Morgunblaðið - 12.02.1977, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 12.02.1977, Qupperneq 40
TICINO RAFLAGNAEFNI SPRINT DYRASÍMAR TST INNANHÚSSSÍMAR RZB LAMPAR it POLVA RÖR LJÓSFARI H.F. Grensásvegi 3 simar 30600 - 30601 AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 IRoreuniiLibib LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977 S vartolía hækk- ar um 10,5% Loðnubræðslur og togarar aðalsvartolíunotendurnir Við tókum myndina af þessum galvösku smiðum þegar við heim- sóttum Svansprent f Kópavogi f tilefni iðnkynningar Kópavogs, en smiðirnir, Gunnlaugur Hjálmarsson og Ólafur Tómasson, voru að gera timbrið klárt fyrir uppslátt þriðju hæðar húss Svansprents. Fjölbreytt kynning var á fyrirtækjum f Kópavogi, enda margs konar iðnaðarfyrirtæki þar og skólafólk ór skólum bæjarins heim- sótti fjölda fyrirtækjanna iðnkynningardagana. Ljósmynd Mbl. RAX RÍKISSTJÓRNIN hefur staðfest samþykkt verðlagsnefndar frá því á miðvikudaginn um 10,5% hækkun á svartolfu. Hækkar tonnið af svartolfu úr 21,000 krón- um f 23,200 krónur frá og með deginum f dag. Loðnubræðslur og hluti togaraflotans nota langmest af þeirri svartolfu, sem flutt er til landsins. Að sögn Georgs Ólafs- sonar verðlagsstjóra eru erlendar verðhækkanir ástæðan fyrir þess- um hækkunum, en olfa hefur hækkað mikið að undanförnu vegna vetrarhörku vfða um heim. Að sögn Ágústs Einarssonar, viðskiptafræðings hjá LÍÚ, nota nu um 10 togarar svartoliu. Sagði Ágúst, að ef reiknað væri með að hver togari notaði 3Vi tonn af svartolíu að meðaltali á úthalds- dag og úthaldsdagar. væru 330, þýddi hækkunin um 2,5 milljón króna viðbótakostnað fyrir hvern togara eða um 25 milljónir fyrir alla togarana. Jónas Jónsson, forstjóri Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar i Reykjavik, sagði að hækkunin skipti vafalítið milljónatugum fyrir bræðslurnar á ári. Sagði Jónas að reiknað hefði verið með svartolíuhækkun við ákvörðun loðnuverðs, þannig að litlar líkur væru á þvi að loðnuverði yrði sagt upp vegna hækkunarinnar. Vill kaupa Vængi á iy2 nafnverði „Hluthafa að átta sig á því, á hvom „hestinn,, þeir vilja veðja” HAFÞÓR Helgason, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Flugfélagsins Vængja, hef- ur nú boðið hluthöfum í 200 millj. króna sjónmrpskvik- mynd um Para- dísarheimt Jón Þórarinsson, dagskrár- stjóri Lista- og skemmtideild- ar sjónvarpsins, tjáði Mbl. f gær að á fundi leiklistarstjóra norrænu sjónvarpsstöðvanna f Helsingfors í vikunni hefði verið ákveðið endanlega að gera þriggja kvölda sjónvarps- kvikmynd um Paradfsarheimt Halldórs Laxness. Á fundinum var einnig mættur leiklistar- stjóri norður-þýzka sjónvarps- Framhald á bls 22. Vængjum að kaupa fyrir- tækið á VA nafnverði. Morgunblaðið hafði sam- band við Hafþór og spurði um gang málsins. Hann sagði: „Ég vil kaupa öll þau hlutabréf sem menn vilja selja og hef boðið V/i verð. Hluthafar eru nú 23 og hlutafé er 12,1 millj. kr., en það liggur fyrir eins og málin standa að hluthafar þurfa nú að átta sig á því á hvorn „hestinn" þeir vilja veðja. Ef þessi kaup ganga hef ég í hyggju að endurskipuleggja reksturinn. Það er leitt hvernig mál hafa þróazt hjá fyrirtækinu, því nú eru aðeins þrír flugmenn þar i vinnu og sá fjórði á uppsagn- arfresti, en þegar bezt lét hjá Vængjum voru 10 flugmenn starf- andi þar. Ég hef miðað við að þessi mál liggi ljós fyrir þann 15. feb. n.k. og þá er ég tilbúinn að ræða ýmsa þætti þessa máls nánar.“ Fíkniefnamálin: Tveir nýir menní gæzlu TVEIR menn, báðir rúm- lega tvítugir, hafa verið úr- skurðaðir f gæzluvarðhald vegna þeirra fíkniefna- mála, sem eru í rannsókn um þessar mundir. Sitja þá sex karlmenn í gæzluvarð- haldi vegna rannsóknar þessara mála. Að sögn Arnars Guðmundssonar, fulltrúa við Fíkniefnadómstólinn, var íslendingur úrskurðað- ur i allt að 20 daga gæzlu- varðhald á fimmtudags- kvöld en síðdegis í gær var bandarískur ferðamaður úrskurðaður í allt að 30 daga gæzluvarðhald. Tengjast þeir nýja fíkni- efnamálinu, sem nú er í fullri rannsókn. Ekki er tímabært ennþá, að sögn Arnars, að segja frá málavöxtum. Vinnuveitendasambandið: Vill samstöðu með ASÍ í viðræðum við ríkisvaldið □ □ SjS samþykkt VSl ð bls. 20 Vinnuveitendasamband íslands hefur lýst sig reiðubúið til viðræðna við verkalýðshreyfinguna um það með hverjum hætti að- ilar vinnumarkaðarins * Utreikningar Kauplagsnefndar: Kauptaxtar verkamanna hækkuðu um 33,5%, verðbólgan um 35,5% Hækkun vegna rauðu strikanna 2,5% um næstu mánaðamót KAUPGJALDSHÆKKUN samkvæmt svokölluðu „rauðu striki" á að koma til framkvæmda frá og með 1. marz næstkomandi. Kauplagsnefnd hefur nú reiknað út hver kauphækkunin á að vera og er niðurstaðan 2.50%. Þvf á að hækka laun um næstu áramót sem þvf nemur. Er þá kaupgjalds- hækkun frá þvf er gildandi kjara- samningar voru gerðir orðin á kauptaxta verkamanna 33.5%, en sé reiknað út, hvað kauptaxtar allra aðildarfélaga ASl hafa hækkað að meðaltali er hækk- unin frá undirskrift samninga 32.4%. Á þessum samam tfma er hækkun framfærsluvfsitölu 34.5%. Kauplagsnefnd hefur reiknað út hækkun framfærsluvísitölunn- ar í febrúarbyrjun og reyndist hún 37 stigum hærri en hún var i nóvemberbyrjun. Framfærslu- vfsitalan er nú 682 stig og hefur hækkað frá nóvember um 5.77%. Við gerð kjarasamninganna síð- ustu var vísitalan tæplega 507 stig. Eins og áður segir er hækk- un kauptaxta verkamanna, sem af er samningstímanum 33.5%, en hækkun vísitölunnar 34,5% og hefur því að mestu tekizt að halda í horfinu gagnvart verðlagsþróun, þrátt fyrir að áfengis- og tóbaks- hækkun hafi ekki áhrif á rauðu strikin, heldur aðeins fram- færsluvísitöluna. Hið sama er að segja um launalið bóndans í verð- lagsgrundvelli landbúnaðarvara. Samkvæmt upplýsingum Hagstof- unnar var á þessu sfðasta tímabili milli útreikninga vísitölunnar verðhækkun á búvörum, fiski, kaffi, áfengi, tóbaki, bensini og mörgum öðrum vörum. Þá hækk- uðu hitaveitu- og rafmagnstaxtar, póst- og símagjöld. í 3. grein rammasamnings aðila vinnumarkaðarins 28. febrúar 1976 segir m.a. svo: „Ef vísitala framfærslukostnaðar verður hærri en 612 stig 1. febrúar 1977 og minnst 4.4% hærri en vísitalan 1. október 1976, skulu laun sam- kvæmt samkomulagi þessu hækka frá 1. marz 1977 í hlutfalli við hækkun vfsitölunnar umfram 612 stig eða umfram þá vísitölu, er reiknuð var út 1. október 1976 að viðbættri 4.4% hækkun, hvort sem hærra er. „Niðurstaða Kaup- lagsnefndar samkvæmt þessum útreikning er þvf sú, að kaup skuli um næstu mánaðarmót hækka um 2.50%, svo sem áður er getið. geti komið fram sameigin lega gagnvart rfkisvaldinu f kjarasamningum þeim, sem fyrir höndum eru, en í samþykkt framkvæmda- nefndar VSÍ frá þvf í gær kemur fram, að sambandið álítur svo mikið f húfi að vel takist til við kjara- ákvarðanir í vor að ekki verði hjá þvf komizt að leita nánari samvinnu við stjórnvöld um lausn kjara- málanna. I samþykkt framkvæmdanefnd- ar VSI kemur fram að það telur meginviðfangsefni aðila vinnu- markaðarins að halda svo á mál- um, að niðurstöður kjarasamn- inga stuðli að en hindri ekki að áfram stefni f rétta átt I efnahags- málum þjóðarinnar. I kjarasamn- ingunum f vor verði að taka raun- verulegt mið af efnahagshorfum, spám um þjóðarframleiðslu, þjóðartekjur og verðlagsþróun. Ákvörðun peningalauna sem ekki tæki mið af þessu myndi reynast afdrifarík. I samþykktinni segir ennfrem- ur, að VSl telji það enn sem fyrr grundvallaratriði að aðilar vinnu- markaðar semji sjálfir um kaup sin og kjör, en með auknum um- svifum hins opinbera hafi hins vegar smám saman orðið óhjákvæmilegt að hafa samráð við stjórnvöld við töku kjara- ákvarðana og þegar sérstaklega standi á geti verið nauðsynlegt að leita samstarfs við ríkisvaldið um lausn kjaramála. Vinnuveitendasambandið kveðst vænta stuðnings verka- lýðshreyfingarinnar við óskir vinnuveitenda uni afnám eða lækkun ýmissa opinberra álaga og gjalda á atvinnureksturinn, sem styrkt geti rekstrargrundvöll atvinnuveganna. Á sama hátt sé Vinnuveitendasambandið fúst til að leggja lið tillögum er miði að þvf að bæta hag hinna lægst laun- uðu og segir að í þessu sambandi geti komið til greina aðgerðir á sviði skattamála, tryggingamála eða húsnæðismála, svo að dæmi séu nefnd, enda verði að telja slíka kjarabótaleið mun heppi- legri hinni hefðbundnu eins og nú standi sakir. Kröflusvæðið: Búizt vid skjálftahrinu og kvikuhlaupi SAMKVÆMT upplýsingum Páls Einarssonar jarðeðlis- fræðings á Raunvfsindastofn- uninni er búizt við skjálfta- hrinu á Kröflusvæðinu f lok þessa mánaðar og kvikuhlaupi stuttu sfðar, eða um miðjan marz. Sfðast varð kvikuhlaup 20. jan s.l., en nú er landrisið þar mjög mikið og f langan tfma hefur það verið með þvf hraðasta sem þekkist á svæð- inu. Frá 22. jan. s.l. hefur landrisið verið mest 10 milli- metrar á sólarhring f miðju svæðinu en þar sem virkjunar- húsin eru hefur risið verið mest 5 mm á sólarhring.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.