Morgunblaðið - 15.05.1977, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.05.1977, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1977 Ragnheiður Jóns- dóttir fgmun skóla- stjóri — Minning Andlát manns hlýtur ævinlega aó vera timamót í einhverjum skilningi og þegar i hlut á ein- staklingur, er veitt hefur fjölda ungmenna handleiðslu áratugum saman fer ekki hjá því, að margir úr þeirra röðum staldra við og hugleiða hversu samfylgdinni var háttað. Lát Ragnheiðar Jónsdóttur, fyrrverandi skólastjóra Kvenna- skólans í Reykjavík, orkaði með þessum hætti á hugi þeirra kvenna, er fylla hópinn sem sett- ist í 1. bekk kvennaskólan's haust- ið 1938 og var þar síðan meira og minna við nám til vorsins 1942, að hún útskrifaði nemendur í fyrsta sinni sem skólastjóri. Forveri Ragnheiðar við stjórn skólans, Ingihjörg H. Bjarnason, féll frá í oktöber 1941 og kom í hlut Ragn- heiðar að taka við skólanum, en hún átti þá að baki nær þriggja áratuga kennslustarf þar. Þegar Ragnheiður lét af störf- um fyrir aldurs sakir, árið 1959, átti hún framundan æviskeið, sem mörgum reynist örðugt að horfast í augu við, þótt umvafnir séu fjölskyldu. Hvort Ragnheiði varð þetta tímabil ævinnar með einhverjum hætti seinsóttara en öðrum, skal ekki dæmt um, en nákomin skyldmenni átti hún engin, sjálf hafði hún ekki gifst og eignaðist ekki afkomendur. Á möti kom í einhverjum mæli, að nemendur hennar margir áttu þvl láni að fagna, að eignast vináttu hennar og guldu við sinni. Ragnheiður mætti þessum árum með vakandi huga, skipulagði tíma sinn eins og endra nær, fyllti dagana með til- tækri athöfn og sótti sér styrk í að bregða ekki vana sínum. Hún veitti í lengstu lög viðnám elli- hrörnun, andlegri og líkamlegri, af kjarki er svipar til forföður hennar Skúla fógeta, en Skúli Thorarensen, læknir á Móeiðar- hvoli, móðurafi hennar, var dótt- ursonur Skúla Magnússonar. Daglegar gönguferðir, mislang- ar en markvisst útmetnar eftir veðri hvern daginn, þreytti hún fram á síðasta ár og mátti iðulega sjá hana stansaða á götu af konum á ýmsum aldri, þar voru fyrrver- andi nemendur að heilsa kennara sínum. Dagstund á heimili henn- ar. en hún bjó lengst af út af fyrir sig í eigin húsi, opinberaði að býsna margir inntu eftir líðan hennar simleiðis og þessi tengsl mat hún ofar flestu — þvi vissu- lega getur einmanakenndin orðið áleitin þeim, er þegar á unga aldri mega sjá á bak ástvinum sínum eins og var hlutskiptí Ragnheiðar. Það var á útmánuðum i ár, að ljós hætti að loga í gluggum henn- ar að Tjarnargötu 49 og við eftir- grennslan var auðsætt að nú var henni á kné komið. Eftir harða lokasennu milli lífs og dauða í Landspítalanum, sem hún á sin- um tíma átti hlut í að reisa, urðu loks þáttaskil, sem valda þvi að við nemendur hennar lítum yfir farinn veg. A vordögum 1938 þreytti hópur unglingsstúlkna inntökupróf við Kvennaskólann i Reyljavík. Fæst- ar þeirra höfðu sést fyrr, en þær hafa varla sleppt hendi hver af annarri þau 35 ár, sem liðin eru siðan þær fóru vonglaðar út um dyr skólans, með fyrstu skólaslita- ræðu Ragnheiðar Jónsdóttur í huga. Hún sleppti heldur aldrei hendi af þessum hópi, sem varð með sérstökum hætti hennar hóp- ur, hún mælti sér á stundum mót við og það gladdi hana að einmitt þessi hópur hélt saman. En okkur, sem teljum þar innan hirðar er fullljóst að það er ekki einungis sem kennari, að Ragn- heiður hefur auðgað líf okkar. Fyrir utan þá kröfu, sem hún setti okkur, að vera ævinlega af- dráttarlausar, að taka afstöðu til manna og málefna. að fylgja af- sföðú’ ök'kar'éftlf til hiris'ífrasfá"' og hirða ekki um hvort við yrðum vinsælar af — þá fékk hún okkur til eignar þá verðmætu lífs- reynslu, sem felst i því að hafa kynnst einstaklingi, er áræddi að sniðganga staðlað mannlífsmót samtímans. Ragnheiður kappkost- aði að halda sínum per^ónulegu einkennum, leyndi þeim ekki og vald aldrei auðveldustu leiðina til úrlausnar mála, heldur þá sem sannfæring hennar og réttlætis- kennd buðu. í hita augnabliksins gátu orðið særindi milli nemenda og kennara, sem þegar frá leið, viku hjá flestum, fyrir feginleik yfir að hafa hlotið ögun í stað undansláttar á mótunarárum í skóla. Ótal atvik koma í hugann, ekki öll stórfelld, en þegar i einn stað eru komin gefa sterka heildar- mynd af uppeldislegum markmíð- um og þjóðfélagslegum viðhorf- um, sem e.t.v. hafa þokast til hlið- ar í seinni tíma. Á þriðja eða fjórða degi í skóla standa fáeinar námsstúlkur ráða- lausar í fataherberginu og finna ekki kápur sínar. Allir aðrir eru þotnir burt að loknum skóladegi, en þær standa eins og illa gerðir hlutir með töskur sínar í hend- inni. Ragnheiður á leið hjá og spyr hvort eitthvað sé að, fyrst þær séu ekki farnar eins og hinar. Henni eru tjáð vandkvæðin og hún spyr hvort ekki sé ráð að fara til forstöðukonunnar í skrifstofu hennar. Eftir nokkurt hik verður það úr og útundan sér sjá nem- endurnir að yfirhafnirnar Iang- þráðu liggja þar á stóli. Þær höfðu ekki tollað á snögunum, var sagt, af því að hankarnir voru slitnir, en gjörið svo vel að taka þær. Þeir nemar, sem þetta upp- lifðu létu slíkt ekki henda sig aftur. Nemandi stekkur í loftköstum eftir miðjum stiganum milli hæða í skólahúsinu, Ragnheiður sér það og segir hvasst: „Hvað er að sjá hvernig þéi farið stigann?" Nem- andanum bregður, hægir á sér og heidur að nú sé vel. „Vitið þér ekki, að farið er hægra megin upp og vinstra megin niður, þannig slitnar stiginn jafnt og umferð um húsið verður auðveld." Margir nemar máttu una því að verða að opna og loka dyrum eða gluggum upp aftur og aftur, uns viðunandi árangri var náð i þeirri athöfn þ.e. að ekki yrði hark af. Ragnheiður kenndi landafræði og sögu og var kennslan ákaflega lifandí hjá henni. Hún hélt nem- endunum vel að efni m.a. með því að koma þeim stöðugt á övart með kröfu um að þeir fylgdust með utan skóla í þeim fögum, sem hún kenndi. Fyrirvaralausar spurn- ingar úr atburðum líðandi stund- ar, settir í samhengi við efni kennslubókanna, gerðu að verk- um að flestir nemenda unnu það fyrir að hlusta á fréttir og fylgjast með þjóðmálum. til þess að standa ekki á gati í kennslustund. Fyrir utan þekkingu úr bókum lagði Ragnheiður mikið upp úr hagnýtri kunnáttu, er að gagni hiættl verða í daglegu lífi, hvers kyns verkkunnátta átti mjög upp á pallborðið. Undirrituð þurfti eitt sinn, svo gott sem í miðri Evrópu í landafræðitíma, að standa skil á hvernig kjötsúpa væri matreidd. Lítið varð um svör, hafði aldrei leitt hugann að þvi og var send í sætið með þá niðurlægandi játun á vörum að hafa lagt mér mat til munns, án þess að hafa hugmynd um tilurð hans. Næsta stúlka sem tekin var upp gat tíundað út i æsar hvernig rétturinn var tilreiddur, enda hlaut hún fágæta sumarvinnu hjá Ragnheiði í sumarbústað hennar við Þingvallavatn næsta sumar. Þar dvaldi einnig Ingibjörg H. Bjarnason og miðluðu þær henni ótæpt ýmsum fróðleik, allt sumar- ið. Þessi stúlka hefur sagt, að þótt tímabundin óþægindi hafi verið að gera þessum heiðurskonum til hæfis sumarlangt og reyna að svara af viti, þegar spurt var, þá hafi langtima ávinningur orðið margfaldur, því Ingibjörg og Ragnheiður voru víðförular og menntaðar konur. Virðing fyrir verðmætum, and- legum eða veraldlegúm, voru aðall Ragnheiðar. Þeir nemar, sem voru fulltrúar bekkjadeilda sinna á árlegum fundi um úthlut- un styrkja úr Systrasjóði, með Ingibjörgu og Ragnheiði, þar sem teknar voru fram bankabækur, skoðaðir reikningar sjóða, ígrund- aður höfuðstóll og spáð í Vexti, fengu einfalda en staðgóða til- sögn í fjármunavörslu, bankavið- skiptum og ávöxtun fjár. Ábyrgð í meðferð opinbers fjár var mjög rík hjá Ragnheiði og hún lét þau orð falla, eftir að Kvennaskólinn í Reykjavík varð ríkisskóli árið 1947, að hún vildi ekki sækja meira fé í opinberan sjóð en nauðsyn krefði, það gilti sama og að fara í vasa nágranna síns. Ef það bar til, að hún hringdi einhverra erinda til fólks, þegar það var við vinnu, talaði hún mjög stutt og endaði gjarnan samtölin á þessa leið: „Ég tala ekki lengur við yður núna, þér eruð upp á kaup,“ Að teljast til vina Ragnheiðar þýddi i raun annað hvort eða, fátt var þar á milli og gat leitt til þess að ekki entust öll tengsl hennar við fólk ævina út, slíkt er nær óhjákvæmi- legt afleiðing svo tíðrar kröfu. Réttlætiskennd Ragnheiðar sagði oft sterkt til sin og hún tók málin gjarnan i sínar hendur. Eitt sinn bauð hún tveimur náms- meyjum til sín í sumarbústaðinn til nokkurra daga dvalar. önnur þeirra var úr stórum systkinahópi og hafði ekki verið mulið undir hana, en hin var-einbirni af efn- uðu heimili og hafði ekki dýft hendi i kalt vatn eins og kallað er. Meðan á dvölinni stóð mátti su, sem var einbirni bera inn kol, út ösku og skúra gólf, meðan Ragn- heiður lét hina sitja á taii við sig, ganga úti með sér og lesa bækur. Heimboð til Ragnheiðar hófst gjarnan með símtali á þessa leið: „Nú sleppið þér kaffitimanum á vinnustað í dag, hættið þeim mín- útunum fyrr og drekkið síðdegis- kaffi hjá mér.“ Slíku boði varð ekki hafnað, hún ætlaðist til að það væri þegið og móttökur voru höfðinglegar. Undir borðum fór fram miðlun eins og endranær, erfitt var að standast prófin um hvaða kryddjurtir eða víntegund- ir hún hefði notað til bragðbætis mat eða kökum. Seinasta slika boðið hjá henni var daginn eftir að hún varð 85 ára. Við sátum tvær yfir veislu- borði og undrunarvert var hversu nákvæmlega hún hafðí fylgst með mörgum nema sinna, makavali þeirra, hverrar ættar eiginmenn- irnir voru og hvernig börnum þeirra fleygði fram. Hún rifjaði upp frá fyrstu árum sínum í Reykjavík, er fjölskyldan var ný- flutt til bæjarins og hún var send að kaupa rabbabara eða aðra jarðarávexti til höfðingjanna í Grjótaþorpi. Hún sagði frá einni höfðingskonu, er ævinlega lét hana, telpuna, finna að hún var aðflutt úr sveit og að þessi kona seinna varð undir Ragnheiði sett í skólastarfi. „Ég lét hana aldrei gjalda þess“, sagði Ragnheiður, „Það er lögmál að hinir síðustu verða fyrstir." Hún hugleiddi þarna hálfníræð, hvernig því viki við, að inn í skól- ann streymdu stöðugt nýir og nýir j árgangar hæfileikaríkra ung- [ meyja, reynt að koma þeim til j þroska, en eftir nokkur ár er eins j og þeirra sjái hvergi stað. „Mér i finnst litið hafa miðað síðan 19. júní 1915. Við, sem þá lögðum allt undir til að ná kosningarétti og kjörgengi erum sumar hverjar vonsviknar." Nemendahópurinn, sem Ragn- heiður Jónsdóttir útskrifaði fyrst- an hefur nær óskertur fylgt henni seinasta spölin. Ihugum flestra er hljóð þökk fyrir frábæra leiðsögn. Okkur er öðrum fremur ljóst, að við nutum Ragnheiðar er hún stóð á hævi sinnar, á meðan hún var kennari, áður en stjórn skólans tók að íþyngja henni. Björg Einarsdóttir. Frk. Ragnheiður Jónsdóttir, fyrrum skólastjóri Kvenna- skólans i Reykjavík, lést í Land- spítalanum þann 7. mai, eftir | langa og erfiða sjúkdómslegu. Frk. Ragnheiður Jönsdóttir var fædd 8. október, 1889, að ' Vestri—Garðsauka i Rangárvalla- sýslu. Faðir hennar var Jón hreppstjóri Árnason, sem fluttist til Reykjavíkur ásamt fjölskyldu sinni árið 1897 og andaðist þar 10. mars, 1910. Foreldrar Jóns voru Árni Árnason og Elín Jakobs- dóttir, sem bjuggu að Vestri—Garðsauka. Móðir Ragn- heiðar var Sigríður, dóttir Skúla læknis Thorarensen á Móeiðar- hvoli, en hún lést 22. apríl 1905. Börn þeirra Jóns og Sigríðar voru Elín, fædd 1886, dáin 1915 Ragn- heiður skólastjóri, og Skúli fæddur 1892, útgerðarmaður i Reykjavík, sem dó á miðjum aldri. Skúli faðir Sigriðar var al- bróðir Bjarna Amtmanns og skálds Thorarensen, en foreldrar þeirra voru Vigfús Þórðarson, sýslumaður, að Hlíðarenda, og Steinunn Bjarnadóttir Pálssonar landlæknis. Frk. Ragnheiður hlaut miklar gáfur og þá eiginleika i vöggu- gjöf, sem hæfðu starfi hennar, hún var kona starfsorku og starfs- löngunar, og varð þeirrar náðar aðnjótandi að halda heilsu sinni fram á elliár og henni hlotnaðist sú gæfa að sjá æfistarf sitt bless- ast. Ragnheiður stundaði nám við Kvennaskólann i Reykjavík á árunum 1907—1909 og við Statens Lærerhöjskole i Kaup- mannahöfn 1911—1913, var hún á þeim árum í einkatimum hjá Boga Th. Melsted i íslandssögu. Árið 1913 gerðist hún kennari við Kvennaskólann og tók þar við skólastjórn 1941 og helgaði hún skólanum alla sína starfskrafta þar til árið 1959 að hún lét af skólastjórn fyrir aldurs sakir, 70 ára gömul, og hafði hún þá stjórn- að skólanum i 18 ár með röggsemi ogprýði. Frk. Ragnheiður var frábær kennari, hún kunni þá list að vekja áhuga nemenda sinna á námsefninu, svo að flestar náms- meyjarnar hlökkuðu til kennslu- stundar hennar. Hún kenndi sögu og landafræði, en ekki einungis eftir kennslubókinni, heldur fór hún með nemendur sína út um heima og geima og hafði það fyrir sið á hverjum vetri að stefna stúlkunum saman á heiðskíru vetrakveldi suður á Mela og sagði þeim nöfn á ýmsum stjörnum himinsins. Einnig fór hún með námsmeyjarnar á björtum vetrar- degi upp á Öskjuhlið, þar sem hún kenndi þeim nöfn fjalla og ýms örnefni í nágrenni Reykja- víkur. Ragnheiður Jónsdóttir gerði miklar kröfur til nemenda sinna, hún brýndi fyrir þeim, að þær væru komnar í skólann til þess að læra og menntast og búa sig sem best undir lífið. Ragnheiði var um það hugað, að námsmeyjarnar mættu :uðgast af þekkingu og þroska, svo að það mætti á þeim sannast „að I sálarþroska svanna býr sigur kynslóðanna“. Frk. Ragnheiður gerði strangar kröfur til sjálfrar sín og var hún vakandi og sofandi í starfi sinu fyrir velferð skólans og nemenda hans og vissi ég til þess, að hún hjálpaði efnilegum stúlkum, sem sökum fjárskorts áttu erfitt með að stunda nám í skólanum. Hún kunni þá fögru list að veita hjálp og uppörvun í kyrrþey, henni voru það hin bestu laun, að Framhald á bls. 24. f og rakar SlðBP allfc ú 0 1 LAWN - BOY * Létt, sterk.ryðfrí * Stillanleg sláttuhæð * Slær upp að húsveggjum og út fyrir kanta Sjálfsmurð, gangsetning auðveld * Fæst með grassafnara « <=i5 Garðsláttuvél V Garðslattuvel K Hhn up hinna vandlátu n nr

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.