Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977 3 Norðmenn reyna saltfisk- sölur til Portúgals: Hafa ákveðið að gefa Portúgölum 1000 millj. króna hafrannsóknaskip NORSKIR saltfisk- og skreidar- framleiðendur eiga við verulega erfiðleika að etja um þessar mundir, að þvl er lesa hefur mátt í norskum blöðum undanfarið, og á það ekki sízt rætur sfnar að rekja til þess að helzta markaðs- land Norðmanna fyrir saltfisk — Brasilfa hefur tekið upp háa inn- borgunarskvIdu, sem dregið hef- ur mjög úr útflutningi Norð- manna þangað. Brasilfa hefur keypt um 40% af saltfiskfram- leiðslu Norðmanna, en þar sem þessi markaður hefur nú brugðist hafa norskir framleiðendur og sölusamtök þeirra beint augum sfnum f æ rfkara mæli að Portúgal, sem hefur um árabil verið helzti kaupandi saltfisks frá Islandi. Vandamál þessarar greinar norsks sjávarútvegs hafa verið mjög til umræðu T norskum blöð- um allt frá því fyrir áramót. Blað- ið Nordlands Framtid skýrir frá því um síðustu mánaðamót, að tekist hafi samningar milli sam- taka fiskframleiðenda og samtaka saltfisk-seljenda um 20 þúsund tonna framleiðslu, er geti hækkað i um 30 þúsund tonn á tímabilinu fram til 1. maí, en þessi fram- leiðsluaukning er háð því að samningar takist við Portúgali um kaup á saltfiski. Kemur fram, að sölusamtök framleiðenda hygg- ist snúa sér til sjávarútvegsráðu- neytisins í þvi skyni að leita eftir útflutningsstyrk, þar eð Portúgal- ir geti ekki greitt nægilega hátt verð til að standa undir fram- leiðslukostnaði í Noregi. Fulltrúar norskra seljanda hafa nýlega verið í Portúgal til að leita eftir sölusamningum við Portú- gali á salfiski, en eftir því sem Morgunblaðið kemst næst hefur ekki verið gengið frá neinum samningum. Þó má vera að bráða- birgðasamkomulag liggi fyrir en að samningurinn sé háður þvi skilyrði að norskir framleiðendur og seljendur fái tilskiida styrki við útflutninginn heima fyrir. Verkun saltfisks og skreiðar er hreint byggðastefnumál af hálfu Framhald á bls. 24. Lézt eftir umferðarslys IIINN 4. febrúar s.l. lézt á Borgar- spltalanum Kolbrún Hjálmarsdóttir frá Dalvfk. Kolbrún slasaðist lifshættulega á Skúlagötu í Reykjavík 3. nóvember s.l. þegar bifhjól, sem hún var farþegi á, lenti í árekstri við bifreið, með þeim afleiðingum að Kolbrún skall harkalega I göt- una. Lá hún meðvitundarlaus á gjörgæzludeild Borgarspítalans í rúma þrjá mánuði, þar sem hún Iézt 4. febrúar. Kolbrún var tvítug að aldri, fædd 29. ágúst 1957. Kolbrún Hjálmarsdóttir. Sigurður á veiðar strax í fyrrinótt ÞRÁTT fyrir bilunina í Astic- tæki Sigurðar RE hélt skipið á ný til loðnuveiða í fyrrinótt og verð- ur ekki tekið I slipp fyrr en að loðnuvertlðinni lokinni, komi ekki eitthvað annað til. Drundi í björgum Eyjanna Vestmannacyjum, 18. feb. FJÖLDI fólks i bænum vaknaði við hávaðann frá kröftugri þrumu um kl. 1 í nótt, en eldingunni laust niður í Klifið og skemmdir munu hafa orðið á einhverj- um mannvikjum landsfm- ans þar. Hávaðinn frá þrumunni var slikur að drundi í fjöilunum og bergmálið ómaði þrivegis. Menn töldu vist að eitthvað hefði hrunið úr björgum Eyjanna, en allt var á sinum stað i morguns- árið. —Sigurgeir. Er skemmdirnar á skipinu voru kannaðar í Reykjavík í fyrradag var fyrst talið að ekki þýddi að senda skipið á veiðar án þess að gagnger viðgerð færi fram á Astic-búnaðinum. í fyrrakvöld tókst þó síðan að stilla botnstykki tækisins þannig að það getur starfað með viðunandi árangri. Að vísu getur það ekki leitað eins hratt og áður, en þó nægilega meðan loðnan er eins þétt og ver- ið hefur undanfarið. Sigurður hélt síðan á veiðar á ný í fyrrinótt, eftir að skipið hafði losað liðlega 1000 tonn í Reykjavík. Selásinn á næstu LANDEIGENDUR í Selási hafa auglýst aðalfund félags, sem þeir hafa myndað með sér. Um er að ræða um 90 landeigendur, sem fram koma sem ein heild i samningum gagn- MORGUNBLAÐINU bárust spurnir af því eigi alls fyrir löngu. að ungt fólk, tvö pör, við nám ( Myndlista- og handíðaskóla íslands hefði gengið í hjónaband i þeim tilgangi einum að ná út skyldusparnaði sínum. j tilefni af þessu hafði Morgunblaðið samband við Hildi Hákonardóttur, skóla- stjóra fyrrnefnds skóla, og spurði hana hvað mikið væri til í þessum fregnum. „Giftingar meðal nemenda virðast hafa verið mjög vinsaelar eftir ára- Sparimerkjagiftingar og dýrtíðaruppbót: Andrlna Jónsdóttir og OaSi Guðbjartsson voru gefin saman'af borgar- dómara I slSustu viku. „Við sparimerkjabrúðkaup virðist ekki tlSkast aS bregSa sér I betri fötin." „Bæði gert í gríni og alvöru” sagði ein nýgift Kunningjarnir fagna brúðhjónunum ákaft með hrfsgrjónum eftir athöfn- ina. mót, en ekki endilega innbyrðis, þ.e.a.s. mér er kunnugt um :ð nemendur hafa gifzt einhverjum utan skólans " Þess má geta hér að sjálf gifti Hildur sig á gamlársdag síðastliðinn og var sú athöfn I 16 aldar stíl og fór fram uppi á Smyrla- búð sunnan við Heiðmörk og var drukkið Ólafsminni ,.En það var ekki til að ná út sparimerkjum." sagði Hildur, hlæjandi ,,Og ég vona að ég hafi ekki komið þessum giftingum af stað ,,Mér er kunnugt um tvo nemend- ur, sem giftu sig í gær út af spari- merkjum, eftir því sem þeir segja, og svo annað par, sem gifti sig í siðustu viku af sömu ástæðu að því er sagt er En kannski krakkarnir séu að hylma yfir og þetta séu bara ósköp venjulegar. rómantískar gift- ingar Það er svo mikill gáski í nemendum hér að maður veit varla hvort um alvöru eða grín er að ræða Við höfum einnig staðið mikið í því að gefa nemencfum vottorð til þess að þeir geti náð út spari- merkjum sinum — en ég held að reglum um skyldusparnað sé þannig háttað að sýni fólk hjúskaparvottorð fær það borgað út allan þann skyldusparnað, sem það á inni, svo og dýrtíðaruppbót eða visitölu ’ Einn nemendanna í Myndlista- og handiðaskólanum, sem gekk I hjónaband i síðustu viku með öðrum nemanda úr skólanum. heitir Andrina Jónsdóttir, 23 ára, og sagði hún m a i samtali við blaðið „Jú. það er rétt, við giftum okkur til að ná út þeim skyldusparnaði. sem við áttum inni. Eiginmaður minn heitir Daði Guðbjartsson og við erum fyrirtaks vinir, en ætlum að skilja einhvern tíma i næsta mánuði Daði þurfti að borga skuldir og ég er að flytja í nýtt húsnæði og það. sem ég hafði tekið út af sparimerkjum fyrir þetta árið, dugði hreinlega ekki til Við fáum ekki námslán fyrr en á þriðja ári. Ég er í fyrsta bekk og hef hingað til unnið mér inn peninga með því að prjóna lopapeysur og leigði mér húsnæði með þvi skilyrði að ég sæi um hreingerningar þar." Andrína er eins og fyrr er getið 23 ára Hún hefur síðastliðin þrjú ár unnið á skrifstofu borgarverkfræð- ings og fékk 400 þúsund krónur út í sparimerkjum þegar hún sýndi hjú- skaparvottorð sitt fyrr i þessari viku Daði fékk 1 00 þúsund „Við litum á þetta sem grin. þótt einhverjir aðstandenda okkar kunni að taka þetta nærri sér En við gerðum þetta lika af brýnni nauðsyn og mér er kunnugt um marga nemendur sem eiga i fjárhagskrögg- um, þannig að ég yrði ekkert hissa þótt fleiri gengju i sparimerkjahjóna- band á næstunni " Þessi mynd krefst engra skýringa Morgunblaðið hafði samband við Auði Þorbergsdóttur borgardómara og spurði hana hvort henni væri kunnugt um giftingar af þessu tagi Hún svaraði þvi til að hún hefði gefið margt fólk saman og sagði „Maður spyr ekki fólk af hverju það giftir sig." Björn Ingvarsson yfirborgar- dómari hefur haft mikið með hjóna- skilnaði að gera en kvaðst aðeins muna eftir einu tilfelli þar sem fólk hefði komið og sótt um skilnað tveimur mánuðum eftir að það var gefið saman Samkvæmt upplýsingum frá veð- deild Landsbanka íslands. fær fólk greitt út allan sinn skyldusparnað sýni það hjúskaparvottorð Skólafólk þarf vottorð frá skóla sinum og lögreglustjóra til að sýna fram á að það hafi stundað nám sex mánuði af árinu byggingahæfur tveimur árum? vart Reykjavíkurborg, en eitt aðalmál á aðal- fundinum verða samn- ingar við borgina, sem þegar hefur látið skipu- leggja hverfið. Páll Llndal borgarlögmaður sagði i gær, að málið væri á um- ræðustigi. Samningarnir eru um uppgjör við landeigendur og um afhendingu á landi og ráðstafanir til þess að gera Selásssvæðið byggingahæft á næstu tveimur árum, 1978 og '79. Eigendurnir munu eiga landið áfram, en afhenda ákveðið skylduframlag, þar sem nauðsyn- legt er að kaupa vissa hluti. Þá fer sumt af löndunum í makaskipti. Landeigendur koma fram sem heild gagnvart borgarráði og skiptir borgin sér ekki af þvi, hvernig eigendurnir gera upp sin á milli. Aðalfundur landeigendafélags- ins mun fjalla um umboð til stjórnar félagsins til þess að halda áfram samningum við borg- ina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.