Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1977 VfK> MOBöJK/- y \ V KAFFINU \\ I **• Hann tekur ofan 1 hvert skipti sem forstjórinn hans fer framhjá, — er það nauðsyn- legt? Jú, hún mamma þfn hringdi. Elsku mamma mín! Ég vona að það gleðji þig, þegar ég segi þér, að undanfarna tvo mánuði hef ég haldið mig í hæfilegri fjarlægð frá konum og vlni! — Þér vitið það fulivel, Ölsen, að ég kæri mig aldrei um að einhver sé að lesa yfir öxl mfna. Gðð hílakaup Maður nokkur, sem ætlaði að kaupa sér nýjan bfl sá auglýs- ingu f blaði, þar sem bifreið af Kadilakgerð 1952 var auglýst fyrir 500 kr. Maðurinn hélt fyrst að þetta væri eitthvert gaman, en þegar auglýsingin birtist aftur næsta dag datt honum f hug að athuga það nánar. Hann fór þvf í heimsókn eftir heimilisfanginu, sem gefið var upp f auglýsingunni og hitti þar fyrir roskna, mjög aðlað- andi konu, og húsið sem hún bjó f var mjög rfkmannlegt. — Hann spurðist fyrir um bifreið- ina, — fékk að skoða hana alla í krók og kring og meira að segja að aka f henni f reynslu ferð. Hann gat ekki séð annað en bifreiðin væri í fyrsta flokks standi, og hann spurði frúna: — Hvernig stendur á þvf að þér ætlið að selja þessa bifreið, sem mér virðist vera f alla staði fyrsta flokks, fyrir svona litla peninga? — Jú, ég skal segja yður alveg eins og er, svaraði frúin. Maðurinn minn, sem er nýlát- inn, tók fram f erfðaskránni sinni að hann vildi láta selja bifreiðina og andvirði hennar skyldi „renna til einkaritarans mfns, sem alltaf hefir verið svo góð við mig“!! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson I trompsamningi nægir stund- um að telja tapslagina. En ekki er verra að telja einnig vinnings- eða tökuslagi sfna. Suður gefur, allir utan hættu. Norður S. K842 II. 87 T. AKDG95 L. A Vestur S. G 10973 II. AK4 T. 763 L. D6 Austur S. — II. 109632 T. 84 L.G 108432 Veifaðu til hans afa, mamma, hann er hérna 'en'nþá! Dýraspítalinn „Skrif hafa orðið í Morgunblað- inu nýlega um Dýraspítalann. Þessi skrif eru hin furðulegustu. Virðast þau skrifuð í þeim til- gangi að gera þessa stofnun tor- tryggilega í augum almennings. Talað er um að Dýraspítalinn liggi undir skemmdum vegna van- rækslu. Hins vegar er öllum ljóst sem skoða húsið að það er í mjög góðu ásigkomulagi, þetta er timburhús, sem er fúavarið og stöðugt upphitað. Inni hefur verið unnið látlaust síðan í haust þegar dýra- hjúkrunarkonan Sigfrið Þóris- dóttir hafði lokið námi sinu í Eng- landi og var alkomin til íslands. Dýraspítalanefndin fól henni að annast ýmsar framkvæmdir. Því það vantar mikið á að rekstur geti hafist i svona stofnun, ekki er nóg að húsið sé komið á grunninn. Það þarf að smiða dýrabúr, en nokkur kattabúr fylgdu með spítalanum. Allar innréttingar og skápa hefur þurft að smíða, leggja þarf gólf- flísar o.s.frv. Sigfrið hefur unnið að þessu og sýnt mikinn dugnað og ósérhlífni. Nær öll vinna hefur verið unnin í sjálfboðavinnu. Samband dýra- verndunarfélaga íslands, S.D.Í., hefur lagt í þetta allt það fé er það hefur safnað til Dýraspital- ans. Un það fé er nú þrotið. Hinar fjölmörgu stóru og smáu peninga- gjafir sem borizt hafa til spitalans undanfarið hafa orðið ómetanleg hjálp. Nú ríður á að dýravinir i land- inu sýni einlægan samhug svo að þessi stofnun taki til starfa sem allra fyrst. Gjafir sem berast til S.D.l. og ætlaðar eru Dýra- spitalanum eru frádráttarbærar til skatts. Þó Dýraspítalinn sé i Reykjavík er það fullvíst að hann mun verða notaður af dýraeigendum af öllu landinu. Hann stendur sem kunnugt er inni í Víðidal og þar eru mestu hesthús á landinu. Það er knýjandi nauðsyn að koma upp sjúkraskýli fyrir hross og stærri búpening í tengslum við spítal- ann. Slíkt yrði án efa notað af hestamönnum og bændum. Það hlýtur að vera brennandi áhugamál allra sannra dýravina hvar í félagi sem þeir standa og hvar á landinu sem þeir búa að Dýraspitalinn taki til starfa sem allra fyrst og búa þannig að honum að hann geti þjónað til- gangi sinum til líknar dýrum í landi voru. Póstgíróreikningur Dýraspítal- ans er númer 44000. Munum það. Jórunn Sörensen." Þetta er vissulega þarft mál að koma Dýraspitalanum upp og að hefja rekstur hans og nú fer að hilla undir að hann fari af stað. Þetta má að miklu leyti þakka erlendum aðila og það ætti varla að verða íslendingum skotskuld að framkvæma það sem á vantar og styðja við bakið á þessari ungu stofnun. En frá Dýraspítalamáli hverf- um við að tónlistarmálum og í Suður S. AD65 II. DG5 T. 102 I,. K975 Suður opnaði á einu laufi og vestur sagði pass. Síðan varð suður sagnhafi í fjórum spöðum. Vestur spilaði út hjartaás, kóng og þríðja hjarta sinu, sem sagn- hafi tók heima. „Nú er slæmt að vera ekki í fimm tíglum,“ hugsaði suður þegar hann tók á spaðaás og austur lét lauf. Tveir gjafaslagir á tromp virtust óumflýjanlegir. En sagnhafi gafst ekki upp. Vinningur var mögulegur ætti vestur þrjá tígla og tvö lauf. Lauf á ásinn tigulás og kóngur og tígull trompaður heima. Tekið á lauf- kóng og staðan var þannig: Suður Vestur Blindur Austur S. D6 S. G1097 S. K84 Skiptir II. — H. — II. — ekki T. — T. — T. G máli. L. 97 L. — L. — Sagnhaíi spilaði ’nú laufi og vestur reyndi sitt besta þegar hann stakk með trompníunni. En sagnhafi lét tígul frá blindum og vestur var fastur í klemmunni. Eins og sjá má var sama hvað hann gerði og sagnhafi vann sitt spil á næstum furðulegan hátt. R0SIR - K0SSAR - 0G DAUÐI Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 35 ir og fáránlegir siðir augsýni- lega nokkuð spánskt fvrir sjónir. Hann tautaði eitthvað um heimsku og léttúð, en sneri sér snarlega aftur að efninu: — Fyrri för morðingjans 1 eldhúsið hlýtur að hafa verið gerð á bílinu upp úr hálf eitt og til kortér I tvö eftir að Christer og Gabriella voru farin upp og áður en fröken Högström kom niður til að hita kaffið. En svo kom hann aftur og bjó til nýtt kaffi og við getum ályktað að það hafi verið rétt fyrir klukkan hálf fjögur. Nokkrum mlnútum sfðar fremur hann morðið. Sfðan þerrar morðinginn vandlega fingraför af lyfjaglasinu — hvers vegna hann gerði það veit ég ekki þar sem augljóst er að hann var með hanzka — sfðan gengur hann fram á baðherbergið til að skola glasið og skeiðina. Meðan hann er önnum kafinn við það, heyrir hann að einhver kemur ... hann hevrir fótatak Puck I stiganum og hann verður skelkaður ... Mina frænka kinkaði kolli. — Já, það fer ekki hjá þvl. Það brakar og brestur f stigan- um. Maður myndi heyra það þótt mús læddist um. Eg hafði setzt upp og spurði með öndina f hálsinum: — En hvað varð af honum? Ég ... á við ... hann var ekki inni f sjúkraherberginu þegar ég kom þangað ... EÐA HALDIÐ ÞIÐ AÐ HANN HAFI VERIÐ ÞAR ALLAN TlMANN? — Nei, svaraði Löving sefandi. — Það hefur hann árelðanlega ekki verið. Þegar hann heyrði fótatak þitt { stiganum hraðaði hann sér út úr baðherberginu og gaf sér ekki einu sinni tfma til að setja glasið aftur á náttborðið. Hann læddist fram f borðstofuna að öllum lfkindum, og sfðan var leið hans greið. — Já, einmitt, tautaði ég hugsi — glerdyrnar voru f hálfa gátt þegar ég fór til að vekja Christer... Eg sá áhuga vakna f dökkum augum Christers. ' — Maður á kannski ekki að vera að sverja f tfma og ótfma. sagði hann. — En ég held ég gæti svarið að ég lokaði þeim vandlega þegar við Gabriella fórum upp um hálfeittleytið. Við störðum öll á glerdyrnar sem blöstu við okkur. Morð- inginn hafði læðzt út um þessar dyr... Hann hafði staðið örfáar sekúndur f döggvotu grasinu og iagt við hlustir... og sfðan hafði hann horfið. Hvert? Alm- urnar tvær voru rétt hjá. öðrum mcgin fbúðarálma Ottos og Helene. Hinum megin Gabriellu og Piu. Hafði hann horfið inn f aðra hvora þessa álmu? Eða inn f skóginn eða út á þjóðveginn. Anders Löving strauk yfir ijóst hárið og sagði þreytulega: — Lind yfirlögregluþjónn hefur þegar yfirheyrt ykkur varðandi sfðustu nótt og hinar aðskiljanlegu fjarvistarsann- anir sem þið segist hafa. En ég myndi nú vera þakklátur ykkur ef þið vilduð óformlega endur- taka þessar upplýsingar fyrir mig. Við vitum að ákveðinn tfmi nætur kemur sterlegar til greina, það er f fyrsta lagi tfma- bilið frá hálfeitt til korter fyrir tvö og f öðru lagi tfmin'n á bil-. inu rétt fyrir hálffjögur og þar til um fimm eða tfu mfnútur yfir. Má ég nú spyrja hvað þið voruð að gera um það leyti? Helene varð fyrst til að svara og andlit hennar virkaði bæði spennt og þrjóskulegt. — Ég svaf — en þér verðið að vera svo elskulcgur að trúa orð- um mínum, þvf að ég get ekkert komið með sem sannar bók- staflega þá staðhæfingu mfna. — Þið hjónin sofið ekki f sama herbergi? — Nei. Rödd hennar var undarlega ócðlileg en þó var ekkert hægt að iesa úr henni. — Eg sef á efri hæðinni, og Otto niðri. Ljósbrún augu Ottos Malm- ers horfðu á mig eina stund. Svo leit hann strax undan og þó sá ég að f augum hans vottaði fyrir mæðu og uppgjöf. Hann er ástfanginn af henni, hugsaði ég og fann til meðaumkunar með honum. — Og það er ekki að hans vilja að þau sofa sitt á hvorri hæð. Samtfmis velti ég þvf fyrir mér hvernig nokkur maður gæti orðið ástfanginn af jafn kuldalegri og ópersónu-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.