, gæti gefið okkur 35 milljarða á ári i tekjur, miðað við stórvirkjunarverð (sem þó væri lágt talið). Þessa auðlind verðum við að nýta, sagði Benedikt, eftir öllum, tiltækum en skynsamleg- um leiðum. Uttekt þyrfti að gera á þessum miklu möguleikum, á strangfræðilegum grunni, sem verið gæti tslendingum styrkur við ákvarðanatöku í framtíðinni. Þá gagnrýndi Benedikt harð- lega að Alþingi hefði í raun verið svipt valkostum i virkjunarmögu- leikum af „kerfinu". Lúta þyrfti að hönnuðum valkostum, sem Landsvirkjunarkerfið hefði jafn- an tiltæka, en aðrir möguleikar, e.t.v. æskilegri, biðu ókannaðir. Þann veg hefði Alþingi misst ákvörðunarvald siU til kerfisins. Enn yrði því virkjað á eldgosa- og jarðhræringabeltinu (Hrauneyja- foss) og byggðasjónarmið snið- gengið. Að lokum ræddi Benedikt um raforkuverð, annarsvegar með smáum virkjunum, sem þýddu dýrt rafmagn i framleiðslu, eða með stórvirkjunum, sem að jafn- aði biðu upp á ódýrari raforku, Stórvikjanir væru hinsvegar háð- ar orkufrekum kaupendum eða framleiðslu. Ef hætt yrði við járn- blendiverksmiðjuna nú, myndu milljarðar króna koma ofan á raf- orkuverð til almennings og iðnað- ar á næstu árum, svo orkuverið gæti risið undir stofnkostnaði. Benedikt sagði að lokum að þingflokkur Alþýðuflokksins myndi fylgja þessu frumvarpi. Landsbyggðar- hagsmunir sniðgengnir Karvcl Pálmason (SFV) gagn- rýndi að þingmenn hefðu ekki fengið jafnsnemma í hendur framkomið frumvarp um járn- blendiverksmiðju. Svo væri að sjá sem framverðir járnblendimáls hefðu ekkert lært af samskiptun- um við Union Carbide, eða af því, að það fyrirtæki hefði dregið sig í hlé, með ærnum kostnaði. Engin breyting hefur átt sér stað í hug- um forgöngumannanna. Hann vék síðan að margháttuðum fram- faramálum í strjálbýli, m.a. í virkjunum, sem það fjármagn væri betur komið í, sem nú skyldi renna í Hvalfjarðarjárnblendið. Ekki hefðu legið á lausu 100 milljónir, sem þurft hefði til að tvöfalda afköst feitfiskbræðslu i Bolungarvík, en milljarðatugir tiltækir, að því er virtist, í eitt risafyrirtækið enn á Suðvestur- horninu. Þetta væri byggðastefna ríkisstjórnarinnar í framkvæmd. Hann deildi hart á Alþýðuflokk- inn fyrir afstöðu hans til málsins. Og enn skyldi virkjað hér syðra, Hrauneyjafoss. Kerfið hefði i raun hrifsað ákvörðunarvaldið af Alþingi. Þjóðlegir atvinnuvegir og óþjóðlegir Sigurður Magnússon (Abl) taldi efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar stefnt í voða með inn- rás erlendra auðhringa í atvinnu- og efnahagsmál þjóðarinnar. Þessir auðhringir væru viðsjár- gripir og nokkurskonar framhald fyrri nýlendustefnu. Valið stæði milli þjóðlegra atvinnuvega, sem reynast myndu okkur bezt hér eftir sem hingað til, og óþjóð- legra, í höndum erlendra auð- hringa. Alþýðubandalagið hefði jafnan haft forystu um eflingu hinnar þjóðlegu framleiðslu í landinu. Hann líkti stóriðjunni við verzlunareinokun fyrri tima hér á landi. Stjórnarþingmaður andvígur frumvarpinu Páll Pétursson (F) lýsti sig andvígan frumvarpinu. Ástæðan til þess að Elkem kysi sameign um verksmiðju hér væri sú, að þeim yrði selt rafmagn á hálfu því verði, sem það þyrfti að greiða i Noregi, ef það færði út kvíar þar. Hann taldi þessa verksmiðju verða landbúnaði til hnekkis í nágrenni hennar og raska sam- ræmi í byggð og atvinnurekstri, sem fyrir væri. Það er dýrt spaug að reisa verksmiðju upp á 19.000 m.kr., sagði þingmaðurinn. Verk- smiðju, sem auk þess nýtur fríð- inda á sviði tolla, skatta og í kaup- um á raforku og veitir máske ekki af slíkum hlunnindum. Þá verður að reisa félaginu nýja höfn upp á 800 m.kr., sem betur væri komin út á Akranesi. Það tekur engu tali að þessi verksmiðjuhöfn þrengi kosti í uppbyggingu annarra hafna i landinu. Hann vitnaði til þingsályktunartillögu, sem hann flytur ásamt Ingvari Gislasyni þess efnis, að eftirleiðis sé óheim- ilt að gera samninga um raforku- sölu til orkufreks iðnaðar nema þeir séu þannig úr garði gerðir að tryggt sé að ætíð sé greitt meðal- framleiðslukostnaðarverð fyrir heildarframleiðslu raforku í land- inu, þannig að öruggt sé að ís- lendingar þurfi aldrei að greiða niður orkuverð til orkufreks iðn- aðar. Þingmaðurinn taldi að fjárhag þjóðarinnar væri stefnt í voða vegna „glannalegrar stefnu í raf- orkumálum". „Við virkjum of stórt í einu.“ Nær væri að fara sér hægar og leggja megináherzlu á samtengingu dreifikerfis og styrkingu þess. Þannig gætum við nýtt orkulindirnar sjálfir. Páll vék að því að við ættum ekkert frekar að hleypa útlendum auðhringum inn i atvinnuland- helgi okkar en fiskveiðilandhelgi. Hann minnti á, hvern veg farið hefði ef „braskhneigt skáld, sem ól með sér drauma um stórat- vinnurekstur útlendinga á Is- landi" fyri 60 — 70 árum, hefði þá fengið að ráða ferð. Þá værum við ekki sjálfstæð þjóð í dag. Þá væri þetta land ekki jafn gott og raun bæri vitni um nú, sagði hann að lokum. Samtök fram- Stjórn Félags framreiðslumanna: Fremri röð: Viðar Ottesen, varaform., Haraldur Tómasson, form., og Halldór E. Malmberg ritari. Aftari röð: Óskar Magnússon, gjaldkeri, Brynja Guð- mundsdóttir, spjaldskrárritari og tsleifur Jónsson 1. varamaður. og matreiðslu manna 50 ára 1 stjórn Félags matreiðslumanna eru: Eirfkur Viggóson, form., Úlfar Eysteinsson varaform. Aftari röð: Jón Snorrason, ritari, Gfsli Theodórsson meðstj. og Guðbrandur G. Björnsson gjaldkeri. NÚ ERU liðin 50 ár frá stofnun samtaka Matreiðslu- og fram- reiðslufólks, en 12. febrúar 1927 var stofnað Matsveina- og veitingaþjónafélag tslands að Hótel Heklu. Frumkvöðull að stofnun félagsins var Ólafur Jónsson veitingaþjónn, en hann hafði vlða starfað m.a. sem veitingaþjónn I tsrael. í samantekt eftir Ingólf Jóns- son frá Prestbakka um félögin segir að Matsveina- og veitinga- þjónafélag hafi starfað allt til ársins 1941 er það var leyst upp í tvö félög, Matsveina- og veitingaþjónafélag Reykja- vfkur og Matsveina- og veitingaþjónafélag Islands. Nafni Matsveina- og veitinga- þjónafélags Reykjavfkur var árið 1947 breytt í Félag fram- reiðslumanna og sama ár var lögum Matsveina- og veitinga- þjónafélagi Islands breytt og félaginu skipt í tvær deildir, matreiðslu og framleiðsludeild. Þá var árið 1950 gengið frá samningum milli beggja félag- anna og hafa þau starfað sem samtök á vinnáttugrundvelli síðan. Hlutu samtökin nafnið Samband matreiðslu- og fram- reiðslumanna en 1965 var lög- um sambandsins breytti mörg- um atriðum og tekið upp nafnið Samband starfsfólks f veitinga- húsum, S.S.V. Árið 1965 keyptu Félag Mat- reiðslumanna og Félag fram- reiðslumanna ásamt sex öðrum stéttarfélögum efstu hæð húss- ins nr. 7 við Óðinsgötu í Reykja- vík og hafði hvert félag sína eigin skrifstofu en sameiginleg- ur fundarsalur var fyrir þau öll. Varð mikil breying á allri aðstöðu félaganna og um leið urðu þau sjálfstæðari hvert fyr- ir sig. Verkföll og vinnudeilur Fyrsta verkfallið, sem samtök matreiðslu og framreiðsluenn stóðu að, var 24. janúar 1941, var 24. janáar 1941 en það var samúðarverkfall með Sjöfn, fél- agi starfsstúlkna á veitingahús- um. Stóð verkfall þetta til 14. febrúar, en var þá lýst ógilt með Félagsdómi sakir form- galla. Árið 1950 og 1955 voru harð- vftug verkföll háð til að knýja fram samninga við skipafélögin og tókust samningar að lokum. Deilt var um kjaramál og einn- ig um forgangsréttindi iðn- lærðra manna til starfa á skip- unum. Árið 1966 um sumarið var háð verkfall i veitingahúsum, en þvi lauk með setningu bráðabirgðalaga, þar sem verk- fallið var bannað og gerðardóm- ur settur til að úrskurða um ágreiningsatriðin. 31. mai 1972 fór félag mat- reiðslumanna í verkfall og lagði þá Félag framreiðslumanna einnig niður störf. Var mikil harka i verkfallinu og eru átök við Óðal og Hótel Sögu mönn- um í fersku minni. Verkfallinu lauk 10. júní með samningum, en Ólafur Jóhannesson, þáver- andi forsætisráðherra, hafði beitt sér fyrir lausn verkfalls- ins og í þvi skyni kallað lög- menn félaganna á sinn fund. FELAGSMÁL Áður hefur verið getið kaupa á húsinu við Óðinsgötu 7 og leiddu þau húsakaup af sér breytingar á allri aðstöðu félag- anna og svipazt var nú eftir nýjum verkefnum þar sem stór- hugur óx og allt félagsstarf varð fastara í skorðum. Arið 1969 eignaðist Félag mat- reiðslumanna hlut í fram- kvæmdum Iðnaðarfélaga að Svignaskarði I Borgarfirði og á þar nú sumarhús. Einnig hefur félagið keypt land I Norðurkoti i Grimsnesi þar sem reist hefur verið sumarhús, sérstaklega ætlað ekkjum vg börnum lát- inna félagsmanna til sumar- dvalar. Matsveina- og veitingaþjóna- félag íslands gaf i nokkur ár út Félagstiðindi en þau hófu göngu sína árið 1930 og þar er að finna fróðleik um starf sam- takanna frá fyrstu árunum. Það kom út I nýjum búningi árið 1963 og allt til ársins 1974 en siðan þá hefur ekki verið um reglulega útgáfu að ræða. Þá gaf Samband Matreiðslu- og framreiðslumanna út timaritið Gestinn um nokkurra ára skeið. Á liðnum árum hafa félögin stofnað ýmsa sjóði sem hafa komið að miklum notum svo sem lífeyrissjóð, félagssjóð, fræðslusjóð styrktarsjóð, vinnudeilusjóð og orlofs- heimilasjóð og enn fleiri. Samtök matreiðslu- og fram- reiðslumanna beittu sér snemma fyrir bættri menntun stétta sinna og viðurkenningu á starfsgreinunum sem sérstök- um iðngreinum. Sú viðurkenn- ing hlauzt árið 1941 en það varð ekki fyrr en árið 1947 að frum- varp um skóla varð að lögum og var hann settur á stofn árið 1955. Var hann fyrst til húsa i Sjómannaskólanum, Matsveina- og veitingaþjónaskólinn, eins og hann hét, en fyrir nokkru var hann færður I Hótel Esju og heitir nú Hótela og veitinga- skóli Islands. Áður en skólinn kom til voru haldin námskeið fyrir verðandi matreiðslu- og framleiðslumenn á skipum. 1 febrúar 1967 gaf Janus Halldórsson, framreiðslumað- ur, félagi sinu innrammaða matseðla frá þvi fyrir og um aldamót svo og ljósprentað ein- tak af 10 ára afmælisriti sam- takanna. Siðar gaf hann Félagi framreiðslumanna gamlar myndir og eru þessar minjar vel varðveittar á skrifstofu félagsins, en Janus er einn af heiðursfélögum samtaka Fél- ags matreiðslu- og framreiðslu- manna. Aðrir heiðursfélagar eru Sigurður B. Gröndal, Guð- mundur H. Jónsson, Davíð Þor- láksson, Kai Ölafsson, Sæmund- ur Þórðarson, Bjarni Jóhannes- son, Henry Cristian Hansen og Jón Maríasson. Næstkomandi miðvikudag verður opið hús I Sjómanna- skólanum kl. 15—17 og er þang- að boðið félagsmönnum og öðr- um velunnurumsamtakanna. Framhald á bls 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.