Morgunblaðið - 12.05.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1977
Óvissa með áburðarflutninga:
50 tonn af 1880
tonnum komin
til Vestfjarða
Frá viðræðufundi Sambandsstjörnar og ASt-nefndarinnar f gær.
Sambandið mun ekki
semja beint við ASI
Viðræðufimdur Sambandsstjómar og ASI-nefndar í gær
BÆNDUR á Vestfjörðum og í
Strandasýslu eiga eftir að fá
nærri allan þann áburð, sem þeir
koma til með að nota í vor. Þann-
ig er áætlað að á þetta svæði verði
flutt í vor um 1880 tonn af áburði
en aðeins er búið að flytja þangað
um 50 tonn og i gær var verið að
lesta Tungufoss, sem fara átti til
Flateyrar og Dýrafjarðar með 470
tonn. Þá er einnig eftir að flytja
1000 tonn af þeim 2400 tonnum af
áburði, sem fara eiga til
Blönduóss og eftir er að flytja 400
líDrðnirl
ÚRSLIT í 1. deild Islandsmótsins
í knattspyrnu voru i gærkveldi
þannig að Þór á Akureyri og Vík-
ingar gerðu jafntefli nyrðra 1:1. 1
hálfleik var staðan einnig jöfn,
hvorugt iiðið hafði skorað. Þá
vann Fram FH í Hafnarfirði 3:0.
Ekkert mark hafði verið gert er
leikurinn var hálfnaður. A Mela-
vellinum léku saman Akranes og
Valur. Akranes vann 2:0. 1 hálf-
leik var staðan 1:0.
URSLIT leikja ensku knattspyrn-
unnar í gærkvöidi urðu þessi:
1. DEILD:
Derhy County —
Queenspark Rangers 2—0
Stoke City —
Manchester United 3—3
2. DEILD:
Heraford United —
Southamton 2__0
Vestur-þýzka knattspyrnuliðið
Hamburg SV varð í gærkvöldi
Evrópumeistari bikarhafa, þegar
það sigraði belgíska liðið Ander-
lecht í úrslitaleik Evrópu-
keppninnar, með tveim mörkum
gegn engu. I hálfleik var staðan
0-0. Volkerts skoraði fyrsta mark
Þjóverjanna úr viti en Magath
Kid síðara . Leikurinn fór fram í
Amsterdam.
tonn til Sauðárkróks. Að sögn
Grétars Ingvasonar hjá Áburðar-
verksmiðjunni standa vonir til að
hægt verði að koma þessum
áburði til bænda í tæka tíð komi
ekki til verkfalla. Verði hins
vegar boðað til verkfalls um
næstu helgi og þau komi til fram-
kvæmda í byrjun annarrar viku
Framhald á bls. 20.
Ávísanamálið fór
aftast í röðina
hjá Steingrími
RANNSÓKN á ávísanamáli
Hauks Guðmundssonar rannsókn-
arlögreglumanns kann að dragast
eitthvað. Setudómarinn i málinu,
Steingrímur Gautur Kristjánsson,
sagði í samtali við Mbl. í gær, að
hann hefði verið búinn að ákveða
tiltekna daga fyrir rannsóknina.
Þá hefði það gerst að Haukur
hefði óskað eftir að dómarinn viki
sæti vegna meintrar hlutdrægni.
Málið hefði gengið alla leið til
Hæstaréttar, sem staðfesti úr-
skurð Steingríms um að honum
bæri ekki að víkja sæti. Sagði
Steingrimur að vegna þessa mála-
vafsturs hefði hann orðið að setja
ávísanamálið aftur fyrir önnur
mál, sem biðu afgreiðslu hjá sér,
og kæmist hann ekki í málið fyrr
en einhverntíma í næsta mánuði.
Hassmálið:
Gæzluvarð-
haldsföngum
fjölgar
MAÐUR á þrftugsaldri var úr-
skurðaður I allt að 30 daga gæzlu-
varðhald í gærmorgun vegna
rannsóknar nýja hassmálsins.
Sitja þá tveir menn inni vegna
málsins. Rannsóknarmenn verj-
ast allra frétta af gangi rannsókn-
arinnar enn sem komið er.
STJÓRN Sambandsins og sérstök
nefnd skipuð af samninganefnd
Alþýðusambands Islands héldu
með sér rösklega tveggja klukku-
stunda fund f gær um kjaramál á
grundvelli ályktunar Sambands-
stjórnar í þeim efnum nú ný-
verið. 1 fréttatilkynningum
beggja aðila um þessar viðræður
kemur fram, að forsvarsmenn
Sambandsins hafi lýst þvf yfir að
ekki gæti orðið um kjarasamn-
inga að ræða, það væri Vinnu-
málasamband samvinnuféiag-
anna sem færi með samningamál-
in fyrir samvinnuhreyfinguna og
einnig hafi af hálfu for-
svarsmanna Samhandsins verið
lögð áherzla á þá skoðun, að
kjaradeilan væri ekki leysanleg
nema ríkisvaldið kæmi til varð-
andi ýmis mjög mikilvæg atriði
sem að því sneru í kjaramálun-
um. Ákveðið var að viðræðum
skyldi fram haldið þegar annar
hvor aðili óskaði þess.
í fréttatilkynningu Alþýðusam-
bandsins segir svo m.a.:
Á fundinum gerðu fulltrúar
samninganefndar Alþýðusam-
bandsins grein fyrir kröfum sín-
um í yfirstandandi kjaradeilu og
stöðunni í samningamálunum nú.
Þeir lýstu ánægju sinni yfir þeim
stuðningi, sem þeir töldu felast í
nýgerðri ályktun stjórnar SÍS um
kjaramál, þar sem meðal annars
segir að „stjórn Sambandsins lýs-
ir stuðningi við þá meginstefnu
Alþýðusambands íslands, að leið-
rétta beri kjör þeirra sem lægst
hafa laun i landinu“ og „að stjórn
Sambandsins lýsir sig reiðubúna
til samstarfs um þessi mál við
viðkomandi aðila".
Fulltrúar samninganefndar
ASÍ töldu að skilja mætti ályktun
þess sem fyrirheit stjórnar SÍS
um efnislegar viðræður sem leitt
gætu til beinna kjarasamninga
milli aðila. Fyrirsvarsmenn SlS
lýstu því hins vegar yfir að um
kjarasamninga gæti ekki orðið að
ræða, Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna myndu nú sem
fyrr fara með kjarasamninga fyt-
ir samvinnufélögin. Þeir lýstu því
hins vegar yfir að stjórn SlS
mundi beita áhrifum sinum á
Vinnumálasamband samvinnufé-
laganna og aðra aðila að deilunni
Framhald á bls. 20.
Banaslys-
ið varð í
rykmekki
Guðbjörn Þórarinsson
BANASLYSIÐ sem varð á Stór-
höfðavegi I Vestmannaeyjum i
fyrradag varð með þeim hætti að
bilarnir sem rákust saman voru
báðir innarlega á veginum þegar
slysið varð, en þegar þeir mættust
var mikið ryk á veginum vegna
umferðarinnar.
Volga-bifreið á leið i bæinn ók á
eftir Mustang-bifreið og þyrlaðist
mikið ryk upp á eftir Mustang-
bifreiðinni samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar í Eyjum. Mun
bifreiðarstjóri Volga-
bifreiðarinnar hafa fært bifreið
sina nokkuð inn á veginn til þess
að sjá betur fram. Vestmannaey-
ingurinn sem lézt í bílslysinu,
Guðbjörn Þórarinsson, ók bifreið
sinni suður Heimaey og mun bif-
reið hans einnig hafa verið innar-
lega á veginum þegar bilarnir
skullu saman í rykmekkinum.
Stúlka sem var i bifreiðinni
með Guðbirni slasaðist nokkuð og
piltarnir tveir sem voru í hinni
bifreiðinni, en ekkert þeirra
þriggja er alvarlega slasað. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunn-
ar hefur ekkert komið fram sem
bendir til óleyfilegs ökuhraða bif-
reiðanna.
Kvöldsagan „Vor í ver-
um” lesin að ósk ASÍ
„Oskiljanlegt hlutdrægnisbrot”
segir formadur Alþýðuflokksins
í RÍKISÚTVARPINU hefur að
undanförnu verið lesin sem
kvöldsaga bókin „Vor i verum“
eftir Jón Rafnsson og er það
Stefán Ögmundsson sem annast
upplesturinn. Bókin „Vor í ver-
um“ hefur að geyma æviminn-
ingar Jóns en hann var virkur
þátttakandi í verkalýðshreyf-
ingunni og stjórnmáium frá
um 1920 og fram um 1950. Skip-
aði Jón sér í sveit Alþýðu-
fiokksmanna en gekk í
Kommúnistaflokk tslands er
hann var stofnaður 1930. Lest-
ur sögunnar „Vor i verum" var
gerður að umtalsefni í leiðara
Alþýðublaðsins sl. þriðjudag
undir fyrirsögninni „Hneyksli
f útvarpsdagskrá“ en höfundur
leiðarans cr Benedikt Gröndal,
formaður Alþýðuflokksins.
Telur Benedikl að með lestri úr
bók Jóns séu brotin lagaákvæði
um hlutleysi Ríkisútvarpsins
og ráðist sé „á einstaka menn,
oft á ruddalegan og svfvirði-
legan hátt“, Segir Benedikt að
lesturinn sé „gróft óréttlæti,
sem útvarpsráði ber skylda til
að bæta úr, enda þótt það hafi
gert sig sekt um óskiljanlegt
hlutdrægnisbrot í dagskránni.“
Þórarinn Þórarinsson, for-
maður Utvarpsráðs, var í gær
spurður álits á þeim orðum
Benedikts Gröndals að lestur
sögunnar „Vor í verum“ væri
brot á hlutleysisreglum
Utvarpsins. Þórarinn sagðist
fyrst vilja taka fram að upplest-
ur úr sögu þessari væri tilkom-
inn vegna óska frá Alþýðusam-
bandi íslands þar um og væri
liður í útvarpsefni, sem flutt
væri I satnráði við ASI í tilefni
af 60 ára afmæli þess í fyrra,
Alþýðusambandið hefði með
bréfi, sem undirritað var af
Birni Jónssyni, formanni þess,
og Stefáni ögmundssyni, for-
manni Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu, óskað eftiir
þvi við Útvarpsráð að ASI yrði í
tilefni 60 ára afmælis þess
gefinn kostur á að flytja i út-
varpi og sjónvarpi efni um
verkalýðsmál. Hefði ASÍ til-
nefnt Baldur Óskarsson sem
fulltrúa sinn i viðræðum við
Ríkisútvarpið. Útvarpsráð sam-
þykkti á fundi sínum að til-
nefna þá Friðrik Sophusson og
Ólaf G. Einarsson til að ræða
við Baldur.
Um það hvort lestur sög-
unnar væri brot á hlutleysis-
reglum útvarpsins sagði Þórar-
inn, að hann hefði ekki lesið
bókina en hins vegar mætti það
vera öllum ljóst að þegar tekn-
Framhald á bls. 20.
alþyðu-
blaöíð
ÚtRefaadl: Alþý4«il»ok»ö.---- -----
Rekaiar: Reykjapreal kf. RMatjtet eg ArmtvmMnmm. „„rfy****^ - atal 1«. ^
HNEYKSLI í ÚTVARPSDAGSKRÁ
Um þessar mundir flyt-
k RlkisCitvarpid I hljód-
/arpi ,,kvöldsögurta" Vor
verum eftir Jón Rafns-
on, sem Stefán
Dgmundsson les.
Jón Raf nsson var á sln-
jm tlma einn mesti bar-
ittumaður Islenzkra
(ommúnista, sem á þeim
logum voru ófeimnir við
iðkallasig þvi nafni. Var
íann virkur I verkalýðs-
treyfingu og st(órnmál
<m, og hafa i siðustu viku
rerið lesnir kaflar úr
ninningum hans, sem
jalla um veru hans f
Uþýðuflokknum árin
yrir 1930, áður en
ommúnistaf lokkur
slands var stofnaður. A
jeim árum voru komm-
nistar enn i Alþýðu-
lokknum og Alþyðusam
idi Islands, sem voru
in og sömu samtökin.
/oru þó opin átök milli
afnaðarmanna og
ari lagagrein að raeða. að
það sætir undrun, að út-
varpsráð skuli hafa sam
þykkt þetta efni. Getur
verið, að Þórarinn Þórar
insson, formaður, og Ell-
ert Schram, varaformað-
ur útvarpsráðs, hafl lesið
bók Jóns Rafnssonare
Eða að aðrir útvarps-
ráðsmenn, sem hljóta að
hafa samþykkt þetta
lestrarefni, hafi kynnt
sambærilegan hátt eða
leiðrétta rangfærslur.
x Alþýðuf lokkurinn getur
þó iátið sig þetta mál litfu
skipta. Hann hefur lengi
þolað árásir kommúnista
og mun fyrst hafa
áhyggjur, ef þeim linnir.
Þótt landslög séu brotin á
flokknum með þessu út-
varpsefni, skal það látið
kyrrt liggja.
Hitt er verra mál, að I
hlustar stundum á
varp. Sjilfur hefur hail
skrifað endurminning I
sinar, þar sem fraf
kemur það göfuglyndi, .1
hann talar vel um anl
stæðinga sina og hef<|
fyrirgefið eöa gleynl
-áfdkum fyrri ára. En il
lætur úfvarpsráðápsa yfI
þíöðtnoi áhróður úr btl
Jóns Rafnssonar og il
kynsloö hlýðir á, kynskl
■ ■ lll
■■■II
Leiðari Alþýðublaðsins þriðjudaginn 10. maí 1977.