Morgunblaðið - 27.05.1977, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977
ÓVÆNTUSTU úrslit ís-
iandsmótsins fram til
þessa er vafalaust öruggur
sigur nýliöa Þórs yfir Ak-
urnesingum, sem allt frá
byrjun hafa leitt mótið
með fullu húsi stiga og
höfðu þegar að þessum leik
kom ekki fengið á sig
mark. Fögnuðurinn var að
vonum mikill á Þórsvellin-
um á Akureyri f fyrra-
kvöld jafnt meðal liðs-
manna Þórs og áhangenda
þeirra, sem fjölmennt
höfðu á völlinn f góða veðr-
inu.
Þessi öruggi sigur Þórs 3:1 á
kannski eftir að verða liðinu dýr-
mætari en aðrir sigrar. Hann hef-
ur fært leikmönnum Þórs heim
sanninn um að þeir geta sigrað
jafnvel beztu liðin [ deildinni. Og
Baráttuviljinn
færði
Akurnesingum verður ieikurinn
væntanlega nægilegt umhugsun-
arefni. Sigrarnir koma ekki fyrir-
hafnarlaust og allra síst ef menn
telja sig búna að sigra fyrirfram.
Af malarvelli að vera er Þórs-
völlurinn ágætur en það hefur
sýnt sig enn einu sinni í þessu
íslandsnióti, að góð knattspyrna
verður trauðla leikin á möl. Það
er svo erfitt að hemja boltann
niður við jörð að þetta verða bara
langspyrnur og hlaup. Undirritað-
ur átti þess kost tveimur dögum
áður að sjá knattspyrnu leikna á
grasi í Vestmannaeyjum, þar sem
Þór
áttust við ÍBV og Valur og að bera
þann leik saman við leikinn á
Akureyri er eins og svart og hvltt.
Það verður að flokkast undir
skemmdarstarfsemi að láta mikil-
væga leiki íslandsmóts fara fram
á malarvelli.
Frá mörkunum og aðdraganda
þeirra var skýrt í blaðinu I gær og
verður ekki fjölyrt um þau hér
vegna þrengsla. Um leikinn er
það að segja, að hann var jafn i
fyrri hálfleik. Meiri barátta var I
Þórsurum en Skagamenn voru
leiknari og þeir sköpuðu sér
hættulegri tækifæri. Pétur Pét-
sigur
ursson komst tvívegis I dauðafæri
I f.h. en skaut I bæði skiptin yfir. í
seinni hálfleik drógu Þórsarar sig
aftur þrátt fyrir að þeir hefðu
vindinn I bakið og treystu á
skyndisóknir, sem vissulega báru
árangur. En fyrst og fremst var
það ódrepandi baráttuvilji, sem
færði þeim sigur.
Akurnesingar voru óánægðir
með dómarann, Eystein Guð-
mundsson, vildu fá tvær víta-
spyrnur og mótmæltu vltaspyrn-
unni, sem Þór fékk. Þetta var
mjög erfiður leikur að dæma,
boltinn á fullri ferð um völlinn og
Þótt ótrúlegt kunni að virðast þá fór knötturinn framhjá öllum skaranum F markteig FH og F netiS aS baki þeim. ÞaS var GFsli Torfason, lengst til hægri,
sem skoraSi þetta mikilvæga mark fyrir KeflvFkingana.
Baráttuglaðir Keflvíkingar
sigruðu2—1 íKaplakrika
MEÐ 2—1 sigri sínum yfir FH á Kaplakrikavellinum í Hafnar-
firði í fyrrakvöld eru Keflvíkingar nú komnir I forystu í 1.
deildar keppninni í knattspyrnu, og virðast óneitanlega til alls
Ifklegir. Verður ekki annað sagt en að lið þeirra hafi komið
geysilega á óvart, það sem af er þessu keppnistímabili, þar
sem búast hefði mátt við þvf að þær miklu mannabreytingar
sem orðið hafa hjá liðinu á skömmum tfma, myndu setja sinn
svip á það f sumar. En ungu mennirnir hafa rækilega sannað
nú þegar að þeir voru menn til að halda merkinu á loft, og vfst
er að taka má aftur allar spár um fall Keflvíkinga niður f 2.
deild að þessu sinni.
Ekki verður þó annað sagt en Kefl-
víkingar hafi verið heppnir að fara með
bæði stigin af Kaplakrikavellinum í
fyrrakvöld Tækifæri FH-inga voru
bæði fleiri og betri í þessum leik, og
var stundum næsta furðulegt hvernig
þeim tókst að klúðra þeim. Virtist
stundum meiri vandi fyrir FH-inga að
skora ekki en skora, eins og t.d þegar
Janus Guðlaugsson skaut himinhátt
yfir úr færi innan markteigs í fyrri
hálfleik og Jóhann Ríkharðsson skaut
yfir úr álíka færi í byrjun seinni hálf-
leiks Jafnvel óskabyrjun nægði FH
ekki f leiknum, en hana fengu þeir er
Janus Guðlaugsson skoraði úr vfta-
spyrnu þegar á 6 mínútu, eftir að
Óskar Færseth hafði handfjatlað knött-
inn inni f vftateig sfnum. Magnús V.
Pétursson, ágætur dómari þessa leiks,
virtist ekki sjá brot þetta, en Hannes Þ
Sigurðsson, sem var línuvörður lét það
ekki fram hjá sér fara og veifaði á það
Keflvíkingar jöfnuðu svo 1:1, nokkr-
um mfnútum síðar, en þá var dæmd
hornspyrna á FH. Tók Ólafur Júlíusson
spyrnuna og sendi beint á kollinn á
Karli Hermannssyni, sem skilaði knett-
inum vel frá sér f mark Hafnfirðing-
anna. Má að nokkru bóka mark þetta á
varnarmistök hjá FH, þar sem Karl var
algjörlega óvaldaður, en hann stóð vel
að sínu — kunni sitt fag
Á 32. mínútu skoraði svo Gfsli
Torfason annað mark Keflvíkinga, —
sigurmark leiksins. Áður var búið að
ganga á ýmsu, Viðar Halldórsson átti
t.d. skot í þverslá eftirað hafa einleikið
Texti. Steinar J. Lúðvíksson
Mynd: Kristinn Ólafsson.
upp allan völlinn og Janus skaut yfir
eftir að vera kominn inn í markteig
Keflvfkinga, sem fyrr segir.
Mark Keflvíkinga verður að skrifast
að verulegu leyti á markvörð FH-inga,
Hörð Sigmarsson. Bar það að þannig,
að einn félaga hans sendi knöttinn til
hans, en Hörður missti af knettinum og
varð að hindra Þórð Karlsson til þess
að hann næði ekki knettinum Hárrétt-
ur dómur Magnúsar V Péturssonar var
að dæma óbeina aukaspyrnu, rétt fyrir
framan mark FH-inga, sem sfðan röð-
uðu sér inn í markið Ólafur Júlfusson
velti síðan knettinum til Gísla Torfason-
ar, sem sendi hann rakleiðis gegnum
varnarmannaþvögu FH í markið
Um leikinn sem heild er það helzt að
segja að hann var hinn fjörugasti.
einkum þó fyrri hálfleikurinn, en þá
buðu bæði liðin, og þá sér^taklega FH,
upp á skemmtilega og vel útfærða
knattspyrnu Hafði FH lengst af góð
tök á leiknum, en ótaldar sóknarað-
gerðir þeirra strönduðu á Gísla Tofa-
syni, langbezta manni vallarins f þess-
um leik. Hann var bókstaflega allsstað-
ar, þar sem þörf var á í vörn Keflvfk-
inga, og lét engan framhjá sér fara Og
það sem meira var — Gísli reyndi
jafnan að byggja upp með spyrnum
sínum fram völlinn Það var hugsun á
bak við flest sem hann gerði
j seinni hálfleik var leikurinn þóf-
kenndari. Þá skiptu FH-ingar Ólafi
Danivalssyni inná, en hann lék ekki
fyrri hálfleikinn og þótti mörgum það
undarleg ráðstöfun. Að þessu sinni
ætlaði Ólafur sér oftast um of og ekki
kom jafnmikið úr leik hans og oft áður
Áberandi var einnig að flestir félagar
hans féllu í sömu gryfjuna Ákafinn að
jafna metin varð of mikill og þar með
fór yfirvegunin af leik FH-inga sem svo
auðveldaði Keflvíkingum vörnina
Bezta tækifæri hálfleiksins var er Ólaf-
ur Júlíusson skaut af löngu færi á
FH-markið um miðjan hálfleikinn, og
Framhald á bls. 21
EinkunnaolBBn
LIÐ FRAM: Árni Stefénsson 2, Traustí Haraldsson 2. Rafn Rafnsson 3,
Gunnar GuSmundsson 2, Kristinn Atlason 1. Sigurbergur Sigsteinsson 2.
Ágúst Guðmundsson 2, Kristinn Jörundsson 1. SumarliSi GuSbjartsson 1,
Ásgeir EIFasson 2. Eggert SteingrFmsson 2, Pétur Ormslev (VM) 3, GuSmund-
ur Baldursson (VM) 2.
LIÐ VÍKINGS: DiSrik Ólafsson 3. Ragnar GFslason 1, Magnús Þorvaldsson 2.
EirFkur Þorvaldsson 2, Kéri Kaaber 2. Helgi Helgason 3. Theodór Magnússon
2, Gunnar Örn Kristjánsson 2, ViSar EIFasson 3. Jóhannes Bárðarson 2,
Óskar Tómasson 3.
DÓMARI: Guðmundur Haraldsson 4.
LIO FH: HörSur Sigmarsson 1, ViSar Halldórsson 2, Pálmi Jónsson 2. Gunnar
Bjarnason 2, Jón V. Hinriksson 3. Ámi Geirsson 2, Þórir Jónsson 3, Helgi
Ragnarsson 1, Janus GuSlaugsson 3, Magnús Teitsson 2, Jóhann RFkharSs
son 2, Ólafur Danivalsson (varam.) t, András Kristjánsson (varam.) 1.
LIÐ ÍBK: Þorsteinn Bjarnason 3, GuSjón Þórhallsson 2. Óskar Færseth 2.
GFsli Grétarsson 2, GFsli Torfason 4, Sigurður Björgvinsson 3, Einar A.
Ólafsson 2, Ómar Ingvarsson 2. Karl Hermannsson 2, Ólafur JúlFusson 2,
Þórður Karlsson 1, Hilmar Hjálmarsson (varam) 1, Kári Gunnlaugsson
(varam.) 1.
DÓMARI: Magnús V. Pétursson 4.
ÞÓR: Rágnar Þorvaldsson 3, Oddur Óskarsson 2, SigurSur Lárusson 2,
Sævar Jónatansson 2, Gunnar AustfjörS 3, Pétur SigurSsson 3. Einar
Sveinbjörnsson 1, Helgi Örlygsson 1, Sigþór Ómarsson 3. Jón Lárusson 2,
Árni Gunnarsson 2.
ÍA: Jón Þorbjörnsson 2. Bjöm Lárusson 1. GuSjón ÞórSarson 2. Jóhannes
GuSjónsson 2. Jón Gunnlaugsson 2, SigurSur Halldórsson 3. Karl ÞórSarson
2. Jón Alf reSsson 2. Pétur Pétursson 3. Kristinn Björnsson 1, Árni Sveinsson
1. HörSur Jóhannesson (varam.) 2.
DÓMARI: Eysteinn GuSmundsson 3.
sum brotanna þannig að erfitt var
fyrir dómarann að ákveða á
sekúndubroti hvað dæma skyldi.
Það var því ekkert skrltið að dóm-
ar hans væru umdeildir en I
heildina kom Eysteinn vel frá
leiknum.
í STUTTU MÁLI:
Þórsvöllurinn á Akureyri, 25.
mal. íslandsmótið 1. deild, Þór —
Akranes3:l (1:1).
MÖRK ÞÓRS: Sigþór Ómarsson á
10. og 82. mínútu (víti) og Sigurð-
ur Lárusson á 65. mínútu.
MARK ÍA: Pétur Pétursson á 44.
mlnútu.
ÁMINNINGAR: Björn Lárusson,
Jóhannes Guðjónsson og Sigurður
Halldórsson Akranesi og Sigurð-
ur Lárusson Þór fengu allir að sjá
gula spjaldið hjá dómaranum.
ÁHORFENDUR: 831.
Texti:
Sigtryggur Sigtryggsson
Fyrsta
þrenna
íslands-
mótsins
Völsungur-KA 1:3
KA SIGRAÐI Völsung 3:1 í skemmti-
legum leik á Húsavík í fyrrakvöld.
Völsungar byrjuðu leikinn af ákafa
og strax á fyrstu mínútu leiksins
komst Hermann Jónasson innfyrir
vörn KA-manna og lék á markmann-
inn, en þá var honum brugðið illilega
án þess að nokkuð væri dæmt. Eftir
þetta jafnaðist leikurinn og á 15.
mínútu fengu KA-menn innkast upp
við endamörk. Boltanum var kastað
langt inn í vítateiginn, barst þar á
milli manna, uns Óskar Ingimundar-
son náði að skalla boltann f netið.
Strax minútu síðar skall hurð nærri
hælum við mark Völsunga er Gunnar
Blöndal komst i mjög gott færi, en
skaut í þverslá Það sem eftir var
hálfleiksins fengu bæði lið góð mark-
tækifæri, en tókst ekki að nýta þau
í síðari hálfleiknum hélst leikprinn
nokkurn veginn i jafnvægi, en KA
menn voru þó ívið meira með knöttinn
og náðu á tíðum mjög góðu samspili
Á 12. mínútu sendi Gunnar Blöndal
boltann fyrir markið þar sem Óskar var
í svipaðri aðstöðu og í fyrra skiptið og
skoraði annað mark sitt og KA í leikn-
um. Tfu minútum síðar var Óskar enn á
ferð og gerði sitt þriðja mark í leiknum
eftir sendingu utan af velli frá Sigbirni
Gunnarssyni.
Völsungar áttu síðan siðasta orðið í
leiknum skömmu síðar er Sigurður
Gunnarsson skoraði laglegt mark með
skoti frá horni vítateigsins
Segja má að þetta hafi verið leikur
hinna misnotuðu tækifæra Hann var
oft á tíðum mjög vel leikinn og
skemmtilegur á að horfa Beztu menn
KA voru Gunnar Blöndal og Sigbjörn
Gunnarsson, en Gísli Haraldsson var
einna beztur Völsunga. Hinn kunni
dómari Rafn Hjaltalin dæmdi þennan
leik og stóð sig frekar illa Hann stöðv
aði oft leikinn út af smávægilegum
brotum, en sleppti frekar að dæma á
þau sem stærri voru T.d sleppti hann
tveimur augljósum vítaspyrnum, sinni
á hvort liðið Húsvíkingar eru orðnir
leiðir á þvi að þeir dómarar, sem
dæma leiki á Húsavfk, skuli vera frá
Akureyri og ekki sizt þegar leikið er
gegn liði frá Akureyri _BA
Meistaramót í
kraftlyftingum
MEISTARAMOT Islands F kraftlyft
ingum verður haldið I anddyri
Laugardalshallarinnar á morgun og
hefst klukkan 14. Meðal keppenda
má nefna Óskar Sigurpálsson, sem
nú keppir fyrir ÍBV. Setti Óskar
nýlega góð íslandsmet i kraftlyft-
ingum og má reikna með enn betri
árangri á meistaramótinu. Alls eru
11 lyftingamenn skráðir til keppn-
innar. __ _____________
ÁRMANN
AÐALFUNDUR Körfuknattleiksdeildar
Ármanns verður haldinn föstudaginn
3 júní nk og hefst klukkan 20 í
félagsheimilinu. Venjuleg aðalfundar-
störf