Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977 Kjartan Jóhannsson, varaformadur Alþýduflokks: Staðreyndir um Kröflu — í tilefni af skrifum Ragnars Arnalds Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins og Kröflu- nefndarmaður, ritaði í s.l. viku tvær greinar i Þjóðviljann um Kröflumál. í þeim veitist hann m.a. að mér og störfum, sem ég hef unnið að ásamt öðrum. Morgunblaðið hefur svo birt obbann af þessum áburði og rangfærslum. Nú má að vísu vel vera, að álagið á þeim Kröflunefndarmönnum sé orð- ið svo mikið, að þeir sjáist ekki fyrir og þykist sjá drauga í hverju horni. Má þeim vera það nokkur vorkunn og þó einkum Ragnari, ef svo skyldi vera að hann geti ekki fundið sálarró með því að rýna í vísuna við afmælisdaginn sinn, eins og oddvita Kröflunefndar virðist nægja til þess að finna frið og styrk, eins og dæmin sanna. Hitt kann lfka að vera, að grein- ar Ragnars séu fyrst og fremst barátta hans um forystu í flokki hans svo sem við Hjörleif Guttormsson, og Ragnar sletti svo i aðra menn til þess að ekki verði alltof áberandi, hvert skeytunum er einkum stefnt. En hvernig sem þessu víkur við, get ég ekki látið hjá líða að leiðrétta ýmsar missagnir í greinum Ragnars. Þar sem rangtúlkanir og ásakanir Ragn- ars hafa birst bæði í Þjóðviljan- um og Morgunblaðinu, hef ég beðið bæði þessi blöð að birta eftirfarandi athugasemdir mín- ar. Þótt ærið tilefni sé, mun ég leiða hjá mér margvísleg furðu- legheit, undarlega meðferð staðreynda og ýmsar dylgjur í greinum hans, en fjalla einkum um rekstraraðstæður Kröflu- virkjunar og störf mín tengd athugunum á þeim. Skýrslan um Norðurlandsvirkjun Það verk, sem Ragnar vitnar til og gerir að umræðuefni, er skýrsla um fyrirhugaða Norðurlandsvirkjun, sem yfir- tæki meginhlutann af orkuöfl- unar- og aðalflutningslínum á Norðurlandi þar á meðal Kröfluvirkjun. Verk þetta var unnið fyrst og fremst fyrir Samstarfsnefnd um orkumál Norðlendinga, en hún mótaði hugmyndir um Norðurlands- virkjun og vann að athugun á rekstrargrundvelli þess fyrir- tækis. í skýrslunni eru mark- aðs- og rekstraraðstæður fyrir- tækisins kannaðar og skýrðar. Að þessu verki vann ég ásamt þremur öðrum mönnum þar á meðal einum starfsmanni Framkvæmdastofnunar ríkis- ins undir umsjá Samstarfs- nefndarinnar og samkvæmt hennar óskum. Fráleitur áburður Ragnars Ragnar ber það á borð að skýrslan sé mótuð af pólitískum sjónarmiðum mínum. Með þessu er Ragnar í rauninni að ráðast að starfsheiðri mínum og heiðarleika. Þessu hef ég ekki átt að venjast, þrátt fyrir um áratugar starf við margvisleg verkefni í þágu alls konar aðila. Þykir mér áburður Ragnars ekki bara ósanngjarn, heldur hreinlega lúalegur. Hin faglega vinna skilur sig auðveldlega frá hinu pólitíska. Hið faglega er til þess að upp- lýsa og greina fyrir þá sem ákvarðanirnar taka, en það eru oft stjórnmálamenn. Hversu fráleitur þessi áburð- ur Ragnars er, sést nú reyndar strax af því, hvernig að verkinu var staðið. Það var unnið undir umsjá og eftir forskrift Sam- starfsnefndarinnar um orku- mál Norðlendinga og f sam- vinnu við Framkvæmdastofnun rikisins. Af hálfu Fram- kvæmdastofnunarinnar vann einn bagfræðinga hennar að verkinu. 1 Samstarfsnefndinni voru m.a. framámenn úr báðum stjórnarflokkunum, Sjálf- stæðisflokknum og Fram- sóknarflokknum. Formaður nefndarinnar er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Við sem að verkinu unnum mætt- um margsinnis á fundum með nefndinni og einstökum nefndarmönnum, einkum for- manninum, þar sem reikni- forsendur voru ræddar og gerð var grein fyrir gangi verksins og framsetningu. Nefndin fékk m.a. drög að skýrslunni til um- fjöllunar mörgum vikum áður en hún kom út til þess að koma með ábendingar og athuga- semdir. 1 öllu þessu starfi ríkti hin bezta samvinna. Þetta eru eðlileg vinnubrögð við verkefni af þessu tagi, en jafnframt má sjá hversu fráleitt er að bera það á borð, að skýrslan sé póli- tískt innlegg frá mér. Markmið skýrslunnar Skýrslan um Norðurlands- virkjun var unnin til þess að varpa ljósi á rekstraraðstæður þess fyrirtækis. Raforkufram- kvæmdir hafa þá náttúru, að meginhluti kostnaðar er vegna stofnframkvæmdanna, sem síð- an verður að standa undir með orkusölunni. Ef raforkufram- kvæmd á að standa á eigin fót- um fjárhagslega, er þannig fyrst og fremst tvennt, sem skiptir máli, fyrir utan stofn- kostnaðinn, nefnilega hvers konar lán fást fyrir stofnkostn- aði og hversu stór markaðurinn verður. Samstarfsnefndin hafði áhuga á því að fá áætlað hvað verðið á orkunni frá Norður- landsvirkjun þyrfti að vera hátt til þess að standa undir útgjöld- um miðað við mismunandi sölu- magn orku og lánakjör á Kröfluvirkjun. Þetta verð er stundum nefnt jafnkostnaðar- verð. Jafnframt vildi nefndin fá samandregnar áætlanir um líklegt orkusölumagn Norður- landsvirkjunar á Norðurlandi og Austfjörðum. Á þessu höfðu nefndarmenn áhuga, af því að þeim var ljóst, að þessi atriði skiptu sköpum um afkomu- grundvöll fyrirtækisins. Hitt trúi ég öllum haL alltaf verið ljóst, að fá mætti út lága tölu í krónum á kWh fyrir Kröflu- virkjun, með því að deila áætl- aðri afkastagetu upp í áætlaðar afskriftir stofnkostnaðar yfir 25 ár, enda kemur það fram í skýrslunni og hefur alltaf. legið fyrir. En sú tala er fræðileg ef sölumagn orku er ekki skoðað. Tekjur koma einungis af seldri orku. Þess vegna er áhugaverð- ara að skoða verðið i samhengi við markaðsaðstæður. ■ * * w i i *■«•*'* * * * * wmmw w t.m * ** » Lánakjör samkvæmt forsendum seðlabankastjóra Varðandi lánakjörin á Kröfluframkvæmdum var valið að lita á þrjú dæmi. í fyrsta lagi 7 ára lán með 9,5% vöxtum, I öðru lagi 15 ára lán með 9,5% vöxtum og i þriðja lagi 16 ára lán með 8% vöxtum. Þessi lána- kjör voru ekki valin af tilviljun. Tvö hin fyrri voru valin í sam- ræmi við erindi dr. Jóhannesar Nordal, seðlabankastjóra, á þingi Sambands íslenzkra raf- veitna hinn 23. marz 1976 um stöðu í fjármálum raforkufyrir- tækja á ísandi. í þessu erindi hafði dr. Jóhannes einmitt sett fram tölur um greiðslubyrði raforkukerfisins, þar sem gert var ráð fyrir þessum kjörum á lánum til Kröfluvirkjunar, nema þar var reyndar miðað við 10% vexti á 15 ára lánunum en ekki 9,5%. Þótti einsýnt, að seðlabankastjórinn væri góð heimild um hvað taka bæri til viðmiðunar í þessum efnum. Lánskjörin til 15 ára miðast við endurfjármögnun, þ.e. breyt- ingu styttri lána i lengri lán og varar dr. Jóhannes reyndar við því að aukinni greiðslubyrði verði auðveldlega mætt með þeim hætti. Þriðja dæmið (16 ára lán og 8% vextir) miðast hins vegar við vegið meðaltal á skuldum Landsvirkjunar og gefur því til kynna rekstrar- stöðu Norðurlandsvirkjunar, ef hún byggi við sömu aðstæður og Landsvirkjun að þessu leyt- inu. Hin völdu lánskjör eru þann- ig, ekki fráleitt uppátæki úr mér eins og Ragnar Arnalds vill vera láta, heldur voru þau valin i samvinnu við Samstarfsnefnd- ina samkvæmt þeim forsendum sem seðlabankastjóri taldi raunhæfar og eðlilegar í erindi sínu og • notaði löngu fyrr til þess að meta greiðslubyrði af Kröfluvirkjun. Auk þess var svo tekið dæmi meó samskonar kjörum og Landsvirkjun nýtur. Hinu má svo bæta við, að reikn- að var með lítilli greiðslubyrði af öðrum'eignum Norðurlands- virkjunar, t.d. var eftir forsögn nefndarinnar gert ráð fyrir, að fyrirtækið eignaðist byggðalinu úr Hrútafirði til Kröflu endur- gjaldslaust. Á grundvelli ofangreindra lánakjara og annarra for- sendna, sem nefndin tiltók, var heildargreiðslubyrði fyrir- tækisins yfir 30 ára timabil og jafnkostnaðarverðið á heild- sölustigi á kWh síðan fundið fyrir mismunandi sölumagn. Hitt er fráleitur útúrsnúning- ur, að reiknað sé með 7 ára og 15 ára afskriftartíma. Tölurnar i skýrsfunni gefa til kynna hvað virkjunin þarf að borga skv. tilgreindum forsendum, en ekki bókhaldslegar afskriftir. Vantar viðbótarmarkað Við áætlun raforkumarkaðar á Norðurlandi og Austfjörðum var byggt á spám Orkustofnun- ar og Rafmagnsveitna ríkisins. Af niðurstöðum skýrslunnar má sjá, að greiðslubyrði og til- svarandi jafnkostnaðarverð orkunnar verður mjög hátt næstu 5—10 ár, nema til komi viðbótarmarkaðir fram yfir spár um markaði á Norðurlandi og Austurlandi, auðvitað mis- hátt eftir lánakjörum, en alltaf mjög hátt. í skýrslunni voru þessvegna tekin dæmi um 200 til 400 Gwh viðbótarmarkað. Framhald á bls. 24. * »f > 9 MiMIIIII III Mf * ** Messiaen á tón- leikum Kammer- sveitar Reykjavíkur Á undanförnum tíu árum eða svo hefur nafn franska tón- skáldsins Olivier Messiaen risið æ hærra á himni tónlistarinnar. Nú er svo komið að Messiaen, sem áður var tiltölulega óþekkt- ur, má hiklaust telja eitt af merkustu tónskáldum á þessari öld. Þótt mest hafi borið á hin- um risavöxnu hljómsveitar- verkum hans nú hin siustu ár, ber nú ekki síður á flutningi æ fleiri fyrri verka hans, sem vak- ið hafa míkla athygli ekki að- eins tónlistarfólks, heldur einn- ig hins almenna hlustanda, því að þótt verk hans séu oft mjög óvenjuleg og frumleg, eru þau samt aðgengileg ðvönum hlust- anda við fyrstu kynni. Hér á landi hefur tónleikagestum lítið sem ekkert gefist kostur á að heyra verk þessa franska tónskálds, að undaskildum nokkrum orgel- og píanó- verkum. Það er því mikið fagnaðar- efni, að á næstu tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur, sem haldnir verða n.k. sunnu- dag kl. 4 síðde^is 1 Bústaða- kirkju, verður fluttur hér á landi í fyrsta sinn Kvartett um endalok tímans eftir Messiaen. Flytjendur verksins eru: Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari, Nina Flyer, cellóleikari, Gunnar Egilsson, klarínettleikari og Þorkell Sigurbjörnsson, tón- skáld og píanóleikari. Verk þetta er feiknarlega erfitt i flutníngi og verður vissulega að telja flutning þessa verks lista- viðburð hérlendis. Kvartettinn um endalok tím- ans á sér óvenjulega sögu. Árið 1939 var Messiaen handtekinn af nazistum og var fangi þeirra í tvö ár í Stalag-fangabúðunum í Görlitz. Þar samdi hann þetta verk og var það frumflutt í fangabúðunum 15. janúar 1941 að viðstöddum 5 þúsund föng- um. Messiaen lék sjálfur píanó- hlutverkið. „Aldrei," segir hann, „hefur verið hlýtt á leik minn af slikri athygli og skiln- ingi. Það var tónlistin ein, sem gerði mér kleift að lifa af grimmd og hrylling fanga- búðanna." Tildrögum verksins hefur Messiaen lýst á þessa leið: „Ástæðurnar fyrir hinni óvenjulegu hljóðfæraskipan þessa verks má rekja til sér- stakra kringumstæðna. Ég var stríðsfangi í Silesiu og meðal vina minna þar voru fiðlu- leikari, klarínettleikari, celló- leikari og ég sjálfur, píanó- leikari. Með slíkan hóp laðaðist ég skiljanlega ekki að vatns- flóðum og skrímslum Opin- berunarbókarinnar, heldur að þögn tilbeiðslu hennar og hin- um undursamlegu friðarsýnum hennar. Hvers vegna var þessi texti valinn? Ef til vill vegna þess, að á stundum algerrar ein- veru koma upp öfl þau, sem stjórna lífinu. Að öðru leyti segir þessi texti frá öllu, sem ég bind vonir mínar við, öllu, sem ég ann og mér er hjartfólgið. í fyrsta lagi regnboginn, tákn tilbrigða i tóna-litskrúði hinna innri, litauðugu sýna, sem ég upplifi, er ég hlýði á og les tónlist. Og þá eru það orð engilsins: „Tíminn mun undir lok liða“. Þessi truflandi setn- ing, sem allir textaskýrendur eru ósammála um, — en þarna er hún, hjúpuð tign og alvöru. (Þess skal getið hér, að hér er, stuðzt við gömlu, ensku bibliu- þýðinguna. Versin, sem hér er vitnað i eru úr 10. kafla Opin- berunar Jóhannesar, 1. — 7. vers, en í íslenzku þýðingunni virðist annar skilningur lagður í þessi orð, sem lauslega þýdd eru: Timinn mun undir lok líða. („There shall be timé no longer"). Messiaen heldur síðan áfram: „Hljóðfallið, með skiptingu sinni, breytingum, umskiptum sinum og ójafn- leika, er hluti af timanum. Og tíminn er í tengslum við rúmið. Þegar við erum ekki lengur háð fjarlægðum, þegar við erum Iaus úr viðjum þess, sem er á undan og á eftir, þegar við förum inn í aðra vídd, handan við það, sem við þekkjum, og öðlumst þannig ofurlitla hlut- deild i Eilifðinni, þá skiljum við einfaldleika orða engilsins og þá hefur tíminn vissulega liðið undir lok. Að öðru leyti er nóg að hlýða á tónlistina." Þannig lýsir höfundur verki sínu, en hann hefur auk þessa gefið á því tæknilegri skýr- ingar, sem of langt mál væri að fara út í hér. Það kemur skýrt fram i orðum Messiaen, að hann er frumlegur hugsandi og býr yfir sérstæðum stíl. Þættir verksins eru átta og eru heiti þeirra ekki síður óvenjuleg: 1. Kristalstiðagerð. 2. Söngur handa englinum, sem boðar endalok timans. 3. Ómælisdýpi fuglanna. 4. Intermezzo. 5. Lof- gjörð um eilífð Jesú. 6. Tryllingsdans handa hinum sjö trompetum. 7. Regnbogaklasi handa englinum, sem boðar endalok tímans. 8. Lofgjörð um ódauðleika Jesú. Ilalldór Haraldsson planóleikari tiffitfiiif »* w iii • •• *■* 11 m s ii * * • * i * c * * t * i r* i * c * * ii ifi ii 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.