Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977 Samband íslenzkra samvinnufélaga 75 ára á morgunrj ÉG hefi stundum sagt það við kunningja mína í Verzlunar- _____ráði íslands, er þeir hafa haldið því fram, að Sambandið væri orðið allt of mikið bákn í þjóðfélaginu — að ef ekki Sambands* ins nyti við, væri þjóðnýting á íslandi miklum mun meiri og sú starfsemi sem Sambandið færi með, væri þá að meira eða minna leyti ríkisrekin. Þetta sagði Erlendur Einarsson, forstjóri Sambands íslenzkra samvinnufélaga, í upphafi samtals, sem Morgunblaðið átti við hann í tilefni 75 ára afmælis hins mikla fyrirtækis, sem hann veitir forstöðu. Stærð Sambandsins Ef borin er saman heildarvelta kaupfélaganna, Sam- bandsins, samstarfsfyrirtækja SÍS og innstæður í Samvinnubankanum við niðurstöðutölur ríkis- reikningsins fyrir árið 1975, kemur í ljós, að Samband- ið og félög skyld því velta um 75 milljörðum króna, en niðurstöðutölur rikisreikningsins eru aðeins tæplega 60 milljarðar króna. Fyrsta spurningin, sem lögð var fyrir Erlend Einarsson, var hvort honum fyndist eðli- legt að ein fyrirtækjasamsteypa velti jafnvel hærri fjárhæðum en ríkissjóður. Erlendur sagði: „Þessar tölur eru ekki sambærilegar. Menn verða að hafa i huga, þegar litið er á þessar veltutölur, að um það bil helmingur þessarar fjárhæðar er umboðssala innlendra afurða, sjávarafurða og búvara. Sambandið annast sölu þessara afurða fyrir ákveðin umboðslaun, sem eru yfirleitt 2%. 1 sambandi við þetta ber að gæta þess, að verðhækkanir verða á helztu búvörum 4 sinn um á ári, samkvæmt reglum um að bændur eigi að fá hliðsta-ð laun og aðrar stéttir þjóð- félagsins. Utkoman úr þessu da-mi er sú, að í stað þess að reikna 2% umboðslaun á sölu kindakjöts á hverjum tíma, hefur verið ákveðið að leggja haust- verðið til grundvallar. Þetta þýðir að raun- veruleg umboðslaun vegna kjötsölunnar hafa reynzt lægri — eða á síðastliðnum fjórum árum frá 1,64% í 1,83%. Þetta dæmi á við ákveðið samvinnufélag, en ég geri ráð fyrir að útkoman hjá öðrum félöguni sé ekki langt frá þessu. Þessi um- boðslaun notar Sam- bandið síðan til þess að greiða ýmsan kostnað, sem sífellt hækkar, svo og þjónustu." En ef ég leitazt við að svara spurningunni, er bezt að ræða um markaðshlutdeild Sambandsins, einstakra deilda þess og samstarfsfélaga. Ef fyrst er minnzt á bankastarfsemina þá voru innlán í Samvinnubankan- um um áramót 1975 6,9% af heildarinnlánum í innlánsstofnunum, en ef við tökum innlánsdeildir Sambandsins með, er hlutur þeirra 3,5% og er sam- vinnuhreyfingin þá með 10,4% innlána. Ber þá að hafa í huga að kaupfélag er sjálfstæð stofnun." „Hvað um Samvinnutryggingar? Hver var markaðs- hlutdeild þeirra?" „Það hefur verið gerð lausleg athugun á þvt, hve stóran hluta iðgjalda Samvinnutryggingar hafa í heildartryggingum skaðatryggingafélaga, eins og þau eru kölluð. Samkvæmt þessari athugun hefur komið í ljós, að Samvinnutryggingar hafa24,6% iðgjalda.“ „Hvað um Olíufélagið h.f.?“ „Markaðshlutdeild Oliufélagsins mun hafa verið á síðastliðnu ári um 43%. Þess ber að geta að Olíufélag- ið er ekki aðeins eign Sambandsins, heldur standa einnig að því aðilar, sem standa utan þess og sam- vinnuhreyfingarinnar. Eingarhluti Sambandsins í Olíufélaginu er 40% og það á einn mann í stjórn af 5. heildarútflutningi sjávarafurða vera um 15% Hins vegar er hlutdeild Sambandsins i frystum sjávarafurð- um um 25%.“ „Hve stóran hlut á Sambandið í flutningum til og frá landinu?" „Á árinu 1975 fluttu skip skipadeildar Sambandsins 100,9 þúsund smálestir en heildarflutningarnir voru 732 þúsund smálestir. Hlutur Sambandsins í flutningunum varþví 13,8%.“ „Hvað um iðnaðarrekstur Sambandsins?" „Samkvæmt bráðabirgðatölum varð velta iðnaðar- deildar á síðastliðnu ári 4.369 milljónir króna og er það 43% aukning frá árinu áður. Þegar þessar tölur eru skoðaðar verða menn að hafa í huga þá verðbólgu- þróun, sem verið hefur. Utflutningur Sambands- framleiðslunnar er aðallega ullar- og skinnavörur, og nam hann á síðastliðnu ári á vegum iðnaðar- deildar um 1.6 milljörðum króna en það eru 42% af heildarútflutningi iðnaðarvara á árinu 1976, þegar frá er talið ál og kisilgúr. Mikil uppbygging hefur átt sér stað 1 iðnaði á vegum Sambandsins og benda má sérstaklega á að Ullarverksmiðjan Gefjun hefur verið stækkuð og afkastageta hennar stóraukin á síðastliðnu ári í ullar- og kembiiðnaði. Full vinnsla er nú í sútunarverksmiðjunni og stefnt er að því að fullvinna sem mest af skinnunum í mokkaskinn og vinna úr því fatnað. Þess má geta að veruleg aukning varð í skinn- fataframleiðslu á síðastliðnu ári. Þá á Sambandið skipti við margar sauma- og prjónastofur víðsvegar um land. Það er stefna Sambandsins að láta fullvinna vörur sínar á hinum ýmsu stöðum landsins eftir því sem aðstæður leyfa. A síðastliðnu ári gerðist Sambandið eignaraðili að prjónastofunni Dyngju á Egilsstöðum og ein grein af starfsemi Gefjunar var flutt til Sauðárkróks. Er það sængurfatagerð, en haf- inn er útflutningur á ullarflókasængum. A Sauðár- króki á að koma fyrir fleiri starfgreinum. f Sambandsins nyti ekki við, væri þjóð nýting meiri á íslandi Þjónusta SÍS „Hvaða þjónustu annast Sambandið fyrir þessi umboðslaun?" „Hér má nefna köstnað við sölu innan- lands og útflutning, kostað við verðjöfnun, umsjón afurðalána fyrir sambandsfélögin, auglýsingar innheimtu söluand- virðis og skil á þvf til kaupfélaganna, hagræðingar þjónustu og námskeiðahald fyrir félögin og fleira mætti telja. Ég vil fullyrða, “ sagði Erlendur, „að hvergi er hægt að finna lægri umboðslaun, enda hefur búvörudeild ekki getað tekið sinn þátt í greiðslu á óskiptum kostnaði Sambandsins. Ástæður fyrir þess- um lágu umboðslaunum eru, að Sambandið er þjónustustofnun við bændur, enda hafa þeir verið helzti bakhjarl þess. Á árinu 1975 námu umboðslaun búvörudeildar 84 milljónum króna. Til samanburðar við umboðslaunin sem Sambandið tekur af búvörum mætti minnast á, að viðskiptabankarnir fá í þóknun frá 1.15% — 1.35% fyrir að annast milligöngu um afurðalán út á búvörur, sem endurseld eru 1 Seðla- bankanum. Menn hafa ekki talið þetta óeðlilega þókn- un.“ „En hvert er þá umfang Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga í verzlun landsmanna?" „Kaupfélögin, sem eru 49 eru allt sjálfstæðar stofn- anir,“ sagði Erlendur Einarsson, „og þau hafa öll sérstaka stjórn. Þótt kaupfélögin séu félagsaðilar að Sambandinu, þá fer stjórn þess alls ekki með stjórn kaupfélaganna. Sambandið er aðeins stofnað sem þjónustuaðili fyrir kaupfélögin og það verða menn sérstaklega að hafa í huga. Varðandi samstarfsfélög Sambandsins, og þar á ég við þau fyrirtæki, sem stundum hafa verið ranglega kölluð dótturfyrirtæki þess, þá er sérstök stjórn yfir þeim og þau rekín sem sérstakar einingar. Þessi félög tengjast samt Sam- bandinu með ýmsum böndum, t.d. þeim að menn innan Sambandsins sitja í stjórnum fyrirtækjanna. — segir Erlendur Einarsson forstjóri í samtali við Morgunblaðið Auk kaupfélaga eiga ýmsir aðrir aðilar eignaraðild að Olíufélaginu. Má þar m.a. nefna: Bæjarútgerð Reykja- víkur, Olíusamlag Keflavíkur, Hval h.f., Utgerðarfélag Akureyringa, Venus h.f., Einar Þorgilsson h.f., svo nokkrir aðilar séu nefndir.“ Innan við 20% innflutnings- „En hver er hlutur Sambandsins verzlun landsmanna?“ „Því miður liggja ekki fyrir opinberar tölur um innflutningsverzlunina og skiptingu hennar milli hinna ýmsu aðila. En samkvæmt lauslegri athugun er Ijóst, að hlutdeild Sambandsins í innflutnirigsverzlun eða heildsölu er innan við 20%. Það þýðir að aðilar, sem eru innan annarra samtaka, eru með yfir 80% af heildsöluverzluninni. Ég sagði innan annarra sam- taka, en menn verða að gera sér grein fyrir því, að til eru hliðstæð samtök, svo sem félag kaupmanna og félag stórkaupmanna, sem standa að Verzlunarráði Islands. Þessi félög hafa að vísu engan innflutnings- rekstur sjálf, en ég held að þegar við ræðum um Sambandið verðum við að gera okkur grein fyrir því að félagsform þess býður upp á almenna þátttöku í gegnum kaupfélögin, en þau eru opin almenningi, þar sem hver félagsmaður fer með eitt atkvæði án tillits til eignarhluta hans.“ ,ííver er hlutdeild Sambandsins í útflutningi sjávarafurða?“ ~ „Samkvæmt athugun, sem gerð hefur verið,“ sagði forstjóri Sambandsins, „þá mun hlutur Sambandsins i . Smásöluverzlun „Hve stór hluti smásölu- verzlunar landsmanna er i höndum Sambands- ins og kaupfélaganna?" „Þvi miður liggja ekki fyrir neinar nákva'mar tölur um það," sagði Erlendur Einarsson. „Ég tel nauð- synlegt að Hagstoía Islands geri könnun á markaðshlutfalli hinna einstöku aðila í smá- söluverzluninni, en það þýðir að smásöluaðilar yrðu að gefa upp ýmsar veltutölur. Ljóst er hins vegar, að kaupfélögin hafa stórt hlutfall úti á landi, ekki sízt á fá- mennum stöðum, þar sem lítið olnbogarými er fyrir samkeppni. Það er ekki fýsilegt 4yrir einkaverzlun að setja sig niður á smáum stöð um, en þar halda kaup- félögin ein velli. Við getum t.d. nefnt Norðurfjörð á Strönd- um. Hver myndi vilja opna þar verzlun og keppa við Kaupfélag Strandamanna? I Rvík er markaðshlutfall samvinnuverzlunarinn- ar hins vegar mjög lítið í smásölu. Sam- kvæmt lauslegri athugun virðist hlutdeild samvinnu- hreyfingarinnar í smásöluverzluninni í Reykjavík og Kópavogi vera um 11% og er þá hlutur Sláturfélags Suðurlands talinn með. Ef honum er sleppt verður hlutdeild KRON innan við 6% af markaðnum. Þetta veldur okkur áhyggjum í samvinnuhreyfingunni, ekki sízt vegna þess að hagkvæmast er að reka verzlun á hinum stóra Reykjavíkurmarkaði. Víðast hvar úti á landi er vöruvelta lítil og umsetning hæg og verða kaupfélögin að liggja með tiltölulega miklar vöru- birgðir. Þegar svo er verður kostnaður á hverja selda einingu mjög mikill.“ Og Erlendur Einarsson, forstjóri Sambands íslenzkra samvinnufélaga, heldur áfram: „Það urðu okkur mikil vonbrigdi, að ekki fékkst leyfi til að koma upp stórmarkaði í tengslum við hina nýju birgðastöð Sambandsins, sem langt er komið með að reisa við Sundin í Reykjavík. Ég tel að samvinnuhreyfingin hafi verið afskipt með lóðaúthlutun undir verzlunar- hús á undangengnum árum. Þessi litla markaðshlut- deild Sambandsins i Reykjavik hefur þau áhrif að samvinnuhreyfingin getur ekki orðið eins hlutgengur aðili í samkeppni á stærsta markaði smásöluverzlunar í landinu, svo sem æskilegt er. Við höfum einnig gert könnun á hlutdcild okkar í smásöluverzlun í Reykjaneskjördæmi (Kópavogur undanskilinn) og sýnir hún að kaupfélögin hafa þar um 24.2% af smásöluverzluninni. Ég teldi æskilegt, að samvinnuhreyfingin gæti náð hliðstæðri stöðu 1 Reykjavík og hún hefur þar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.