Morgunblaðið - 09.03.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.03.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1977 rafslöðvar ■■ I f • Lofsamlegur hug- ur Siglfirðinga Vilja dæla lodnunni úr skipinu beint í þró — En þad er ekki nýtt hér á landi VEGNA fréttar í Mbl sl laugardag langar mig að biðja blaðið fyrir eftirfarandi smáklausu Það var fyrir um fjörutíu árum, að vélaverksmiðja í Bandaríkjunum — Yeomands manufacturers í Chicaco byrjaði fyrst allra að smíða fiskidælur. Það mun svo vera fyrir 25 til 30 árum, að Yeomands-dælur eru keyptar hingað til Reykjavíkur og settar upp á löndunarbryggju síldarverksmiðjunnar á Effersey Mun það hafa verið Gunnar Thoroddsen (núverandi iðnaðarráðherra) og Richard Thors, sem höfðu víðsýni og framtakssemi um þær framkvæmdir En eins og allir vita — og Siglfirðingar hvað best — þá synti síldin sinn sjó frá íslandi, og verksmiðjan og öll þau góðu tæki urðu þá óþörf. — En Yeomands-dælurnar voru reyndar og sýndu geysimikil dæluafköst En þrátt fyrir það, sem hér hefur verið drepið á, er hugur Siglfirðinga jafn lofsverður En Siglfirðingar þurfa ekki að sækja sérfræði svo langt sem þeir virðast halda. Þessi góðu, fullkomnu verkfæri eru til hér á landi og ætti það að geta sparað mikla fyrirhöfn og dýrmætan erlendan gjaldeyri að reyna að nota þau Þegar rætt er um að dæla upp úr skipslest er ekki um að ræða eina dælu heldur dælusamstæðu Að endingu: Það er sjálfsagt að veita Siglfirðingum frekari upplýsingar, ef að því væri leitað, og vil ég Ijúka þessum orðum, með öllum góðum óskum til þeirra, sem nú eru að athuga, hvort ekki sé hentugt að setja upp dælur við SR i Siglufirði Arsæll Jónasson Eyjólfur Konráð TX ^ f á* • __Rannsoknir undanian stefnumörkunar um stóriðju Þrtr þingmenn Framsóknar- flokksins: Ingvar Gíslason, Stefan Valgeirsson og Páll Pétursson lýstu sig f gær andvfga tillögu til þingsályktunar um könnun á staðarvali til stóriðju á Norður- landi, þar eð að I henni fælist, að þeirra mati, viss stefnumörkun í stóriðjuátt. I sama streng tóku þingmenn Alþýðubandalagsins er til máls tóku I umræðunni. Flutn- ingsmenn tillögunnar, Ryjólfur Konráð Jónsson og Sverrir Ilermannsson, töldu tillöguna hins vegar einvörðungu gera ráð fyrir nauðsynlegri, fræðilegri at- hugun á staðarlegum og félags- legum áhrifum stóriðju (á hyggðaþróun, atvinnuþróun, á Iff- ríki, orkuþróun o.fl.), sem væri nauðsynlegur undanfari stefnu- mörkunar og ákvarðanatöku, en hins vegar fælist hvorki I henni neins konar stefnumörkun né ákvarðanataka, svo sem greinar- gerð hæri glöggt með sér. Kyjólfur Konráð Jónsson (S) mælti í gær í sameinuðu þingi fyrir tillögu til þingsályktunar, sem hann flytur ásamt Sverri Hermannssyni (S) Þess efnis, að ríkisstjórnin láti gera athugun á staðarvali fyris stóriðju á Norður- landi og Austurlandi. Eyjólfur tók skýrt fram i fram- sögu sinni að tillagan hnígi ekki í þá átt, að tekin væri ákvörðun um frekari stóriðjuframkvæmdir. Þvert á móti spannaði hún nauð- synlega könnun á ýmsum þáttum, sem væri nauðsynlegur undanfari þess, að hægt væri að taka ákvarð- anir — af eða á í málum af þessu tagi, sem siðar kynnu að koma á dagskrá hjá þjóðinni. Þessi könn- un þyrfti m.a. að ná til eftirtal- inna þátta: 1) Félagslegra þátta, s.s. varð- andi áhrif hugsanlegrar stóriðju á byggðaþróun og atvinnuþróun á viðkomandi stöðum. 2) Umhverfismála, s.s. áhrifa á lífríki byggðanna umhverfis. 3) Orkumála, þ.e. þörf orku- frekrar starfsemi i tengslum við stórvirkjanir í viðkomandi lands- hlutum. 4) Staðbundnar aðstæður aðrar, s.s. hafnaraðstöðu o.fl. Alhliða könnun á þessu við- kvæma máli væri nauðsynlegur undanfari hyggilegrar og rök- réttrar afstöðu og ákvarðanar- töku þjóðarinnar á næstu áratug- um. Slik athugun fæli ekki í sér neinskonar stefnumörkun eða ákvarðanatöku, heldur væri hún forsenda þess, að hægt væri að marka hyggilega framtíðarstefnu. Þörfin fyrir stóriðju væri þó hvergi nærri jafn brýn nú og ver- ið hefði fyrir 15 — 20 árum. Þar kæmi til hin nýja landhelgi okkar og þeir nýju möguleikar i veiðum og vinnslu á næstu árum og ára- tugum, sem við hefðum fyrir sjón- AIÞinGI um. Ef hins vegar kæmi til þess að heppilegt þætti að reisa eitt eða tvö stóriðjufyrirtæki, ætti staðarvalið að sínu mati að vera norðanlands eða austan. Fráleitt væri að velja fleiri stóriðjufyrir- tækjum stað á Suðvesturlandi en nú hefði verið tekin ákvörðun um. Vart mun hvarfla að nokkrum manni, sagði þingmaðurinn, að enn ein stórvirkjun verði byggð á eldvirknisvæði, eftir að fram- kvæmdum lýkur við Hraun- eyjafoss. Raunar hefði verið eðli- Iegt að skjóta þeirri framkvæmd aftur fyrir stórvirkjanir á Norður- eða Austuriandi, ef rannsóknir og undirbúningur þar hefði verið lengra komið. Rannsóknum hefði hins vegar verið mun betur sinnt á svæði Landsvirkjunar en annars staðar á landinu. í Iok máls sins áréttaði Eyjólfur enn, að tillagan fæli ekki í sér stefnumörkun né ákvarðanatöku varðandi stóriðju, hvorki i heild né einstakar framkvæmdir, held- ur spannaði athuganir og rann- sóknir, sem væru nauðsunlegur undanfari og raunar forsenda skynsamlegrar ákvörðunartöku þings og þjóðar síðar. Miklar umræður urðu um mál- ið, sem hér verða ekki raktar, og tók fjöldi þingmanna til máls. Mæltu flestir, er til máls tóku, gegn tillögunni, á þeirri forsendu, að I henni fælist stefnumörkun inn á stóriðjubraut (þingmenn úr röðum Alþ.bl. og Frams.fl.) í máli eins þingmanns F’ram- sóknarflokksins (Halldórs Ásgrímssonar) kom fram, að Ný lög um hlutafélög undirbúin: UTGERÐARMENN OG VÉLSTJÓRAR VITA AF REYNSLUNNI AÐ CATERPILLAR BREGST EKKI ÞEGAR Á REYNIR HEKLA hf Laugavegi 170-172, - Simi 21240 Caterpillor, Cat, og CB eru skrósett vörumerki Sölu-, viógerða- og varahlutaþjónusta í sérflokki ákvörðun um framkvæmdir við Hrauneyjafossvirkjun þ.e. virkj- unarleyfi hefði ekki verið rætt i þingflokki Framsóknarflokksins. Ath: Heimildarlög um Hrauneyja- fossvirkjun voru samþ.vkkt á Alþingi 1971. Það er iðnaðarráð- herra að veita virkjunarleyfi á grundvelli laganna. Það gerði hann f lok sl. árs, með samþykki rikisstjórnarinnar, eftir að málið hafði verið til gaumgæfilegrar at- hugunar f ráðuneytinu allt það ár. Eyjólfur Konráð Jónsson. Aðveitustöð reist við Varmahlíð 78 Tenging Norðurlfnu við orkukerfi Skagafjarðar. Gunnar Thoroddsen orkuráð- herra svaraði í sameinuðu þingi i gær fyrirspurn frá Ragnari Arnalds (Abl) um ofangreint efni. Svar ráðherrans var á þessa leið: ,,í fjárlögum fyrir árið 1977 er gert ráð fyrir 14 milljónum króna til efnispöntunar vegna aðveitustöðvar í Norðurlínu við Varmahlið í Skagafirði, en að aðveitustöðin verði reist sumar- ið 1978 og tekin í notkun I október 1978, og tengist þá Norðurlína orkuveitukerfi Skagafjarðar. Heildarkostnaður aðveitu- stöðvarinnar er áætlaður 211 milljónir, þannig að á fjárlög- um 1978 verður að gera ráð fyrir 197 milljónum vegna stöðvarinnar. Samkvæmt upplýsingum Kristjáns Jónssonar rafmagns- veitustjóra ríkisins hefur út- boðslýsing vegna aðveitu- stöóva, þ.á m.| aðveitustöðvar við Varmahlið, verið send út og er gert ráð fyrir, að efni verði pantað i lok april næstkom- andi.“ Þing- fréttir 1 stuttu máli Ný löggjöf um hlutafélög Ólafur Jóhannesson dóms- málaráðherra svaraði fyrir- spurn frá Þorvaldi Garðari Kristjánssvni (S) um undir- búning nýrrar löggjafar um hlutafélög. í svari ráðherra kom fram að unnið hefði verið að endurskoða hlutafjárlaga og lægi nú fyrir nýtt frumvarp til laga um þetta efni, samið af þeim Benedikt Sigurjónssyni og Gylfa Knudsen hæstaréttar- lögmönnum. Væri það nú í prentun. Ráðherra kvaðst vænta þess að það yrði lagt fyr- ir Alþingi áður en langur tími liði. Námsmat á grunn- skólastigi Framhaldsumræður utan dagskrár héldu áfram I neðri deild í fyrradag um námsmat á grunnskólastigi. Miklar um- ræður urðu um málið og lauk ekki. Fyrri hluti þessara um- ræðna var rakinn hér á þing- síðu. Ný efnisatriði komu lítt fram í siðari hluta umræðna, utan svar menntamálaráðherra, eri meginpunktar þess koma fram á greinargerð mennta- málaráðuneytis um málið, er birt var í heild í Morgunblaðinu f gær. Tvenn Iög í gær Alþingi samþykkti í fyrradag tvenn lög: # 1) heimild fyrir rikis- stjórnina til þess að leyfa inn- flutning (Olíumöl hf.) á olíu- pramma, til að fyrirtækið geti sinnt umfangsmiklum verkefn- um, á Vestfjörðum og viðar, við malbikunarframkvæmdir. OIíu- prammi þessi er eldri en svo, að innflutningur hans rúmist inn- an ramma gildandi lagaákvæða um aldur innfluttra skipa, en er þó talinn henta til ákveðinna verkefna. # 2) Staðfestingu á bráða- birgðalögum frá 24. ágúst 1976 um Lifeyrissjóð bænda, til sam- ræmis við hliðstæðar breyting- ar, sem orðið hafa á öðrum lif- eyrissjóðum landsmanna, m.a. um uppbót á lífeyri skv. II. kafla gildandi laga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.