Morgunblaðið - 19.02.1977, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1977
„Ég er mjög
hamingjnsamnr hér”
En við erum norður í Þistil-
firði, máltíðinni er lokið og
Stephen hefur hjálpað
Berghildi Björgvinsdóttur
húsmóðurinni á bænum við
uppþvottinn. Meðan aðrir
setjast niður fyrir framan
sjónvarpið finnum við Stephen
okkur sæti við skrifborð
bóndans Jóhannesar Sigfús-
sonar og röbbum saman.
— Ég vissi eiginlega ekkert
um ísland áður en ég kom
hingað, nema að hér væri
hræðilega kalt, segir Stepehn.
— Vinir mínir sögðu mér að ég
skyldi taka með mér öll min
hlýjustu föt, það gerði ég og sé
svo sannarlega ekki eftir því.
Fyrstu vikuna var mikill kuldi,
snjór og rok, en siðan hefur
veðrið verið miklu betra og ég
er smátt og smátt að læra að
ganga í snjónum. Fyrst var ég
hálfhræddur við hann og þurfti
eiginlega að skriða á milli, þar
sem ekki var farið á snjósleða
eða bíl.
— Þegar ég kom til Akureyr-
ar á leiðinni hingað sá ég
ekkert nema snjó, snjó og enn
meiri snjó. Þá langaði mig mest
að snúa við og hætta við allt
saman. Ég gerði það þó ekki
heldur flaug ég til Þórshafnar í
lítilli flugvél Hún hristist svo
mikið á leiðinni að ég hélt ég
myndi aldrei komast hingað.
Allt gekk þetta þó mjög vel og
Ato Stephen sópar moðinu
saman, Sigfús gestkom-
andi á Gunnarsstöðum
fylgist með, rollurnar bfða
rólegar eftir gjöfinni.
0 Við sitjum við eldhúsborðið
á Gunnarsstöðum norður í
Þístilfirði. Á borðum er bragð-
mikill og góður siginn fiskur,
borinn fram með heimabökuðu
rúgbrauði, og í eftirmat fáum
við skyr. Á móti blaðamanni
situr vetrarmaðurinn á bænum
og hámar í sig þessa kjarn-
miklu íslenzku fæðu, enda
lúinn eftir störfin í fjár-
húsunum fyrr en um daginn.
Ekkert af þessu væri í frá-
sögur færandi ef vetrarmaður-
inn væri ekki dökkur á brún og
brá, kominn aila leið frá Ghana
í Afríku til að kynna sér
sauðfjárrækt á íslandi. Hann
unir hag sínum vel í Þistil-
firðinum þar sem er mikið
vetrarríki. Snjór er yfir öllu og
frost hvern einasta dag. Á
heimaslóðum hans í Afríku er
hins vegar hitinn 25—30 stig
um þessar mundir og þurrkur.
Ato Syephen heitir Ghana-
búinn og erkominn til tslands
frá Danmörku, þar sem hann
kynnti sér landbúnaðarstörf í
19 mánuði. Stephen á allmikið
land í nágrenni Accra, höfuð-
borgar Ghana. Þar starfa nú um
40 manns við ræktun olíupálma
á um 300 ekrum lands, gúmmí
er ræktað þar á um 800 ekrum
og skógarnir eru nýttir til
ræktunar á mahogny. Ato
Stephen hefur stundað land-
búnaðarnám í heimalandi sínu
og ætlar að taka upp nýja háttu
við rekstur búsins. Sauðfjár-
rækt kynnir hann sér á íslandi
en í Danmörku kynnti hann sér
alifugla- og svínarækt.
Væntanlega eru þetta önnur vinnubrögð en Stephen
notar á búgarði slnum í Ghana, þar sem aldrei þarf a8
taka fé I hús.
Jóhannes Sigfússon, Ato
Stephen, Berghildur Björg-
vinsdóttir og Axel litli
Jóhannesson í stofunni í
nýja einbýlishúsinu á
Gunnarsstöðum.
Hlökkumaðurinn Ato Stephen heimsóttnr
að Gunnarsstöðum í Þistilfirði, en þar
er hann vetrarmaður og líkar vel