Morgunblaðið - 15.05.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1977
Reikningar Ríkisútvarpsins fyrir 1975;
Hagnaður af hljóðvarpi
— tap af sjónvarpi
ÁRSSKVRSLA Rfkisútvarpsins
fyrir árið 1976 er komin út og eru
I henni birtir rekstursreikningar
yfir hljóðvarp og sjðnvarp fyrir
árið 1975 með samanburðartölum
frá árinu 1974. Stmkvæmt þeim
hefur orðið hagnaður af rekstri
hljóðvarps, sem nemur 17,3
milljónum króna, en tap á rekstri
sjónvarpsins nemur 76,5 milljón-
um króna. Hafði tapið á rekstri
sjónvarpsins minnkað nokkuð frá
fyrra ári, er það var 93,3 milljón-
ir. Hins vegar var tap á rekstri
hljóðvarps á fyrra ári 26,9
milljónir króna.
í formála að reikningunum seg-
ir að milli þessara ára hafi heild-
artekjur hljóðvarps hækkað um
45,8%, en útgjöldin um 27,3%.
Rekstrarafkoma hljóðvarpsins
varð því betri en árið áður eins og
áður segir. Laun hækkuðu um
20%, almennur dagskrárkostnað-
ur um 30,8%, önnur dagskrár-
gjöld að afskriftum frátöldum
hækkuðu um 29,9% og rekstur
dreifikerfis um 15,1%.
Heildartekjur sjónvarpsins
hækkuðu um 60,7% frá árinu á
undan, en útgjöldin um 44,8%.
Framhald á bls. 25
Tónleikar Kvennakórs Suðurnesja
ÞRIÐJUDAGINN 17. maí heldur
Kvennakór Suðurnesja tónleika í
Félagsbíói í Keflavík og verða
þeir endurteknir miðvikudag 18.
maí og hefjast þeir bæði kvöldin
kl. 21. Söngstjóri er Herbert H.
Ágústsson og píanóundirleik ann-
ast Ragnheiður Skúladóttir. Á
slagverk leikur Oddur Björnsson,
Eugen Pravda á kontrabassa,
Hrönn Sigmundsdóttir á
harmóniku og Sigríður Þorsteins-
dóttir á gítar. Á efnisskrá eru
innlend og erlend lög eftir Sigfús
Halldórsson, Jón Þórarinsson, lög
úr Fiðlaranum á þakinu og syrpa
af þjóðlögum og dönsum í útsetn-
ingu Herberts H. Ágústssonar.
Kvennakór Suðurnesja ásamt st jórnanda.
Hólaborg, nýr leikskóli í
Breiðholti tekur til starfa
NVR leikskóli, Hólaborg, tók
til starfa við Suðurtióla 1 Breið-
holti I vikunni. Getur skólinn
tekið við 114 börnum þegar
hann verður fullskipaður, að
sögn Sveins Ragnarssonar, fé-
lagsmálast jóra Reykjavíkur-
borgar. t sumar tekur einnig til
starfa leikskóli f Seljahverfi f
Breiðholti, og hann mun taka
við 114 börnum.
„Þegar báðir skólarnir eru
teknir til starfa með 228 börn-
um höfum við tekið kúfinn af
þeim biðlistum sem fyrir lágu
um dvöl á leikskólum,“ sagði
Sveinn Ragnarsson. En hann
bætti þvi við að áframhaldandi
þörf væri á dagheimilum og
myndi ekki rætast úr í þeim
efnum á þessu ári, nema hvað
stefnt væri að því að skóladag-
heimili tæki til starfa í haust.
Forstöðukona Hólaborgar er
Lilja Torp. Hún og aðrir starfs-
menn leikskólans hafa tekið
börnin smám saman inn í skól-
ann því ekki þykir heppilegt að
taka öll börnin inn í einu. Skól-
inn er fullbúinn að því frátöldu
þó, að einhver frágangur er
ennþá eftir á lóð.
„Það er fiskað ef borgað
er fyrir aflann 1 landi”
Rætt við Markús Guðmundsson
eftirlitsmann á skuttogaraveiðum
„TILGANGURINN með eftir-
litinu um borð f skuttogurun-
um er að fyrirbyggja of míkið
smáfiskadráp og að riðillinn sé
réttur," sagði Markús Guð-
mundsson skipstjóri og eftir-
litsmaður sjávarútvegsráðu-
neytisins og Hafrannsókna-
stofnunarinnar i samtali við
Mbl., en Markús er einn af 4
eftirlitsmönnum með veiðum
togaranna og von er á þeim
fimmta til starfa innan tíðar.
Lög um eftirlitið gera hins veg-
ar ráð fyrir 10 eftirlitsmönn-
um, en samkvæmt upplýsing-
um Markúsar vantar fjármagn
1 þá útgerð. Markús hefur um
áratugaskeið verið f hópi kunn-
ustu togaraskipstjóra landsins,
en sfðan s.l. haust hefur hann
gegnt starfi eftirlitsmanns eða
eins og hann sagði brosandi:
„Nú er ég svipan á þá stétt sem
ég tilheyrði f 27 ár, skipstjór-
ana.“
„Þungamiðjan í stöðunni í
dag,“ sagði Markús, „er smá-
fiskurinn. Ég var alinn upp við
það að það fékkst svo smár fisk-
ur að hann var ekki nýtanlegur,
en það heyrir til undantekn-
inga í dag ef henda þarf svo
rtemi einhverju af þorski úr
afla. Það er hins vegar ekki
hægt að neita og horfa fram hjá
því að stundum er óæskilega
mikið af ungfiski í aflanum,
fiski sem Hafrannsóknastofn-
unin telur ekki skynsamlegt að
drepa. Þá grípum við eftirlits-
mennirnir inn í með leyfi ráðu-
neytisíns. Þessi vandamál eru
aðallega fyrir vestan og norðan,
en Suðurlandsmiðin eru að
detta út sem veiðisvæði fyrir
togarana. Þeim er vísað á mið
þar sem smærri fiskur er, en að
sjálfsögðu er þó ekki aðeins
smáfiskur þar, hann er bland-
aður. Það er ekki bara stundað
smáfiskadráp.
Það er hins vegar staðreynd
að millifiskurinn, 55—70 sm, er
orðinn stærri hluti af aflanum
en hann var og það er lítið af
hrygningarfiski . i þeim afla.
Þessi aflahlutaaukning er þó
fyrst og fremst á kostnað stærri
fisksins. Mér finnst vanta í
þetta þorsk eins og við Sunn-
lendingar köllum ákveðna
Markús Guðmundsson
stærð af þorski en sömu stærð
kalla Norðlendingar stórþorsk.
í þeim 5 túrum sem ég hef
farið á skuttogurum í eftirlits-
ferðir sfðan i október hefur orð-
ið úrkast úr einum túr. Það var
norður af Horni í janúar, en þa
fór H—14 hluti aflans í úrkast
vegna smæðar, en þegar það
kom 1 ljós var svæðinu lokað
samstundis. Ef fiskur undir 58
sm fer yfir 40% aflans þá er
óæskilegt að halda áfram veið-
um á sama stað. í þessum um-
rædda túr við Horn varð allt að
70% af aflanum undir 55 sm.
Þetta var 1 lok aflahrotunnar
sem hafði staðið þar yfir undan-
farnar vikur en þann tíma voru
eftirlitsmenn í fríi.
Það er ekki hægt að líta fram
hjá þvl að það þarf eftirlit til
þess að stjórnun sé á þessu,
annars er ekki tekið af skarið.
Þess ber einnig aú gæta i um-
ræðum um þessi mál að menn
eru mjög viðkvæmir og ég
þekki það t.d. að togaraskip-
stjórum þykir oft á tiðum að
það sé alltaf verið að sneiða að
þeim og réttlætinu sé ekki full-
nægt í gagnrýni með því einu
saman. Klögumál vilja því
ganga á vixl og þvi verða að
koma fram ákveðin atriði til
þess að unnt sé að friðmælast.
Klagað er yfir smáfiskadrápi
skuttogaranna, netafjölda neta-
bátanna o.s.frv. Það stingur
einnig í stúf ef Iokað er t.d.
fyrir botnvörpuna á ákveðnu
veiðisvæði, ef öðru veiðarfæri
er hleypt inn. Þótt lína sé t.d.
talin með ,,heilbrigðari“ veiðar-
færum þá tekur hún einnig
smáfiskinn.
Á fleiri atriði er einnig að líta
I þessu sambandi. Þegar verið
er að friða hrygningarsvæði
eins og á Selvogsbanka er þess
að gæta að fiskurinn hrygnir
aðeins á bankanum. Miklu
stærra svæði er hins vegar lok-
að og kanturinn frá Eyjum og
vestur á Tá allt undir Grinda-
víkurdýpi, er lokaður af póli-
tískum ástæðum fyrir togurun-
um. Þar gátu togarar gert góða
túra I marz og fyrri hluta apríl í
ufsa, karfa ýsu og þorskbland-
að.
Nú er þarna pólitfsk lokun,
en slikum ráðstöfunum eiga
ráðamenn ekki að standa fyrir,
Framhald á bls. 25
Pólýnfónkórinn efnir til
fjölbreyttrar skemmtun-
ar í tilefni Ítalíuferðar
PÓLÝFÓNKÓRINN vinnur nú að
undirbúningi hljómleikaferðar
til ttalfu f júni n.k. t för sinni
kemur kórinn fram f 7 borgum á
Italfu en með f förinni verður
stækkuð Kammersveit Reykja-
vfkur og einleikarar verða Rut og
Marfa Ingólfsdætur á fiðlu og
Lárus Sveinsson á trompet. Þátt-
takendur f förinni verða um 180
og er það fjölmennasta hljóm-
leikaferð tslendinga til útlanda
en för þessi verður ekki studd af
opinberu fé, að því er segir f frétt
frá Pólýfónkórnum. Til að afla
fjár til ferðarinnar efnir Pólýfón-
kórinn til skemmtunar á Hótel
Sögu á uppstigningardag, 19. maí.
Á skemmtuninni flytur kórinn
vinsæi veraldleg lög, fslenzk og
erlend, flest alkunn, og gefst gest-
um kostur á að taka undir með
kórnum undir stjórn Ingólfs Guð-
brandssonar f nokkrum þeirra.
Fjölmargt annað verður til
skemmtunar, en hófið hefst með
veizlukvöldverði kl. 19.00 og mun
franskur matreiðslumeistari sjá
um matseldina. Veizlustjóri verð-
ur Bjarni Bragi Jónsson hag-
fræðingur. Meðan á bor^haldi
stendur leika félagar úr Kammer-
sveit Reykjavíkur tónverk eftir
Schubert og er Gunnar Egilsson
einleikari á klarinett. Þá verður
tfzkusýning, þar sem Módelsam-
tökin sýna glæsilegan tfzkufatn-
að, vor, sumar- og baðfatatizkuna.
Félagar úr Þjóðdansafél. Reykja-
víkur sýna ftalska dansa.
Pólýfónkórinn á mörgu ágætu
söngfólki á að skipa, sem einnig
kemur fram með fjölbreytta efn-
isskrá f einsöngshlutverkum.
Ingibjörg Marteinsdóttir, Hákon
Oddgeirsson, Halldór Vilhelms-
son, Hjálmtýr Hjálmtýsson og Jó-
hanna Sveinsdóttir syngja ein-
söng, vinsæl þjóðlög, ljóð og
óperuarfur. Blásarar úr Sinfóníu-
hljómsveitinni leika létta tónlist
undir forystu Lárusar Sveinsson-
ar og Ómar Ragnarsson flytur
gamanþátt. Inn á milli skemmti-
atriða leika hljómsveit Ragnars
Bjarnasomr og Lúdó fyrir dansi
til kl. 2 e. miðnætti.
Þá fer fram bingó og verða
vinningar í þvf þrjár sólarlanda-
ferðir en auk þess verður ókeypis
happdrætti, sem allir gestir fá
miða f og er vinningurinn ítaliu-
ferð fyrir tvo með aðgöngumiðum
að hljómleikum Pólýfónkórsins I
Markúsarkirkjunni í Feneyjum
29. júní n.k.