Morgunblaðið - 27.05.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.05.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAl 1977 31 Víkingar rufu jafnteflismúrinn VÍKINGAR rufu jafnteflismúr undanfarinna leikja sinna með verðskulduðum sigri yfir slöku liði Fram I leik liðanna í 1. deild á Melavellinum á miðvikudagskvöldið. Eru Víkingar nú eina liðið I 1. deild, sem ekki hefur tapað leik. Það var vindsperringur og kuldalegt á Melavelli, er leikurinn fór fram og því vart hægt að búast við því, að leik- menn sýndu neina snilldartakta Vík- ingar voru betri aðilinn í leiknum og hafa þeir sennilega ekki leikið betur það sem af er þessu vori. Baráttugleði var ríkjandi hjá öllum leikmönnum og sóknarleikurinn var mun fjölbreyttari. Framarar, sem margir hafa spáð vel- gengni í sumar, voru óvenju daufir í þessum leik og áttu aldrei minnstu möguleika á sigri. Lítið um marktækifæri Það gerðist fátt markvert til að byrja með í leiknum, þar sem sóknarleikur- inn fjaraði út við vítateigana. Þess í stað sýndu leikmenn löng og mikil spörk, sem ekki sköpuðu neina hættu. Eftir um 20. mín. leik fóru Víkingar að ná betri tökum á leiknum, enda voru þeir mun fljótari á knöttinn Þeir áttu ágæt tækifæri á 26. og 29. mín. í fyrra skiptið var það Viðar Elíasson, sem ekki hitti markið í góðu færi, en Óskar Tómasson í það síðara. Framarar áttu ágætt tækifæri á 25 mín. eftir langt innkast Rafns R:fnssonar, en Víkingar björguðu naumlega í horn. Valurog KR mætastá gras- inu íLaugardal FYRSTI knattspyrnuleikurinn á grasi í Reykjavfk f ár verður á Laugardalsvellinum í kvöld. Mæt- ast þá Reykjavfkurliðin Valur og KR og hefst leikur þeirra klukk- an 20. Valsmenn eru óneitanlega sigurstranglegri f þessum leik, en þeir hafa unnið tvo sfðustu leiki sína eftir tvo tapleiki f upphafi mótsins. KR-ingar hafa hins veg- ar ekki enn fundið sig f leikjum mótsins, en náðu þó jafntefli gegn Vfkingi f síðasta leik. Fimleikanámskeið NÁMSKEIÐ fyrir unglinga á aldrinum 8—14 ára I fimleikastiganum verður haldið á Laugarvatni dagana 1.,— 8. júll nk Verður kennslan miðuð við 1.— 3. þrep Kennarar verða þau.Mar- grét Jónsdóttir og Þórir Kjartansson. Umsóknir um námskeiðið þurfa að berast sem allra fyrst til skrifstofu FSÍ íþróttamiðstöðinni Laugardal Fram — Víkingur0:1 Texti Helgi Dantelsson Mynd: Kristinn Ólafsson. Á 39 min skoraði Viðar Elisson fyrir Viking og var vel að þvi marki unnið Óskar Tómasson lék upp hægri kantinn og gaf vel fyrir markið til Theodórs Magnússonar, sem lét knött- inn renna til Viðars, sem var í góðu færi, enda skoraði hann af öryggi án þess að Arni Stefánsson ætti nokkra mög uleika á að verja Siðari hálfleikur Víkingar náðu fljótt undirtökunum i síðari hálfleik, enda léku þeir þá undan þægilegum vindi. Guðmundur Baldursson varamarkvörður Fram kom inná hálfleik fyrir Árna Stefánsson átti I nokkrum erfiðleikum I byrjun leiksins. er hann missti knöttinn frá sér, en allt bjargaðist á síðustu stundu. Theodór Magnússon var nærri að auka forskot Vikings á 64. mín, en hann hitti ekki markið i góðu færi Þá átti Viðar ágætt tækifæri og Gunnar Örn átti hörkuskot ámarkið beint úr aukaspyrnu af 40 m færi, en Guð- mundur Baldursson varði Þá var Eirík- ur i góðu færi á 79 min , en hann hitti ekki markið. Á 80 mín. komst Ágúst einn innfyrir vörn Vikings, en hann missti knöttinn of langt frá sér, þannig að Diðrik náði að góma knöttinn LiSin Erfitt er að gera uppá milli leik- manna Víkings að þessu sinni, þvi flestir áttu þeir ágætan leik. Sem heild unnu þeir vel Þó voru þeir Óskar Tómasson, Viðar Eliasson, Helgi Helgason og Diðrik Ólafsson bestir Hjá Fram voru það cngu mennirnir Rafn Rafnsson og Pétur Ormslev, sem kom inná í sfðari hálfleik, sem voru bestir. Ásgeir Eliasson lék nú aftur með og sýndi hann oft ágæt tilþrif Leikinn dæmdi Guðmundur Haralds- son og gerði það vel Í STUTTU MÁLI: íslandsmót t deild. 25 maí — Mela- völlur. FRAM — VÍKINGUR 0—1 (0—1) Markið: Viðar Eliasson Vikingi á 39 min Gul spjöld: Sigurbergur Sigsteinsson. Fram Helgi Helgason. Vikingi Aðalfundur Eimskipafélags íslands Framhald af bls. 14 sjómilur Skipin verða afhent félag- inu um miðjan júní. Þá eru samn- ingar um kaup á tveimur skipum til viðbótar frá sama skipafélagi komnir á lokastig. Eru það systurskip hinna tveggja og eru þau bæði smiðuð á árinu 1974 Þá hefur félagið fest kaup á m.s. Hofsjökli, sem félagið hefur haft á leigu frá 1969 og verður það afhent félaginu i júnilok Gömul skip seld. Tvö elztu skip Eimskipafélagsins m.s Lagarfoss, sem smiðaður var árið 1949, og m s Fjallfoss. sem smíðaður var árið 1954 hafa nú verið sett á sölulista og verða seld, fáist viðunandi tilboð í skipin. Bílainnflutningur. Þá ræddi formaður Eimskipa- félagsstjórnarinnar um bílainnflutn- ing og það að sumir bílainnflytj- endur teldu sér hag i því að kaupa skip, sem ætlað er sérstaklega til bilaflutninga og isfiskflutninga. Hann kvað viðræður hafa farið fram milli þessara aðila og Eimskipa- félagsins, vegna hugsanlegrar þátt- töku Eimskips f kaupum og hefðu þær orðið neikvæðar Halldór sagði að viðtækar ráðstafanir hefðu verið gerðar af hálfu félagsins til þess að bæta meðferð á bilum i flutningum og hefði meðferð bilanna batnað verulega. Þá minntist hann á ryð- varnarstöð félagsins. sem rkveðið hefði verið að reisa i september 1975. Hann kvað hana mjög full- komna og hafa tekið til starfa á lóð félagsins við Sigtún. Orlofsaðstaða fyrir starfsfólk. Á árinu 1 973 festi félagið kaup á Reynivöllum II í Suðursveit með hliðsjón af því að þörf væri fyrir starfsfólk félagsins á aðstöðu til orlofsdvalar Með tilliti til mikillar vegalengdar I suðursveit báru sam- tök starfsmannanna fram ósk við félagsstjórnina og forstjóra að fest yrði kaup á landi skemmra frá Reykjavík Til þess að mæta þessum óskum starfsfólksins hefur félagið nú fest kaup á Lundarhólma í Borgarfirði. Þá kom fram i ræðu formanns. að bygging Oddeyrarskála yrði lókið I lok þessa árs, en við það skapast möguleikar til þess að hægræða enn vöruflutningum til landsins og þjón- usta við Akureyringa á að batna svo og við Norðlendinga yfirleitt. Útiit og horfur. Þá sagoi stjórnarformaður Eim- skipafélagsins, Hálldór H. Jónsson: „í dag eru ýmsar blikur á lofti og erfitt að spá um afkomu þessa árs. Samningar milli vinnuveitenda og launþega eru lausir, yfirvinnubann hefur verið allan þennan mánuð og enn er óljóst. hvenær samningum lýkur. Óljóst er hvort verkföll skella á og hve lengi þau kunna að standa En eitt er alveg öruggt, og það er að þeir samningar, sem gerðir kunna að verða, hafa mjög verð- bólguhvetjandi áhrif. Laun munu hækka verulega og ef ekki fæst jafnframt leyfð eðlileg hækkun farm- gjalda, hlýtur rekstur Eimskipa- félagsins aðstefna í taprekstur. Það er ekki nóg að hafa mikil umsvif, ef reksturinn ber sig ekki Við skulum þó vona. að stjórnvöld heimili að farmgjöld megi haldast i hendur við eðlilegan tilkostnað Þó að ýmsar blikur séu á lofti. þá hefur það skeð fyrr. Áfram verður þvi stefnt að endurnýjun skipastóls félagsins og áfram verður haldið uppbyggingu á vöruskemmum og annarri aðstöðu. sem félaginu er nauðsynlegt til að komið sé við ýtrustu hagræðingu og til að tryggja sem bezt rekstur félagsins Það er enginn uppgjafartónn i forráða- mönnpm félagsins. þó að þoka sé framundan." Stjórnarkjör. Fram að aðalfundi áttu sæti i stjórn Eimskipafélags íslands h.f., þeir: Halldór H. Jónsson. formaður. Ingvar Vilhjálmsson, varaformaður, Thor R Thors, ritari og Axel Einars- son gjaldkeri, Aðrir i stjórninni voru þeir Birgir Kjaran, Pétur Sigurðsson Hallgrimur Sigurðsson var skipaður í stjórnina af rikisstjórninni. Stjórnin kaus Indriða Pálsson forstjóra til þess að taka við af Birgi Kjaran, er hann lézt hinn 12. ágúst siðastlið- inn. A fundinum i gær átti að kjósa 3 menn í stjórnina til næstu tveggja ára — í stað Halldórs H. Jónssonar, Ingvars Vilhjálmssonar og Péturs Sigurðssonar og einn mann til eins árs í stað Indriða Pálssonar Þeir voru allir endurkjörnir sumarvorum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.