Morgunblaðið - 27.05.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977
19
Ragnheiöur Hákonar-
dóttir—Minningarorð
Fædd. 16. ágúst 1901
Dáin. 19. mai 1977
í DAG er til grafar borin Ragn-
heiður Hákonardóttir fyrrum
húsfreyja frá Reykjarfirði við ísa-
fjarðardjúp.
Hún var fædd þann 16. ágúst
1901 að Reykhólum á Barða-
strönd. Hún var dóttir þeirra
sæmdarhjóna Arndísar Bjarna-
dóttur og Hákonar Magnússonar
bónda þar. Þau hjón áttu margt
barna, sem urðu að mörgu leyti
eftirtektarverðar manneskjur
sakir myndarskapar og dugnaðar
í lífi sinu og lyndiseinkunna
sinna sem einkenndust af skap-
ríki og festu og alveg sérstöku
trygglyndi. Nú eru aðeins tvö
þeirra Reykhólasystkina á lífi.
Oddfriður hjúkrunarkona, sem
dvalið hefur mestan sinn aldur í
Noregi og lengstum búið i Ála-
sundi, en síðustu árin verið öðru
hvoru hér heima um styttri eða
lengri tíma hjá Ragnheiði heit-
inni systur sinni og verið henni
geysimikil stoð i erfiðum veikind-
um. Hitt systkinanna er Kristinn
fyrrv. yfirlögregluþjónn í Hafnar-
firði.
Snemma fór Ragnheiður úr
föðurgarði, því hún giftist eftirlif-
andi manni sínum Salvari Ólafs-
syni árið 1921 eða aðeins um tví-
tug að aldri.
í Reykjarfirði var búið rausnar
búi. Þar skorti ekki á röggsemi
við stjórnun innanhúss hjá Ragn-
heiði og Salvar var annálaður at-
hafnamaður og dugnaðarforkur
hinn mesti.
Allt var því stórt í sniðum á
þeim bæ og blómgaðist líf þeirra í
ánægjulegum samskiptum við
góða granna, sem sumir hverjir
voru miklir persónuleikar og
sömi sveitar sinnar.
Þau Reykjarfjarðarhjón áttu
sex börn: Þessi eru á lífi: Gróa,
ekkja Halldórs Víglundssonar.
Hún býr í Reykjavik. Hákon nú
bóndi í Reykjarfirði, kvæntur
Steinunni Ingimundardóttur.
Sigríður gift Baldri Bjarnasyni
bónda i Vigur. Arndís gift Júlíusi
Jónssyni hreppstj., Norðurhjá-
leigu, V-Skaft. Ólafía gift Baldri
Vilhelmssyni presti i Vatnsfirði.
Hér verður nú farið fljótt yfir
sögu.
Þegar Hákon Salvarsson tók við
búi i Reyðarfirði og tengdadóttir-
in hafði tekið við húsmóður-
störfunum má segja að nýr þáttur
hefjist í lífi Ragnheiðar.
Hún fékk tækifæri til þess að
sinna gömlu hugðarefni. Það var
að stunda störf við menntun ung-
menna. Við slíkt starf naut hún
sín ágætlega. Það vakti athygli
hve stjórnsöm hún var og áreiðan-
lega lærðu margir nemendur að
meta verk hennar og virða og
skilja hve mikið i fágaðri fram-
komu þeir lærðu við að umgang-
ast hana, bæði sem ráðskonu i
Reykjanesskóla og við hannyrða-
kennslu, en í þvi efni var hún
frábær kennari. Hún var kröfu-
hörð og mátti vera það og menn
fundu að hér fylgdi hugur máli.
Mannræktarstarfið var það sem
henni féll bezt. Á þessum árum
dvaldi hún nokkrum sinnum að
sumarlagi hjá Oddfríði systur
sinni i Noregi og hafði af því
ómetanlega ánægju.
Nokkrum sinnum á þessum ár-
um þurfti hún að gangast undir
hvern uppskurðinn á fætur öðr-
um og þar kom, að hún þurfti það
mikið að vera undir læknishendi,
að hún taldi sig þurfa að setjast
að hér syðra.
Það var gott að koma á Laugar-
læk 1 til Ragnheiðar.
Þar munu bæði skyldir henni
og óskyldir hafa notið þess að
finna hve hún fagnaði að fá gesti.
Hún vildi að gestum sinum liði
vel og hún kunni þá list að hlusta.
Hún var það kurteis og hógvær,
að oft á tíðum lagði hún kannski
ekki svo mikið til málanna, þegar
aðrir létu gneista frá sér, en það
var ekki að því að hún væri eigi
fullgild í samræðurnar. Gestirnir
skyldu fyrstir fá að láta ljós sitt
skína.
Oft brosti hún þá, þegar menn
sögðu spekingslega frá sjálfsögð-
um hlutum og hafði góðlátlegt
gaman af enda var kímni og skop-
skyn henni eðlislægt. Ég tel að
hún hafi verið glöð í hjarta, þótt
yfirbragðið væri oftast alvarlegt.
Já, þær hverfa nú öðum af
sjónarsviðinu hinar svokölluðu
aldamótamanneskjur og mikill er
sjónarsviptirinn af þeim.
Dauðanum fylgir ávallt tregi og
söknuður, þótt hinn látni skilji
eftir sig ljúfar minningar og eng-
um komi endalokin á óvart.
Nú er þessi góði fulltrúi alda-
mótamanna horfin frá okkur.
Ragnheiður var fönguleg kona,
sem bar höfuðið hátt. Hún var
stolt og átti sér hugsjón. Hún bar
djúpa virðingu fyrir heiðarleika
og mannhelgi og i umgengni við
hana fann maður, að hjá henni
tókst illri hugsun aldrei að festa
rótum. Hún var trúuð kona, og
! vitanlega veitti það henni mikinn
styrk, þegar veikindi og síðar erf-
itt dauðastríð fór í hönd.
Hún tók líka endalokunum af
fullkomnu æðruleysi og i sátt við
allt og alla eins og slikar mann-
eskjur alltaf gera. Það var unun
að sjá hve natnir og umhyggju-
samir hennar nánustu voru henni
i dauðastríðinu.
Um leið og ég og fjölskylda min
þakka fyrir að hafa verið svo
heppin að kynnast þessari ágætu
konu, sem Ragnheiður var, þá
vottum við ástvinum hennar sam-
úðar.
Megi minningin um þessa göðu
konu lengi lifa.
(H.M.)
Þann 19. maí s.l. lést frú Ragn-
heiður Hákonardóttir fyrrum
húsfreyja í Reykjarfirði við ísa-
fjarðardjúp. Haustið 1966 var
Ragnheiður ráðin handavinnu-
kennari við Héraðsskólann i
Reykjanesi, sama haust og undir-
ritaður tók við skólastjórn þess
skóla, og hófust þá okkar kynni.
Ragnheiður kenndi til vors 1972
er hún lét af störfum fyrir aldurs
sakir. Ekki hafði Ragnheiður
kennarapróf, en fulla þekkingu
og vald hafði hún á þeirri náms-
grein sem hún kenndi ásamt þeim
eiginleikum sem kennurum eru
nauðsynlegir en ekki verða lærðir
í skólum svo sem þolinmæði,
INTJK til Noregs
LEIKFLOKKUR Þjóðleikhússins
sýnir leikritið Inúk á Lista-
hátfðinni, í Björgvin dagana
1.—6. júní n.k. Fleiri íslendingar
verða þar á ferðinni því að tón-
listarfólk héðan tekur þátt f
hátfðinni.
Ráðgert er að sýna Inúk á
Alþjóðaþingi esperantista i
Reykjavík í byrjun .ágúst í sumar,
og verður leikið á esperantó.
Verður þetta í fyrsta skipti sem
flokkurinn leikur Inúk á öðru
máli en íslenzku.
festu og myndugleik. Hún átti
auðvelt með að vekja áhuga nem-
enda á viðfangsefni hverju sinni
og leiða þá til jákvæðra starfa.
Þar kom fram hin mikla reynsla
sem hún hafði við að stjórna stóru
heimili, frá þeim tíma er hún og
maður hennar bjuggu stórbúi í
Reykjarfirði. Skólastarfi hér var
mikil blessun að njóta starfs-
krafta hennar og ótaldir eru þeir
nemendur er áttu hana að trúnað-
armanni og vini og löðuðust að
henni vegna góðleika og hlýju er
var svo ríkur þáttur f skapgerð
hennar og framkomu. Ragnheiður
var einn af þeim einstaklingum
sem seint gleymast og lærdóms-
ríkt var að kynnast. Lífsreynsla
Ragnheiðar hafði veitt henni göða
þekkingu á blæbrigðum mann-
legra samskipta. Þannig var
Ragnheiður góður ráðgjafi þeim
er til hennar leituðu hvort það
voru nemendur eða samstarfs-
menn eins og undirritaður er oft
þáði góð ráð hjá henni. Síðustu
kennsluár sín í Reykjanesi gekk
Ragnheiður ekki heil til skógar.
Þó kvartaði hún aldrei og ekki
var hún frá vinnu vegna veikinda,
heldur stundaði starf sitt af þeirri
stöku samviskusemi sem er ein-
kennandi fyrir svo marga af
hennar kynslóð. — Frú Ragnheið-
ur er nú horfin af sjónvarsviðinu
en minningar um mæta konu
munu geymast.
Ég og fjölskylda min sendum
eiginmanni Ragnheiðar, Salvari
Ólafssyni, og börnum þeirra
hjóna, barnabörnum og öðrum að-
standendum, okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Kristmundur Hannesson.
Það passar fiá