Morgunblaðið - 12.05.1977, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1977
Kjartan Hreinn
Pálsson —Minning
F. 24.1 1938.
D. 2.4 1977.
Kjartan Hreinn Pálsson fæddist
í Bólstað, Hvammshreppi, á heim-
ili ömmu sinnar, Hugborgar Run-
ólfsdóttur, 24. janúar 1938. For-
eldrar hans eru Sigurbjörg Böð-
varsdóttir frá Bólstað og Páll
Valdason frá Skógum undir Eyja-
fjöllum. Um sumarið það sama ár
fluttist Sigurbjörg með Hrein til
Vestmannaeyja og gerðist ráðs-
kona hjá Gunnari Kristberg Sig-
urðssyni á Hvítingavegi 12 þar í
bæ. Giftist Gunnar móður hans
skömmu siðar og reyndist hann
Hreini hinn besti faðir. Eina syst-
ur eignaðist Hreinn, Guðlaugu
Gunnarsdóttur, og var alla tíð
mjög kært með þeim systkinum.
Við Hreinn vorum systrasynir. Á
æskuárum okkar var það alsiða,
að börnum var komið i sveit til
sumardvalar. Við Hreinn áttum
þvi láni að fagna að alast upp 7
sumur saman í Bólstað hjá ömmu
okkar, 3 móðurbræðrum og einni
móðursystur. Hjá því góða fólki,
er þar bjó, með bæinn sinn í fögru
umhverfi, fjöll á alla vegu, áin við
túnfótinn og Heiðarvatn klukku-
stundargang norðan Arnarstakks-
heiðar. Þetta er umhverfið, sem
við ungir sveinar nutum, og þang-
að röktum við jafnan flestar dýr-
mætustu stundir æsku vorrar.
Hjá þessu góða fólki fengum við
að kynnast og verða þátttakendur
í öllum störfum hins heilbrigða
sveitalífs eftir því sem aldur okk-
ar og kraftur dugðu til verkefna.
Aldrei skorti okkur Hrein tæki-
færi til að eyða tómstundum okk-
ar. Tækifærin voru nóg, Kerlinga-
dalsá rann við túnfótinn, í hana
rann fjöldi smálækja, og þar sem
lækirnir renna í jökulvatnið voru
kjörnir veiðistaðir lítilla veiði-
manna, og sjaldan brást að hinir
ungu sveinar fengju einhvern
afla, og mikil var gleðin hjá þeim,
þótt ekki væri alltaf stærðinni
fyrir að fara. Seint í ágúst byrjaði
svo fýlatíminn, þá hófst keppni
okkar við strákana á næstu bæj-
um við að ná sem flestum þeirra
fýlsunga, er flutu fram ána. Sein-
ustu sumrin fengum við svo að
síga i auðveldustu klettanefin,
eftir fugli, og var það hápunktur
veiðimennskunnar. Þá voru okk-
ur drengjunum ógleymanlegar
ferðirnar upp á Heiðarvatn með
Sigurjóni heitnum frænda okkar
til veiða í lagnet eða á spún. Þá
lærðum við einnig áralagið undir
handleiðslu hans. Mér er nær að
halda, að þessi veiðiskapur, þótt í
smáum stíl væri, hafi verið upp-
hafið að ævistarfi frænda míns,
en hann helgaði sjómennsku og
veiðiskap allt sitt lifsstarf eftir að
honum óx fiskur um hrygg. Um
fermingaraldur skildu svo leiðir
okkar frændanna. Ég fór á strand-
ferðaskip og síðan í siglingar en
hann fór á fiskiskipin. Liðu því
oft mörg ár án þess að við hitt
umst. Sjómennsku sína byrjað
Hreinn 15 ára gamall með Sigurð
ögmundssyni frá Litla-landi á ís
leifi (gamla), 30 tonna báti Ár-
sæls Sveinssonar, árið 1954. Með
— Orkumál
Framhald af bls. 12.
rúm fyrir meiri fjölbreytni. Ný-
lega stofnuðu 34 aðilar hluta-
félag í þeim tilgangi að salta
síld og verka og verzla með
síldarafurðir, og er fyrirhugað
að söltun hefjist í haust. Virð-
ast Hafnarbúar hlynntir þessu
fyrirtæki. Sökum fjármagns-
skorts hafa hluthafar sjálfir
unnið við uppslátt á grunni og
steypuframkvæmdum, en ein-
mitt önnur steypan verður
steypt á morgun. Þetta fyrir-
tæki er komið á góðan rekspöl,
en enn sem komið er hefur það
þó ekki notið alltof góðrar
undirtektar Landsbankans á
Höfn sem er eina peningastofn-
un staðarins. Þetta nýja fyrir-
tæki, s/em heitir Stemma hf.,
hefur þó nú þegar keypt stál-
grindarhús sem með innrétting-
um kostar um 50 milljónir
króna.“
Sigurði var Hreinn um 6 ára
skeið. Fékk hann sér vélstjóra-
réttindi og var vélstjóri til ævi-
loka. Af ísleifi fór Hreinn á ísleif
III, og var þar með Sigurði, uns
Sigurður lét af skipstjórn með
þann bát. Talaði Hreinn alltaf af
hlýjum hug og taldi það mikið lán
að hafa byrjað sína sjómennsku
með honum. Um tveggja ára skeið
vann Hreinn í landi, meðan hann
var að jafna sig eftir erfiðan upp-
skurð. Vann hann þá hjá vél-
smiðjunni Magna, þjónustufyrir-
tæki fyrir bátaflota Eyjamanna.
Má þvi segja að Hreinn hafi aldr-
ei yfirgefið þar starf, sem hann
valdi sér. Árið 1961 fór Hreinn
yfir á ísleif IV og gerðist vélstjóri
hjá mági sínum, Jóni Valgarð
Guðjónssyni. ísleifur IV er mikið
aflaskip og hrepptu þeir þann titil
að verða bæði aflahæstir og svo
oft að vera það nærri toppnum, að
jafnvel seinasti róður skar úr um
topp og næstu sætin. Siðar fylgdi
Hreinn mági sínum á nýtt og
glæst skip, Gunnar Jónsson, smíð-
að á Akureyri. Áttu þeir Valgarð
og Einar Sigurðsson það skip að
hálfu hvor. Á siðast liðnu ári slitu
Valgarð og Einar sameign sinni
og keypti Valgarð ásamt Sigurði
Georgssyni stórt og vandað skip,
Lárus Sveinsson, er síðan fékk
nafnið Gunnar Jónsson; þar var
Hreinn heitinn til dauðadags. Það
mun sjaldgæft nú til dags, að sjó-
menn skipti ekki oftar um skip-
rúm en 4—5 sinnum á rúmum 20
árum. Segir það og sýnir meira en
mörg orð, hversu vel hann þjón-
aði húsbændum sinum, og þá ekki
síst mági sínum, er hann þjónaði
liðlega helming starfsævi sinnar
til sjós. Um vélstjórn hans segja
mér kunnugir, að þar hafi öil um-
hirða verið til fyrirmyndar, og
smiðjumenn vart sést, er hann
hafði vélgæslu á hendi.
Á jóladag 1961 hófst mikið ham-
ingjutímabil í lífi Hreins heitins,
en þá gekk hann að eiga eftirlif-
andi konu sína, Halldóru Jó-
hannsdóttur frá Eyrarbakka.
Reyndist hún Hreini hin ágætasta
eiginkona. Þau eignuðust 3 börn;
Jónínu Hugborgu, fædda 15.12
1963, Sigurbjorn Snævar, fæddan
5.1 1969, og Jóhann Bjarna, fædd-
an 12.1 1976.
Árið 1959 fluttist ég með fjöl-
skyldu mina til Eyja, og má því
segja að við höfum hitzt að nýju
eftir 10 ára aðskilnað.
Áttum við ótaldar ánægju
stundir á heimilum hvor annars,
uns „eldgosið" tvístraði Vest-
mannaeyingum vítt og breitt um
landið. Á Selfossi var Hreinn heit-
inn búinn að koma sér vel fyrir
með fjölskyldu sina i nýju húsi og
allt virtist bjart og glæst fram-
undan, þegar kallið kom.
Hreinn var jarðsettur á Selfossi
hinn 15. apríl að viðstöddu miklu
fjölmenni. Margir voru langt að
komnir til að fylgja honum sein-
asta spölinn. Sýnir það best vin-
áttutengsl hans við samferða-
menn sina.
Með þessum fátæklegu orðum
þakka ég og fjölskylda mín
frænda mínum fyrir samfylgdina.
Jafnframt votta ég og fjöl-
skylda mín konu hans, börnum,
og aðstandendum þeirra okkar
innilegustu samúðaróskir.
Sigurbjörn Guðmundsson.
Ingibjörg Pálmadótt-
ir — Minningarorð
Fædd 31. des. 1884
Dáin 10. febr. 1977.
Þó þetta sé orðin nokkuð síð-
búin kveðja langar mig samt til
með nokkrum orðum að minnast
Ingibjargar Pálmadóttur, sem
andaðist 10. febrúar síðast liðinn
á Elliheimilinu Grund. Ingibjörg
var 93 ára er hún lést og víst má
segja að það hafi verið kominn
dagur að kvöldi.
Leiðir okkar Ingibjargar lágu
fyrst saman fyrir rúmum fjórum
áratugum. Urðum við fljótt sam-
rýmdar og góðar vinkonur. Vil ég
því nú þakka alla tryggð og vin-
áttu og allar þær mörgu samveru-
stundir sem við áttum saman, og
ég mun geyma hjá mér.
Ingibjörg giftist aldrei og vann
því alltaf fyrir sér sjálf. Hún var
alla tíð mjög sjálfstæð t' öllu og
trú í því sem henni var trúað
fyrir. Hún vildi sem minnst
þiggja af öðrum, en hafði þeim
mun meiri ánægju af því að
gleðja aðra. Ingibjörg var mjög
trúuð kona og lifði í einlægu
trausti á Guð sinn og frelsara,
sem sagði: „Ég fer á undan ykkur
að búa ykkur stað, því hver sem á
mig trúir mun lifa þótt hann
deyi.“
Kveð ég nú kæra vinkonu með
hjartans þökk fyrir allt og allt. Ég
bið Guð að varðveita sál hennar
og leiða hana yfir móðúna miklu
inn i riki sitt, þangað sem hún var
búin að þrá og hlakka til að kom-
ast. Þar munum við hittast síðar.
Guð blessi hana. Hennar vin-
kona,
Guðbjörg Guðnadóttir.
“■■■^■■■■■■■■■^
Gardabær
Sími afgreiðslunnar í
Garðabæ er
44146 og 10100
fltargmifylðfcifc
27
—Broddur fram-
úrstefnunnar
Framhald af bls. 25
um, og verður þá raftónlistin að
teljast utan þess sviðs.
Til þess eru þrjár ástæður.
í fyrsta lagi eru mörg raftón-
verk annað hvort fyrirframákveð-
in eða tilviljun háð, og hafa þeim
þegar verið gerð skil hér. Þau
verk sem þá eru eftir eru slík
samsuða af rómantík og hermi-
tónlist, af tilraunum með hávaða
og sinustóna, að um listræna
möguleika verður'ekki dæmt af
neinni skynsemi, slíkt verður ein-
ber tilgáta.
í öðru lagi hefur raftónlist ekki
enn verið tónfræðilega skil-
greind, tæknilegum möguleikum
ekki enn verið skipað í kerfi', og
því verður fræðilegt mat að biða
framtiðarinnar.
Loks leiðir af þessu, að enn um
sinn verður hljómbandið (og þeir
möguleikar sem það veitir) að
teljast hljóðfæri hliðstætt manns-
röddinni, orgeli, fiðlu eða xýlófón
fremur en ný tónlistarstefna. Um
það má deila, hvort mótuð verði
hrein raftónlist, sem þróist á sinn
hátt og fylgi eigin lögum. Ég fyrir
mitt leyti tel það sennilegt, án
þess þó að ég geti séð fyrir, hvort
raftónlist muni leysa af hólmi
söng og hljóðfæratónlist, hvort
þessar þrjár greinar verði ein-
hvern tíma jafnréttháar, eða
hvort raftónlist og umhverfis-
hljóðlist verði aðeins áhrifaauki i
■
■
■
■
■
■
véla
pakkningar
Ford 4-6-8 strokka benzín og diesel vélar Opel
Austin Mini Peugout
Bedtord Pontiac
B.M.W. Rambler
Buick Range Rover
Chevrolet Renault
4-6-8 strokka Saab
Chrysler Scania Vabis
Citroen Scout
Datsun benzin Simca
og díesel Sunbeam
Dodge — Plymouth Tékkneskar
IFiat
Lada — Moskvitch
Landrover
benzín og díesel
Mazda
Mercedes Benz
benzin og díesel
bifreiðar
Toyota
Vauxhall
Volga
Volkswagen
Volvo benzin
og diesel
I
ÞJÓNSSON&CO
Skeifan 17 s. 84515 — 84516
kvikmyndum, leikritum og öðrum
skyldum greinum
— 0 —
Hér skal ekki allt til tekið, sem
gæti bent til þess, að um miðja
þessa öld (með aðdraganda sfð-
ustu fimmtíu ára) séu tfmahvörf
svipað þvf sem endurreisnin var.
Ekki skal heldur sagt neitt um
framtíðarhorfur f tónlistinni, það
verður eftirlátið öðrum og meiri
spádómsmönnum. Ilér skal ein-
ungis bent á, að framvindan nú er
hliðstæð ýmsu sem áður hefur
gerst f sögu evrópskrar tónlistar.
Séð f þvf ljósi munu aðeins mjög
fá framúrstefnutónskáld lifa
áfram. Þau hafa átt og eiga hlút-
verki að gegna sem ómissandi
hlekkur f framvindunni, hvað
sem á eftir kann að fara. Þau hafa
— svo að notuð sé sama mynd og
áður — plægt jörðina og sáð til
þess, sem raunveruleg tónskáld
munu uppskera sfðar. Tónverk
þeirra sjálfra, fjölmargar athug-
anir og tónsmfðatilraunir falla í
glevmsku að fáum undanskild-
um. Öfgafyllstu verkin verða tek-
in sem dæmi um athyglisverð eða
kjánaleg tfskufyrirbæri.
Að vísu veit enginn enn sem
komið er, hvað er f raun og veru
kjánalegt, þvf að stundum getur
jafnvel f því kjánalegasta leynst
neisti sannrar listar — ekki þar
með sagt að sönn list þurfi að
vera sprottin af kjánaskap. En
brautryðjendastarf framúr-
stefnumanna hefur nú sem fyrr
fengið tónskáldinu unga nýjan
efnivið til að vinna úr. Hann hirð-
ir ekki um annað en það sem
nýtilegt er, og með yfirburðum
listamannsins tileinkar hann sér
og notar nákvæmlega það, sem
kemur að gagni tónverkinu, sem
er að mótast í huga hans. Hann
safnar sundurlausum einingum
saman í heild, spyr hvorki um
orsök né uppruna, en lyftir þeim
upp í hæðir listarinnar, gerir þær
að tónlist.
En þá er framúrstefnufylking-
in síung og eilff þegar á leiðinni.
- Seljum—
reyktan lax
og gravlax
Tökum lax í reykingu
og útbúum gravlax.
Kaupum einnig lax
til reykingar.
Sendum i póstkrötu —
Vakúm pakkað et óskað er.
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4-6,
Hafnarlirði Simi: 51455
Þarf
aldrei
KORATRON