Morgunblaðið - 27.05.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977
15
Teng Hua
Teng
skrifar
Hua
Hong Kong, 26. mai. AP.
FYRRVERANDI aðstoðarforsætis-
ráðherra Kina, Teng Hsiao-Ping,
sem um hrið var talinn liklegur
arftaki Maos hefur skrifað tvö
bréf til Hua Kuo Feng nuverandi
flokksformanns, þar sem hann fer
fögrum orðum um leiðtogann
nýja og kveðst fús að snúa aftur
til starfa og taka við hverri þeirri
stöðu sem flokkurinn þyrfti á að
halda. að þvi er blað i Hong Kong
sagði i dag.
í blaðinu segir að Teng fari ákaf-
lega lofsamlegum orðum um Hua,
segi hann gáfaðan afburðamann til
orðs og æðis. Tekið var fram að
Teng hefði í bréfinu lýst samstöðu
með þær aðgerðir sem gerðar hafa
verið gegn „bófunum fjórum".
Blaðið segir að fyrra bréfið hafi
verið skrifað 10. október eða
örfáum dögum eftir að bófarnir
fjórir voru handteknir og hið seinna
var skrifað 10. april.
En den Uyl varað við þvl að við-
ræður um myndun nýrrar stjórnar
mundu reynast vandasamar, sagði að
erfiðir timar væru í vændum og benti á
að Verkamannaflokkurinn skorti 23
þingsæti til að hafa hreinan þingmeiri-
hluta.
Þó er búizt við að Verkamanna-
flokkurinn myndi stjórn með Kristi-
legum demókrötum, sem fengu 49
þingsæti og bættu við sig tveimur, og
smáflokknum „D 66". eina smáflokkn-
um sem jók fylgi sitt og hlaut átta
þingsæti i stað fimm áður.
Það getur valdið vandkvæðum að
Verkamannaflokkurinn styður breyt-
ingar á lögum um fóstureyðingar, en
kristilegir demókratar undir forystu
Andreas van Agt dómsmálaráðherra
eru þeim andvlgir.
Þriðji stærsti flokkurinn, Frjálslyndi
flokkurinn, sem er hægrisinnaður,
vann einnig á I kosningunum og fékk
Danskt aukaþing
Kaupmannahöfn, 26. mai. Reuter.
ANKER Jörgensen hefur kallað
danska þingið saman til sérstaks
aukafundar i ágúst til aS fjalla um
tillögur stjómarinnar um baráttu
gegn atvinnuleysi og áframhaldandi
samvinnu stjórnarinnar og stjórnar-
andstöSuflokka I efnahagsmálum.
Ákvörðun fylgir í kjölfar skýrslu
danska efnahagsráðsins sem segir að
horfur i dönskum efnahagsmálum hafi
aldrei verið verri frá striðslokum og að
atvinnuleysi munu aukast úr 1 30 000
I fyrra I 166.000 1979
Brezhnev styrkir stöðu sína:
Nýr maður settur yfir
áróðursdeild flokksins
Moskva 26 mai. Reuter.
SKÝRT var frá þvf I Moskvu l dag, aS
Yevgeny Tyazhelnikov. fjörutiu og
niu ára gömlum forystumanni Æsku-
lýSssamtaka Sovétrfkjanna og sér-
stökum skjólstæSingi Leonid Brez-
hnevs, hefSi veriS fengin í hendur
mikilvæg staSa i Kreml, staSa yfir-
manns áróSursdeildar flokksins. Er
litiS á þetta sem einn liS I þeirri
viSleitni Brezhnevs aS styrkja stöSu
sína. Tyazhelnikov hefur veriS for-
ystumaSur ÆskulýSssamtakanna
Komsomol f nfu ár og var þaS
Brezhnev sem fékk honum þaS starf
i hendur.
Fréttin um þessa nýju trúnaðarstöðu
var birt í skýrslu og hefur verið staðfest
af opinberri hálfu. Sögusagnir af þess-
um toga hafa gengið um Moskvu um
nokkra hrlð
Enn er óljóst hvað hefur nákvæm-
lega vakið fyrir Brezhnev með því að
ákveða heldur skyndilega að þvi er
virðist að láta Podgorny segja af sér
störfum !• framkvæmdanefndinni. Er
talið vist að hann segi siðan mjög
bráðlega af sér forsetaembættinu.
Pravda, málgagn kommúnistaflokks-
ins, sagði 1 dag frá athöfn sem fram fór
I gær og hefði Podgorny átt að vera þar
I forsæti ef allt hefði verið með felldu
með forsetaembætti hans En einn af
fimmtán varaforsetum hans stjórnaði
athöfninni
Þær vangaveltur stjórnmálafréttarit-
ara um að Brezhnev vilji hafa sama
háttinn á og er i flestum kommúnista-
rikjum, að sami maður gegni bæði
embætti flokksleiðtoga og forseta
landsins, virðast réttar Mun þetta þó
ef til vill verða með nokkru öðru sniði i
Sovétrikjunum. en þar er ný stjórnar-
skrá I undirþúningi, svo sem frá hefur
verið sagt Framkvæmdanefnd flokks-
ins afgreiddi stjórnarskrárdrögin á
sama fundi og greidd voru atkvæði
með þvi a láta Podgorny víkja úr
nefndinni
Laing snýr sér
að Norðmönnum
London, 26. maí. AP
TAKMARKA verður frekar
veiði norskra togara í brezkri
fiskveiðilögsögu vegna kvóta
sem Norðmenn hafa ákveðið
einhliða og mynda þar með
jafnvægi að því er Austen
Laing, leiðtogi samtaka
brezkra sjávarútvegsins,
sagði í dag.
Hann sagði, að erfiðleikar
brezka sjávarútvegsins
mundu aukast og afkoma
Ibúa Hull versna ef Efnahags-
bandalaginu tækist ekki að
komast að samkomulagi við
Norðmenn.
Hann sagði að svo gæti farið að
leggja yrði fleiri skipum og að atvinnu-
leysi mundi aukast meðal sjómanna og
starfsfólks i landi vegna norsku
kvótanna, sem fælu t sér verulega
aflaskerðingu. og ennfremur vegna
þess að EBE hefði ekki tekizt að ná
samkomulagi innbyrðis um kvótaskipt-
ingu.
Laing kallaði þetta óþolandi ástand
Hann kvaðst vel skilja að Norðmenn
væru orðnir uppgefnir á EBE, en kvað
það mikla ósanngirni að takmarka
veiðar Breta, sem hefðu orðið að hörfa
frá fjarlægum miðum og hefðu sýnt
mikla stillingu í þroskveiðum á Norð-
austur-Atlantshafi
Norðmenn hafa einhliða ákveðið
54.000 lesta þroskkvóta 1977.
Atlantshafsfiskveiðinefndin úthlutaði
Bretum I fyrra 98 000 tonna þorsk-
kvóta og megnið af aflanum var veitt
við Noreg
Þar sem EBE hefur enn ekki ákveðið
kvótaskiptingu aðildarlanda bandalags-
ins óttast Bretar stóraukna sókn fiski-
manna annarra EBE-landa.
Nýjar kröfur
tefja Berling
Laing
Frá Lars Olsen í Kaupmannahöfn
NÝJAR kröfur prentiðnaðarmanna
vaida því að dráttur verður á þvf að
samkomulagið i deilunni i útgáfu-
fyrirtækinu Berlingske Hus komist
til framkvæmda.
„Mjög alvarlegt ástand er komið
upp," segir K.B. Nielsen. fram-
kvæmdastjóri Berlingske Tidende.
Hann vildi þó ekki segja að viðræður
um einstök atriði samkomulagsins
hefðu farið út um þúfur.
Prentiðnaðarmenn krefjast þess að
Joop den Uyl vann
persónulegan sigur
Haag. 26. maí Reuter.
GERT er ráð fyrir því að Joop den
Uyl forsætisráðherra myndi nýja
miðvinstri stjórn í Hollandi eftir
þingkosningarnar sem voru mikill
persónulegur sigur fyrir hann.
Flokkur den Uyls, Verkamanna-
flokkurinn, bætti við sig 10 þing-
sætum og það er mesta fylgis-
aukning sem stjórnmálaflokkur hef-
ur fengið I kosningum I Hollandi I
hálfa öld.
28 þingsæti í stað 22 áður, en margir
smáflokkar lengst til hægri og vinstri
nánast þurrkuðust út.
Einna næstur var ósigur
kommúnista, sem misstu fylgi til
Verkamannaflokksins, líklega vegna
þess að þeir hafa orðið háðari Rússum.
Þeir hafa nú tvö þingsæti en höfðu sjö
áður.
Róttæki flokkurinn, samstarfsflokkur
den Uyl, beið einnig afhroð og hlaut
þrjú þingsæti í stað sjö áður. Þar með
verður ekki eins fast lagt að næstu
stjórn að hætta smíði kjarnorkuvera
1 1 flokkar verða á næsta þingi en
smáflokkar hafa aðeins 20 sæti í stað
38 áður Kjörsókn var 87.5% þrátt
fyrir aðgerðir Mólukkanna.
tá greidda orlofspeninga og þar með
verður nauðsynlegt að ráða aftur til
starfa nokkra þeirra 2 50 manna, sem
samið var um að sagt yrði upp
Talsmaður prentiðnaðarmanna seg-
ir, að þeir vilji fá viðbótargrein í samn-
inginn er tryggi að þeir 665 prentiðn-
aðarmenn sem verða endurráðnir fái
greitt það orlof sem þeir áttu inni þegar
útgáfan hætti 30 janúar.
Blaðamenn telja að Berlingske Tid-
ende gæti í fyrsta lagi komið út aftur 7.
til 8 júní ef aftur rofar til í viðræðun-
um.
Per Lindegaard ríkissaksóknari átti í
dag að taka afstöðu til þess hvort
ákæra skuli þá aðila sem sendu hótun-
arsímskeyti til aðstandenda þeirra
starfsmanna Berlingske Tidende sem
stóðu að útgáfu neyðarblaðsins sem
blaðið gaf út
B T. klúbburinn, starfsmannafélag
prentiðnaðarmanna. neitar því að hafa
staðið að hótunum en Jyllands-Posten
segir að þeir sem hafi sent skeytin hafi
verið formaður og varaformaður
klúbbsins, Poul Erik Hansen og Louis
Schandrup. o‘g Dan Lundrup. ritari í
landssambandi prentara
Þetta hefur ekki fengizt staðfest hjá
Hans Kloch lögreglufulltrúa sem
stjórnar rannsókninni og Lindegaard
rfkissaksóknara