Morgunblaðið - 15.05.1977, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.05.1977, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1977 25 — Skák Framhald af bls. 21 — Rxd3 25. Hdl — Db5 26. Bg5 — Bxg5 27. hxg5 — Df5 28. Hd2 — Hd4 29. Dc2 bættari meö 30. g4 — Dd7 þar eð svartur hótar þá 31. ... h3 og 32. . . . Hxg4 + ) Dh3 31. Dc6 — Hxh4 32. Dg2 — Df5 33. Dg3 — Hd4 34. g6 — fxg6 35. De3 — Hd5 36. Rfl — Rf4 37. Dxf4? (Undarlegur leikur, miklu meiri mótstöðu veitti 37. Hxd5 ) Dxf4 38. Hxd5 — Dg4+ 39. Rg3 — Dc4 40. Hd8 + — Kh7 41. b3 — Dc2 42. Kg2 — g5 43. Hd6 — Dxa2 44. Re4 — Da5 (Auð- vitað ekki 44. ... Dxb3?? 45. Rxg5+ og mátar) 45. Kf3 — Df5+ 46. Ke3 — Db5 47. Kd4 — g4 48. Ke3 — Dxb3+ 49. Kf4 — Df3+ 50. Ke5 — Df8 51. Rg5 + — Kg8 52. Re4 — b5 53. He6 — b4 og hér gafst hvítur upp. r — Utvarp Framhald af bls. 2 Reksturinn varð því heldur skárri, þar sem tapið varð ekki eins mikið árið 1975. Afskriftir sjónvarpsins voru 187 milljonir, laun hækkuðu um 14,5%, dag- skrárkostnaóur í heild um 28,7%, önnur rekstrargjöld af afskriftum frátöldum um 62,9% og reksturs- kostnaður tæknideildar og sviðs- myndagerðar alls um 34%. Rekst- urskostnaður dreifikerfis meir en tvöfaidaðist, nam 43,7 milljónum króna í stað 18,3 milljóna árið áður. — Það er fiskað Framhald af bls. 2 þær veikja málstað þeirra sem eru að berjast fyrir fiskvernd sem á fullan rétt á sér.“ „Hvernig hafa skipstjórar tekið eftirlitinu? „Þeir hafa tekið veiðieftirlit- inu vel að því leyti að með því er komin nokkur stjórnun á það hvenær á að fara út af veiði- svæðinu vegna óæskilegra kringumstæðna. Þótt einstaka skipstjórar vildu skera sig úr og fara út af veiðisvæði þar sem óeðlilega mikill smáfiskur er, en engin skipun hefur verið gefin út þar að lútandi, þá er það ekki gam- an fyrir einn að skera sig úr og fara út af slóðinni þar sem fisk- ur er og eiga á hættu að fá ekkert annarsstaðar þar sem borið er niður. Menn skera sig ekki úr þannig upp á það að aðrir geti haidið áfram að rót- fiska. Viðmiðunin er reyndar sú að ef skipstjóri fær borgað fyrir aflann þegar hann kemur i land, þá fer hann ekki af þvi svæði sem hann getur veitt á. Honum er ýtt út I þetta ef ekki r — I hugans leynum Framhald af bls. 15 arar bókar flestum betur. Ritið er hugvitlega samsett, röklegt og laust við málalengingar. Ég minntist á erfiðleika íslenskra fræðimanna við að koma á prent ritum af þessu tagi. Orsök: fámennið! Þegar sleppir hinum þjóðlegu fræðigreinum, bókmenntum og sögu, er borin von að gefa hér út rit á visinda- legum grundvelli er nái til al- mennings nema höfundur skrifi fyrir fjölmennari og »breiðari« hóp en sina líka. Þá kvöð þurfa hugvisindamenn stórþjóðanna ekki að taka á sig. Sá er að mínum dómi megin- kostur þessa rits að það er bæði vísindalegt og einnig tiltölulega alþýðlegt. Erlendur Jónsson er um annan fisk að ræða. Auk- ið eftirlit er það eina sem getur spilað þarna inn i og þeir skip- stjórar sem ég hef siglt með hafa sýnt góðan samstarfsvilja og reynt að aðstoða okkur við okkar störf. 2ins og málin standa í dag er ekki hægt að vera án togaranna til þess að halda við eðlilegri byggð og þar hlýtur botnvarpan að vera veiðarfærið. Markið er hins vegar það að reyna að nota botnvörpuna þannig að sem minnst af smáfiski komi í hana, en óhjákvæmilegt er að eitt- hvað komi. Það þarf að halda þessu í iágmarki með eftirliti og ákveðinni riðilsstærð. Upplýsingar fiskifræðinga hafa einnig breytt skoðun fólks í þessum efnum á undanförn- um árum og ekki sizt viðhorfi manna til sjós eftir þvi sem skipulegar hefur verið aflað vitneskju um stöðuna i þessum málum. Sjómenn eru manna fúsastir til þess að halda smá- fiskadrápinu niðri, en það þarf margt að haldast í hendur í þeim efnum og aðgerðir þurfa að vera samræmdar og ákveðn- ar.“ — Veröld- Harðstjórn Framhald af bls. 19 ANDSTAÐAN Til er lögleg stjórnarandstaða í Nicaragua og hefur eina 40 menn á þingi. Leyfir Somoza það svo sem til þess. að lýðræðismynd sé á ríkinu. En þessi stjómarandstaða er múl- bundin og sauðþæg Somoza og mun seint rísa upp á móti honum. Meira er að vænta af annarri stjómarandstöðu. Hún nefnist Frente de Liberacion Sandinista og hún á engan mann á þingi, enda ólögleg. Hún er reyndar tvlskipt, og hefur fylkingunum gengið illa að koma sér saman um baráttuaðferðir. En þetta er samt sú stjómarand- staða, sem máli skiptir. Sandinistar eiga mikil ítök úti um land. Hefur Somoza gripið til rót- tækra ráðstafana við því. Lætur hann myrða í stórum stíl sveita- menn, sem grunaðir eru um aðstoð við skæruliða. Er daglegur viðburð- ur, að einhverjir séu drepnir fyrir þessar sakir. Yfirvöld á hverjum stað taka síðan jarðir bændanna eignar- námi og munu dómarar jafnan fá bróðurpart af þeim landareignum. Ekki alls fyrir löngu var frá því sagt í Time, að fjölmargir bændur í Nicaragua hefðu verið drepnir fyrir aðstoð við skæruliða. Ég spurði kunningja minn, hvort leyft hefði verið að dreifa þessu tölublaði Time í Nicaragua. „Já, já," svaraði hann. „Somoza er nefnilega enn hræddari við Jimmy Carter en Sandinistana, ef nokkuð er. " Þess er ekki langt að minnast, að Trujillo, forseta Dominikanska lýð- veldisins, var steypt af stóli að undir- lagi CIA. Þess er ekki heldur langt að minnast, að Bandaríkjastjórn sat hjá og kom ekki til hjálpar Batista ein- ræðisherra á Kúbu, þegar Fidel Castro fór gegn honum með her og steypti honum. Það er áreiðanlegt, að ýmsir í Nicaragua gera sér vonir um það, að Bandaríkjastjóm muni hafa annan tveggja háttinn á I Nicaragua. Þykist andstæðingar Somoza mega treysta því er ólíklegt, að hann sitji í mörg ár enn. Andstæðingar Nicaraguastjómar bíða þess nú með nokkurri eftirvænt ingu, að Bandarikjaforseti skipi nýj- an sendiherra f Managua. Síðustu tveir bandarísku sendiherrarnir, þeir James Theberge og Tumer Shelton, þóttu auðsveipnari Somoza en góðu hófi gegndi Það er reyndar tákn- rænt, að myndir þeirra Sheltons og Somoza eru saman á bakhlið 20 cordóba seðlanna i Nicaragua. . . Er óvíst, að samband Nicaragua og Bandarfkjanna verði svo ástúðlegt framvegis. T.d. er hætt við þvi. að kólni nokkuð, ef Bandarfkjastjóm fer að þeirri ósk andstæðinga Somoza að taka fyrir lánin, sem hann fær úr alþjóðlegum þróunarsjóðum. . . — CHRISTOPHER ROPER. — Logsauð Framhald af bls. 1. að ná beltinu af ungfrú Hauen- stein. Þurfti að flytja hana í sjúkrahús vegna 2. og 3. stigs brunasára. Tripp var dæmdur í 100 dollara sekt og 7 daga fangelsi fyrir líkamsárás skömmu eftir atvikið á sl. ári. Engin skýring hefur verið gef- in á hvers vegna Tripp taldi nauðsynlegt að klæða heitmey sína i slikt bleti. — Óbreytt Framhald af bls. 40 trúum ríkisins myndi hafa sam- starf við nefnd, sem félagsmála- ráðuneytið hefur falið að fjalla um skiptingu verkefna og tekju- stofna milli ríkis og sveitarfélaga. „Mér finnst hæpið, að nokkurt sveitarfélag muni setja sig upp á móti óbreyttri kostnaðarskiptingu í vetur,“ sagði Magnús E. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sambands islenzkra sveitar- félaga, er Mbl. hafði samband við hann. „Hins vegar er það skoðun okkar að með fullri gildistöku grunnskólalaganna séu fallin úr gildi lög um framhaldsdeildir gagnfræðaskólanna, þannig að ekki hvíli nein skylda á sveitar- félögunum nú að halda uppi námi eftir grunnskólann.“ Hins vegar sagði Magnús, að fyrir haustið 1978 yrði að koma þessum málum á hreint og þar væri stefna sveitarfélaganna sú, að allt skólahald eftir grunnskóla yrði rikisins verkefni, en i frum- varpinu um framhaldsskólalög er stefnan sú, að allt nám milli grunnskóla og háskóla verði sam- eiginlega rekið af ríki og sveitar- félögum, þar á meðal mennta- skólar og aðrir sérskólar, sem ríkið hefur kostað að öllu leytf og mun gera í vetur samkvæmt framangreindum upplýsingum Birgis Thorlacius, ráðuneytis- stjóra. — Lyf úr blómafræi Framhald af bls. 1. var öflug hindrun gegn blóð- tappamyndun, jafnvel þótt það væri aðeins tekið i mjög litlu magni, 80 milligrömm eða svo. Tilraunir hafa fram til þessa verið gerðar í tilraunaglösum, á öpum og mönnum og hefur sami árangur náðst á öllum þessum þremur sviðum. Dr. Sim telur að efnið megi nota, sem fæðuviðbót hjá sjúkl- ingum, sem hætt er á að fái hjartablóðtappa. Þetta gæti þýtt, að mjög yrði hægt að draga úr hættu á blóðtappa án þess að sjúklingurinn þvrfti að breyta lífsvenjum sínum veru- lega hvað snertir fæðu og dag- legar athafnir. Hann gæti borð- að þann mat sem hann vildi og gert það sem hann vildí með hjálp lvfsins. Hnitmiðuð tveggja daga námskeið um arðsemi og áætlanagerð þar sem: - fjallað er um leiðir til að auka arðsemi atvinnurekstrar - byggt er á reynslu af ráðgjöf í íslensku athafnalífi - notuð er einföld og skýr framsetning - efnið kemur hvers konar atvinnurekstri að gagni dags. staður í samráði við 14.-15. maí 1977 20.-21. maí 1977 4- 5. júní 1977 Hvolsvöllur Akureyri Selfoss ísafjörður Stjórnunarfél. Norðurlands JC Selfossi Þátttaka tilkynnist samstarfsaðila á hverjum stað eða til Hagvangs hf. sími 2 85 66 Hagvangur hf. hefur um árabil annast rekstrarráðgjöf fyrir fjölmörg íslensk atvinnufyrirtæki og unnið að hagrannsóknum fyrir samtök, fyrirtæki og opinbera aðila.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.