Morgunblaðið - 19.02.1977, Qupperneq 7
Hálfur sjötti
milljarður
Það er tízkufyrir-
brigði hjá ýmsum kaffi-
húsaspekingum sam-
tfmans að kasta hnútum
að fslenzkum land-
búnaði. Sjálfsagt má
þar margt betur fara,
eins og hjá öðrum at-
vinnugreinum okkar,
en flestar hnúturnar
fljúga þó yfir mark. Það
eitt að sjá lands-
mönnum fyrir nægum
Iandbúnaðarafurðum
hefur ómetanlega þjóð-
hagslega þýðingu, ekki
sfzt gjaldeyrislega séð.
Þeir tfmar hafa komið
— og geta komið enn —
að aðdrættir nauðsynja
til eylands okkar verði
miklum erfiðleikum
bundnir. Þá er gott að
geta búið að sfnu. Og
það er gott á hverjum
I tfma, enda þjónar gjald-
eyrissparandi fram-
MORGUNBLAÐIÐ, LAUC.ARDAGUR 19. FEBRUAR 1977
7
leiðsla f landinu sama
hlutverki og gjaldeyris-
skapandi. Landbúnaður
brauðfæðir ekki aðeins
þær þúsundir lands-
manna, sem að honum
starfa, heldur leggur til
mjög mikilvæg iðnaðar-
hráefni, sem eru undir-
staða atvinnu og af-
komu enn stærra hóps f
þéttbýli. Hann krefst og
margháttaðrar iðnaðar-
og verzlunarþjónustu,
sem ótaldar þúsundir
landsmanna sinna. Og
þar við bætist, að út-
fluttar landbúnaðarvör-
ur reyndust að verð-
mæti 5.500 m.kr. á sl.
ári og hefur út-‘
flutningur landbún-
aðarafurða aukizt mjög
að verðmætavöxtum á
undanförnum árum.
Ullar- og
skinnavörur
Utflutningsmiðstöð
iðnaðarins hefur
upplýst, að út-
flutningur ullar- og
skinnavara hafi aukizt á
liðnu ári um 55.8% að
verðmæti. Kemur þar
bæði til vöxtur að
magni og hærra afurða-
verð. Heildarút-
flutningur þessara vara
nam á sl. ári 3225 m.kr.
Ullar- og skinnavörur
verða ekki til án þess
önnur verðmæti
viðkomandi bústofns
fylgi f kjölfarið. Og mis-
munandi árferði í land-
búnaði dregur úr og
eykur afurðamagn, s.s. f
kjötframleiðslu svo
erfitt reynist að stýra
framleiðslumagni
hverju sinni. Ef land-
búnaðurinn á að sjá
neytendum innanlands
fyrir nægjanlegum af-
urðum, hvern veg sem
árar, hlýtur umfram-
framleiðsla að verða
nokkur f góðærum. Um-
framframleiðsla, sem
hlýtur að afsetjast á er-
lendum mörkuðum.
Þannig hafa út-
flutningsbætur á land-
búnaðarframleiðslu
orðið til, ekki sfzt vegna
þess, að þessar vörur
mæta umtalsverðum
innflutningstollum á
Evrópumarkaði. Land-
búnaðarframleiðsla er
og vfðast f Evrópu
greidd verulega niður,
til að hamla gegn verð-
bólgu; þann veg, að
tollaður innflutningur
héðan hefur erfiða
markaðsaðstöðu. Það er
þvf mjög mikilvægt að
koma á slíkum við-
skiptasamningum við
evrópsk markaðslönd
fslenzkrar landbúnaðar-
framleiðslu, að tollmúr-
ar hamli ekki eðlilegum
viðskiptum eða leiði til
óeðlilegra útflutnings-
bóta.
Það, sem bónd-
inn ber úr
býtum
Sagt er að þriðjungur
bændastéttar búi við
allgóða afkomu, annar
þriðjungur sæmilega en
lakasti hópurinn af-
leita. 1 heild hefur
fslenzk bændastétt ekki i
fengið f sinn hlut sam- >
svarandi laun og svo- |
kallaðar viðmiðunar- i
stéttir f þjóðfélaginu. '
Opinberar skýrslur |
sýna að þar hefur á i
skort um árabil milli 20 '
og 30%. Sé það tekið |
saman f eina fjárhæð, i
sem bændastéttin hefur 1
þann veg minna hlotið |
af þjóðartekjum en við- i
miðunarstéttir, nemur 1
sú upphæð gott betur |
en hinar umdeildu út- |
flutningsbætur. Þetta
þýðir þó engan vegin, |
að kerfi útflutnings- |
uppbóta þurfi ekki
endurskoðunar við. |
Nauðsynlegt er að |
brjóta það vandamál til
merjgar — fyrr en sfðar |
— og leita þjóðhags- |
legra heppilegri leiða J
— eða betrumbæta |
þessa leið — ekki sfzt |
vegna landbúnaðarins
sjálfs, þar sem hann |
hefur orðið uppspretta |
sfvaxandi ádeilna og
tortryggni í garð I
bændastéttarinnar.
Hinsvegar verður .
þéttbýlisfólk að hyggja I
ekki sfður að þeim I
jákvæðu þáttum, sem .
búskap fylgja fyrir I
þjóðarbúið, er afstaða I
er tekin til atvinnu-
greinarinnar. Atvinnu-
tækifæri f þéttbýli eru |
svo mjög háð tilvist I
landbúnaðar, að sam-
dráttur f landbúnaði |
bitnaði ekki sfður á I
þéttbýli en strjálbýli ef
til hans kæmi f ein- |
hverjum mæli. I
Með kaupstefnuferð
KAUPMANNAHÖFN
— LEIPZIG
TIL LEIPZIG
12/3—20/3
daglega. . . frá 1 1.20. til 1 2.30 IF 1 01 YT 1 34
12/3—19/3
daglega ekki sunnud. frá 1 6.35 til 1 7.50 SK 793 FY DC 9
FRÁ LEIPZIG
13/3—19/3
dagléga. . . frá 09.20 til 10.30 IF 100 YT 134
12/3—19/3
daglega, ekki sunnud. frá 1 8.35 til 1 9.40 SK 794 FY DC—.9
Réttur til breytinga áskilinn.
Beint samband við vorkaupstefnu i Leipzig 1977
þar, sem alþjóða kaupsýslufólk hittist.
Milli Flugvallarins í Leipzig og miðborgarinnar,
eru reglubundnar rútuferðir.
Informstion
DORs Trafikrepf*sentation
Vesterbroqade 84
1620 Kebenhavn V
Tlf 101)24 68 66
Telex 158 28
Information og bookmg
SAS Termmalrejsebureau
Hammenchsgade
1611 K0benhavn V.
eller
SAS pladsbestillmg, Tlf (01) 59 55 22
samt hos alle IATA bureauer
Den Tyske Demokratiske Republiks luftfartsselskab
GUÐSPJALL DAGSINS:
(Sjöviknafastan)
Matt. 3,13 — 17.;
Skfrn Krists.
DÓMKIRKJAN Nýir messu-
staðir vegna viðgerðar á
kirkjunni. Klukkan 11 árd.
Messa i Kapellu háskólans,
gengið inn um aðaldyr. Skátar
koma I heimsókn. Séra Hjalti
Guðmundsson. Kl. 5 síðd. Messa
í Fríkirkjunni. Altarisganga.
Séra Þórir Stephensen. Kl.
10.30 barnasamkoma í Vestur-
bæjarskólanum við Öldugötu
Séra Þórir Stephensen.
GRENSÁSKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2
síðd. Altarisganga. Organisti
Jón G. Þórarinsson. Séra
Halldór S. Gröndal.
LAUGARNESKIRKJA Barna-
guðþjónusta kl. 11 árd.
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Altaris-
ganga. Nýtt messuform verður
tekið upp. Sóknarprestur.
NESKIRKJA Barnaguð-
þjónusta kl. 10.30 árd. Séra
Frank M. Halldórsson.
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
HÁTEIGSKIRKJA Barna-
guðþjónusta kl. 11 árd. Séra
Tómas Sveinsson. Messa kl. 2
síðd. Séra Arngrímur Jónsson.
Siðdegisguðþjónusta kl. 4. Séra
Tómas Sveinsson. Biblíulestur
verður í krikjunni n.k. mánu-
dagskvöld kl. 8.30. Prestarnir.
DÓMKIRKJA KRISTS
Konungs, Landakoti. Lágmessa
kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30
árd. Lágmessa kl. 2 siðd.
FlLADELFÍUKIRKJAN Safn-
aðarguðþjónusta kl. 2 síðd.
Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Skátaguðþjónusta I samkomu-
sal Breiðholtsskóla kl. 11 árd.
Séra Jón Bjarman messar.
Sóknarprestur.
BUSTAÐAKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðþjónusta
kl. 2 síðd. Organisti Birgir Ás
Guðmundsson. Barnagæzla.
Séra Ólafur Skúlason.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Árelíus Níelsson.
FRlKIRKJAN Barnasamkoma
kl. 10.30 Guðni Gunnarsson.
Messa kl. 2 síðd. Organisti Sig-
urður ísólfsson. Séra Þorsteinn
Björnsson.
IIJÁLPRÆÐISHERINN Helg-
unarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagsskóli kl. 2 siðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 18 síðd.
Kafteinn Daniel Óskarsson.
AÐVENTKIRKJAN Reykjavík.
Samkoma klukkan 5 siðd. Sig-
urður Bjarnason prédikar.
FELLA- OG HÓLASÓKN
Barnasamkoma í Fellaskóla kl.
11 árd. Telpnakór Eyrarbakka-
kirkju undir stjórn Rutar
Magnúsdóttur kemur i heim-
sókn. Guðþjónusta i skólanum
kl. 2 siðd. Séra Hreinn Hjartar-
son.
ÁRBÆJARPRESTAKALL
Barnasamkoma i Árbæjarskóla
kl. 10.30. árd. Guðþjónusta I
skólanum kl. 2 síðd. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
ELLI- OG HJUKRUNAR-
HEIMILIÐ Grund. Messa kl. 10
árd. Séra Jón Kr. ísfeld
prédikar.
SELTJARNARNESSÓKN Guð-
þjónusta kl. 11 árd. I Félags-
heimilinu. Séra Guðmundur
Óskar Ólafsson.
HALLGRÍSMKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Altarisganga. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson. Fjöl-
skyldumessa kl. 2 siðd. Stúlkna-
kór Eyrarbakkakirkju kemur í
heimsókn. Séra Karl Sigur-
björnsson.
LANDSPlTALINN Messa kl
10.30 árd. Séra Karl
Sigurbjörnsson.
ASPRESTAKALL Messa kl. 2
LITUR DAGSINS;
Fjólublár. Er litur iðrunar
og yfirbótar.
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grimur Grimsson.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11 árd. Guðsþjónusta i Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Séra
Þorbergur Kristjánsson.
KARSNESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Messa i Kópavogs-
kirkju kl. 2 siðd. Séra Árni
Pálsson.
GARÐASÓKN Barnasamkoma
í skólasalnum k. 11 árd. Séra
Bragi Friðriksson.
KAPELLA St. Jósepssystra í
Garðabæ. Hámessa kl. 2 siðd.
MOSFELLSPRESTAKALL
Lágafellskirkja. Barnasam-
koma klukkan 10.30 árd. Séra
Birgir Ásgeirsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Messa kl. 2 siðd. við upphaf
héraðsfundar. Séra Einar
Sigurbjörnsson prédikar. Séra
Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir
altari. Séra Garðar Þorsteins-
son.
FRÍKIRKJAN i Hafnarfirði.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Ég
vænti þess að fermingárbörn og
foreldrar þeirra sjái sér fært að
koma til messunnar. Séra
Magnús Guðjónsson.
NJARÐVlKURPRESTAKALL
Guðsþjónusta í Innri-
Njarðvikurkirkju kl. 11 árd.
Séra Páll Þórðarson.
STOKKSEYRARKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30
árd. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. og
barnaguðsþjónusta að henni
lokinni. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Siðdegis-
messa fellur niður. Séra Björn
Jónsson.
Þér verður
hlýtt til hans
Þurrkarinn frá ENGLISH ELECTRIC i
er ómissandi í islenskri veöráttu.
Tvær hitastillingar.
5 kg. afköst.
Einfaldur öryggisbúnaöur.
Útblástursbarki einnig fáanlegur.
Yfir 20 ára reynsla hérlendis.
Varahluta- og viögeröarþjónusta frá eigin verkstæöi.
OU&Œl
Laugavegi 178 Sími 38000