Morgunblaðið - 27.05.1977, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977
V-Þjóðverjar hafa veitt
2.576 tonn af ufsa hér
síðustu fimm mánuðina
„SAMKVÆMT þeim tölum, sem
ég hef fengið frá hafrannsókna-
stofnuninni f Hamborg og ég tel
enga ástæðu til að vefengja, þá
hafa vestur-þýzk skip veitt 2.576
tonn af ufsa á Islandsmiðum frá
desember 1976 til loka aprfl
sfðastliðins", sagði Jón Jónsson,
forstöðumaður Hafrannsókna-
stofnunarinnar, er Mbl. leitaði til
hans í gær vegna þeirra skoðana,
sem fram komu f viðtölum blaðs-
ins við útgerðarmenn og sjómenn
f Þorlákshöfn, að ufsi hefði ekki
sézt f afla þeirra f vetur og að
ástæðan væri ufsaveiðar vestur-
þýzkra skipa.
Jón Jónsson sagði, að á vegum
alþjóðahafrannsóknaráðsins
hefði í febrúar sl. verið haldin
ráðstefna um ufsastofnana i
Atlantshafi. Heildarufsaaflinn í
Norðausturatlantshafi hefur
verið nokkuð stöðugur undan-
farin sex ár, á bilimu 636.000 tonn
1972 upp í 710.000 tonn 1974.
Hafa allir ufsastofnarnir verið
frekar stöðugir, nema sá íslenzki,
en við ísland hefur ufsaveiðin
farið stöðugt minnkandi. Hún var
mest 137.000 tonn 1971, en var
79.000 tonn á síðasta ári.
Sagði Jón, að fiskifræðingar
teldu þessa minnkun stafa af líf-
fræðilegum þáttum, sem væru or-
sök þess, að undanfarið hefðu
veiðar byggzt í lélegum árgöng-
um. Þá sagði Jón, að mjög miklar
sveiflur væru í ufsagöngum og að
því leytinu væri ufsinn dálítið sér
á parti, að hann ætti það til að
ganga milli landa, líkt og síldin.
Þannig sagði Jón að dæmi væru
þess, að heilir árgangar hefðu
horfið af Islandsmiðum og gengið
til Noregs og svo hefðum við aftur
fengið ufsagöngur frá Færeyjum
og Noregi.
Jón Jónsson sagði, að af ufsa-
stofnunum í Atlantshafi væri nú
áberandi minnst sókn í smáufsa
við ísland. Við værum komnir
Framhald á bls. 18
Rannsóknarlög-
regla ríkisinsr
Margir hafa
sótt um
UMSÓKNARFRESTUR um stöð-
ur lögreglumanna og fulltrúa við
hina nýstofnuðu Rannsóknarlög-
reglu rikisins rennur út í dag.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, hafa langflestir lögreglu-
menn við Rannsóknarlögregluna í
Reykjavik lagt inn umsóknir.
Einnig munu hafa borizt umsókn-
ir frá allmörgum almennum iög-
reglumönnum á höfuðborgar-
svæðinu og víðar.
Davíð Baldursson
Davíð Baldurs-
son kjörinn
á Eskifirði
TALIN voru atkvæði á skrifstofu
biskdrfs í gær í prestkosningu í
Eskifjarðarprestakalli er fram fór
s.l. sunnudag. Tveir umsækjend-
ur voru um prestakallið, séra Kol-
beinn Þorleifsson, Reykjavík, og
cand. theol. Davið Baldursson,
Reykjavík. Á kjörskrá voru 1011,
þar af kaus 621 og Davíð Baldurs-
son hlaut 534 atkvæði, en séra
Kolbeinn Þorleifsson 76. Auðir
seðlar voru 11 og kosningin er
lögmæt.
Grænlenzkur
f járbóndi í
heimsókn
KUNNUR grænlenzkur fjár-
bóndi, Job Egede frá Görðum í
Einarsfirði, er nú i heimsókn
hér á landi í fyrsta sinn ásamt
konu sinni, en sonur þeirra,
Andrés Egede, hefur dvalið á
Hesti í Borgarfirði siðan i
haust til þess að kynna sér
sauðfjárrækt á íslandi. í sam-
tali við Andrés i gær, sem talar
islenzku eftir dvölina hér,
sagði hann að faðir sinn hefði
á þriðja hundrað fjár i Einars-
firði, en alls eru um 200 fjár-
bændur á Grænlandi með
15—18 þús. kindur.
Andrés lét vel af dvölinni á
íslandi og kvað miklu betra að
vera hér en í Danmörku, það
er reyndar svipuð stemmning
yfir mannlífinu á íslandi og
Suður-Grænlandi, sagði hann.
Andrés sem er 21 árs, kvaðst
halda aftur til Grænlands í
júní og þá lægi fyrir að huga
að fjárstofni föður hans.
Herjólfur að nálgast Eyjar
Miklir flutningar
med Herjólfi
MJÖG miklir flutningar hafa
verið með Herjólfi milli lands
og Eyja síðustu daga og í gær
var t.d. fullskipað á bílaþilfari
báðar leiðir, eða um 40 bilar i
hvorri ferð. i fyrsta skipti síðan
Herjólfur kom til landsins var
ekki hægt að flytja alla bila
sem voru mættir til skips, þvi
skilja varð einn bíl eftir í
Eyjum í gærmorgun.
Þá hafa verið miklir vöru-
flutningar með skipinu og t.d.
var flutt vin í einum gámi til
Eyja i gær að söluvirði 37 millj.
kr. eða nærri því það sem kost-
aði að gera við skipið síðustu
mánuði samkvæmt upplýs-
ingum Ólafs Runólfssonar
framkvæmdastjóra Herjólfs.
Vegna mikillar aðsóknar hef-
ur verið ákveðið að setja upp
aukaferð með skipinu um hvíta-
sunnuna, þ.e. á hvitasunnudag,
en þá mun skipið fara frá
Eyjum kl. 8.15 og frá Þorláks-
höfn kl. 13.45.
Ólafur kvað viðstöðulausar
pantanir berast til Herjólfs frá
hópum i sumar, 40—100 manna
hópum innlendum og erlendum
sem ætluðu að sækja Eyjar
heim.
Aðspurður svaraði Ólafur því
til að verið væri að ganga frá
öllum reikningum vegna við-
gerðarinnar á Herjólfi, þeir
yrðu síðan lagðir fyrir norsku
aðilana til greiðslu og mun þá
koma i ljós hvernig á þeim
málum verður tekið.
\
BÍIaröð að Herjólfi
Hassmálið;
Nýr maður
í gæzlu-
varðhald
TÆPLEGA þrítugur maður hefur
verið úrskurðaður i allt að 30
daga gæzluvarðhald vegna rann-
sóknar fíkniefnamálsins, sem
Mbl. skýrði frá á dögunum, en þar
er um að ræða innflutning á nokk-
rum kílóum af hassi. Vitað var að
maðurinn bjó yfir vitneskju um
málið og var hann handtekinn
þegar hann var að koma úr sjó-
ferð, en hann er sjómaður. Áður
hafa þrir menn setið inni vegna
rannsóknar þessa máls, en þeim
hefur öllum verið sleppt.
Sprengi-
mottum
stolið
SEX sprengimottum var stolið um
síðustu helgi, en þær voru geymd-
ar á mótum Austurbergs og Suð-
urhóla í Breiðholti. Hver motta
vegur tæpt tonn en slikar mottur
munu kosta 110 þúsund krónur.
Hér er þvi um að ræða mikil vérð-
mæti og eru þeir, sem telja sig
geta veitt upplýsingar um það
hvar motturnar eru niðurkomnar,
beðnir að hafa samband við rann-
sóknarlögregluna. Til að fjar-
lægja motturnar þarf krana og
bíla og hefur það því varla farið
framhjá fólki þegar motturnar
voru teknar.
o
INNLENT
Kyngreining í auglýsingum
varðar við lög eftir 1. júlí
JAFNRÉTTISRÁÐ hefur vakið
athygli auglýsenda og fjölmiðla á
ákvæðum laga um jafnrétti
kvenna og karla, þar sem segir:
„Starf, sem auglýst er laust til
umsóknar, skai standa opið jafnt
konum og körlum. i slfkri auglýs-
ingu er óheimilt að gefa til kynna
að fremur sé óskað starfsmanns
af öðru kyninu en hinu.“
Fram kemur í fréttatilkynn-
ingu að jafnréttisráði hefur verið
falið að sjá um að ákvæðum þess-
um sé framfylgt og bendir á að [
12. grein sömu laga segir, að sá
sem af ásettu ráði eða gáleysi
brjóti gegn lögum þessum sé
skaðabótasky ldur samkvæmt al-
mennum reglum. Slfk brot skuli
varða fésektum nema þyngri
refsing liggi við að lögum.
í tilkynningunni kemur enn-
Framleiðslan eykst hraðar en neyzlan:
Ekki tekizt að nýta 15 til 26,3%
af agúrkuframleiðslunni sl. 5 ár
FRAMLEIÐSLA á ágúrkum
hér á landi hefur á undan-
förnum árum vaxið nokkuð ört.
Þannig nam heildarfram-
leiðslan á árunum 1951 til 1955
um 50 tonnum árlega, á
árunum 1966 til 1970 er
ársframleiðslan komin upp I
um 200 tonn, — 1973 voru
framleidd 240 tonn af gúrkum,
1975 nam framleiðslan 317
tonnum og á síðastliðnu ári
voru framleidd 322 tonn af
agúrkum. Að sögn Þorvalds
Þorsteinssonar, framkvæmda-
stjóra Sölufélags garðyrku-
manna, hefur agúrkuneyzla
einnig vaxið en þó ekki nóg til
að mæta hinni auknu fram-
leiðslu. Þannig hefur ekki tek-
izt á síðustu árum að selja til
neyzlu eða til niðursuðu milli
30 og 35% af framleiðslunni,
þegar hún er mest á vorin og
siðari hluta sumars en að með-
altali hefur ekki tekizt að nýta
15 til 26,3% eða að meðaltali
20% af ársframleiðslu síðustu
fimm ára.
— Við höfum reynt að mæta
þessari auknu framleiðslu með
því að lækka verðið á
gúrkunum og þannig seldum
við þær fyrir þremur árum á
sérstöku kynningarverði. Þetta
kynningarverð var helmingi
lægra en verðið hefði að öllu
eðlilegu átt að vera og var
hreinlega langt undir kostn-
aðarverði. Þetta dugði ekki til
að auka söluna nema um 10 til
12%. Neyzlan hefur að visu
aukizt jafnt og þétt en ekki nóg,
sagði Þorvaldur.
Þorvaldur sagði að vandinn
væri mestur yfir háuppskeru-
tímann á vorin og siðari hluta
sumars en framleiðendurnir
gætu ekki við sáningu gert sér
grein fyrir hver framíeiðslan
yrði, því þar kæmu til margvís-
legar aðstæður s.s. veðrátta.
Fram kom hjá Þorvaldi að ýms-
ar leiðir hafa verið reyndar til
að nýta þá framleiðslu, sem
ekki selst í verzlunum, til
niðursuðu og færi jafnan nokk-
uð til þess en ekki hefði reynzt
unnt að auka það.
— Við íslendingar búum ekki
við þær aðstæður, sem aðrar
þjóðir hafa, að geta komið um-
framframleiðslu sinni á markað
í öðrum löndum. Við verðum
þvi stundum að gripa til þess
ráðs að henda nokkru magni.
Vissulega væri æskilegt að fólk
vildi nýta sér þessa matvöru en
framhjá því verður ekki gengið
að það lifa engir á því að gefa
framleiðsluna, sagði Þorvaldur
að lokum.
fremur fram, að ráðið hafði
ákveðið í upphafi að veita
nokkurn aðlögunartima á að
framfylgja lögum þessum, þar
sem um nýmæli væri að ræða, en
nú sé liðið tæpt ár og flestum ætti
þvi að hafa gefizt nægilegt svig-
rúm til að aðlagast nýmæli þessu.
Þeir, er auglýsi eftir 1. júlí nk.
þannig að andstætt sé framan-
greindu lagaákvæði, geti átt von á
þvi, að mál verði höfðað gegn
þeim. ítrekar ráðið að það líti á
ákvæði þetta sem lið í þeirri
baráttu að brjóta niður þá hefð-
bundnu starfsskiptingu, er rikt
hafi i karla- og kvennastörf og
þann launamun sem við það skap-
ast.
í samtli við Morgunblaðið um
túlkun laga þessara sagði Guðrún
Erlendsdóttir, formaður Jafnrétt-
isráðs, að hún liti svo á að það
Framhald á bls. 18
Benzínafgreiðslur
olíufélaganna:
Loka báða
hátíðisdagana
BENZÍNAFGREIÐSLUR oliu-
félaganna á Reykjavíkursvæðinu
verða opnar frá kl. 7.30—21.15 á
laugardag en lokaðar á hvíta-
sunnudag að vanda og einnig á 2.1
hvítasunnu vegna yfirvinnu-
banns.