Morgunblaðið - 15.05.1977, Síða 27

Morgunblaðið - 15.05.1977, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1977 27 Smíðum Neon- 09 plastljósaskilti. Einnig ýmiss konar hluti úr Acríl plasti. Neonþjónustan hf. Smiðjuvegi 7, Sími 43777 Jasmin Grettisgötu 64 hann hafi að baki nokkurra ára starf í stúdíóum í Englandi, þá liði langur tími þar til hann kæmist i svipaða aðstöðu og hann hefur hér, að vera aðalupptöku- maður i fullkomnu 24 rása stúdíói. Jónas R. er að verða annar aðalupptökumaðurinn. Hann ,,datt“ inn i starfið af tilviljun, hafði enga merintun eða reynslu á þessu sviði, utan þess sem hann hafði lært sem áhorf- andi á þeim tlma, er hann söng sjálfur inn á plötur með hljóm- sveitum og starfaði við gerð sjón- varpsþátta. Þá vinnur Jön Þór Hannesson hlutastarf við upptök- ur og hann hefur einnig umsjón með rekstrinum. Nú vaknar sú spurning hvers vegna Jón Þór starfi ekki meira en raun ber vitni að upptökum, nú þegar gamall draumur hans hefur loksins rætzt. „Það er voða- lega lýjandi og þrevtandi starf að vinna við poppupptökurnar og ég hreinlega treysti mér ekki til þess að hafa það að aðalstarfi. Það endist enginn í slíku starfi nema í 10—15 ár með þessu vinnuálagi. Þá er betra fvrir okkur að vera með menn i þessu sem eru með töluverðan áhuga á þessari tón- list. — Ég hef einnig annað starf sem ég tel jafnþýðingarmikið og það er að vera í umsjón og stjórn- un fyrirtækisins ásamt Sigurjóni. Ég hlevp svo i skarðið í upptökum með kórum og sigildri tónlist, þvi að ég tel mig hafa meiri revnslu á þvi sviði en hinir og ég hef meira gaman af að fást við þá tónlist. “ Sigurjón Sighvatsson er fram- kvæmdastjóri stúdíósins, sér um fjármál og bókanir. Garðar Hansen aðstoðar við upptökur og Baldur Sigurðsson i Hljóðvirkjan- um sér um viðhald tækjabúnaðar, en hann vann um þriggja vikna skeið við uppsetningu tækjanna með erlendu sérfræðingunum. Þá kemur hönnuður stúdíósins, John Storvck, hingað til lands á þriggja-fjögurra mánaða fresti ásamt tæknifræðingi og þeir fara vfir tækjabúnaðinn, setja upp nv tæki o.s.frv. 0 Stöðugt bætast ný tæki við Þvi að enn er verið að bæta við tækjum i stúdíóið og líklega verða aðstandendur þess seint fullkom- lega ánægðir með búnaðinn, þvi alltaf er eitthvað nýtt að koma til sögunnar. Framfarirnar eru örar i þessari grein. Síðast er John Storvck og tæknifræðingur komu til landsins fvrir nokkrum vikum komu þeir með sérstök tæki til að fínstilla hljómburðinn i stjórn- herbergi stúdiósins og einnig unnu þeir að uppsetningu nýrra tækja fvrir hálfa þriðju milljón sem Hljóðriti hf. hafði verið að panta. Nú er fjárfestingin í stúdióinu farin að náigast 50 mill- jónir, ef allt er reiknað á gildandi verðlagi í dag og stúdíóið er ekki farið að skiia eigendum sínum neinum arði, heldur hafa þeir lát- ið allan ágóða og allar afskriftir renna til kaupa á nýjum búnaði. ,,Við verðum að gera þetta,“ segir Sigurjón. „Við getum ekki sagt: Þetta er nógu gott, það er hvort sem er orðið of dýrt fvrir hljómlistarmenn að fara út og taka upp, og nú getum við farið að græða. — Við erum sjálfir að taka upp plötur hér og þekkjum þetta bezt.“ Og nú eru þeir líka með áætlan- ir um að færa út kvíarnar, stækka við sig. Þeir hafa í hyggju að leigja hinn helming hæðarinnar til að koma þar upp tveimur æf- ingastúdíóum, hlustunarherbergi og gevmslu. „Við höfum orðið varir við það,“ segir Sigurjón, „að fólk hef- ur oft mjög litinn æfingatima að baki þegar það kemur í stúdíóið. Þetta veldur töfum og við höfum tekið talsverðan hluta af þeim skaða á okkur. Það er þvi hag- kvæmara að koma upp, ódýru æf- ingastúdíói en að láta fólkið æfa sig i dýru upptökustúdíóinu sem margir biða eftir." % Álagningin minni en erlendis Og þá er það fjármálahliðin. Nú kostar klukkustundin í stúdióinu 10.500 krónur, sem er mun lægra gjald en tiðkast hjá sambærileg- um stúdíóum erlendis, en íslenzk- ur markaður er smár og heldur verðinu því niðri. Að sögn Sigur- jóns eru stúdió erlendis gjarnan rekin með 100% álaghingu, en hér er álagningin innan við 20%. Verðlagningín er miðuð við, að það þurfi 250—300 selda tíma á mánuði til að standa undir kostn- aði, en stúdiöið hefur komizt upp í 400 stundir, „en það var geð- veiki,“ segir Sigurjón. „Við vild- um ekki vinna svo mikið, en út- gefendur platnanna voru svo óraunsæir. Þeir pöntuðu 100 tíma fvrir eina plötu, en þurftu kannski 150—200. Og við revnum að þjóna viðskiptavinunum." En þrátt fvrir mikla notkun stúdiósins koma ekki eins margar krónur i kassann og ætla mætti. Ef mikið er að gera, þá fást tvær bókanir á dag að jafnaði, 16 timar. En þar af eru aldrei meira en 10—12 tímar virkir. Það tekur tima að setja upp hljóðfærin og koma sér af stað og stúdíóið hefur aldrei reiknað þann tíma með. „Við þekkjum alla viðskiptavin- ina og það er ógurlega erfitt að vera grimmur i þessum efnum. Við höfum revnt að vera sann- gjarnir," segir Sigurjón ennfrem- ur. En eftir því sem fjárfestingin evkst, þá þarf nýting stúdíósins að batna og eins og áður sagði hafa eigendur Hijóðrita gert ráð fvrir því að reyna að laða erlenda viðskiptavini að. Litið hefur þö verið gert i þeim efnum ennþá, en nú er verið að útbúa kvnningar- bækling um stúdióið og á næst- unni kemur grein um stúdíóið i einu stærsta blaðinu um stúdíó- málefni sem gefíð er út í Banda- rikjunum. Heitir það Recording — Engineer — Producer og greinina skrifar blaðakonan Deborah Rothstein, en hún er eig- inkona tæknifræðingsins Theo- dore Rothstein, sem er aðalupp- tökumaður Bearsville Studios í New York-ríki og stjórnandi fvrir- tækis em nefnist ROR Audio Re- search. Þau hjónin komu hingað til lands með John Storvck fvrir nokkrum vikum og safnaði Deborah upplýsingum um stúdíó- ið á meðan maður hennar vann að stillingum og uppsetningu tækja. 0 Genesis og Clapton Þegar bæklingurinn og greinin hafa birzt, er ætlun eigenda Hljóðrita að vinna að því að afla viðskiptavina erlendis. En hvað kemur út úr því veit enginn. Þó hafa þegar borizt fvrirspurnir um stúdíóið frá þekktum listamönn- um, bæði frá hljómsveitinni Gen- esis og frá stórstjörnunni Eric Clapton, en hvort þessir aðilar hafa i hvggju að nota sér stúdíóið er ekki vitað. Eins og áður sagði er timagjald stúdíósins mun lægra en gerist erlendis og vrði því ekkert dýrara fvrir útlend- inga að taka upp hér en erlendis, þótt þeir þurfi að borga ferðir og uppihald að auki. í þessu sambandi má geta þess að þeir erlendu hljómlistarmenn og upptökumenn sem hingað hafa komið og unnið i stúdiöinu eru allir á einu máli um að þetta stúdíó sé mjög gott og fvllilega sambærilegt við mörg þekkt stúdió erlendis. Og þá vaknar að lokum sú spurning, hvort stúdíóið sé kannski of fullkomið fvrir islenzka hljómlistarmenn. Jón Þór er þeirrar skoðunar: „Nú tel ég okkur vera komna á undan tónlistarmönnunum og nú ! þurfa þeir að sýna hvað í þeim býr. Þetta þarf að haldast i hend- ur, stúdíóið og búnaður þess og geta tónlistarmannanna, annars , er fjárfestingin ekki til neins gagns. — Það sem er að hér er að enginn þessara stráka sem hafa tónlistina að atvinnu tekur starfið nógu alvarlega. Þetta er þeim bara hobbí eða stundargaman. Þess vegna eigum við ekkert af góðum „sessionmönnum", mönn- um sem aðstoða við undirleik á hljómplötum eftir pöntunum. Ef hingað kæmu erlendir listamenn til að taka upp plötur, þá vrðu þeir að taka með sér erlenda að- stoðarmenn eða að láta sér nægja að taka upp hluta undirleiksins hér og ljúka verkinu erlendis. Sumir menn hér mæta seint og illa í upptökur, láta kannski ekki sjá sig og þá þarf að vera að sendast um allar trissur eftir hljöðfæraleikurum. — Nei, stúdióið er alveg nógu gott, en það er bara tónlistarumhverfið, ef svo má segja, sem ekki hæfir þvi,“ segir Jón Þór að lokum. Jónas R, hefur einnig sina skoð- un á þessu efni: „Síðan plata Bitl- anna, „Sergeant Pepper's". kom út, hefur hljómplatan verið leiðin til fullkomnunar á poppinu. Það er sama hvar er, menn vilja alltaf vinna að þvi að ná bezta árangri og láta sér ekki nægja það næst- bezta. Við íslendingar eigum ekkert síður skilið að hafa það bezta en einhverjir náungar úti i Kaliforníu. Þess vegna er stúdióið ekkert of gott fvrir Islendinga." —sh. Vorum að taka upp margar gerðir af skyrtum, blússum, mussum, og kjólum úr indverskri bómull á mjög hagstæðu verði. Einnig bómullarefni og silkislæður í miklu úrvali. Austurlenska listmuni tilvalda til tækifærisgjafa fáið þér í Jasmin Grettisgötu 64 (horni Barónsstígs og Grettisgötu) D0DGE RAMCHARGER Seljum í dag Dodge Ramcharger árgerð 1975 m. sjálfskiptingu, vökvastýri, 318 cm. vél 16“ felgur. Fast mismunadrif ásamt fleiri gagnleg- um útbúnaði. Teppi í sérflokki — Ekinn aðeins 1500 km. Til sýnis mánudaginn 1 6. maí. Vökull h.f. Ármúla 36, símar 84366 og 84491. Orginal kúpplingar ®naust ht Sími: 82722. B0RG.BECK —-1-1-r-rrrr.rrrir—rfr rrn.r^— rciriTrrrrrrnr^iT m .... mi II. .----a — ,-,-1— - rr***rfi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.