Morgunblaðið - 12.05.1977, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.05.1977, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1977 Fasteignasalan Norðurveri Hátúni 4 a Símar 21870 og 20998 Við Kríuhóla 2ja herb. íbúð á 5. hæð. Við Hamraborg 2ja herb. íbúð á 6. hæð með bílgeymslu. Vid Æsufell 2ja herb. íbúð á 1. hæð. Mikil sameign. Við Gnoðavog 3ja herb. góð íbúð á jarðhæð. Sér mngangur. Sér hitaveita. Við Sigtún 3ja herb. ný standsett íbúð á jarðhæð. Allt sér. Við Hátún 3ja herb. íbúð á 7. hæð. Við Hvassaleiti 4ra herb. vönduð íbúð á 4. hæð. Við Sléttahraun 4ra herb. vönduð íbúð á 2. hæð. Við Breiðvang Hf. 5 herb. glæsileg íbúð á 3. hæð. Laus fljótlega. Fasteignaviðskipti Hilmar Valdimarsson, Agnar Ólafsson, Jón Bjarnason hrl. James Jones lézt í fyrradag New York 10. maí — AP. Bandaríski rithöfundurinn James Jones lézt í dag úr hjarta- bilun 55 ára gamall. Hann er aóal- lega þekktur fyrir bók sína „Héðan til eilifðar". Jones var lagður inn á sjúkrahús í Southampton í New York fylki fyrir níu dögum síðan. Héðan til eilífðar kom út árið 1951. Fjallar hún um líf bandariskra hermanna á Hawai fyrir árás Japana á Pearl Harbour, og fékk hann fjölda bók- menntaverðlauna fyrir hana. Síð- ar var gerð kvikmynd eftir efni bókarinnar. Hafnarfjörður: 6 km af var- anlegu slitlagi GERT er ráð fyrir lagningu um 6 km af varanlegu slitlagi í götum Hafnarfjarðar á þessu ári. Göt- urnar verða bæði í nýja og gamla bænum, en samhliða þvi fer fram lagning jarðstrengja rafmagns- veitunnar og loftlinur verða tekn- ar niður. Samtals er gert ráð fyrir að þessi framkvæmd kosti um 193 milljónir króna og er þetta mesta framkvæmdin á vegum Hafnar- fjarðarbæjar á þessu ári. Höfum fjársterkan kaupanda að sérhæð ca. 1 60— 1 80 fm. í 10— 1 5 ára tví- eða þríbýlishúsi. Aðeins góð eign kemur til greina. [Hamraborgir Höfum kaupanda að 3ja- herb. íbúð í Hamraborgum. Fasteignaþjónustan Austurstræti 17 (Silli&Valdi) simi 26600 Ragnar Tómasson, hdl. 28644 afdrep 28645 Blönduhlið 3ja herb. 85 fm. kjallaraíbúð i fjórbýlishúsi. Mjög þokkaleg ibúð. Verð 8.5 millj Útborgun 5.5 millj. Bragagata 3ja herb. 80 fm. ibúð á 2. hæð i tvibýlishúsi. íbúðin er nýstand- sett. Skipti koma til greina. Kriuhólar 3ja herb. 90 fm. falleg ibúð á 6. hæð í háhýsi. Stór stofa, mikið skáparými. Verð 8.5 millj. Út- ; borgun 5.5 millj. Æsufell 4ra herb. 105 fm. Stórglæsileg íbúð á 6. hæð i lyftuhúsi mikið skáparými. Gott útsýni. Verð | 10,5 míllj. Útborgun 7 millj. Miðbraut Seltjarnarnesi 5 herb. 115 fm. 2. hæð i þri- býlishúsi, bilskúr fylgir. Verð 12.5 millj. Útborgun 8.5 millj. Laufvangur Hafnarf. 6 herb. 140 fm. endaibúð á 1. hæð i blokk. Aðeins 3 ibúðir i stigagangínum, þvottahús í ibúðinni. Stórar suðursvalir. Verð 13.5 millj. Vallarbraut Seltjarnarnesi stórglæsilegt embýlishús á tveim hæðum. Verð 25 millj. Arnartangi, Mosf. 137 fm. fullgert eínbýlishús á einum vinsælasta staðnum i Mosfellssveit. Ránargata 4ra herb. risíbúð við Ránargötu. Stórar suður svalir. Sér hiti. Kaplaskjólsvegur 100 fm. 4ra herb. ibúð á 1. hæð endaibúð. Mikið skáparými. Þokkaleg og falleg íbúð Verð 1 1 millj. Útb. 8 millj. Skólastræti járnvarið timburhús á tveimur hæðum. Alls um 1 60 fm. Smyrlahraun stórglæsilegt endaraðhús á tveimur hæðum samtals 150 fm. auk 40 fm. bílskúrs. Teppi Harðviðainnréttingar. Verð 19 millj. Víðihvammur 3ja herb. 90 fm. sér hæð í þribýlishúsi. Verð 8.5 millj. Útb. 5.5 millj. » BL Þorsteinn Thorlacius viðskiptafræðingur flfdfCP fasteignasaia Solumaður Öldugötu 8 Finnur Karlsson heimasimi 434 70 Lsímar: 28644 : 28645 'j I bákninu Nína Björk Árnadóttir: MÍN VEGNA OG ÞÍN. Kápa og myndskreytingar: Val- geður Bergsdóttir. Heimskringla 1977. Min vegna og þín skiptist í tvo kafla: Söng í fjallinu og Á vistinni. Það eru einkum bernsku- minningar sem Nína Björk yrk- ir um í fyrri kaflanum. í sveit- inni var allt gaman og gott að þreytast: „Dagarnir liðu með heitum niði“. En sú þreyta sem nú er komin til sögu nefnist „nútímaþreyta" og enginn afi til bjargar. í Söng í fjallinu er lýst veröld afa og ömmu, þjóð- trúnni, verum „myrkursins — þokunnar og huliðsljóssins“. Í fjallinu söng „undarleg rödd“, en sá sem sér ljósið í bænum villist ekki. Svo tekur annar bær við með stelpum sem „áttu dúkkuhús og stóra skíðasleða/ ég átti leggi og var rauðhærð". I Skoðunum er ort um þá sem „mynduðu sér skoðanir/ voru duglegir/ að finna/ einustu/ einu/ réttu hlið mála“. Skáldið horfir einarðlega í augu þeirra „án þess að láta uppi/ flöktandi hugsanir". Án þess að hafa tileinkað sér „þróttmiklar skoðanir" eins og ort er um í Skoðunum birtist gagnrýni Nínu Bjarkar á sam- tímann í síðari kafla bókarinn- ar. í Söng í fjallinu eru ekki nema níu ljóð, þau eru aftur á móti tuttutu og fjögur í Á vist- inni. Flest ljóðanna munu ort í Kaupmannahöfn. Gegn tauga- veiklun stórborgarlifsins er stefnt heiðum, fjöllum og foss- um bernskunnar sem þó megi sín lítils. í staðinn fyrir sak- lausan beyg við hið óþekkta í landslagi bernskunnar hefur óttinn sest að og lifsgæðakapp- hlaupið hefur tekið við því sem áður hét að hlaupa út i sólina. í Á vistinni er ort um fólk sem Nína Björk Árnadóttir beðið hefur ósigur fyrir kröfum velferðarinnar og það ljós sem lýsir þar er „eiturmengað". Ljóðunum er ætlað það hlut- verk að hjálpa. Bent er á sígild mannleg verðmæti í þeirri von að þau séu einhvers virði f tæknivæddum og ópersónuleg- Bókmenntlr eftir JÓH ANN HJÁLMARSSON um heimi. Hönd sína „ívið fátæklega og litla“ sendir skáldið þeirri hendi sem er sár og hrædd. Hún hlýtur í raun að vera sterk því að „hún hefur bifað mörgum undarlegum ár- um“. Sögnin bifa á einkar vel við á þessum stað. Ljóð Nínu Bjarkar eru yfir- leitt ljóðræn gædd mjúkri hrynjandi og byggja oft á endurtekningum. Málið er ein- falt, stundum barnslegt. En í ljóðum eins og til dæmis Hvísl- að í gegnum skráargat og Með vísnasöng gera yrkisefnin það að verkum að Ijóðin verða prósaisk. Þetta veikir sjður en svo heildarmynd bókarinnar, dýpkar hana fremur en hitt. Mín vegna og þín er samfelld bók, greinilega vel unnin. Ljóð- unum er ekki sleppt lausum fyrr en þau hafa fengið varan- legt form. Vandvirkni Nínu Bjarkar er áður kunn. Ljóð hennar eru agaðir söngvar. Yrkisefnin geta stundum virst smá. En það sem kemur I stað- inn eru listræn tök á orðum og myndum. Stutt ljóð eins og Sjálfsmynd leynir til dæmis á sér: Hjartad í mér er fugl vestur í F'latey livernig ættir þú margslungna manneskja að geta skilið það Min vegna og þin likist öðr- um ljóðabókum Nínu Bjarkar. Ljóð hennar eru mörg tilbrigði við sama stef. Þó verður það ekki sagt með neinni sanngirni að Nina Björk standi í stað. Yrkisefni hennar verða fjöl- breyttari og henni vex ásmegin f túlkun þeirra. Mér kemur í hug ljóð eins og Leiðin okkar þar sem trúarleg kennd bland- ast eftirsjá bernskunnar. Ljóð- ið hefst svona: Ég er viss um að þeir byrla þér eitur á gæslubásnum þó fer ég þangað með þig á hverjum degi Jesús dreg þig yfir heita teinana við hendumst inn í neðanjarðarófreskjurnar járntröppur æða á móti okkur og henda okkur áfram þetta er leiðin okkar þú átt að læra að bölva syngja og bjarga þér ég á að vera búin að læra þetta Hér er birt sú niðurstaða að „mökkur sem kæfir ljósbirtu daganna/ erum við orðin Jesús“. Sá heimur sem Nina Björk lýsir er líkt og veitinga- staðurinn í samnefndu ljóði. í honum er bannað að hlæja og bannað að gráta. Báknið er heiti á öðru ljóði, táknrænt nafn fyrir bókina. í Mín vegna og þín eru nokkr- ar myndir eftir Valgerði Bergs- dóttur trúar efninu. Grafík & í Gallerí Fjórar ungar súlkur, sem allar eru að ljúka námi í mynd- list og keramik, hafa sett saman sýningu á verkum sínum i Gallerí Sólon íslandus. Þær nefna sýningu sína Grafík & keramik, og má af titli þessum ráða, hvað til sýnis er. Það eru 63 verk á þessari sýningu og ætti þess vegna að vera hægur vandi að gera sér grein fyrir, hvar hver og ein af þessum ungu listakonum er á vegi stödd í listsköpun sinni. Þetta er snurðulaus sýning i fljótu bragði séð, sem hefur fáa hor- titti, en það verður heldur ekki sagt með sanni, að þar sé að finna mögnuð listaverk. Það er einnig nokkur skólabragur á þessum vinnubrögðum, en er hægt að búast við öðru? Þetta er ekki venjuleg nemendasýn- ing eins og maður er vanur að sjá á hverju vori hjá Myndlista- og handiðaskólanum og mér finnst þetta skemmtilegt og virðingarvert framtak hjá þessum ungu konum. Þótt grafik sé aðaluppistaða keramik Sólon þessarar sýningar, eru listakon- urnar það ólíkar að eðlisfari, að hver þeirra hefur sinn svip, og er það ágætt, að slikt skuli þegar koma fram. Þær hafa sem sagt þegar byrjað að mót- ast sem einstaklingar í list sinni. Góðs viti hjá svo ungum listakonum. Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON INGA S. RAGNARSDÓTTIR er sú af þessum listakonum, sem stundar keramík. Hún á þarna nokkra hluti, sem eru látlausir í sniði, og jarðlitirnir njóta sín vel í verkum hennar. Þokkaleg vinnubrögð, en ekki sérlega frumleg. JENNV E. GUÐMUNDSDÓTTIR sýnir 15 grafísk verk. Hún hefir næma tilfinningu fyrir grafiskum tónum, er koma vel fram i æt- ingum hennar. Ballettskórnir nr. 25 er mynd, sem ég rrtan eftir, og einnig gleymir maður ekki myndröð, er Iistakonan nefnir Bolur A, B, og C. JÖNÍNA L. EINARSDÓTTIR á þarna aðlaðandi ætingar, og sérstaklega þótti mér skemmti- legt silkiþrykk hennar nr. 15, Hvít blóm. SIGRUN ELDJÁRN hefur ef til vill meiri tilhneigingu til að beita vissri ádeilu í verkum sín- um en hinar listakonurnar á þessari sýningu. Hún sýnir myndröð af sjálfri sér í sól, í regni og i kulda; skemmtileg hugdetta, en að mínu áliti tekst henni best í nr. 43, í lófa, sem er snoturt silkiþrykk. Allar þessar ungu konur, sem hér sýna grafík, stunda ætingar og silkiþrykk jöfnum höndum og og tvær þeirra ennfremur dúkskurð. Þær hafa á þessari sýningu allar sama fjölda verka, eða 15 verk hver. í heild er þetta snotur sýning, sem gefur góðar vonir. Hér eru á ferð framsæknir nemendur, sem eru að byrja feril sinnn sem sjálfstæðir einstaklingar í listinni. Ég óska þessum lista- konum til hamingju með þessa sýningu þeirra I Gallerí Sólon íslandurs ög vonast til, að þær eigi eftir að sanna ágæti listar sinnar á komandi árum. Eigendur gamalla bíla stofna klúbb Nýlega komu saman f Reykja- vík nokkrir eigendur gamalia bfla til þess að ræða sameiginleg áhugamál. Var ákveðið að stofna klúbb eigenda gamalla bíla. Til- gangur klúbbsins á að vera: 1. Að vekja áhuga og skilning á gömlum bílum, varðveislu þeirra og minjagildi. , 2. Útvega aðstöðu til geymslu og viðgerða. 3. Öflun varahluta. Klúbbmeðlimir hafa mikinn áhuga á að halda sýningu einu sinni á ári fyrir almenning og þá hugsanlega uppboð á gömlum bíl- um í tengslum við það. Ákveðið var að halda formlegan stofnfund klúbbsins fimmtudag- inn þann 19. maí (uppstigningar- dag) að Eiríksgötu 5, Templara- höllinni, II hæð. Þangað eru allir velkomnir sem áhuga hafa á að gerast meðliTnir og eiga eldri bíla en 20 ára, einnig aðrir sem sérstakan áhuga hafa á gömlum bilum. Gert er ráð fyrir að þetta verði landsklúbbur, þannig að áhuga- fólk hvaðanæva að af landinu er velkomið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.