Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 1
40 SIÐUR 39. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1977 Prentsmiöja Morgunblaðsins. Sovétmenn mótmæla: Carter stendur vid fyrri yfirlýsingar Carter forseta f bandarfska sendi- ráðinu f Moskvu. Sovézki sendiherrann lét i ljós óánægju Sovétríkjanna með yfir- lýsingar Carterstjórnarinnar, við Arthur Hartman, sem gegnir embætti utanríkisráðherra í fjar- veru Cyrus Vance, sem er i Mið- austurlöndum. Sovézka fréttastofan Tass skýrði frá fundinum og sagði að Sovétríkin höfnuðu öllum til- raunum Carterstjórnarinnar til afskipta af innanríkismálum þeirra. Dobrynin hefur þegar hitt Carter og Vance eftir að Banda- ríkjamenn vörpuðu svonefndri „tengsla“ stefnu sinni fyrir borð, en aðalborðberi hennar var Henry Kissingek, sem vildi að mannréttindi væru látin liggja á milli hluta í þeirri von að ein- hverju yrði framgengt á öðrum sviðum. Utanríkisráðuneytið band i- ríska vildi ekkert segja um fund Dobrynins og Hartmans. Tals- maður sovézka sendiráðsins vildi aðeins staðfesta að fundurinn hefði átt sér stað i gærkvöld, 12 Framhafd á bls. 24 Washington, Moskvu, 18. febrúar. AP. Reuter. JIMMY Carter, forseti Bandarfkj- anna, stóð fastur á afstöðu sinni til mannréttinda þrátt fyrir kvartanir Sovétmanna um að hreinskifni Bandarfkjastjórnar stefndi slökun spennu á milli austurs og vesturs f voða. Blaða- fulltrúi hvfta hússins, Jody Powell, hafnaði röksemdum Sovétmanna og lýsti þvf yfir að tilraunir til að frelsa heiminn frá hættunni af kjarnorkusprengj- unni mættu ekki verða til þess að látið yrði skeika að sköpuðu um frelsi einstaklingsins. Hann sagði fréttamönnum að Carter væri ekki að reyna að ögra sovézku stjórninni, heldur kæmi hann fram sem kjörinn talsmaður bandarfsku þjóðarinnar, sem léti f ljós það álit, sem hann teldi bezt lýsa tilfinningum hennar til mannréttinda. Powell var að svara spurningum vegna mót- mæla Anatoli Dobrynins, sendi- herra Sovétrfkjanna, við utan- rfkisráðuneytið f gærkvöld vegna yfirlýsinga bandarfsku stjórnar- innar um mannréttindi. Sendiherra Sovétrfkjanna f Washington, Anatoly Dobrynin, hefur borið fram mótmæii gegn yfirlýsingum stjórnar Carters um mannréttindi, sem hann segir ekki hafa bætandi áhrif á sambúð Sovétrfkjanna og Bandaríkjanna. Talsmaður sovézka sendiráðsins segir að sendiherrann hafi farið f utanrfkisráðuneytið f gærkvöld, eftir að andófsmanninum Andrei Sakharov var afhent bréf frá Andrei Sakharov með bréfið frá Carter. EBE gefur 40 sovézkum togurum veidiheimild Briissel, 18. febrúar. AP EFNAHAGSBANDALAG Evrópu tilk.vnnti f dag að það hefði gefið út leyfi til 40 sovézkra togara til veiða innan 200 mflna fiskveiði- lögsögu bandalagsins fram til 31. marz næst komandi. Alexander Ishkov, sjávarútvesráðherra Sovétrfkjanna, sagði að í janúar hefðu helmingi fleiri sovézkir togarar verið að veiðum f EBE lögsögunni. Eamonn Gallagher, starfsmað- ur framkvæmdanefndar EBE, sagði að togararnir 40 væru samanlagðir svipaðir að stærð og hinir 27 togararnir, sem banda- lagið bauðst upphaflega til að veita veiðileyfi. Samkvæmt því tilboði áttu aðeins 17 togarar að fá að veiða í einu og sagði Gallagher að því skilyrði væri haldið. Þetta voru fyrstu viðræður Sovétrikjanna og Efnahagsbanda- lagsins, en Sovétmenn hafa ekki viljað veita tilveru þess viður- kenningu. í sameiginlegri yfirlýs- ingu, sem gefin var út eftir við- ræðurnar, sem tóku þrjá daga, segir, að menn séu ,,að miklu leyti sammála um mörg grundvallar- atriði“ varðandi langtima samn- ing. Viðræður verða teknar upp að nýju 28. febrúar. Viðræðunum lauk með sam- eiginlegum blaðamannafundi Ishkovs, Gallaghers og Paul H. Scott, aðstoðarráðuneytisstjóra í brezka utanríkisráðuneytinu, en hann var formaður viðræðu- nefndar EBE. Ekkert svar fékkst á fundinum við spurningu um hvort eitthvað væri eftir að þeim 38.000 tonna kvóta, sem Sovét- mönnum var boðinn fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Ishkov sagði þetta vera tæknilegt spursmál, sem yrði rætt síðar. Verkfalls- boðuní Dannuxku Kaupmannahöfn, 18. febrú- ar Reuter. MARGIR vinnuveitendur i Danmörku fengu í dag verk- fallsboðun frá 12 verkalýðs- félögum eftir að samningstil- raunir um nýtt tveggja ára launatímabil fóru út um þúfur. Anker Jörgensen forsætisráð- herra sagði i dag að hann myndi hitta fulltrúa vinnuveit- enda á morgun til að ræða við þá um ástæðurnar fyrir því að slitnaði upp úr viðræðum við danska Alþýðusambandið. I laúnamálatillögu stjórnar Jör- gensens er gert ráð fyrir 6% launahækkunum á ári næstu tvö ár og segja talsmenn verka- lýðsforustunnar að kröfur þeirra séu innan þess ramma, en vinnuveitendur segja að kröfurnar sé um 2—3% meiri hækkun. Bílslysið var hegning guðs segir Idi Amin Nairobi, 18. febrúar. AP. FORSETI Uganda, Idi Amin, lét I dag efasemdir heimsins varðandi aðdraganda dauða tveggja ráð- herra landsins og erkibiskups anglikönsku kirkjunnar f Uganda sem vind um eyru þjóta með því að segja að bílslysið, sem þeir áttu að hafa farist f, hefði verið „hegning guðs“. Rfkisútvarpið f Uganda hafði það eftir Amin i viðræðum hans við sendinefnd frá Sameinuðu þjóðunum, að hann hefði engar áhyggjur af erlendri gagnrýni þvf hann væri saklaus af öllum glæp- um. Sagði útvarpið hann hafa sagt: „Þetta var hegning guðs, þvf guð vill ekki að aðrir þjáist.“ Utvarpið svaraði ásökunum hvaðanæfa úr heiminum um að öryggissveitir Ugandahers hefðu myrt Janani Luwum erkibiskup og ráðherrana Charles Oboth- Ofumbe og Erinayo Oryema, og endurtók fyrri fréttir sinar um að þremenningarnir hefðu farist í bilslysi sem varð þegar þeir reyndu að taka völdin af bílstjór- anum, sem ók þeim í fangelsi. Mennirnir höfðu verið handtekn- ir fyrir að hafa gert samsæri um að steypa Amin af stóli. Urvapið sagði að krufning hefði leitt í ljós að biskupinn hefði lát- Framhald á bls. 24 Nicolae Ceausescu Rúmenía: Yfirvöld ráðast gegn and- ófsmönnum Búkarest, 18. febrúar. Reuter. YFIRVÖLD f Rúmenfu hafa gripið til harkalegra ráðstaf- ana til að kveða niður Iftinn hóp andófsmanna undir for- ystu rithöfundarins Paul Goams, sem undirritaði opið bréf til aðildarrfkja Ilelsinki- sáttmálans fyrr f vikunni, þar sem stjórnvöld í Rúmenfu og hinum Austantjaldslöndunum eru sökuð um brot á mannrétt- indum. Var Goma handtekinn ásamt fleiri félögum sfnum f gær og Nicolae Ceauseseu, for- seti Rúmeníu, réðst harkalega á andófsmennina f ræðu í Búkarest í dag þar sem hann kallaði þá svikara og slúður- bera, sem væru að koma sér út úr rúmensku þjóðfélagi. Þetta sterka orðalag gaf eindregið Framhald á bls. 24 Danir fallast á fiskveiði- tillögur Kaupmannahöfn, 18. febrúar. Reuter. MEIRIHLUTI dönsku stjórn- málaflokkanna féllst f dag á málamiðlunartillögu um fyrir- komulag fiskveiða innan fisk- veiðilögsögu Efnahgasbandalags- ins, sem felur í sér stöðvun sfld- veiða í Norðursjó og bann við spærlingsveiðum austur af Skot- landi. Danski sjávarútvegsráð- herrann, Poul Dalsager, féllst á tiliöguna f Briissel fvrr f vikunni með þeim fyrirvara að hún fengi þingstuðning f Kaupmannahöfn. Flokkarnir gáfu samþykki sitt eftir aö Dalsager hafði skýrt efna- hagsbandalagsnefnd þingsins frá þvi að flest samtök sjómanna hefðu fallist á timabundnar tak- markanir á veiðum. Samkvæmt tillögum EBE skulu síldveiðar stöðvaðar á milli 28. febrúar og 30. marz og spærlings- veiðar austan við Skotland milli 21. febrúar og 30 marz. Báðar fisktegundirnar eru mikilvægar fyrir sjómenn á vesturströnd Jótlands. Mogens Glistrup, leiðtogi Fram- faraflokksins, sem er næststærsti flokkur Danmerkur, var helzti andstæðingur málamiðlunartil- lögunnar og sagði að samþykkt hennar væri meira í ætt við upp- gjöf en málamiðlun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.