Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977 SPJALL VIÐ MAESTRO FELLINI Sá stórviðburður í kvikmynda- heiminum gerðist fyrr í mánuð- inum, að frumsýnt var nýtt verk eftir Federico Fellini Það var CASANOVA, sem jafnframt er fyrsta mynd leikstjórans sem er með ensku tali Raunin er sú, að myndinni hefur verið misjafnlega tekið, enda er hún allólík fyrri myndum meistarans. Það eitt nægir að rugla fólk í ríminu En um það verður ekki dæmt fyrr en Casanova birtist hér eftir dúk og disk Hátt á fjórða ár er nú liðið síðan AMARCORD var frumsýnd, en hún var tekin til sýninga hérlendis nú í vetrarbyrjun, svo við verðum jafnvel að bíða ein tvö ár eftir því að C stingi upp kollinum Hitt ber þó að athuga, að Universal fram- leiðir myndina. og Laugarásbió hefur lagt mikið uppúr því á undanförnum árum að sýna bestu myndir kvikmyndaversins sem ferskastar En hvað sem öðru líður þá leiðir frumsýningin hugann að Fellini, og mun kvikmyndasíðan að þessu sinni vera helguð honum, og hinni nýju mynd hans, Casanova Að mestu leyti er stuðst við viðtal sem birtist í OUI-magazine í síðasta mánuði, og grein sem birtist í The New York Times Magazine 6 feb 77 Allar götur frá því að Federico Fellini leikstýrði sinni fyrstu, löngu mynd, THE WHITE SHEIK, árið 1952, hefur hann verið álitinn einn af mestu leikstjórum allra tíma Að hluta leikari. listamaður, galdrakarl, bæði verið lofaður sem snillmgur og fordæmdur sem vindbelgur Fellini hefur jafnframt verið bæði vegsamaður fyrir sið ferðilegan boskap i myndum sín- um um leið og aðrir hafa ásakað hann um að velta sér uppúr hnign un og saurlífi Þrátt fyrir að sumir gagnrýnend- ur telji að Fellini hafi ekki gert umtalsverða mynd síðan NIGHT OF CABIRIA (1956), þá vekur- hver einasta ný Fellini mynd meira umtal og eftirtekt en aðrar, og nýtur mikilla vinsælda meðal al mennings Það er skoðun flestra að hann sé sífellt að víkka sjón- deildarhring sinn, og CASANOVA sanni að svo sé Af. þeim tólf myndum sem Fellini hefur leik- stýrt. hafa fjórar hlotið Oscarsverðlaunin. en það er meira en nokkkur núlifandi leikstjóri get- ur státað af Nú, á 56 aldursári, þá hefur Fellini lokið við nýjustu mynd sína um Giovanni Jacopo Casanova, hinn nafntogaða kvennabósa, ferðalang og listamann Leikstjórn Fellinis er einhvers staðar á milli hins krefjandi -hljómsveitarstjóra og hugmyndarríka ballettmeistara Hann kemur sínum stórkarlalega líkama í hverja þá stellingu sem hann krefst frá leikurum sínum, andlit hans túlkar óendanleg svip- brigði og stuttir fingur hans verða að leiftrandi skýringum fíngerð- ustu hreyfinga sem hann vill ná fram Ætíð meðvitandi um heifdarsvip myndarinnar breytir Fellini sjálf- krafa ýmsu jafnóðum i verkum sinum Setur kannski einhvern leikmun í forgrunn, fellir línu úr handritinu eða bætir við Síðan, i ólgu lita, Ijósa, myndhorna, hreyf- inga og fólks smellur allt saman Blm. OUI: Það er ekkert laun- ungarmál, að þú hefur átt í heil- miklum erfiðleikum við gerð CASANOVA Hver voru megin- vandamálin? Fellini. Ég hef ætíð átt í erfiðleik- um með myndirnar mínar, vegna þess að vinir minir, framleiendurn- ir, hafa löngum viljað að ég gerði sömu mynd og ég leikstýrði síðast á undan, en þeir höfðu þá ekki áræði til að fjármagna, en hafa það í augnablikinu, því myndir mínar eru vinsælar Þegar flestir framleiðendur hristu höfuðið (af ýmsum ástæð- um) yfir LA STRADA, þá sneri ég mér til eins með handritið af I VITELLONI, sem fjallar um rótlaus- an ungdóm í smábæ Hann studdi við bakið á mér, og svo þegar myndin hlaut frábærar viðtökur, þá fékk ég alls kyns tilboð um að gera VINIR VITELLONI, SYNIR VITELLONI, o s frv Ég neitaði, og þá var Dino De Laurentiis fús til að fjármagna LA STRADA Samt leist honum ekki á að ráða Anthony Quinn, taldi 'hann aðeins færan um að fara með smáhlutverk En ég fékk mínu fram Blm: Og LA STRADA hlaut Oscarsverðlaunin Næsta mynd þín var svo THE SWINDLE með Broderick Crawford? Fellini: Já. en hún gekk ekki sem best, og framleiðandinn vildi rjúfa samninginn. Ég bað hann um að fá að gera NIGHTS OF CABIRIA, en hann brást hinn versti við ,,Fyrst gerirðu mynd um kynvill- inga", — ég imynda mér að þá hafi hann átt við I VITELLONI — „siðan aðra um skítuga sígauna" — LA STRADA — „og nú viltu gera eina um hórkonur. Mér þætti gaman að vita um hvaða óþverra þú ætlar að fjalla næst ?" Fram- leiðendur, öskraði ég og rauk á dyr Blm: En þú gerðir CABIRIA? Fellini: Ekki fyrr en eftir að ellefu framleiðendur höfðu snúið við henni baki Blm: Þrátt fyrir það hlaustu fyrir hana þín önnur Oscarsverðlaun Hvað gerðist síðan með LA DOLCE VITA? Fellini: Eftir fjölmargar af- neitanir hélt ég til Dino De Laurentiis, sem samþykkti að gera myndina, og vildi fá Paul Newman í aðalhlutverkið Þegar ég stakk uppá Marcello Mastroianni, sagði Dino að ég væri snarvitlaus: „Mastroianni er ofgóður: hann er eins og heima tilbúið brauð; hann hugsar um konu sína og börn, en ekki að tæla ókunnugt kvenfólk upp í til sín." Munið að þetta gerðist fyrir sautján árum Annar framleiðandi samþykkti Marcello, og ég gerði myndina. Blm: Sem færði þér enn ein Oscarsverðlaunin Átti eitthvað svipað sér stað með CASANOVA? Fellini: Ekki ólikt. Dino var fyrsti framleiðandinn sem tók hana á dagskrá Að venju vildi hann fá bandaríska stjörnu í aðalhlut- verkið, heimtaði Al Pacino, Redford eða Brando „En sjáðu til," sagði ég. „Pacino er aðeins einn og sextíu, en Casanova var næstum tveir metrar á hæð " Það varð ekki til að sljákka í Dino „Al Pacino" sagði hann hátíðlega, „hefur af miklu að státa" Þegar ég svo lýsti því yfir, að Redford eða Brando myndu gera svip myndar- innar andstæðan því sem ég hafði í huga svaraði Dino, með tárin í augunum: „En hvernig getur nokkur afþakkað Redford eða Brando?" En ég stóð fast á mínu, og myndin yfirtók svo Andrea Rizzoli en faðir hans fjármagnaði LA DOLCE VITA Blm: En Rizzoli gafst einnig upp? Fellini: Þú verður að gæta þess að á þessum tíma átti Ítalía við gífurlega efnahagsörðugleika að etja Rizzoli bað mig um að skera niður útgjöldin eins og hægt væri, sem ég og gerði Ég útskúfaði persónum og atriðum sem mér voru hugfólgin. En það dugði ekki til. Síðan, snemma árs 1 975, kom mér til hjálpar Alberto Grimaldi, sá sem fjármagnaði SATYRICON Jafnvel þá var það óvíst að CASA- NOVA yrði nokkurn tíma að raun- veruleika í fyrra hélt ég uppá þriggja ára afmæli undirbúnings myndarinnar CASANOVA, frekar en að halda til Hollywood og ná i fjórðu Oscarsverðlaunin fyrir AMARCORD Blm: Hvernig náði Grimaldi endunum sáman? Fellini: Fyrir kraftaverk skrapaði hann saman fjármagni í Banda- ríkjunum Svo, rétt einu sinni enn, var áforfninu borgið Blm: Eru framleiðendur á verði vegna þess mikla kostnaðar sem þú leggur í myndir þínar? Fellini: Framleiðendur eru fæddir gætnir Þeir gera sér ekki í hugarlund að ég er sparsamasti leikstjóri jarðkringlunnar Blm: Hvað sagðirðu? Fellini: Ég endurtek það, ef þú vilt. Ég held því ekki fram til að hefja þrætur Þetta er hlutlæg fullyrðing, fullþroskuð sjálfs- koðun, byggð á reynslu, því ég veit hvernig aðrir semja kvik- myndir Ég skapa ekki myndir með þeirri áhugamennsku, getgátum og eftiröpunarhætti sem einkennir flesta framleiðendur og leikstjóra Blm: Er það rétt að kostnaður myndarinnar CASANOVA sé nú nærri 9 milljónum dala? Fellini: Jafnvel Þetta er mjög kostnaðarsöm mynd, og þess vegna samþykkti ég ákvæði í samingnum sem veldur ringulreið í óreiðunni: Að gera myndina með ensku tali, tungumáli sem ég kann litil tök á Þetta er hreinasta vit- leysa, og skella ætti sökinni á Universal Pictures — eða er það Fox? Jú, rendar: Universal Blm: Saga Casanova gerist viðs vegar um Evrópu: London, París, Constantinople En síðan er myndin öll tekin hér. í Cinecittá kvikmyndaverinu? SÆBJÖRN VALDIMARSSON Fellini. Eg finn mig betur ef ég get framkvæmt hugmyndir mínar í beinu samræmi við hugmyndaflug mitt, án utanaðkomandi áhrifa í kvikmyndaverinu get ég ráðið sjónarhornunum, mannfjöldanum, litunum, og sérstaklega lýsing- unni, — lýsingin er undirstöðu- atriði Ég get hóað í frábæra leik- tjaldamálara, þaulreynda tækni- menn. Cinecittá býður mér uppá allt Blm: Hvernig skaparðu kvikmynd? Fellini: í upphafi fæ ég óskýra ósjálfráða hugmynd Á þessu stigi virðist myndin hafa allt til að bera en er i rauninni ekki neitt. Hún er vitrun, tilfinning: hreinleiki hennar er töfrandi Síðan kemur fjárhags- hliðin Lögfræðingarnir koma inn á ballið Einn skálar i kók yfir kampavínsglösum Hlutirnir fara að gerast með viðbjóslegri stund- visi. Kanarnir mæta. við höldum til fundar við þá Þeir vaða um á fundarstað á nærklæðum einum saman, hafandi meiri áhuga á laununum en listinni Á meðan þeir eru að ræða við þig, hringja þeir til Tokyo Kanarnir færa þér fjármagn, sem er á sinn hátt hug- hreystandi Frh í næstu kvikm síðu kviki rnijno /íðom • Casanova leikur Donald Sutherland. • Ein af fjölmörgum undirlægjum kvennabósans. £ „Engin hugsjón, tilfinning eða skoðun' — VIKULEGAR HRAÐFERÐIR EINNIG REGLUBUNDNAR FERÐIR Fra PORTSMOUTH WESTON POINT KRISTIANSAND HELSINGBORG GDYNIA VENTSPILS VALKOM Frá ANTWERPEN mánudaga - FELIXSTOWE þriójudaga - KAUPMANNAHÖFN ------------ - ROTTERDAM ---n---- - GAUTABORG mróvíkudaga - HAMBORG fimmtudaga — FERÐIR FRA ÖORUM HÖFNUM EFTIR FLUTNINGSÞÖRF samíSi, ISLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.