Morgunblaðið - 12.02.1977, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977
SLASK leikur fjóra
leiki hérlendis um helgina
KAPPLEIKAR pólska liðsins
SLASK og Islenzka landsliðsins
verða aðalhandknattleiksviðburð-
ir helgarinnar að þessu sinni.
SLASK lék við úrvalslið frá Akur-
eyri 1 gærkvöldi, og 1 dag leikur
svo liðið við landsliðið 1 fþrótta-
skemmunni á Akureyri. Er búizt
við góðri aðsókn að þeim leik, þar
sem líklegt verður að teljast að
Akureyringar hafi hug á að sjá
landsliðið I leik. Leikurinn hefst
kl. 16.00.
Annað kvöld leikur svo SLASK-
liðið við landsliðið i íþróttahúsinu
í Hafnarfirði og hefst sá leikur kl.
20.30, og loks leikur SLASK við
landsliðið f Iþróttahúsinu á Akra-
nesi á mánudagskvöld kl. 20.30.
Verður það jafnframt síðasti
opinberi leikur íslenzka landsliðs-
ins áður en það heldur til B-
heimsmeistarakeppninnar í
Austurríki.
Framhald á bls. 29
Innanhússmeistaramótíð
í knattspyrnu um helgina
fslandsmeistaramótið 1 knatt-
spyrnu innanhúss fer fram 1
- Laugardalshöllinni nú um
helgina, og er þátttaka 1 mótinu
gffurlega góð, eða 34 lið I karla-
flokki og 7 lið 1 kvennaflokki. Má
þvf ætla að keppendur 1 mótinu
verði á fimmta hundrað talsins.
Liðunum í karlaflokki er skipt í
11 riðla, en kvennaliðunum f 2
KÖRFU-
KNATTLEIKUR
UM ÞESSA helgi verða leiknir 4
leikir I 1. deild karla I körfuknattleik.
í dag verða það Valur og ÍR annars
vegar og hins vegar ÍS og UMFN.
Þessir leikir verða I fþróttahúsi
Kennaraháskólans og hefjast klukk
an 15.00. Ekki er búizt við að þetta
verði tfðindamiklir leikir og allar Ifk-
ur benda til að ÍR-ingar og Njarðvfk-
ingar verði öruggir sigurvegarar.
Á sunnudag leika svo Fram og KR
annars vegar og hins vegar Ármann
og Breiðablik og ættu bæði KR-ingar
og Ármenningar að teljast öruggir
sigurvegarar án mikillar fyrirhafnar.
í meistaraf lokki kvenna verður
einn leikur og eigast þá við ÍR og KR
og vinni KR má segja að þær hafi
tryggt sér íslandsmeistaratitilinn.
Þá má segja að f 2. deild fari
einnig fram úrslitaleikur, en þá leika
tvö efstu liðin. Þór, Akureyri, sem er
eina taplausa liðið. og UMFG. sem
aðeins hefur tapað fyrir Þór, en með
sigri f þessum leik hafa Þórsarar
tryggt stöðu sfna verulega og verður
þá fátt sem ógnað getur sigri þeirra I
2. deild.
f 3. deild verða einnig leiknir
nokkrir leíkir og er hún nú að komast
á lokastig. Patreksfirðingar hafa nú
tryggt sér þátttöku f úrslitakeppni
deildarinnar eftir að hafa unnið
Hornfirðinga um sfðustu helgi og I
Norðurlandsriðli verður leikur ÚÍA
og Tindastóls frá Skagafirði og vinni
Skagfirðingarnir leikinn hafa þeir
komizt ! úrslitin. en vinni ÚÍA verður
að leika aukaleik til að fá endanleg
úrslit. Í Suðurlandsriðlinum eru
Vestmannaeyingar eina ósigraða lið-
ið og um þessa helgi eiga þeir að
leika við ÍBK og UMFS og takist
þeim að vinna báða leikína eru þeir
einnig komnir ! úrslitin.
HG
BLAK
UM HELGINA fara fram 3 leikir I
fyrstu deild karla ! fslandsmótinu f
blaki og sfðustu leikirnir f kvenna-
flokki og 2. deild karla, Suðurlands-
riðli.
1. deildar leikirnir verða á milli ÍS
og UMFL og svo Þróttar og
Stfganda, en þessir leikir verða
leiknir f fþróttahúsi Hagaskóla og
hefst sá fyrri klukkan 14.00. en sá
seinni kl. 15.30. Að þessum leikjum
loknum leika ÍS og Vikingur f
kvennaflokknum og sigri Vikings
stúlkurnar eru þær orðnar öruggar
ásamt Þrótti f úrslitakeppnina sem
verður helgina 19.—20. febrúar.
Siðasti leikur laugardagsins verður
svo á milli b-liðs Vfkings og a-liðs
Framhald á bls. 29
riðla. Hefst keppnin kl. 10.00 í
dag og mun síðan standa sleitu-
laust til kl. 20.00 í kvöld. Keppnin
hefst síðan aftur kl. 9.30 í fyrra-
málið og úrslitakeppnin á síðan
að hefjast kl. 16.45. Áætlað er að
útslitaleikurinn f karlaflokki
hefjist kl. 20.45, en úrslitaleikur-
inn í kvennaflokki kl. 20.30.
öll 1. deildar liðin eru meðal
þátttakenda í karlaflokki, að einu
undanskildu. Er það lið Þórs frá
Akureyri en Þórsarar drógu þátt-
tökutilkynningu sína til baka nú í
vikunni. Þá verða öll 2. deildar
liðin meðal þátttakenda nema
ÍBÍ, Reynir, Árskógsströnd, og
Völsungur frá Húsavík.
Nokkur lið taka nú þátt f innan-
hússmeistaramótinu í fyrsta sinn.
Eru það m.a. HSS (Héraðssam-
band Strandamanna), Þór frá
Vestmannaeyjum, USVS (Vík f
Mýrdal), Óðinn (Nýtt félag í
Reykjavík), Súlan (Stöðvarfirði)
ogEinherji (Vopnafirði).
Þótt innanhússknattspyrnan sé
töluvert frábrugðin þeirri knatt-
spyrnu sem tfðkast utanhúss, þá
verður eigi að sfður fróðlegt að
fylgjast með liðunum f móti
þessu, og ekki ólíklegt að með þvi
fáist nokkur vísbending um
hvernig þau standa.
STAÐAN
Staðan f 2. deild íslandsmótsins f
handknattleik er nú þessi:
KA 10 7 2 1 234:177 16
Ármann 8 6 2 0 180:137 14
KR 8 6 1 1 200:156 13
Þór 10 5 1 4 204:186 11
Stjarnan 8 3 1 4 155:156 7
Leiknir 10 2 2 6 199:243 6
Fylkir 7 2 1 4 127:134 5
ÍBK 11 0 0 11 191:301 0
10 2 2
7 2 1
110 0
Eftitaldir leikmenn eru markhæstir
I 2. deildar keppninni:
Þorbjörn Jensson, Þór 57
Sigurður Sigurðsson. KA 54
Sigtryggur Guðlaugsson, Þór 54
Staðan f 1. deildar keppni kvenna
er nú þessi:
Valur 7 6 1 0 92:54 13
Fram 6 5 0 1 82:57 10
Þór 9 5 0 4 85:90 10
FH 7 4 1 2 84:77 9
Ármann 8 4 0 4 84:87 8
KR 8 3 0 5 82:69 6
Vlkingur 7 2 0 5 81:102 4
UBK 8 0 0 8 69:123 0
Gunnar Þorvarðarson, bezti maður Njarðvfkinga 1 baráttu við Jðn
Pálsson. Þorsteinn Hallgrfmsson fylgíst spenntur með.
NJARÐVIKINGAR SENDU
ÍR-INGA ÚT í KULDANN
BADMINTONMOT
Á morgun, sunnudag, fer fram í
TBR-húsinu badmintonmót, þar
sem keppt verður í tvfliðaleik
karla og kvenna og tvenndarleik.
Allt bezta badmintonfólk landsins
er meðal keppenda, og má því
búast við skemmtilegum leikjum.
Mótið hefst kl. 13.30.
NJARÐVlKINGAR náðu lang-
þráðu takmarki þegar þeim tókst
að sigra tR-inga f bikarkeppni
KKl á fimmtudagskvöldið með
86—80 . Leikurinn einkenndist
allan tfmann af mikilli hörku og
baráttu og auk þess var talsvert
um taugaðstyrk beggja aðilja.
Gangur leiksins var annars sá,
að jafnt var framan af og þar til á
6. mfnútu er staðan var 11—11 en
þá kom góður kafli hjá Njarð-
vfkingum og náðu þeir fljótlega
10 stiga forskoti sem þeir héldu út
allan fyrri hálfleikinn, en í leik-
hléi var staðan 48—38 þeim í vil.
Njarðvfkingar héldu svo þessu
forskoti út allan leikinn, þó að
ÍR-ingum tækist að minnka mun-
inn nokkuð, dugði það ekki til og
fyrsti sigur Njarðvíkinga yfir IR
varð staðreynd en leiknum lauk
með 86—80 UMFN i vil eins og
áður sagði.
Leikurinn var nokkuð vel
leikinn þegar á heildina er litið,
baráttan og leikgleðin í góðu lagi,
einkum hjá Njarðvíkingunum
sem voru ákveðnari allan leikinn
og munaði miklu um það hve
mikið þeir áttu af fráköstum.
Beztu menn Njarðvíkinganna
voru þeir Gunnar Þorvarðarson
og Þorsteinn Bjarnason, en
f #
ARMANN SLOIS UTI
SKEMMTILEGUM LEIK
ÁRMANN vann sigur yfir IS f
bikarkeppni KKl, 80—74, á
fimmtudagskvöldið f afar spenn-
andi og skemmtilegum leik þar
sem tS hafði örugga forystu í
leikhléi, 44—35, og höfðu
stúdentarnir þá átt frábæran leik,
en f upphafi seinni hálfleiks
hrundi allt liðið gjörsamlega og
náðu Ármenningar þá þvf for-
skoti sem nægði þeim til sigurs.
Gangur leiksins var annars
þannig, að á 3. mfnútu voru Ár-
menningar yfir 7—6, en þá tóku
stúdentarnir aldeilis við sér og á
13. mfnútu var staðan orðin
29—13 eða 16 stigs munur ÍS í vil,
en þess ber að gæta að Jón Sig-
urðsson kom ekki inn á fyrr en á
10. mínútu, en hann var nýstiginn
upp úr veikindum og byrjaði því
ekki inni á. Eftir að Jón kom inn á
lagaðist leikur Ármenninga nokk-
uð og tókst þeim að minnka bilið
nokkuð og í leikhléi var staðan
orðin 44—35 IS í vil, og höfðu
stúdentarnir þá átt hreinlega frá-
bæran leik með Stein Sveinsson
sem bezta mann.
I seinni hálfleik snerist leikur-
inn svo algjörlega við og stúdent-
arnir gátu hreinlega ekki neitt
fyrstu 10 mfnútur hálfleiksins og
það notfærðu Ármenningarnir
sér svo sannarlega og áttu þá þéir
Jón Sigurðsson, Simon Ólafsson
og Björn Magnússon allir mjög
góðan leik og á þessum tfma skor-
uðu Ármenningar 24 stig gegn 4
stigum stúdenta og breyttu stöð-
unni þannig úr 44—35 fS í vil í
55—48 sér í vil og þar með voru
úrslit leiksins ráðin og þó að
stúdentum tækist nokkuð að rétta
sinn hlut dugði það ekki til og
leiknum lauk eins og áður sagði
með sigri Ármanns, 80—74.
Það má segja að Ármenningarn-
ir hafi verið nokkuð heppnir að
vinna þennan leik, eftir að
stúdentarnir höfðu náð 16 stiga
forystu í fyrri hálfleik,' en þeir
léku þennan leik vel engu að sfð-
ur, sérstakléga þeir Símon Ólafs-
son, sem var mjög góður í sókn-
inni, og Björn Magnússon, sem
var að venju góður í vörninni, en
átti auk þess góðan leik f sókninni
og „blokkeraði" hann oft fallega
fyrir Sfmon. Stigin fyrir Ármann
skoruðu: Sfmon Ólafsson 28,
Björn Magnússon 17, Björn
Christiansen 14, Jón Sigurðsson
8, Jón Björgvinsson 5 og Atli Ara-
son og Guðmundur Sigurðsson 4
stig hvor.
Leikur stúdentanna f fyrri hálf-
leik var hreint út sagt frábær og
má segja að allt sem þeir reyndu
hafi tekizt og er gaman að horfa á
körfuknattleikinn þegar svo
gengur, en Adam var ekki lengi í
Paradís og svo var einnig með
stúdentana, þvf að í seinni hálf-
leik var ekki til heii brú i leik
þeirra og þvf fór sem fór. Bezti
maður stúdenta í þessum leik var
Steinn Sveinsson og þá aðeins í
fyrri hálfleik þegar allt liðið átti
reyndar góðan leik, en i seinni
hálfleik léku allir langt undir
getu.
Stigin fyrir ÍS skoruðu: Steinn
Sveinsson 21, Bjarni Gunnar
Sveinsson 14, Jón Héðinsson og
Ingi Stefánsson 12 hvor, Ingvar
Jónsson 11 ogGuðni Kolbeinsson
4 stig.
HG.
annars átti allt liðið góðan leik og
munar það miklu fyrir Njarð-
víkingana hve miklu meiri breidd
er í liði þeirra en hinna 1. deildar-
liðanna. Stigin fyrir UMFN skor-
uðu: Gunnar Þorvarðarson og
Þorsteinn Bjarnason 14 hvor,
Kári Marisson og Geir Þorsteins-
son 12 hvor, Jónas Jóhannesson
16, Byrnjar Sigmundsson 8,
Guðsteinn Ingimarsson 6 og
Stefán Bjarkason 4 stig.
Leikur tR-inga hefur oft verið
betri en í þetta skipti og var eins
og það vantaði leikgleði og bar-
áttu í liðið og þá var leiðinlegt að
sjá hve leikmenn létu tapið fara f
skapið á sér. Bezti maður iR-inga
var Kristinn Jörundsson, sem
skoraði margar fallegar körfur,
en Kolbeinn Kristinsson átti
einnig góðan leik ásamt þjálfara
liðsins, Þorsteini Hallgrímssyni,
sem er sterkur varnarmaður og
drffur lið sitt vel með sér. Stigin
fyrir ÍR skoruðu: Kristinn
Jörundsson 28, Kolbeinn Kristins-
son 16, Jón Jörundsson 14, Agnar
Friðriksson 10, Þorsteinn
Hallgrfmsson 8 og Jón Pálsson 4
stig. HG
HLUTAVELTA
FRÍ Á MORGUN
Nýr þáttur hefst f fjiröflunarstarfi
Frjilsfþróttasambands íslands er það
efnir til hlutaveltu á morgun, sunnu-
dag f iSnaSarhúsinu við Hallveigar-
stfg. Í samtali við Magnús
Jakobsson. stjórnarmann f FRÍ,
sagSi Magnús a8 númer væru orSin
um 5000 talsins og væri margt veg-
legra vinninga. þar á meSal sólar-
landaferS fyrir tvo sem aSalvinning-
ur, en ferSina gefa SamvinnuferSir.
Sennilega ættu þeir eftir a8 verða
fleiri þvf tekið yrði við munum f
Iðnaðarhúsinu f dag laugardag.
Sagði Magnús að hver miði kostaði
100 krónur og engin núll yrðu. Verð-
ur hlutaveltan I Iðnaðarhúsinu við
Hallveigarstfg og hefst kl. 14 á
morgun sunnudag.