Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977
11
Snjór, snjór og aftur snjór
og Stephen var að hugsa
um að hatda heim á leið, en
nú líkar honum bara vel við
snjóinn og er ekki lengur
hálfhræddur við hann.
ég er mjög hamingjusamur hér,
segir Stephen.
Það fer vel á með Stephen
og Axel litla, enda Stephen
mikill barnavinur og engir
eru tungumálaerfiðleikarnir
milli þeirra, þar sem Axel
skilur Stephen eins vel og
aðrir, en annars segist
hann eiga i nokkrum erfið-
leikum með að læra is-
lenzkuna.
er hann alltaf boðinn og búinn.
Segir Jóhannes að Stephen hafi
verið óvenju fljótur að tileinka
sér vinnubrögð og gangi glaður
til allra verka.
Það hefur varla gerzt áður i
sögunni að blökkumaður
gerðist vetrarmaður á islenzku
sveitabýli og allra sizt norður i
Þistilfirði. Vissulega rak fólk
þar um slóðir upp stór augu
þegar það sá Stephen fyrst, en
jafnaði sig fljótlega og tekur
varla eftir þvi þó það sjái hann
nú orðið, en Stephen hefur
verið fyrir norðan í um þrjár
vikur.
— Fólkið hérna er sérstak-
lega vingjarnlegt og mér þykir
orðið mjög vænt um fólkið hér
á Gunnarsstöðum, segir
Stephen. Á Þórshöfn var mikið
horft á mig fyrst og börnin
f'ran'
Snæðir svið og sórsaða
hrntspnnga
Marga framandi hluti hefur
borið fyrir augu Ghanabúans
eftir að hann kom til Islands.
Norðurljósin hrífa hann og
fyrst þegar hann sá þau stóð
hann lengi i kvöldfrostinu og
horfði á leik þeirra um loftin.
Aldrei fyrr hafði hann séð svo
mikinn snjó sem i Þistil-
firðinum og vissi í rauninni
ekki hvað snjór var. Honum
stóð stuggur af sumum íslenzku
matartegundunum fyrst i stað,
borðaði þó allt umyrðalaust
eftir að Berghildur húsmóðir
hafði sagt honum hvað væri í
hverju. Nú borðar hann allt
með góðri lyst og iikar vel.
Hann hefur meira að segja
farið á þorrablót og snætt svið
og súrsaða hrústpunga — þykir
það herramannsmatur.
Stephen gengur til allra
verka með Jóhannesi bónda,
hvort heldur er i fjárhúsum eða
fjósi, hesthúsinu eða heima á
bænum, hvað sem þarf að gera
Mjótt á mununum
í deildakeppninni
[71 2. 3. 5. r i/inn.
L HRCVFILl. ■ 0 ú V / 3 /2
2 Mzqln/r [8] i b s 1 6 32h
y V. Wl-U'/JWBM UÁ ö ■
ú KffíavÍk V 0 ■ 7A'h 2 /2J
s, KÓPAV06MK 7 m
L TR. 5 7 81 33 H
T HAFNARn, 'A 3ii HEsn Wt
1 5UOU9LAN0 S 2 V □ 2H0 □ IV&
Deildakeppni Skáksambands
Islands er nú vel á veg komin
og sem fyrr er það Taflfélag
Reykjavikur og Skákfélagið
Mjölnir sem berjast um efsta
sætið. Um síðustu helgi fóru
Mjölnismenn til Akureyrar þar
sem þeir sigruðu heimamenn
6—2.
T.R. bætti þó um betur með
því að sigra Sunnlendinga 8—0
í Reykjavik. Skákin sem hér fer
á eftir er einmitt úr þeirri
viðureign.
Hvítt: Gunnar Gunnarsson
(T.R.)
Svart: Þórhallur B. Ólafsson
(Suðurlandi)
Spænski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0—0 Rxe4 6. llel
(Sjaldséður leikur. Algengara
er 6. d4) b5? (Sterkara var 6
. . Rc5! 7. Bxc6 dxc6 8. Rxe5 Re6
og staðan er i jafnvægi) 7. Hxe4
bxa4 8. Rxe5 Rxe5 9. Ilxe5 +
Be7 10. Del d6 11. He2 Be6 12.
d4 d5 13. f4 Kf8 (Eftir . . . g6 14.
f5 gxf5 15. Bh6 er svartur illa
beygður) 14. Bd2 c5 15. Rc3!
Dd7 (Ef 15 . . . cxd4 þá 16. f5
dxc3 17. Bxc3 Bxf5 18. Bxg7+!
og vinnur. Eða 16... ,Bxf5 17.
Rxd5! Bc5 18. Bb4 Dxd5 19. He5
og hvítur hefur yfirburða-
stöðu) 16. Df2 c4 17. Hael Bf6?
(Nauðsynlegt var 17 . . ,g6)
Þórhallur B. Óiafsson
Gunnar Gunnarsson
18. f5! Bxf5 19. Rxd5! Ilb8 (Ef
19 . . .Dxd5 þá 20. Bb4+ Kg8 21.
He8+) 20. Rxf6 gxf6 21. Bh6+
Kg8 22. Dg3+ Bg6 og svartur
gafst upp um leið.
Skákþing Kópavogs 1977
hófst sl. þriðjudag að Hamra-
borg 1 í Kópavogi. Þáttakendur
í meistaraflokki eru 18 og er
þeim skipt i þrjá riðla, en tveir
efstu menn i hverjum riðli tefla
siðan til úrslita um efsta sætið.
Famvegis verður teflt á laugar-
dögum kl. 2 og miðvikudögum
kl. 8.
Fyrirfram er ástæða til að
ætla að þeir Þröstur Bergmann
og Sævar Bjarnason komi til
með að berjast um efsta sætið.
Hinn 13 ára gamli Jóhann
Hjartarson setti þó óvænt strik
í reikninginn hjá Sævari með
þvi að leggja hann að velli í 2.
umferð:
Hvitt: Sævar Bjarnason
Svart: Jóhann lljartarson
Drottningarbragð
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 d5 4.
d4 Be7 5. Bg5 Rbd7 6. cxd5
(Uppskitaafbrigðið svonefnda.
Þó má segja að það eigi betur
við að hafa ekki leikið riddara
til f3 þegar skipt er upp á d5 og
leika siðar Rge2. Botvinnik
fyrrum heimsmeistari beitti
þeirri uppbyggingu oft með
góðum árangri) exd5 7. e3 c6 8.
Dc2 0-0 9. Bd3 h6 10 Bh4 (10.
h4! var enn betri leikur, enda
má 9. leikur svarts teljast
ónákvæmur) Ile8 11. 0-0-0
(Öruggara framhald er 11. 0-0
Re4 12. Bxe7 Dxe7 13. Bxe4
dxe4 14. Rd2 og staðan er í
jafnvægi, en Sævar ætlar sér
greinilega að tefla upp á sókn)
Re4! 12. Bxe7 Dxe7 13. Kbl
Rdf6 14. Re5 Bf5 15. f3 Rxc3 +
16. Dxc3 Bxc3+ 17. Dxd3 c5 18.
g4 c4 19. Dc2 Rd7 (Hvítur
hótaði 20. h4 og 21. g5) 20. f4
Framhald á bls. 29
Ntjrbill...
Moido
Borgartúni 29 sími22680
Nú kynnum við nýjustu gerðina af Mazda: Mazda 323. Þetta er 5
manna bíll byggður í „hatchback“ stíl, sem sameinar kosti
stationbíls og fólksbíls og tryggir um leið frábæra plássnýtingu
og formfegurð. Vélarstærðir eru tvær 1000 eða 1300 cc, í senn
aflmiklar og sparneytnar. Gormafjaðrir eru á öllum hjólum og
tryggir það góða fjöðrun á misjöfnum vegum. Sílsar og grinda-
bitar eru úr galvaniseruðu stáli, og aðrir undirvagnshlutar eru
zinkhúðaðir. Mazda 323 er eins og aðrar gerðir á Mazda ríkulega
búinn aukahlutum. Við fjölyrðum ekki meira um þennan nýja
bíl en bjóðum ykkur að koma og skoða hann hjá okkur, því sjón
er sögu ríkari.
MAZDA ... mest seldi japanski bíllinn á tslandi í dag.
Bílasýning
laugardag og sunnudag
frá kl. 1—6