Morgunblaðið - 12.02.1977, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977
39
U mf erdarreglnasamkeppni:
Fylgjum reglum,
fordumst slysin
UM ÞESSAR mundir efna Sam-
vinnutryggingar tii verðlauna-
samkeppni sem reynir f þekk-
ingu manna á umferðarreglum. 1
boði eru ein verðlaun en þau er
ferð fyrir þrjá til Kanaríeyja, að
verðmæti 225 þúsund krónur, að
þvl er segir 1 fréttatilkynningu
frá Samvinnutryggingum.
Nánar segir I fréttatilkynning-
unni:
Nú stendur yfir samkeppni sem
Samvinnutryggingar g.t. efna til.
í keppninni reynir á þekkingu
manna á umferðarreglum. Ein
verðlaun eru i boði: ferð fyrir
þrjá til Kanarieyja að verðmæti
kr. 225.000.-.
Samvinnutryggingar hafa gefið
út litprentað umferðarkort á
stærð við skrifborðsplötu (138 sm
langt). Á þvi koma fyrir yfirleitt
ailar þær aðstæður sem þekkjast i
daglegri umferð borgarbúa. Um-
ferðarráð leiðbeindi við gerð
kortsins. Vonast er til að hver
fjölskylda í landinu eignist um-
ferðarkort og foreldrar bæði æfi
sig og leiðbeini börnum sínum
þannig, að allir öðlist betri skiln-
ing á umferðarreglum.. Aukin
þekking almennings á lögmálum
o
INNLENT
umferðarinnar er ein megin for-
senda þess að umferðarslysum
fækki.
Verðlaunasamkeppnin er til
þess ætluð að koma fólki á sporið,
fá það til að nota kortið og
glöggva sig á aðstæðum sem það
hefur verið í vafa um til þessa.
Árekstur á umferðarkortinu er
ólikt meinlausari en árekstur i
umferðinni. Kortið er svo stórt að
unnt er að nota minnstu gerð leik-
fangabila við aksturinn.
Til þátttöku i verðlaunasam-
keppninni þarf að svara 36 spurn-
ingum og senda svörin til Sam-
vinnutrygginga fyrir 15. mars n.k.
Umferðarráð samdi spurningarn-
ar. Verkefnið er sett upp sem
krossapróf og þvi auðunnið, sé
þekkingin fyrir hendi. öllum
landsmönnum er heimil þátttaka i
samkeppninni.
Umferðarkortið og spurninga-
listar með svarseðlum fást á aðal-
skrifstofu Samvinnutrygginga og
í umboðum félagsins um land allt.
Umferðarkortið kostar kr. 200.-
en spurningalistar og svarseðlar
eru afhentir án endurgjalds.
Spurningarnar munu birtast i
auglýsingum i dagblöðunum nú á
næstunni og fylgja svarseðlar þar
með.
1 dómnefnd samkeppninnar eru
eftirtaldir menn: Guðni Karlsson,
forstöðumaður Bifreiðaeftirlits
ríkisins, Sigurður Ágústsson full-
trúi Umferðarráðs og Sturla
Þórðárson, fulltrúi lögreglustjór-
ans í Reykjavik.
Heila- mænu- sigg fél-
aginu berst stórgjöf
HEILA-mænu sigg félaginu
(Multiple-Sclerosis) hefur borizt
stórgjöf, sem afhent var á mið-
vikudaginn að Hátúni 12.
Gjöfin er peningaupphæð, 220
þúsund krónur, og er hún gefin
til minningar um hjónin frá
Aratungu i Strandasýslu, Sigriði
G. Friðriksdóttur og Bergsvein
Sveinsson. Gefendur eru börn
þeirra og barnabörn og skal nota
gjöfina í þarfir sjúklinga, sem
þjást af sjúkdómi þeim, sem fé-
lagið er kennt við, eða í annað,
sem stjórn félagsins telur mest
aðkallandi.
Myndin var tekin við afhend-
ingu gjafarinnar, talið frá vinstri:
Sigríður Stephensen, Sigfríður
Maronsdóttir, Guðbjörg Berg-
sveinsdóttir, Sverrir Bergmann,
læknir, formaður félagsins, Berg-
sveinn S. Bergsveinsson, Marinó
L. Stefánsson og Ólöf Rikharðs-
dóttir.
Hjúkrunarfræðing-
ar óska samninga
FUNDUR hjúkrunarfræðinga,
sem sagt hafa upp störfum hefur
sent frá sér frétt þar sem segir
m.a. að um sfðustu áramót hafi
verið 1.458 félagar f Hjúkrunar-
félagi tslands. Af þeim séu 558 1
fullu starfi, 266 f hálfu starfi og
142 erlendis. Laun nýútskrifaðra
1 / J[/ 1 rm \ > _ *“ '■* ^ ; m
?r , yr n m X i ,§? M ( • m Í ’ 'S
l M
MK «W - '
mfTV. *
hjúkrunarfræðinga eru 99.941
kr., launafl. b-10 og með fulla
starfsreynslu eftir launafl. B-ll,
106.486.- kr. Um hátlðar fá þeir
álag kr. 211.56 á klst. Æðsta em-
bætti hjúkrunarfræðinga á
sjúkrastofnunum er staða
hjúkrunarforstjóra sem er f
launafl. B-21 152.367,- kr.
Síðan segir í fréttinni:
Hjúkrunarfræðingar sem sagt
hafa upp störfum við Borgarspit-
alann, Landakotsspítalann og
Vífilsstaðaspítalann álíta að með
bættum kjörum verði talsverð bót
ráðin á ofangreindu ófremdar-
ástandi (þ.e. skorti á starfsfólki
og miklu vinnuálagi). Mun það
bæði auka áhuga á hjúkrunar-
námi og halda fólki betur i starfi.
Ef tekið er mið af hinum
Norðurlöndunum er islenzk
hjúkrunarstétt ótrúlega langt á
eftir, bæði hvað varðar laun og
önnur kjör.
Krefjumst við þess að verða
metin að verðleikum og væntum
sanngjarnra málaloka, samninga,
og að unnt verði að komast hjá
neyðarástandi í sjúkrahúsum á
höfuðborgarsvæðinu.
Lcikbrúðuland:
Meistari
Jakob
Á MORGUN, sunnudag 13.
febrúar, frumsýnir Leikbrúðu-
land þrjá nýja leikbrúðuþætti.
Fyrsti þátturinn fjallar um
stutta ævi lltillar holtasóleyjar.
Siðan koma gamlir kunningjar
„tfu litlir negrastrákar" og loks
er nýr þáttur um Meistara
Jakob, sem í þetta sinn vinnur í
happadrætti og lendir af þeim
sökum f ýmsum þrengingum.
Starfsemi Leikbrúðulands er
orðin föst í sessi og hefur
undanfarin fimm ár sett upp
sýningu hvern vetur að Fri-
kirkjuvegi 11 I húsnæði Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur. 1 þetta
sinn er sýning Leikbrúðulands
seinna á ferðinni en að vanda
og er ástæðan sú að Leikbrúðu-
land tók þátt i gestaleik Þjóð-
leikhússins á „Litla Prins-
inum“ I haust, og fór i leikferð
til Chicago.
Aðstandendur Leikbrúðu-
lands eru: Bryndis Gunnars-
dóttir, Erna Guðmarsdóttir,
Hallveig Thorlacius og Helga
Steffensen. Leikstjóri Meistara
Jakobs er Hólmfríður Pálsdótt-
ir. Arnhildur Pálsdóttir leik-
stýrir hinum þáttum sýningar-
innar. Leikstjöld gerði
Þorbjörg Höskuldsdóttir.
Sýningar verða á hverjum
sunnudegi kl. 3 að Fríkirkju-
vegi 11. Miðasala hefst kl. 1 á
sunnudögum og verður svarað í
sima 15937 frá 1—3, en aðeins
sýningardagana.
Fjörugt
skáklíf í
Kópavogi
AÐALFUNDUR Taflfé-
lags Kópavogs var hald-
inn nýlega. Fyrri stjórn
var einróma endurkjör-
in en hana skipa: Sigurð-
ur Kristjánsson, formað-
ur, Jörundur Þórðarson,
varaformaður, Sverrir
Kristinsson, gjaldkeri,
Björn Halldórsson, rit-
ari, og Hjalti Karlsson,
meðstjórnandi.
í tilkynningu frá félaginu
segir. að starfsemin sé mjög
blómleg um þessar mundir.
Meðal annars hefur félagið
gengizt fyrir þremur hraðskák-
mótum, þar sem umhugsunar-
timi er 15 minútur. Sigurveg-
arar hafa orðið Sturla Péturs-
son, Björn Halldórsson og
Erlingur Þorsteinsson.
Skákþing Kópavogs hefst
þriðjudaginn 15. febrúar kl.
20. Mótið verður með nokkuð
nýstárlegu sniði. Keppendum
er skipt I nokkra undanráðs-
riðla, sem allir verða mjög
svipaðir að styrkleika. Efstu
menn i riðlunum komast siðan
áfram í A-úrslitariðil, næstu
menn I b-riðil og þannig áfram.
Mótið er því með svipuðu sniði
og Ólympiuskákmótin hafa
verið. Teflt verður að Hamra-
borg á miðvikudögum og
laugardögum en biðskákir á
þriðjudögum.
Sýningu Egils
í Sólon ísland-
us að ljúka
SYNINGU þeirri sem nú
stendur yfir í Gallerí Sólon
lslandus (við hlið Morgun
blaðshússins) á tuttugu teikn-
ingum Egils Eðvarðssonar lýk
ur nú um helgina. Verður sýn-
ingin opin 1 dag, laugardag,
frá 14—18, en á morgun,
sunnudag, verður hún opin frá
14—22.
Yfirlýsing vegna nafn-
birtingar í Geirfinnsmáli
MORGUNBLAÐINU barst f gær eftirfarandi yfirlýsing. Vegna yfirlýs-
ingarinnar skal það tekið fram, að á blaðamannafundi þeim sem Karl
Schtitz og aðrir rannsóknarmenn Geirfinnsmálsins héldu fyrir
skömmu, voru birt nöfn þeirra þriggja manna, sem sitja f varðhaldi
vegna málsins og auk þess nafn sambýliskonu eins þeirra, en hún var
með f förinni til Keflavfkur, og sendibflstjórans, sem átti að flytja
spfrann til Reykjavfkur.
Er yfirlýsingin á eftir vegna
hans:
„Vegna nafngreiningar skjól-
stæðings míns Sigurðar Óttars
Hreinssonar, i dagblöðum, út-
varpi og sjónvarpi, þegar sagt var
frá niðurstöðum rannsóknar i svo-
nefndu „Geirfinnsmáli", skal tek-
ið fram eftirfarandi:
1. Skjólstæðingur minn er sagð-
ur hafa verið sá maður, sem ók
sendiferðabifreið til Keflavík-
ur að beiðni Kristjáns Viðars.
2. Skjólstæðingur minn var ein-
göngu yfirheyrður við rann-
sókn „Geirfinnsmálsins" sem
vitni og átti því lögum skv. að
njóta réttarstöðu vitnis. Nafn-
birtingu skjólstæðings mins tel
ég þvi með öllu óheimila. Þvi
er farið fram á þessa leiðrétt-
ingu, að frásagnir fjölmiðla
um þátt skjólstæðings mín i
málinu voru óljósar og í mörg-
um tilvikum villandi. Hefur
nafnbirtingin raskað mjög
stöðu og högum skjólstæðings
mins.
3. Við rannsókn „Geirfinnsmáls-
ins“ kom ekkert fram, sem
leiddi I ljós eða benti til, að
skjólstæðingur minn hafi vitað
hvað átti að sækja eða flytja
frá Keflavík kvöld það, sem
Kristján Viðar sendi hann
þangað.
4. Við rannsókn „Geirfinnsmáls-
ins“ kom ekkert fram, sem
leiddi I ljós eða benti til, að
skjólstæðingur minn hafi haft
hina minnstu hugmynd um þá
atburði sem áttu sér stað i
dráttarbrautinni umrætt
kvöld.
5. Við rannsókn Geirfinnsmáls-
ins kom ekkert fram, sem
leiddi I ljós eða benti til, að
skjólstæðingur minn hafi verið
I „félagi“ með sakborningum
um glæpastarfsemi fyrr né sið-
ar eða haft við þá önnur tengsl,
að þvi undanskildu, að skjól-
stæðingur minn og Kristján
Viðar voru systkinabörn.
6. Þar sem fjölmiðlar hafa átt
þátt í því að meiða æru skjól-
stæðings mins að ósekju, er
þeim hér með gefinn kostur á
að birta yfirlýsingu þessa i
þeirri von, að almenningi skilj-
ist sá óréttur, sem skjólstæð-
ingur minn var beittur með
nafnbirtingunni. Einnig er það
von undirritaðs, að yfirlýsing
þessi nægi til þess, að skjól-
stæðingur minn geti lif að eftir-
leiðis án þess að skuggi og
harmur „Geirfinnsmálsins"
hvili yfir höfði hans um aldur
og ævi.“
Róbert Árni Hreiðarsson
lögfr.